Morgunblaðið - 24.10.1980, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 24.10.1980, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 13 Afmæliskveðja: Margrét sjötíu og Margrét er fædd á Suðureyri við Tálknafjörð 24. október 1905. For- eldrar hennar voru sæmdarhjónin Gróa Indriðadóttir og Jón Jóns: sen. Þau eignuðust 10 börn. I þessum fjölmenna fjölskylduhópi ólst Margrét upp. Störfin voru mörg, unnin af öllum í trúmennsku og dugnaði. Vorið 1923 kvaddi Margrét æskuheimilið, foreldra og syst- kini, og fluttist til Stykkishólms til heiðurs- og merkishjónanna Kristínar og Williams Thomasar Möller. Frá þessum tímamótum í lífi hennar hefur hún verið ná- tengd Möllers-fjölskyldunni í sorg og gleði. Thomas var póst- og símstjóri, gáfaður og virtur fyrir frábæra starfsorku. Kristín var söngvin, spilaði á orgel af snilld, sjálfri sér til ánægju og öllum, sem heyrðu, til yndisauka. Hún spilaði í kirkjunni og viðar. Þau Möllershjón báru með sér höfð- inglega prúðmennsku. Heimili þeirra var búið fallegum húsgögn- um, og andrúmsloftið innan dyra var ómetanlega hlýtt og friðsælt. Þar var gott að koma, enda var hjá þeim gestkvæmt, bæði af fólki þorpsins og fjölmörgum ferða- mönnum, sem dvöldu hjá þeim um lengri eða skemmri tíma. Hjónin eignuðust 3 börn, Guðrúnu, óttarr og Jóhann. Þessi yndislega fjöl- skylda varð fyrir þeirri sáru sorg að húsfreyjan — eiginkonan — móðirin — varð skyndilega veik snemma á árinu 1923. Eftir það varð hún aldrei heilbrigð. Drott- inn leggur líkn með þraut. Eins og fyrr er sagt í þessari grein kom til heimilishjálpar ung stúlka, ein af börnum hjónanna á Suðureyri. Margrét annaðist af slíkri prýði, dugnaði og kærleika húsfreyjuna veiku, börnin og önn- ur heimilisstörf, að slíkt er að- dáunarvert og fáheyrt. Yngsta barnið var 3 ára. Thomas var fyrirmyndar hús- bóndi og faðir. Guðrún, tengda- móðir hans var hjá þeim, hjálp- söm og ráðholl eldri kona. Þó Kristín kæmist til nokkurrar heilsu, gat hún ekki- annast heim- ilishaldið. Hún andaðist á heimili sínu 4. janúar 1926. Margrét var máttarstólpi heimilisins. Hún var móðurlausu börnunum kærleiks- gjafi. Umhyggja og margvísleg störf hvíldu á hennar herðum. Hún lét hvergi bugast. Þegar ég hugsa til baka finnst mér, að Guð hafi gefið henni, af ríkdómi sín- um, fleiri og margþættari hæfi- leika, en flestum öðrum. Gáfuð, góð og prúð tók hún þeim um- skiptum, sem óhjákvæmilega urðu á högum fjölskyldunnar. Thomas Möller kom börnum sínum í sveit vorið 1926, sitt á hvorum stað, hjá fólki, sem hann þekkti og trúði fyrir þeim. Þetta fór eins og vonir stóðu til. Margrét útbjó fatnað barnanna og annað, sem þessari burtför fylgdi. Þegar hún hafði gengið frá húsinu eins vel og hægt var, fór hún til fjölskyldu sinnar á Suðureyri og dvaldi þar um sumarið. Veturinn eftir var hún við hússtjórnarnám í Reykjavík. Margrét Jónsdóttir og William Thomas Möller gengu í hjónaband 30. júní 1927. Það var hamingjudagur þeirra og barna hans. Þá var Margrét orðin hús- freyja á heimilinu, sem hún hafði unnið á áður af dyggð og trúmennsku. Heimilið í Möllers- húsi var nú aftur orðið eins og fyrr er lýst í þessum skrifum. Margrét og Thomas eignuðust 3 börn: Agnar, Kristínu og William Thomas. Öll börn Thomasar eru vel menntuð. Hans áhugamál var að búa þau, eins vel og kostur var á, undir störf sem þeirra biðu í lífsbaráttunni. Systkinin eru góð- um gáfum gædd. Frá barnæsku eru þau dugleg og samviskusöm við nám og störf. Hjónin fluttu til Reykjavíkur árið 1957. Hann var orðinn þreytt- Möller fimm ára ur eftir margvísleg störf í Hólmin- um, auk sinna embættisverka. Heilsa hans tók óðum að bila. Guð gaf Margréti líkamlegt og andlegt þrek, til að stunda hann í bana- legunni. Hann andaðist á heimili þeirra í Eskihlíð 18, 17. apríl 1961, 76 ára gamall. Hún syrgði sinn elskulega eiginmann, en bar það áfall með prýði eins og annað. Hún bjó um árabii í Eskihlíð 18, þaðan flutti hún í Seljugerði 7 til dóttur sinnar og tengdasonar. Þar hefur hún ágæta íbúð, og hefur búið hana gömlu fallegu húsgögn- unum sínum. Þar erum við gömlu vinirnir hennar alltaf velkomnir og njótum hennar yndislegu gest- risni. Börn Kristínar og Thomasar kalla Margréti frænku, sem hún raunar er. Þeim þykir mjög vænt um hana, enda hefur hún reynst þeim eins og besta móðir. Oft er gestkvæmt í Seljugerði 7, bæði af eldri og yngri meðlimum Möllers- fjölskyldunnar. Allur ástvinahóp- ur hennár hefur sett sér það markmið, að gera henni æfikvöld- ið friðsælt, rólegt og fagurt. Þeim finnst hún eiga það skilið. Ég er glöð og þakklát fyrir, að ásamt mínum nánustu ástvinum, fyrir að hafa notið þess að hafa átt Thomas Möller, eiginkonur hans og börn að tryggum og góðum vinum meðan við dvöldum öll í Hólminum. Þetta samband mun haidast, þótt sumir hverfi. Mér finnst Margrét, mín elskulega góða vinkona, ekki gömul. Hún er glöð og hress, enda býr hún með yndislegum vinum, sem umgang- ast hana á þann hátt, að hún er aldrei einmana. Alltaf er hun eitthvað að starfa. Ég vona og bið um að framtíð hennar verði björt og fögur. Við eigum í minningunni myndir af dásamlega fögrum júníkvöldum í Stykkishólmi. Við fórum upp á Þinghúshöfða og sáum fjalla- hringinn baðaðan í litadýrð kvöld- sólarinnar. Sjórinn var spegil- sléttur. Eyjarnar mörgu voru í hyllingum eins og í æfintýra- heimi. Svona frábærar myndir náttúr- unnar eru ekki til nema á fáum stöðum. Þær gleymast okkur ekki, þær eru okkar lífsnæring. Sál Margrétar Möller er uppbyggð í trú, von og kærleika. Af þessu er kærleikurinn mestur. Sesselja Konráðsdóttir Breytt símanúmer á afgreiðslu Morgunblaðsins w* 83033 Jtiorgimblabto Á eftir... Við viljum ekki vera eftirbátar nágrannaþjóða okkar hvað nútímaþróun varðar, hvorki í landbúnaði, sjávarútvegi, iðnaði né verslun. Bætt skipulag og endurbættur vélakostur hafa stöðugt aukið framleiðslugetu þjóðarinnar. Hlutverk verslunar er að koma framleiðslu hinna atvinnuveganna á neytendamarkað. Aðbúnaður verslunarinnar þarf því að vera í samræmi við aukna framleiðslugetu og þarfir neytenda. Hún gegnir hér stóru hlutverki í okkar daglega lífi - hugsaðu um það næst þegar þú ferð út í búð Búum beturad versluninni. Þaö er okkar hagur. viðskipti &verzlun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.