Tíminn - 03.07.1965, Side 2
LAUGARDAGUR 3. júlí 1965
TÍMINN
NTB-Salgon
Bandarískar
flugvélar sprengdu í dag í loft
upp mikla olíubirgðastöð, um
5 kílómetra frá höfuðborg N.-
Vietnam, Hanoi. Áður höfðu
Bandaríkjamenn dreift flu.gmið
um, þar sem sprengj'uárásim
ar voru boðaðar og að ráðist
yrði á önnur iðnaðarfyrirtæki
á næstunni. Gífurlegur eldur
kom upp og stóðu eldsúlur upp
í 60 m hæð, en reykjarmökkur
inn var meira en 3500 m á hæð.
Austur-þýzk yfirvöld birtu
f dag lista yfir 180 manns, sem
stóðu framarlega í nazist?
flokknum á stríðsárunum, en
skipa nú mikilvægar stöður í
Vestur-Þýzkalandi. Prófessor
Albert Norden, áróðursmeistari
ríkisins sagði, að bráðlega yrði
birt opinberlega ,,Brún bók“,
með nöfnum margra núverandi
ráðherra og opinberra starfs
manna, sem á Hitlers-tímabil
inu stóðu framarlega í flokki
nazista.
NTB-Bonn — Tveir austur-þýzk
ir vatnabátar voru stöðvaðir á
leið inn á vestur-þýzkt yfirráða
svæði. Stendur stöðvunin í sam
bandi við ákvörðun austur-
þýzkra yfirvalda um, að þau
ein gefi út farseðla en vestur-
þýzk yfirvöld viðurkenna ekki
þann rétt austur-þýzkra aðila.
NTB-London — Utanríkisráð
herra Breta, Mieliael Stewart
hefur þegið boð ungverska utan
ríkisráðherrans, Janos Peter
1P að koma í heimsókn til
Ungverjalands, að því er segir
í frétt frá Lundúnum I dag.
NTB-Korfu — Læknar Onnu
Maríu, Grikklandsdrottningar
sögðu í dag, að ekki væri lík-
legt, að hún eignaðist barnið
fyrr en á mánudag. Frá hirð
inni var tilkynnt, að heilsa
drottningar væri ágæt og ekki
væri nein ástæða til áhyggna,
þótt lengur liði til fæðingar,
en búizt var við fyrr í vikunni.
NTB-Lacal — Sjö ungar konur
hafast nú við í helli um 100
metra undir yfirborði jarðar
nálægt Lacave í Suður-Frakk-
landi. Voru þær hinar brött
ustu í dag og spauguðu við tal-
Stöðvarmenn uppi á yfirborði.
Ætla þær að dvelja í hellinuin
í 15 daga og er aðaltilgangur
dvalarinnar að rannsaka. hver
áhrif það hefur á konur. sem
aldrei hafa sézt áður og eru
af ólíkum uppruna, að dvelja
svo lengi saman í algerri ein-
angrun.
I
NTB-Genf. — í dag kom til
harðrar orðasennu milli full
trúa Sovétríkjanna og Banda
ríkjanna í Fjárhags- og félags
málanefnd Sameinuðu þjóð-
anna, út af Vietnamdeilunni og
ástandinu í Dominikanska Lýð
veldinu.
Tillögur um breyting-
ar á laxveiöilögunum
Reykjavík, föstudag.
Á Skúlatorgi stendur nú til
sýnis ný gerð af sumarbústöð
um, sem er mjög nýstárleg í
útliti. Þessi gerð er seld ósam
sett, en framleíðslan hefur
samt ekki hafizt enn, og mun
ekki býrja fyrr en vitað verður
hvort grundvöllur sé fyrir
slíkri framleiðslu hér.
Bústaðurinn er 15 ferm. á
stærð og kostar 97 þús. kr., en
hann er þannig gerður að eig
endur hans gætu hæglega
stækkað hann ef þörf krefði
í framtíðinní. Með hverjum ó
samsettum bústað fylgir teikn
ing og leiðarvísir, sem skýrir
frá hvernig á að setja hann
saman. Veggir, gólf og þak eru
úr tvöföldu byrði. Einangrun
í gólfi er plast, en í veggjum
og loftí er alúmínpappír. í risi
eru svefnstæði fyrir tvo. Kaup
endur verða að greiða flutn-
ingskostnað, en sökklar fylgja
í kaupverðinu. Fasteignaval sér
um söluna, en framleiðandi er
Erlendur Magnússon, sem og
teiknaði bústaðinn.
i vm
ÍSLENZK AÐSTOÐ VIÐ VAN-
ÞRÓUÐ RÍKI UNDIRBÓIN
Á síðasta þingi Æskulýðssam-
bands íslands var einróma sam-
þykkt, að samtökin skipuðu nefnd
er starfi að framkvæmd „herferð-
ar gegn hungri" (Freedom from
Hunger Campaign), en hún fer
fram um allan heim á vegum Mat-
væla- og landbúnaðarstofnunar
Sameinuðu þjóðanna (Food and
Agricúlture Organisation). Skal
nefndin starfa að fjársöfnun hér
á landi til ákveðins verkefnis í
þróunarlandi, er ákveðið verður í
sameiningu af hinni íslenzku
framkvæmdanefnd HGH og Mat-
væla- og landbúnaðarstofnun Sam-
Útsvarsstiginn
reiknaður út .
og f jölritaður
Reykjavík, föstudag. — Sam-
band íslenzkra sveitarfélaga hefur
látið reikna út og fjölrita útsvars-
stiga til notkunar við álagningu
útsvara samkvæmt þeim breyting-
um, sem gerðar voru á lögum um
tekjustofna sveitarfélaga á sein-
asta Alþingi.
Stigarnir eru reiknaðir út í
skýrsluvélum rikisins og Reykja-
víkurborgar en offsetfjölritaðir í
Letri h.f. Reiknuð eru eignaútsvör
milli 40.000.00 og 250.000.00 krón-
ur og tekjuútsvör milli 35.000.00
og 395.00S.00 krónur miðað við
nettótekjur að frádregnu tekjuút-
svari s. 1. árs. Ennfremur útsvars-
stigi félaga milli 10.000.00 og
150.000.00 krónur.
Útsvarsstigarnir hafa verið
sendir öllum sveitarstjórnum og j
má þá búast við, að álagning út- j
svara fari fram næstu daga í flest-
öllum kaupstöðum og hreppum
landsins.
einuðu þjóðanna. Nefndinni til
aðstoðar starfar samstarfsnefnd,
sem skipuð er einum fulltrúa frá
hverju aðildarsambandi ÆSÍ.
Síðast liðið haust skipaði ÆSÍ
undirbúningsnefnd til þess að at-
huga möguleika á því, að samtök-
in tækju þátt í alheimsbaráttu
þessari. í nefndina var skipaður
einn fulltrúi frá hverju hinna
pólitísku æskulýðssambanda, þeir
Sigurður Guðmundsson, sem var
formaður nefndarinnar, Elías S.
Jónsson, Magnús Jónsson, Ragn-
ar Kjartansson og auk þess Örlyg-
ur Geirsson úr stjórn ÆSÍ.
Á þinginu var samþykkt að
sömu menn skyldu eiga sæti í
fyrstu framkvæmdanefnd HGH,
og má þvi segja, að nefndin hafi
starfað óslitið um 8 mánaða skeið
að undirbúningi þeirra aðgerða,
sem fyrirhugaðar eru næsta haust.
Nú hefur nefndin opnað skrif-
stofu að Fríkirkjuvegi 11 og ráð-
ið framkvæmdastjóra, Jón Ásgeirs
son. Sími nefndarinnar er 14053.
Hingað til lands er væntanleg-
ur hr. Kjeld B. Juul fulltrúi frá
Evrópudeild HGH, til viðræðna
við hina íslenzku HGH-nefnd og
fleiri aðila. — Ávarp frá aðilum
samstarfsnefnda birtist á öðrum
Tillögur hafa verið lagðar fram
til breytinga á laxveiðilögunum.
Þessar upplýsingar komu fram á
aðalfundi Landssambands veiðifé
laga, sem haldinn var fyrir nokkru.
Aðalfundurinn gerði ákveðna sam
þykkt þar sem skorað er á Al-
þingi og ríkisstjórn að auka til
muna starfsemi í þágu veiðimála.
Aðalfundur landssambandsins,
sem haldinn var í Borgarnesi 20.
júní s.l. sátu fulltrúar veiðifélaga
úr þremur landsfjórðungum, þrjú
ný veiðifélög gengu I sambandið á
fundinum. Þórir Steinþórsson, for-
maður Veiðimálanefndar greindi
frá tillögum Veiðimálanefndar og
veiðimálastjóra um breytingar á
laxveiðilöggjöfinni. Þór Guð-
jónsson, veíðimálastjóri, flutti er-
indi um A'tand og horfur í veiði
málunum.
Eftirfarandi samþykkt var gerð
á fundinum:
„Þar sem ræktun og veiði göngu
fiska er sívaxandi og arðbær þátt
ur í þjóðarbúskap íslendinga, álykt
ar aðalfundur Landssambands
Veiðífélaga, haldinn í Borgarnesi
20. 6. 1965 að skora á ríkisstjóm
og alþingi:
1. að veita það ríflegt fé til
Veiðimálastofnunarinnar að hún
geti sinnt aðkallandi verkefnum í
rannsóknar- og upplýsingaþjónustu
á viðunandi hátt.
2. að séð verði fyrir, að fé sé
fyrir hendi til að styrkja nauðsyn
lega fiskvegagerð og veiðieftirlit.
3. að ríkisvaldið styðji með lög
um og hagkvæmum lánum eldís
stöðvar fyrir nytjafisk.“
Kaus fundurinn þrjá menn þá
Jörund Brynjólfsson, Kaldaðarnesi
Guðmund Magnússon, Leirvogs-
tungu og Haldór Jónsson, Leys-
ingjastöðum, til þes að fylgja til-
lögunni eftir til landbúnaðarráð-
herra og fjármálaráðherra. ,
Stjórn Landssambands veiðifé-
SVANUR LEIKUR
Á AUSTURVELLI ,
Lúðrasveitin Svanur leikur á;
Austurvelli á sunnudaginn klukk-
an 3. Stjórnandinn er Jón Sigurðs-1
son trompetleikari.
laga var endurkjörín, en í henni
eiga sæti Þórir Steinþórsson, skóla
stjóri, Reykholti, formaður, Hinrik
Þórðarson, Útverkum, og Óskar
Teitsson, Víðidalstungu.
120 þúsund komu
inn í Pakistan-
söfnunina.
Fjársöfnun Hjálparsjóðs Rauða
kross íslands til aðstoðar bágstödd
um í Austur-Pakistan er nú lokið.
Loka uppgjör fyrír köfnunina er
ekki enn fyrir hendi, þar sem upp
gjör hefur ekki borizt ennþá frá
nokkrum Rauða kross deildum ut
an af landi, en hjálparsjóður R.K.Í.
hefur nú þegar sent samtals kr.
120.000, — til Dacca.
Rauði kross íslands Þakkar fyrir
hönd hjálparsjóðsins fyrir þá góðu
aðstoð sem bæði fyrirtæki, starfs
hópar og einstaklingar veittu söfn
uninni.
GISTING AÐ
LÖNGUMÝRI
Í SUMAR
FB-Reykjavík, fimmtudag.
Um næstu helgi verður
byrjað að taka á móti gest
um til gistingar að Löngu-
mýri. Hér verður ekki um
venjulegan hótelrekstur að
ræða, en þó fá næsturgestir
morgunmat, ef þeir vilja.
Rúm eru fyrir 20—25 gesti
en auk þess verður hægt að
fá svefnpokapláss, og fær
fólk að búa með eigin ferða
útbúnað á staðnum. Næg
tjaldstæði eru á Löngumýri.
Það munu vera tveir hús-
mæðrakennarar, sem standa
fyrir þessum rekstri í sum- |
ar.
Báftir vinningarnir sóttir
í happdrætti Krabbameinsfélags
ins voru báðir vinningsmiðarnir
seldir í Reykjavík. Iðnaðarmaður
hér í bænum keypti miða nr.
32381 og hreppti þar með bif-
reið, en sá, er fékk miða nr. 26201
og þar með hjólhýsi, sendi miðann
til félagsins ásamt svohljóðandi
bréfi: „Hér með sendist yður
happdrættismiði vegna vinnings í
happdrætti yðar á hjólhýsi. Er
mér kært að senda félaginu þetta
sem gjöf fyrir kærleiksríkt og
fórnfúst starf á liðnum árum“.
Skoðunarferðir um Mý-
vatnssveit og nágrenni
Sunnudaginn 20. júní s. 1. hóf-
ust reglubundnar skoðunarferðir
um Mývatnssveit og nágrenni.
Lönd og Ieiðir, Akureyri, standa
fyrir ferðum þessum í samvinnu
við Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit.
Allar ferðirnar hefjast við Hótel
Reynihlíð. Um helgar eru tveggja
og fjögurra tíma ferðir um Mý-
vatnssveitina. Eru þá skoðaðir þar
undir leiðsögu kunnugra manna
allir þekktustu staðirnir, eins og
Dimmuborgir, Námaskarð, Grjóta
gjár o. fl.
Á virkum dögum er síðan farið
í lengri dagferðir. Á þriðjudögum
er farið niður með Jökulsá á Fjöll
um að vestan og stanzað við Detti-
foss, Hólmatungur, Hljóðakletta
og Ásbyrgi og síðan til baka upp
með ánni að austan. Er leiðin með
fram ánni að vestan mjög sér-
kennileg og skemmtileg.
Á miðvikudögum og föstudög-
um er farið upp með Jökulsá allt
upp að Herðubreiðarlindum og
síðan áfram inn í Öskju. Þar eru
, skoðaðir gígarnir og hraunið frá
| gosinu 1961, en ennþá er þar mik-
i ill hiti í jörðu og gufan rýkur úr
i gígborgunum. Einnig verður far-
| ið inn að Öskjuvatni og Víti.
I Framhair) » '2 *iðu
KJÖRINN PRESTUR
STÓRANÚPS-
PRESTAKALLI
Prestskosning fór fram í Stóra-
núps-prestakalli í Árnesprófasts-
dæmi sunnudaginn 20. júní s. 1. og
fór talning atkvæða fram í skrif-
stofu biskups 28. júní s. 1. Á kjör-
skrá voru 360 manns en 204 kusu.
Umsækjandi var aðeins einn. séra
Bernharður Guðmundsson, áður
prestur í Ögurþingum. Hlaut hann
184 atkvæði, en 20 seðlar voru
auðir. Kosningin var því lögmæt.
(Frá skrifstofu biskups).