Morgunblaðið - 04.10.1980, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1980
Málefnasamningur meirihlutans:
Kristján upplýsti ekki
hvað endurskoðun liði
DAVlÐ Oddsson. horKarfulltrúi
Sjálfsta'Oisflokksins, spurúist
fyrir um það í umræðum i
borgarstjórn á fimmtudaKskvold.
hvað liði endurskoðun málefna-
samninKs borKarstjórnarmeiri-
hlutans. en framsóknarmenn
kröfðust þeirrar endurskoðunar
eftir fall sameÍKnarsamninKsins
um Landsvirkjun fyrir u.þ.b. ári.
Davíð spurði hvort og hvernig
því mikla verki miðaði, en sam-
komulag þetta mun vera tæp ein
og hálf vélrituð síða að stærð, eftir
því sem Guðrún Helgadóttir upp-
lýsti á fundinum.
Miðað við þann seinagang, sem
Davíð taldi vera á þessu verki,
áleit hann ljóst að áhöld væru um
hvort niðurstaða fengist fyrir lok
þessa kjörtímabils. Hvatti Davíð
Kristján Benediktsson í lok ræðu
sinnar til að upplýsa hvað endur-
skoðuninni miðaði.
Kristján Benediktsson, eini
borgarfulltrúi Framsóknarflokks-
ins og sá eini sem hefði getað
upplýst þetta mál, svaraði ekki
spurningum Davíðs.
Seljaprestur settur í
embætti á morgun
Á MORGUN, sunnudaginn 5.
október, fer fram fyrsta guðs-
þjónustan í hinu nýja Selja-
prestakalli. Hefst messan kl. 4
siðdegis i samkomusalnum fyrir
ofan verzianirnar að Seljabraut
01 í bridge:
íslenzka liðið
í miðjum hópi
í sínum riðli
AÐ loknum þrettán umferðum á
Ólympíumótinu i bridge i Hol-
landi er islenzka liðið i 17. sæti í
sínum riðli en 29 þjóðir spila i
hvorum riðli. í tólftu umferð
spilaði islenzka sveitin gegn Kól-
umbíu ok sÍKraði í leiknum 12—8
<>K í þrettándu umferð Kerði
sveitin jafntefli við Suður-Afriku
10-10.
Helgi Jónsson og Helgi Sigurðs-
son spiluðu báða leikina en Jón
Ásbjörnsson og Símon Símonar-
son fyrri leikinn og Guðlaugur
Jóhannsson og Örn Arnþórsson
síðari leikinn.
íslenzka liðið hefir fengið 128,5
stig en í skeyti frá þeim segir að
þeir vonist til að hala inn fleiri
stig í seinni hluta mótsins enda
við „auðveldari" andstæðinga að
etja. Margir leikir íslenzka liðsins
hafa endað með jafntefli eða þtí
sem næst, en þess ber að geta að
hver leikur er aðeins 20 spil.
54, en þar verða Kuðsþjónustur
safnaðarins til að byrja með.
Dómprófasturinn í Reykjavík,
séra Ólafur Skúlason, setur séra
Valgeir Ástráðsson, hinn nýja
prest Seljasóknar, inn í embætti,
og mun séra Valgeir prédika.
Dómprófasti til aðstoðar verða
prestarnir séra Hreinn Hjartar-
son og séra Lárus Halldórsson, en
Seljasókn var áður hluti af Breið-
holtsprestakalli. Organisti verður
Daníei Jónasson og stjórnar hann
einnig Breiðholtskórnum, sem
syngur við messuna.
I hinni nýju sókn skortir flest
það, sem nauðsynlegt þykir við
kirkjulegt starf, annað en fólkið
og þörfina. En áhuginn er mikill
hjá hinni nýkjörnu sóknarnefnd
að starfa ötullega við hlið prests
síns að þeim mörgu málum, sem
sinna þarf. (Frá dómprófasti)
Japanir
kvikmynda
Island
VON er á 16 manna hópi Jap-
anskra sjónvarpsmanna til lands-
ins í næstu viku til mánaðardvalar
en japanska sjónvarpið Asahi
hyggst taka heimildarkvikmyndir
um ísland. Að sögn Sveins Sæ-
mundssonar blaðafulltrúa Flug-
leiða hefur undirbúningur að þess-
ari ferð staðið í nokkurn tíma.
Kópavogur:
Muninsfélagar selja perur
FÉLAGAR i Lionsklúbbnum
Muninn munu nú á næstu dögum
knýja dyra hjá Kópavogsbúum
og bjóða þeim pakka af ljósaper-
um til sölu. Ágóða af perusölunni
verður varið til áframhaldandi
uppbyggingar Hjúkrunarheimil-
is aldraðra í Kópavogi. sem nú er
verið að reisa. Stefnt er að að
gera húsið fokhelt á þessu ári.
Um leið og Muninsfélagar vilja
þakka Kópavogsbúum góðar mót-
tökur á undanförnum árum vænt-
um við þess að þeir taki enn á ný
vel á móti okkur þegar við knýjum
dyra. Á þessu 10. starfsári
Lionsklúbbsins Munins er Þorgeir
P. Runólfsson formaður en félagar
eru 32.
Formaður fiáröflunarnefndar, Sturla Snorrason, albúinn að selja
perupakka. I baksýn má sjá uppslátt að veggjum Hjúkrunarheimilis
aldraðra í Kópavogi en ágóði af perusölunni rennur til þess.
Hluti fundarmanna. Ljósm. Björn Pálsson.
Geir Hallgrímsson
Garðabær:
Geir Hallgrímsson gestur
á fyrsta fundi vetrarins
- kröftugt vetrarstarf hjá Sjálfstæðisfélaginu
FJÖLMENNI var á fyrsta fundi
Sjálfstæðisfélags Garðabæjar
og Bessastaðahrepps á þessum
vetri. en hann var haldinn i
hinu nýja safnaðarheimili á
Hofsstaðarhæð á fimmtudags-
kvöld i fyrri viku. Geir Ilall-
grímsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, var gestur fundarins
og flutti hann framsöguerindi
og svaraði fyrirspurnum fund-
armanna.
Fundarstjóri var Sveinn
Ólafsson. Fundinn sátu einnig,
auk fjölmargra félaga og
áhugamanna, þingmennirnir
Ólafur G. Einarsson og Salome
Þorkelsdóttir.
Sjálfstæðisfélagið í Garðabæ
og Bessastaðahreppi undirbýr
nú kröftugt vetrarstarf. Fyrir-
hugað er að halda árshátíð fyrir
áramót og þá hefur blaðið Garð-
ar verið gefið út á ný eftir
nokkurt hlé og stjórnar sérstök
blaðstjórn útgáfunni. Formaður
blaðstjórnar er Arthur Farest-
veit.
Bragi Benediktsson félagsmálastjóri flytur ræðu í tilefni af opnun gæzluvallarins.
Nýr gæzluvöllur við
Smyrlahraun í Haf narfirði
OPNAÐUR hefur verið við
Smyrlahraun i Hafnarfirði nýr
gæzluvöllur sem hlotið hefur
nafnið Smyrlaberg. Á þessum
stað hefur reyndar verið starf-
ræktur gæzluvöllur um nokkurt
skeið en nú hafa verið gerðar
gagngerar breytingar þar á.
Þarna er hin ágætasta aðstaða
innanhúss til föndurs og leikja
og gert ráð fyrir að 35 börn geti
verið á vellinum samtímis.
Félagsmálaráð Hafnarfjarðar,
sem fer með dagvistunarmál í
bænum, hefur lýst yfir áhuga á að
fest verði nokkurt rými á Smyrla-
bergi til reynslu sem leikskóla-
rými.
Forstöðumaður á Smyrlabergi
er Hildur Baldursdóttir fóstra og
aðrir starfsmenn eru þrír að tölu.
Á myndinni sér yfir hluta gæzluvallarins Smyrlabergs.