Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 24.10.1980, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. OKTÓBER 1980 23 In Memoriam: Pétur Hoffmann Salómonsson Ég kynntist Pétri Hoffmann Salómonssyni um leið og ég gekk í Myntsafnarafélag íslands, er það var stofnað árið 1969. Ég hafði auðvitað heyrt um Pétur áður, sem þekktan myntsafnara og myntsala, og hafði lesið ævisögu hans „Þér að segja". í bókinni segir frekar af svaðilförum Pét- urs, slagsmálum og störfum hans til sjós og lands. Sá Pétur Hoff- mann sem ég kynntist, og við myntsafnarar, var allt annar mað- ur. Það var hinn skörulegi, ræðni og góði gamli maður sem alltaf sópaði að á fundum hjá okkur. Á yngri árum hefir Pétur Hoffmann sjálfsagt verið bæði fimur og rammur að afli. Bróðir hans, Gunnar Salómonsson, Ursus, var þekktur kraftajötunn sem hélt sýningar bæði hér og víða erlend- is. Sá ég hann einu sinni sýna listir sínar og þótti mikið til koma. Bróðir hans, Lárus Salómonsson, er þekktur íþróttamaður og skáld. Annar bróðir Péturs, Helgi Hjörv- ar var frægur glímumaður á sínum tima og talaði jafnframt sérlega fallega íslenzku. Það gerði Pétur Hoffmann líka. Pétur kunni held ég flestar fornsögurnar utan- bókar og einhver ógrynni af rím- um og kvæðum. Auk þess var hann afar vel að sér um menn og málefni að fornu og nýju. Var oftlega til Péturs leitað er skýra þurfti atriði í myntsögu íslands. Var Pétur alltaf reiðubúinn til hjálpar og ekki brást minnið honum. Pétur seldi mynt í fjölda- mörg ár, ávallt á sanngjörnu verði. Hann lét á sínum tíma slá pening með mynd af sér, í kopar, silfri og gulli, Selsvaradalina, sem eru eftirsóttir safngripir. Pétur Hoffmann Salómonsson var fyrsti og eini heiðursfélagi Myntsafnarafélags íslands. Fund- irnir í félaginu verða svipminni án 40 ára afmæli Nesprestakalls 40 ÁRA afmæli Nesprestakalls verður minnst nk. sunnudag við guðsþjónustu i Neskirkju. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, prédikar, en sóknarprestarnir þjóna fyrir altari. Að lokinni messugjörð verður kaffisamsæti i safnaðarheimili kirkjunnar. Eins og kunnugt er, var Reykjavík skipt í prestaköll árið 1940 og voru hin nýju prestaköll auglýst til umsóknar 27. nóvember sama ár. Eitt þessara prestakalla var Nesprestakall er „náði yfir land Reykjavíkurbæjar vestan Reykjanesbrautar, Seltjarnarnes og Engey." Enn þann dag í dag eru nákvæmlega sömu landfræðilegu mörk á þessu prestakalli, en íbúum hefur fjölgað verulega. 23ja bókin um Morgan Kane PRENTHÚSIÐ sf. hefur gefið út tuttugustu og þriðju vasabrots- bókina i Ixíkaflokknum um Morg- an Kane og heitir hún „Einvigi i Tomhstone“. Prenthúsið hefur einnig gefið út tvær stórar bækur um Morgan Kane og í lok nóvember nk. kemur sú þriðja og heitir hún „Einfarinn frá Texas". Þá verður einnig haldið áfram vasabrotsbókarit- röðinni og þar verður 24. bókin: „Þetta er dauðinn, senor Kane“. Al'CI.VSIV.ASIMINN KR: 22480 Qjí1 JHorfiimbletiib Morgan 'i** Kane louís Masterson EINVÍGI í TOMBSTONE »a»tnt ebin oat takto vtt ttf wyMt Earp hans. Orðstír hans mun þó lengi lifa í hjörtum okkar myntsafnara, sem kveðjum í dag hinn látna heiðursfélaga. Ragnar Borg. SÍ gef ur út bréf- merki SKÁKSAMBAND íslands hefur nú gefið út bréfmerki í tilefni þess, að liðin eru 50 ár frá því Islendingar tóku í fyrsta sinn þátt í Ólympíuskákmóti. Bréfmerki jvessi eru 10 í örk með mynd Halldórs Péturssonar „Riddara- slagur", og er áritunin: Islend- ingar þátttakendur á Ólympíu- skákmótum í 50 ár, 1930 Hamborg — 1980 Valletta. Merki þessi verða til sölu í frímerkjaverzlunum og á skrifstofu SÍ og kostar örkin kr. 1000. okV^®’ 367 >er\ð 77 AUCLÝSINGASTOFA MYNDAMÓTA HF Kjólar — Kjólar Dagkjólar — Kvöldkjólar — Samkvæmiskjólar í nýju, glæsilegu úrvali. Allar stæröir — Hagstætt verö. Opiö í dag til kl. 7. Laugardaga kl. 10—12. Kjólasalan, Brautarholti 22. Inngangur frá Nóatúni. Nýtt Nýtt Kjólar — Pils — Blússur - Peysur — Vesti Glugginn, Laugavegi 49. Pinnaborð og stólar í fjölbreyttu úrvali Símar: 86080 og 86244 Húsgögn Ármúli 8 Verö frá kr. 246.300. Verð frá kr. 246.300. Mikon^\ L FÓKUS HF Lækjargötu 6 B Sími 15960.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.