Tíminn - 03.07.1965, Side 7
7
liAUGAKDACfUR 3. júlí 1965
TIMINN
NÝJAR ERLENDAR BÆKUR
The Truce. Höfundur: Primo
Levi. Útgefandi: The Bodley
head 1965. Verð 21/-.
Þessi bók er þýdd úr ítölsku
af Stuart Woolf. Hún kom fyrst
út á Ítalíu 1963. Höfundur er
fæddur í Túrinó 1919. Hann er
efnafræðingur, var tekinn hönd
um og fluttur til Auschwltz
snemma árs 1944 ásamt ítölsk-
um Gyðingum. Hann setti sam-
an bók um reynslu sína í fanga-
búðunum, sem heitir í ensku út-
gáfunni „If This Is a Man.“ f
þessari bók segir höfundur frá
heimferðinni, sem hefst einn
vetrarmorgun árla. Og heimferð
in tekur átta mánuði. Höfund-
ur flækist um Pólland, Rúss-
land, Rúmeníu, Ungverjaland,
Austurríki og loks heim. Á þess
ari ferð kynnist höfundur f jölda
fólks af sundurleitustu þjóðem-
um, sem er eins og hann á
leiðinni heim til sín, og mörg-
um þeirra verður sú leið held-
ur en ekki löng. Leví gefur
ágætar myndir af þessu fólki
og ýmsum undarlegum og oft
bæði dapurlegum og sorglegum
atburðum. Hann er ekki sár við
neinn, kennir engum um ófarir
sínar og vandræði, alltaf jafn
hlýr og mildur í dómum og al-
veg laust við siðfeðisprédikan-
ir. Höfundur er ágætur söguma
ur og bókin er einkar læsileg.
La Goerre de Vendée. Höfund-
ur: Georges Bordonove. Útgef-
andi: Julliard 1964. Verð: f
15.40
Þessi bók er gefin út í bóka-
flokk, sem nefnist „II y a tou-
jours un reporter.“ Höfundur
hefur samið fjölda bóka og
greina og hefur þegið margvís-
leg verðlaun fyrir rit sín. Hér
er saga uppreisnarinnar sögð
með samtíma heimildum og frá-
sögnum samtíðarmanna. Höf-
undi hefur tekizt að setja sam-
an bók, sem lýkur upp öldinni
og hugsanagangi manna og at-
burðum. Þótt byltingunni 1789
væri víðast vel tekið af almenn
ingi í Frakklandi í fyrstu, var
ekki svo í Vendée. Héruðin vor
byggð bændum og borgir fáar
og smáar, prestar og aðalsmenn
voru þama einráðir um
alla skoðanamyndun almenn-
ings. 1791 var þegar farið að
bera á óróa í þessum héruðum
og þá var komið upp um sam-
særi konungssinna þar. Bein
uppreisn brýzt þarna út gegn
stjórninni í París, þegar her-
skylda er lögleidd 1793, bænd-
ur gera árásir á bæina og drepa
lýðveldissinna í hrönnum. Út-
flytjendumir styðja og styrkja
uppreisnina og þingið í París
lýsti alla þá útlæga, sem þátt
tækju í uppreisninni. Heiftin
gegn lýðveldisstjóminni jókst
mjög við aftöku konungs í janú-
ar 1793. Herdeildir voru send-
ar til héraðanna, en biðu ósig-
ur fyrir bændaherjunum, sem
vora vel vopnaðir (ensk vopn)
og þekktu landið, auk þess voru
ýmsir forustumenn þeirra dug-
andi hermenn eins og Bonc-
hamps, d'Elbée og La Rochja-
quelein. Fleiri liðssveitir voru
sendar á hendur þeim og nú
vora þeir sigraðir, en tókst að
fylkja liði aftur en voru sigr-
aðir og meginhluti liðs þeirra
tekinn af lífi við Savanay í des-
ember 1793. Eftir að ógna-
stjórninni lýkur var reynt að
vinna að sættum og friður
kemst loks á 1796. í þessum
átökum voru framdar margar
hetjudáðir, sem enn eru í minn
um hafðar í þessum héruðum
Georg Letliam, Arzt und Mörd
er. Höfundur: Ernst Weiss. Út
gefandi: Droemer Knaur 1964
Verð: DM. 4.80.
Höfundurinn fæddist
Briinn í Austurríki 1884 og dó
í París 1940. Hann stundaði
læknisfræði. Ilann hafði
snemma mikinn áhuga á hljóm-
list og hafði miklar hljómlistar-
gáfur. Hann dvaldi í Bern og
Vínarborg sem skurðlæknir og
ferðaðist sem skipslæknir til
Austurlanda. Eftir fyrra stríð,
settist hann að í Berlín og hóf
að skrifa þar skáldsögur. Hann
flyzt til Parísar skömmu eftir
1930. Hann var góðvinur Kafka
og skrifar í anda expressjónis-
mans. Þessi bók kom út 1931.
Sagan segir frá lækni, sem end
ar sem morðingi. Hann efast
um tilgang mannlegrar tilvera
og sveiflast milli algjörrar ör-
væntingar og furðulegra hug-
sýna um mannlegan tilgang.
Þetta er löng -bók, sem tekur
til meðferðar mannleg vanda-
mál og baráttu við yfirmennsk
öfl.
The Lurking Fear and other
Stories. Höfundur: H. P. Love-
craft. Útgefandi: Panther Books
1964. Verð: 3/6.
Ilöfurinn hefur hér sett sam
an óhugnarlegar sögur um dul
arfulla atburði, sem erfitt er að
fá viðhlítandi skýringu á. Slík-
ar sögur eru alltaJE eftirsótt lesn
ing hvort sem þær eru sannar
eða ekki. Höfundi hefur tekizt
að skapa það rétta hryllings
andrúmsloft í þessum sögum sín
um. Hér fara menn um fáfarna
stigi að næturlagi og verða fyr-
ir ásókn afla, sem vekja með
þeim skelfingu og ótta trylling.
Aðrar gerast í yfirgefnum hús-
hjöllum á afskekktum stöðum
og sumar í kirkjugörðum að
næturlagi. Höf. hefur sett sam-
an fjölda slíkra sagna og hef-
ur útgefandinn gefið út tvær
aðrar bækur þessa höfundar,
sem eru „The Ilaunter of the
Dark and Other Tales of Terr-
or“ og „The Case of Charles
Dexter Ward.“
MINNING
Jakobína Grímsdóttir
BustarfeBli
Hinn 10. apríl s.l. andaðist Jak-
obína Soffia húfrú á Bustarfelli
í Vopnafirði.
Jakobína var af oreiðfirzkum
ættum, dóttir Gríms Þorláksson-
ar, Bergsveinssonar, Eyjólfssonar
alþingis- og dannebrogsmanns
Einarssonar i Svefneyjum á
Breiðafirði og konu hans, Jóhönnu
Jóhannesdóttur frá Bústöðum við
Reykjavík. Hún var fædd hinn i0.
september 1893 á Eskifirði, og
var tekin í fóstur á 1. órí af
frænda sínum, séra Jóhanni Lúter
Sveinbjörnssyni, prófasti á Ilólm
um í Reyðarfirði, og konu hans,
P.lsrgréti Daníelsdóttur, og ólst
þar upp.
Legar Jakobína var 6 ára dó
fósturmóðir hennar. Semna
kvæntist sr. Jóhann Lúter aftur
Guðrún Torfadóttur frá Flateyri
og ólst Jakobína síðan upp h]ó
þeim til fullorðinsaldurs
Ilún stundaði nám í 3. bekk
Kvennaskólans í Reykjavík vet-
urinn 1909—10. Dvaldi í Kaup-
mannahöfn árið 1920. Giftist 28.
maí 1924 Snorra Sturlusyni frá
ísafirði. en missti hann eftir eins
árs sambúð. Þau vora búsett í
Reykjavík og eignuðust eina dótt \
ur, Arnfríði, .sem nú er gift Þórði’
Guðmundssyni, fulltrúa hjá Sölu-i
miðstöð hraðf rystihúsann-i, syst-
ursyni Methúsalems á Bustarfelli.
Hinn 27. maí 1932 giftist hún
eftirlifandi manni sínum. Methú-
salem Mehúsalemssyni, óðals-
bónda á Bustarfelli. Þau eignuð-
ust eina dóttur, Elínu, sem nú er
húsfreyja á Bustarfelli, gift Ein
ari Gunnlaugssyni, bónda þar.
Jakobína var greind kona og
glæsileg. Hún var góðum gáfum!
gædd og las mikið, enda duldistí
engum, sem gaf sig á tal við hana
að hún var víða heima. Var unun
að tala við hana. Hún var hrein
og bein og bar hlýjan hug til
allra, ekki sízt þeirra, sem aldraðir
voru eða áttu eitthvað erfitt
Á Bustarfelli hefur alltaf verið
mjög gestkvæmt, og ekki sízt á
seinni áram eftir að bílvegurinn
var lagður frá Möðrudal til Vopna
fjarðar, því að hann liggur rétt
hjá Bustarfelli. Bustarfell ei ætt-
aróðal, og hefur sama æ'G '
þar síðan 1532, eða ; '33 ár.
er gamall og reisulegur bær, sem
enn er búið í, og fýsir því ferða-
fólk mjög að koma þar heim og
— Framhald a 12. síðu
MiðhAlendið — Norður- og Austurland. %
- 14 daga ferB icdit.VerSkr.SJDl
figðat. VerS kr. 6.200,
Farnrstjóri: Pétur Pétursson.
Ekið fyrsta dag til Veiðivatna, annan dag að Ey-
vindarkofaveri f Jökuldal, þriðja dag I öskju norð
ur fyrir Tungnafellsjökul um Gœsavötn og
Trölladyngjuháls, fjórða dag dvalið f öskju og
ekið f Herðubreiðarlindir, fimmta dag verið í
Herðubreiðarlindum, sjötta dag ekið um Mývatna
öræfi í Möðrudal, Jökuldal og um Egilsstaði á
Seyðisfjörð, sjöundi dagur dvalið á Seyðisfirði ek
ið upp á Hérað og um það til Borgarfjarðar
eystra, áttundi dagur ekið að Egilsstöðum og I
Hallormsstaðaskóg f Atlavík, nfundi dagur dvalið
f Atlavfk, tfundi dagur ekið að Mývatni, ellefti
dagur dvalið við Mývatn og ekið tii Akureyrar,
tólfti dagur ekið frá Akureyri um Skagafjörð,
Blöndudal og Auðkúluheiði til Hveravalia, þrett
ándi dagur dvalið á Hveravöllum, fjórtándi dagur
ekið til Reykjavlkur. I báðum ferðum er innifal-
ið fæði, l heit máltíð á dag, kaffi og súpur. Þátt-
takendur þurfa að hafa með sér viðieguútbúnað
og mataráhöld .
tAN O S y N
1
Skólavörðusfíg 16, II. hæð
Lausar stöður
Hjá lögreglustjóraembættinu í Reykjavík eru
lausar eftirtaldar stöður:
Staða gjaldkera IH
Staða ritara og
Staða símastúlku.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfs-
manna.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf,
sendist sknfstofu minni fyrir 15. júlí næstk.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 2. júlí 1965.
TRÉSMIDIR
Trésmiðir eða trésmiðaflokkur óskast til upp-
sláttar á fjórum stigahúsum. Góð kjör.
Upplýsingar í síma 3 64 52.
Byggingarsamvinnufélag Reykjavíkur