Morgunblaðið - 24.10.1980, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980
Norðurlandameistaramótið í handknattleik:
íslenska liðið fékk
skell a móti Svíum
krónur þegar búið var að gera
upp Kreiðslur fyrir hvert stig
sem félagið fékk i deildarkeppn-
inni. Eða 300.000 islenskar krón-
ur. Þetta eru bara aukagreiðslur.
320.000 islenskar sem uppbót i
lok timbilsins í Svíþjóð ekki
slæmt.
Teitur Þórðarson fékk rós frá
aðdáanda eftir að sænski meist-
aratitillinn var i höfn. Teitur
skoraði mark Öster i leiknum
sem færði þeim titilinn. En Teit-
ur fékk meira en rós. Peninga-
verðlaun leikmanna námu 320
þúsund islenskum krónum fyrir
stigin í deildinni og sigurinn.
Frá GG
í Noregi
„ÉG ER ekki ánægður með nokk-
urn skapaðan hlut sem islenska
liðið gerði í leiknum gegn Svíum.
Þetta var algjör botnleikur hjá
okkur og getur ekki orðið lé-
legra. Leikirnir framundan i
mótinu verða að skera úr um
hvort þetta er raunveruleg geta
liðsins. Það var enginn baráttu-
vilji i islenska liðinu og hvað
eftir annað misnotuðu leikmenn
hin bestu tækifæri. Og með að-
eins 28% nýtingu í sóknarleik er
ekki von á að vel gangi,“ sagði
Hilmar Björnsson þjálfari eftir
stórtap islenska landsliðsins i
handknattleik i fyrsta leik liðsins
á Norðuriandameistaramótinu í
handknattleik sem fram fór i
Hamar i Noéegi í gærkvöldi.
íslenska liðið byrjaði leikinn
ágætlega og lék vel fyrstu 15
mínútur leiksins. Þá var varnar-
leikur liðsins góður og boltanum
haldið sæmilega í sókninni. Fyrsta
mark leiksins skoraði Sigurður
Sveinsson og aftur á 9. mÍRÚtU Og
hafði ísland þá forystu í leiknum
2—1. Það er ekki fyrr en á 15.
mínútu sem Svíar jafna metin
2—2, og komast yfir tvö mörk 4—2
þegar 20 mínútur eru búnar af
leiknum. Þegar fimm mínútur eru
eftir af hálfleiknum er staðan
4—5 fyrir Svía en þeir náðu
góðum endaspretti í lok hálfleiks-
ins og staðan var 5 mörk gegn 8
Svíum í hag þegar leikmenn gengu
til búningsherbergja í hálfleik.
"tSr 14:22
Sænska liðið missti mann útaf í
byrjun síðari hálfleiksins og Viggó
skoraði úr víti og Björgvin af línu.
Svíar svara strax og staðan er
10—8. Þegar síðari hálfleikur er
hálfnaður er staðan orðin 14—10
fyrir Svía og þá hrundi leikur
íslenska liðsins algjörlega. Síðustu
15 mínútur leiksins var ekki heil
brú í leik liðsins hverju sem um
það er að kenna.
Dauðafæri fóru í súginn. Viggó
skaut í stöng úr vítakasti. Stein-
dór skaut í þverslá Úr hraðaupp-
hlaupi og allt var í þeim dúr.
Sænska liðið náði átta marka
forskoti 20—12 og gerði alveg út
um leikinn. Lokatölur í leiknum
urðu svo 22—14 sanngjarn yfir-
burðasigur sænska liðsins.
Það er ekki hægt að fara
mörgum orðum um leik íslenska
liðsins hann var í molum eins og
sóknarnýtingin segir til um. 28%
sóknarnýting er afspyrnulélegt.
Það var rétt fyrstu 15 mínútur
leiksins sem vörnin stóð sig vel en
eftir það var lítil samstaða.
Björgvin Björgvinsson kom einna
best frá leiknum af íslensku leik-
mönnunum og gerði fæst mistökin
í leiknum. Allir léku langt undir
getu. Mörk íslands skoruðu: Viggó
4, 3v., Sigurður 3, lv., Björgvin 2,
Þorbergur 2, Alfreð 1, Bjarni 1,
Steindór 1. Bestu menn sænska
liðsins voru Claus Ribendahl sem
skoraði 11 mörk þar af 4 úr
vítaköstum og Ebinde sem skoraði
sex mörk flest úr hornunum.
—GG.
leikur ekki síðari leikinn gegn Kaiserslautern
„ Þetta var mjög góður leikur af
okkar hálfu. Þeir sóttu meira
fyrstu 20 minútur leiksins en þá
náðum við yfirtökunum og hrein-
lega yfirspiluðum þá i siðari
hálfleiknum “ sagði Ásgeir Sig-
urvinsson er Mbl ræddi við hann
í gærdag. Eins og skýrt var frá
sigraði lið Ásgeirs vestur—þýska
liðið Kaiserslautern 2—1 i
UEFA — keppninni i knattspyrnu
á útivelli i íyrrakvölu. Við spurð-
um Ásgeir hvort mikil harka
héíði verið í leiknum og af hverju
hann hefði fengið gult spjald.
Já þetta var harður leikur en ekki
grófur. Þýskir knattspyrnumenn
leika fast og ákveðið og það þýðir
lítið að gefa eftir. Það er rétt ég
fékk gult spjald í leiknum. Að vísu
eKn' ^yr’r ^rot heldur afar smá-
vægileg ,T?útmæli við dómarann.
Ég hafði náð boltanum af and-
stæðingi og brunaði upp völlinn
með boltann er dómarinn flautaði.
Mótherji minn hafði látið sig falla
og fékk aukaspyrnu. Þegar ég kom
til baka með boltann gerði ég
smávægilega athugasemd með því
að veifa höndinni en sagði ekki
eitt einasta orð. Það var nóg
dómarinn tók gula spjaldið úr
vasar.RRl. Har.n ætiaði sér greini-
lega að hafa góð tök á leiknum.
Þetta verður til þess að ég fæ ekki
að leika heimaieiiunn. Eg fcklC
gult spjald í síðari leiknum gegn
Rúmenum og er því kominn í
leikbann í Evrópukeppninni. En
ég tel víst að Standard komist
áfram í UEFA—keppninni, við
eigum allavega mjög góða mögu-
leika eftir þessi hagstæðu úrslit.
Eina mark Kaiserslautern var
skorað úr greinilegri rangstöðu,
það sást vel í sjónvarpinu. Þá fékk
Benny Vennt að sjá rauða spjaldið
er hann sló einn af leikmönnum
Standard beint í andlitið í síðari
hálfleik. Við vorum ekki með
okkar sterkasta lið í þessum leik.
Það léku tveir nýliðar. Við áttum
að geta gert fleiri mörk til dæmis
þá skaut Tahamata framhjá úr
dauðafæri og fleiri tækifæri fóru
forgörðum. Það er orðið langt
síðan þeir hafa tapað á heimavelli
oe það fór greinilega I skapið á
þeim.
Næsti leikur Standard er á laug-
ardag gegn Beerschot, leikmenn
áttu frí í gærdag hvíldu og fóru í
nudd. Þjálfari Standard Happel
kom F.C. Brugge í úrslit í
UEFA—keppninni fyrir fjórum
árum. —ÞR.
Skíðadeild
Víkings
SKÍÐADEILD Víkings verður
með árlegt vetrarkaffi á sunnu-
daginn kl. 15, i skiðaskála Vik-
ings I Sleggjubeinsskarði. Allir
Vikingar velkomnir.
Opiö mót
Badmintonfélag Hafnarfjarð-
ar heldur sitt árlega opna B. fl.
mót I íþróttahúsinu við Strand-
götu sunnudaginn 2. nóv og hefst
stundvíslega kl. 13.00.
Keppt verður með fjaðrabolt-
um.
Keppt verður í einliða- og
tviliðaleik karla og kvenna og
tvenndarleik.
Keppnisgjald er kr. 4000.00 i
einliðaleik. 3000.00 i tviliðaleik
og 3000.00 í tvenndarleik.
£r>ifmenn
GOLFÁHUGAMEinix .haía enn
ekki lagt kylfurnar á hilluna
heldur leika nú af fullum krafti á
túninu við Korpúlfsstaði. f kvöld
verða þeir með kvikmyndasýn-
ingu i golfskálanum i Grafarholti
og skemmtun á eftir. Hefst kvik-
myndasýningin kl. 20.00.
• Ásgeir fær leikbann i J^vrt,Pu'
keppninni, og leikur ekki næsi&
heimaleik Standard gegn Kais-
erslautern. i.jósm. þr.
Það kemur oft fyrir hér heima á
fslandi að menn velta þvi fyrir
sér af hverju íslenskir knatt-
spyrnumenn sækja orðið svo
mjög til annara landa til að
gerast atvinnumenn eða hjálfat-
vinnumenn i knattspyrnu. Ástæð-
an er enginn önnur en sú að það
er hreint ótrúlegt hversu mikið
er gert fyrir iþróttamenn erlend-
is. Sem dæmi má nefna að sænsku
blöðin sögðu frá þvi að leikmenn
Öster hefðu fengið 6000 krónur
sænskar fyrir að verða sænskir
meistarar. Hver leikmaður. Eða
90.000 islenskar krónur. Auk
þess fengu þeir 20.000 sænskar
Ásgeir fer í leikbann
Teitur fékk
320 þúsund
• Björgin Björgvinsson fer inn af linunni og skorar. Til vinstri má
sjá Viggó Sigurðsson fylgjast vel með. Björgvin var skástur íslensku
leikmannanna i gærkvöldi.
„Þetta var
agalega lélegt“
Frá Guðmundi (íuðjónssyni hlaðamanni
MorKunblaðsins i Hamar Norejci.
„Þetta var alveg agalega lélegt
hjá okkur i kvöld gegn Svium“
sagði Viggó Sigurðsson er ég
ræddi við hann eftir landsleik-
inn. — Það var fyrst og fremst
mjög slakur sóknarleikur sem
varð okkur að falli. Sóknarleik-
urinn brást alveg. Sóknirnar
voru ekki nægilega langar leik-
menn voru að reyna skot i mjög
svo ótimabærum færum. Við vor-
um tiltölulega afslappaðir fyrir
leikinn og það er sérlega góður
andi i hópnum og þvi erfitt að
finna skýringu á þessum óförum.
Eina sem hægt er að gera er að
lofa betri leikjum sagði Viggó að
lokum.
„Engin barátta"
„Það var enginn barátta i liðinu
hjá okkur, menn voru annars
hugar og stemminginn i leiknum
var ekki til. Enginn sigurvilji“
sagði hinn leikreyndi Björgvin
Björgvinsson eftir slaka frammi-
stöðu islenska landsliðsins i
handknattleik gegn Svium i gær-
kvöldi. — Undirbúningurinn und-
ir þetta Norðurlandamót var
mjög góður og þvi ekki hægt að
kenna honum um þessar ófarir.
Hins vegar finnst mér að það
hefði átt að ræða meira um
leikinn áður en farið var i hann.
Það voru rétt fyrstu 15 minútur
leiksins sem við lékum eins og
menn og stóðum þá sænska liðinu
fyllilega á sporði. Ungu leik-
mennirnir voru greinilega tauga-
trekktir og kom það niður á leik
þeirra.
M
a