Morgunblaðið - 04.10.1980, Blaðsíða 35
HVAÐ ER AD GERAST UM HELGINA?
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. OKTÓBER 1980
35
_ Æ’
Haustsýning FIM
á Kjarvalsstöðum
Um þessar mundir stendur yfir
á Kjarvalsstöðum IiaustsýninK
FÍM 1980. Fimm myndlistar-
menn mynda kjarna sýningar-
innar: Asgerður E. Búadóttir,
Guðmundur Benediktsson, Leifur
Breiðfjörð, Valtýr Pétursson og
Þórður Hall. Á sýninKunni eru
teikningar, oliumálverk, vatns-
litamyndir, pastelmyndir, gler-
myndir, vefnaður, höggmyndir,
grafík og myndir unnar i leir.
Tæplega 70 höfundar sendu inn
u.þ.b. 500 verk. Úr þeim valdi
sýningarnefnd 120 verk eftir 40
höfunda. FÍM hefur látið prenta
fimm póstkort eftir verkum gesta
sýningarinnar, svo og kort sem
gerð voru í tilefni sýningar FÍM á
verkum Sigurjóns Olafssonar
myndhöggvara á Listahátíð ’80.
FIM hefur nú hug á að fjölga
styrktarmeðlimum sínum og ligg-
ur boð þ.a.l. frammi á sýningu
félagsins.
Annað kvöid kl. 21 verður fram-
in gjörningur á sýningunni. Flytj-
endur eru sex og höfundur er
Akureyringurinn Orn Ingi. Nafn
verksins er jarðarför verðbólg-
unnar og tekur flutningur tæpan
klukkutíma.
TÓNLIST:
Nikkuunnendur
í startholunum
Á MORGUN, sunnudag, kl. 15
hefst vetrarstarf Félags har-
monikkuunnenda með skemmti-
fundi á Hótel Borg. Verða fund-
ir félagsins í vetur á sama tíma
fyrsta sunnudag hvers mánaðar.
Veitingar verða seldar á fund-
unum sem standa til kl. 17 og er
öllum heimill ókeypis aðgangur.
Ekkert kynslóðabil hjá nikku-
unnendum. Eldri og yngri kyn-
slóðin sameinast i Félagi har-
monikkuunnenda. Gamalkunnur
nikkari. Hafsteinn Ólafsson, og
Einar Melax þenja nikkurnar á
skemmtifundi félagsins.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ:
Smalmtúlkan
og útlagarnir
Sýningar á SMALASTÚLKUNNIOG
ÚTLÖGUNUM eftir Sigurð Guð-
mundsson og borgeir Þorgeirsson hefj-
ast að nýju í Þjóðleikhúsinu i kvold kl.
20.00.
Leikritið var frumsýnt 24. april síð-
astliðinn.
Leikurinn gerist á árunum 1537—1555
og hefst á sögunni af ungum elskendum
sem ekki mega eigast. Strangir foreldrar
stúlkunnar senda hana í klaustur, en
henni tekst að sleppa þaðan og elskend-
urnir flýja saman til fjalla. A fjöllum
fæðist þeim sonur, en hin unga móðir
deyr af barnsförum. Sonurinn elst upp
með útilegumönnum og beinir leikurinn
nú athygli okkar að sögu hans er hann
kemst í tæri við byggðamenn — og
konur.
Leikstjórn er í umsjá Þórhildar Þorl-
eifsdóttur. Leikmynd gerði Sigurjón
Jóhannsson og lýsingu annast Kristinn
Daníelsson. Með helstu hlutverkin fara:
Tinna Gunnlaugsdóttir, Árni Blandon,
Þráinn Karlsson, Helga Jónsdóttir,
Baldvin Halldórsson, Helgi Skúlason,
Rúrik Haraldsson, Gunnar Eyjólfsson,
Guðrún Þ. Stephensen, Þóra Friðriks-
dóttir, Arnar Jónsson, Þórhallur Sig-
urðsson, Róbert Arnfinnsson og Krist-
björg Kjeld.
Hólmfríður Elisabrt Guðrúiv
TÓNLIST:
Tónleikar í Mývatns-
sveit og d Húsavík
SÖNGKONURNAR Elísabet Erlingsdóttir og Hólmfríður S.
Benediktsdóttir halda tónleika í Skjólbrekku, Mývatnssveit, í dag
kl. 15 og í Húsavíkurkirkju á morgun, sunnudag, kl. 16. Við
hljóðfærið verður Guðrún A. Kristinsdóttir píanóleikari.
Á efnisskrá tónleikanna eru einsöngs- og tvísöngslög eftir
innlenda og erlenda höfunda.
LEIKLIST:
Óvitar aftur á fjalirn-
ar í Þjóðleikhúsinu
Barnaleikrit Þjóðleikhúss-
ins, ÓVITAR, eftir Guðrúnu
Helgadóttur kemur aftur á
fjalirnar nú næstkomandi
sunnudag 5. október kl. 15.00.
Leikritið var sýnt alls 46
sinnum á síðasta leikári og
voru áhorfendur orðnir rúm-
lega 23 þúsund talsins er
sýningum lauk í vor. Er ætlun-
in að sýna ÓVITA í október og
nóvember.
Sýningin á ÓVITUM hefur
þótt stórgóð fjölskylduskemmt-
un þar eð fullorðnir jafnt og
börnin geta dregið lærdóm af
sögunni um strákinn Finn sem
hyggst leysa vanda heimilisins
með því að láta sig hverfa. Þá
gefur það líka efni leiksins
nýstárlegt sjónarhorn að börn
leika fpllorðna fólkið og full-
orðnir leikarar leika börn.
ÓVITAR eru í' leikstjórn
Brynju Benediktsdóttur, en
Gylfi Gíslason gerði leikmynd-
ina og Kristinn Daníelsson sá
um lýsingu. Með helstu hlut-
verkin fara Sigurður Skúlason,
Randver Þorláksson, Saga
Jónsdóttir, Halldóra Geir-
harðsdóttir, Hreiðar Ingi Júlí-
usson, Margrét Örnólfsdóttir,
Hermann Stefánsson, Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir, Guðrún
Glódís Gunnarsdóttir og Bene-
dikt Erlingsson.
GALLERÍ LANGBRÓK:
Rúna sýnir leirmynd-
ir og teikningar
RÚNA, Sigrún Guðjónsdóttir,
sýnir um þessar mundir verk
sín í Gallerí Langbrók í Land-
læknishúsinu á Bernhöfts-
torfu.
Á sýningunni eru leirmyndir
og teikningar sem hún hefur
unnið á þessu ári. Flestar mynd-
anna eru unnar út frá hugmynd-
um um landslag.
Sýning Rúnu er sú fyrsta, sem
sett er upp í sýningarstofu
Langbrókanna á Bernhöftstorfu
og er hún opin á venjulegum
opnunartíma gallerísins, frá kl.
12—18. Sýningin stendur til 17.
þ.m.
Sigrún Guðjónsdóttir við tvö verk sinna á sýningunni i Gallerí
Langbrók.
LEIKFELAG KÓPAVOGS:
Sgningar hefjast d
ng á Þorláki þregtta
LEIKFÉLAG Kópavogs mun hefja leikár sitt með sýningum á
gamanleiknum „Þorláki þreytta" og verður fyrsta sýningin í kvöld og
hefst kl. 20.30. Leikstjóri er Guðrún Þ. Stephensen og ljósamaður Lárus
Björnsson. Leikið verður eins og áður í félagsheimilinu í Kópavogi. Með
aðalhlutverkin fara Magnús Olafsson sem leikur Þorlák og Sólrún
Yngvadóttir sem leikur Ágústu Dormar eiginkonu hans. Sjónvarpið
hefur tekið upp kafla úr leiknum.
FÍM-salurinn:
Grafik, vatns-
litamyndir og
veggteppi
UM ÞESSAR mundir stendur yfir
I FÍM-salnum, Laugarnesvegi 112.
sýning sænska myndlista-
mannsins Lars Hofsjö. Á sýning-
unni eru. auk teikninga af stórum
veggskreytingum. vatnslita-
myndir, grafik og nokkur vegg-
teppi.
Lars Hofsjö er fæddur í Stokk-
hólmi 1931. Hann stundaði nám í
Konstfack-skólanum ’52— ’56 og
síðan við Listaháskólann í Stokk-
hólmi. Hann starfar að mestu leyti
sjálfstætt, en vinnur þó nokkuð
með arkitektum við skreytingar á
húsum og eru nokkrar teikningar
af tillögum hans á því sviði á
sýningunni. Lars Hofsjö hefur
haldið fjölda einkasýninga í landi
sínu, auk þess sem hann hefur sýnt
annars staðar á Norðurlöndum og
víðar. Hann var formaður Norræna
myndlistarbandalagsins um árabil,
allt til ársins 1979. Sýningin í
FÍM-salnum er þakklætisvottur fé-
taga í FÍM fyrir vel unnin störf
Lars Hofsjö að félagsmálum norr-
ænna myndlistarmanna, en henni
lýkur 12. þ.m.