Morgunblaðið - 30.10.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30L OKTÓBER 1980
15
-«r
Myndbygging
Qlíukaupsamningur við Sovétmenn:
280 þúsund tonn
keypt á næsta ári
Á FÖSTUDAGINN var undirrit-
aður i Reykjavík samningur við
Sovétrikin um kaup á oliuvörum
þaðan á næsta ári.
Samningurinn gerir ráð fyrir,
að keypt séu 100.000 tonn af
gasolíu, 70.000 tonn af bensíni og
110.000 tonn af svartolíu. Er hér
um að ræða heldur meira magn af
gasolíu en afgreitt verður frá
Sovétríkjunum í ár en nokkru
minna magn af bensíni og svart-
olíu. Sérstök áhersla var lögð á að
fá keypt meiri svartolíu, en sov-
éska olíufélagið taldi sig ekki geta
nú skuldbundið sig til að full-
nægja áætluðum þörfum okkar á
næsta ári.
Verðviðmiðun og önnur
skilyrði eru að mestu óbreytt frá
gildandi samningi ngma hvað
verðálagning vegna gæða svartolí-
unnar er hækkað.
Samninginn undirrituðu Nikolai
Markov, aðstoðarforstjóri Sojuz-
nefteexport og Þórhallur Ásgeirs-
son, ráðuneytisstjóri. Er samning-
urinn gerður í nafni viðskipta-
ráðuneytisins, en hann verður
framseldur olíufélögunum og tóku
forstjórar þeirra einnig þátt í
samningaviðræðunum.
Söludeild í Reykjavík sími: 15945.
Sími 96-71340 eða 96-71161
HÚSEININGAR
SIGUJFIRÐI
^ Fjarðarhús
Tvílyfta byltingin
frá Húseiningum hf
Húseiningar hafa nú sett á markaðinn tvílyft einingahús.
Kosti einingahúsa þarf tæpast að tiunda. en efri hæðin
bætir fjölmörgum við:
— Hver nýtanlegur flatarmetri er ódýrari
— Húsið er auðvelt að staðsetja á litlum lóðum
— Taka má húsið í notkun i tveimur áföngum, þar eð full-
komin íbúð er á neðri hæð
— Rishæðin gefur skemmtilega möguleika í innrétt-
ingum
Ef þessir kostir vekja áhuga þinn ættirðu að hafa
samband og biðja um bækling með öllum nauðsynlegum
upplýsingum ásamt sýnishornum að teikningum.
110 íslendingar, en alls eru starfs-
menn Cargolux um 620 talsins.
Cargolux notar nú 5 DC-8-vélar
og á sjálft þrjár vélar, en ein
leiguvél er í eigu Flugleiða og ein í
eigu World Airways en hún er
leigð til Air Alsir. Þá er ein
Boeing 707-vél sem flýgur fyrir
Air Uruguay sem heimamenn eiga
meirihluta í en Cargolux er
stærsti hluthafinn.
Cargolux er nú annað stærsta
vöruflutningaflugfélag í heimin-
um síðan Tiger og Seaboard sam-
einuðust í stærsta félagið. Númer
þrjú er TMA, Beirút. Flutnings-
geta Cargolux er nú 365 tonn með
eigin vélum.
Eignahlutfall í Cargolux er
þannig að aðilar í Luxemborg eiga
52,62% (þar af á Luxair 11%), en
Flugleiðir eiga 25% og Salen í
Svíþjóð 22,38%. Á sl. ári var
veltan 106 milljónir dollara og
hagnaður var 2,6 milljónir dollara,
en alls voru flutt 57 þúsund tonn
af vörum.
Tíu ár eru nú liðin síðan Cargo-
lux hóf starfsemi með gömlu
Rollsunum frá Loftleiðum, en þeir
voru allt upp í 5 í gangi hjá
félaginu þar til þoturnar komu
1973.
Með tilkomu þotanna breyttist
reksturinn mikið, en með hækk-
andi eldsneytiskostnaði er kapp-
kostað að ná fullri nýtingu í þeim
efnum. Nýja Boeing 747-vélin, sem
félagið fékk 10. okt. sl., ber til
dæmis meira en eldri vélin, en
notar þó 2% minna eldsneyti sem
þýðir um 500 þús. doilurum minni
kostnað á ári. Eldsneyti á eina
slíka vél á ári kostar um 23 V2
milljón dollara á ári, eða um 12
milljarða íslenskra króna.
Til þess að gera sér í hugarlund
hve stór salur er fyrir vörur í
Boeing 747 má nefna að þar
rúmast 25 stórir Benz-fólksbílar,
en fyrir skömmu flutti Cargolux
einmitt 100 slíka í fjórum ferðum
til Nigeríu.
Hljómtæki
® toppgæði...
Bestu kaupin hvernig sem á er litið
SG-330 A„to P,oq,arr. Soarr.h SystBm
TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR MAGNARI 2x20
WOTT R.M.S. ÚTVARP: 4 ÚTVARPSBYLGJUR, FM
FW, STERIO LW, MW, SW.
PLÖTUSPILARI: HÁLF-
SJÁLFVIRKUR, S-ARM-
UR, MAGNETIC PICKUP.
SEGULBAND: MEÐ
SJi» SJÁLFLEITARA.
HÁTALARAR: 2 STK. 40
WÖTT.
Verö meö
hátölurum:
kr. 480.000.
^[KARNABÆR
Útsölustaðir:
Karnabær Laugavegi 66 — Karnabær Glæsibæ
Eplið Akranesi — Eplið ísafirði
Álfhóll Siglufirði —Cesar Akureyri
Hornabær Hornafirði —
Eyjabær Vestmannaeyjum
w