Morgunblaðið - 30.10.1980, Síða 20

Morgunblaðið - 30.10.1980, Síða 20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 20 Óskar Halldórsson: Öfgar bókfestu- keimingarinnar Snemma í þessum mánuði flutti Hermann Pálsson, háskólakennari í Edinborg, fyrirlestur við Há- skóla íslands sem hann nefndi Nýjar rannsóknir á Hrafnkels sögu og birtist hann í Mbl. þann 12. sl. Þar segir í kynningarorðum að fyrirlesarinn hafni fyrri rann- sóknaraðferðum á sögunni, geri atlögu að sagnfestu- og bókfestu- kenningu og vísi á bug að unnt sé að nota fornleifarannsóknir í bók- menntarannsóknum. „Fornleifa- fræði og ritskýring eiga hvergi samleið," segir Hermann. Þar sem niðurstöður hans orka tvímælis og fara í Baga við hugmyndir sem hafa mótast við ýmsa háskóla hin síðari ár um uppruna og eðli Islendingasagna er órétt að taka þeim með þögninni einni. Það sem nýtt kom fram í nefndu erindi eru nokkrar hliðstæður í textum íslenskra fornbókmennta við setningar í latneskum ritum. Hermann segir: „Um undanfarin misseri hef ég unnið við að safna orðskviðum í íslenzkum fornritum sem virðast vera þýðingar á latn- eskum setningum." Ekki skal hér dregið í efa gildi jæssarar rann- sóknar fyrir íslenska tungu og þróun hennar; hún er líka fyrst og fremst á sviði málsins þótt heim- ildanna sé vitaskuld að leita í gömlum bókum. Vafasamt er hins vegar hverjar ályktanir réttmætt sé að draga af henni um eðli og inntak sagnanna. Benda má á að máisháttarannsóknir tengjast þjóðfræði, orðskviðir skapast alls staðar þar sem mál er talað, uppruni þeirra er hulinn í rökkri aldanna, lífsreynslan eða spekin sem þar er að finna yfirleitt mjög almenns eðlis, enda eru slík orða- tiltæki ekki kölluð málshættir nema þau hafi lifað á vörum fólks. Því er tortryggileg sú tilhneiging Hermanns, sem hér má merkja, að eigna orðskviði eða fornmæli nafngreindum höfundum og njörva þá við bóklegan lærdóm. Þeir koma fram bæði í ritum lærðra manna og máli alþýðu af því að þeir eru hluti tungunnar. Enda þótt undirritaður hafi gert sér títt um málshætti og unnið að útgáfu þeirra telur hann að rannsókn á þeim og saman- burður hrökkvi skammt til að skýra bókmenntir. Aðferðir við ritskýringu eru vissulega margvís- legar, en þó að menn greini á um þær munu fæstir neita því nú á dögum að taka þurfi jafnan til meðferðar og könnunar þann veruleika í umhverfi og mannlífi sem fóstraði verkið og höfund þess. Fyrir þá sök tengjast bók- menntir og saga. Enn fávíslegra væri þó að efast um gildi forn- leifarannsókna fyrir sagnfræðina. Og þegar deilt er um það hvort staðbundin fornsaga eins og Hrafnkatla styðjist við munnmæli eða eigi þá skiptir máli að fá úr því skorið hvort á slóðum hennar var mannabyggð þegar hún átti að gerast. Annars mun ég ekki ræða hér um fornleifarannsóknir í Hrafnkelsdal. Til þess eru að- standendur þeirra betur hæfir. Meðal ritskýrenda hefur það viðhorf orðið lífseigt — og má rekja allt aftur til Aristótelesar — sem gerir ráð fyrir tveim megin- stigum í bókmenntasköpun. Hið fyrra varðar efnivið verksins, föng höfundarins, en hið síðara er listsköpun hans. Ekki þarf að hafna innspírasjóninni þótt talið sé að hið fyrra, efniviðurinn, sé að jafnaði ólistræns eðlis en samt ákvarðandi fyrir hið síðara, form- gerðina. Mörkin eru einatt óskýr svo að skoða verður inntak og form sem tvær hliðar hins sama, einkum þegar um góð listaverk er að ræða; árangur höfundar birtist í þeirri formgerð sem lesandi fær í hendur og eftir henni verður hann að dæma bókmenntagildið. Nú eru ritskýrendur sjaldan sammála um túlkun verka en það sýnir að hún er ekki haldgóð vísindi, enda er oft haldið fram rétti lesandans til að finna það í verkinu sem helst er við hans hæfi. Merking verka er því túlkunar-atriði, en við rann- sókn á efniviði jjeirra, formgerð og tilurð er unnt að beita vísindalegri vinnubrögðum. En hvað kemur jætta nú þeim fyrirlestri við sem hér er gerður að umtalsefni? Því er fljótsvarað: Fyrirlesarinn ber fram túlkun sína á Hrafnkelssögu byggða á ófullnæg/andi forsendum. Sam- kvæmt henni er Hrafnkelssaga fræðsluskáldskapur (dídaktík) án epískrar uppistöðu. „Líta má á hana sem samfléttað safn af dæmisögum.“ (Leturbreyting mín). Raunar var hugtakið epík Hermanni hulið þoku þar sem hann héit því fram (í umræðum) að til að skapa epíska sögu þyrfti stóratburði, helst af höfðingjum, en eltingaleikur við rollur, þvottur vinnukonu, óþægileg viðkoma við sára tá ofl. slíkt dygði lítt! (Sjá frásögn í Þjóðviljanum 7. okt.) Samkvæmt þessu teldist Sjálf- stætt fólk víst lítill frásagnar skáldskapur. Við rannsóknir á efniviði Is- lendingasagna komumst við ekki hjá því að taka til athugunar heimildir um líf þjóðarinnar á 10. og 11. öld en við mat á formgerð þeirrá og list kemur inn í myndina menning og þjóðfélag 12., 13. og 14. aldar. Allar líkur eru á að hver kynslóð af annarri í landinu hafi varðveitt hin fornu söguefni eftir jækkingu sinni, auðvitað misjafn- lega góðri, og haldið Jæim á loft til skemmtunar og fróðleiks eftir því sem munnleg frásagnarlist hrökk til. Málfar sagnanna tilheyrir þannig hinu síðara sköpunarstigi en segir ekkert um hinn upphaf- lega efnivið. Margt í orðalagi þeirra eins og við höfum þær nú mun J>ó enn yngra því að engin er til í frumriti, en uppskrifarar löngum ófeimnir við að breyta sögunum, t.d. er Hrafnkelssaga til í tveim gerðum en þær eru ekki Athugasemdir um fyrirlestur Hermanns Pálssonar heilar í eldri handritum en frá 17. öld. Hér við bætist að rannsóknum á geymd Hrafnkelssögu er enn ekki lokið; er því best fyrir Hermann og aðra að staðhæfa sem minnst um það hvaða orð séu upphafleg í henni. Eitt mun þó mega hafa fyrir satt: Sá sem ritaði söguna í öndverðu hefur beitt því máli sem lá honum á tungu eða honum var tiltækt og skiptir þá öngvu hvort hann hafði lært það af foreldrum sínum, kennurum ellegar að einhverju leyti af bók- um. I orðskviðunum felst ekkert söguefni, þeir eru víslega ekki epískir! Því er í sannleika sagt meira en hæpið að hugmyndir þeirra séu „þær einingar sem leggja verður til grundvallar við rannsókn sögunnar," eins og Her- mann segir. Um slíkt gefur sagan sjálf öngva yfirlýsingu, heldur er þarna um ályktun að ræða. Hér á undan var því haldið fram að forsendur Hermanns fyrir túlk- un sinni á Hrafnkelssögu væru ófullnægjandi. Rétt er að athuga nánar hve sennileg hún er í einstökum atriðum. í orðskviðum Publíusar finnur hann setningu sem hljóðar svo í útleggingu hans: „Veslum er það hugarbót að hafa félaga í hörmungum með sér.“ Nú er að koma þessari hugsun heim við Hrafnkelssögu. Jú, það virðist í fljótu bragði hægt með því að túlka orð Þorbjarnar karls þannig að í eymd sinni og volæði þætti honum bót að sjá Sám frænda sinn hrakinn líka. Yrði þá reyndar að gera lítið úr von Þorbjarnar um að vinna málið. Við skuium j>ó reyna að leggja jæssa hugmynd til grundvallar og hugsa okkur að frásögnin um skipti þeirra frænda sé skrifuð til að leiða hana í ljós. En þá hlyti Þorbjörn líka að vera með sæmilega hýrri há J)ótt jæir lytu í lægra haldi. En það er nú eitthvað annað. Þegar höfðingjar höfðu neitað j>eim um liðveislu á alþingi og hið sæta sameiginlega skipbrot blasti við báðum segir sagan þetta: Sámur gengur heim til búðar Jsinnar, og var þeim frændum þungt í skapi og uggðu að þeirra mál mundu svo niður falla að þeir mundu ekki fyrir hafa nema skömm og svívirðing; og svo mikla áhyggju hafa þeir frændur að þeir njóta hvorki svefns né matar ... í næsta kafla sögunnar áréttar höfundur svefnleysi Þorbjarnar og segir ennfremur að hann hafi brostið í grát. Slík varð „hugar- bót“ hans í reynd. Annað dæmi um þann lærdóms- grundvöll sem Hermann telur Hrafnkelssögu byggða á er skýr- ing hans á atferli Einars smala- manns. Fyrst rifjar hann upp orð sögunnar eftir að Hrafnkell hefur boðið Einari varnað á að ríða Freyfaxa: Einar kvað sér eigi mundu svo mein gefið (meingefið í útg.) að ríða þeim hesti einum, er honum var bannaö, ef þó væru mörg önnur til. „Þótt hér sé að vísu ekki um orðskvið að ræða,“ segir Her- mann, „þá bendir bygging máls- greinarinnar glögglega til þess að hér iiggi spakmæli til grundvallar. Andstæðan milli eins hests, sem ekki er leyfður, og margra hrossa sem eru leyfð, gefur sterkan grun um, að hér sé um að ræða útlendan lærdóm." Þeim sem jætta ritar býður hins vegar í grun að með þessum ályktunum sé verið að sækja vatnið yfir lækinn. En lítum á málsháttinn sem á að hafa kveikt á perunni hjá höfundinum. Hann er þessi: „Girndin elskar ekkert meira en það sem ekki er leyft.“ Ef hér er fundinn grundvöllur sögunnar um Einar smalamann þá hefur höfundi öldungis láðst að gera grein fyrir því að Einar hafi haft löngun til að ríða Freyfaxa. Að því er ekki vikið einu orði. Einar reyndi að ná hinum hross- unum en þau voru stygg. Þá hætti hann á að taka Freyfaxa, eina hrossið sem stóð kyrrt, svo að hann fengi sinnt skyldustörfum sínum. Þetta er vitnisburður sög- unnar en Hermann veit betur. En víkjum nú að „atlögu" Her- manns að þeim kenningum um tilurð Islendingasagna sem nefnd- ar hafa verið sagnfesta og bók- festa. Eins og flestum mun kunn- ugt átti sagnfestukenningin rætur að rekja til þeirrar trúar sem virðist hafa verið rótgróin með Islendingum og fleirum um aldir að sögurnar hefðu að geyma trú- verðugar frásagnir; þær hefðu verið settar saman og varðveist lítt eða ekki breyttar í munnlegri meðferð allt þar til í fyrsta lagi á 12. öld þegar menn tóku að rita. Blómaskeið sagnfestunnar var um síðustu aldamót, enda j>ótt fræði- menn fylgdu henni misjafnlega fast og hefðu ýmsa fyrirvara. Eftir nánari rannsóknir á heim- ildagildi sagnanna í einstökum atriðum og listareinkennum j>ótt- ust menn síðar sjá að þær hlytu að vera skáldskapur að meira eða minna leyti og skrifborðsvinna, hefðu aldrei verið munnmælasög- ur í núverandi mynd, rithöfundar hcfðu samið þær eftir hugmynd- um sínum og heimildum um sögu- öldina. Framhald þessarar bók- festukenningar varð síðan sú skoðun að sögurnar ættu miðalda- menningu Evrópuþjóða meira að þakka en fyrri fræðimenri höfðu gert ráð fyrir. Þessar hugmyndir hafa haldið áfram að þróast hjá Hermanni Pálssyni sem leitar, eins og áður hefur komið fram, undirstöðunnar í klassískum orðs- kviðum og spekimálum. Hann stendur því á herðum bókfestu- manna, telur t.a.m. Hrafnkelssögu skáldskap eins og Sigurður Nor- dal, er í rauninni meiri bókfestu- maður en hann, því að Hermann telur Hrafnkelssögu ekki allein- asta höfundarverk heldur einnig efniviðinn bókfærðar setningar. I fyrirlestri sínum víkur Her- mann á nokkrum stöðum að hug- myndum sagnfestumanna og segir m.a.: „ ... sagnfestumenn líta að sjálfsögðu á þetta (þ.e. orð Hrafnkels um heitstrengingu sína — innskot mitt) eins og önnur atriði í ræðu Hrafnkels sem orð- rétta lýsingu á því sem Hrafn- katli dettur í hug eftir að hann hefur banað smalamanni sínum fyrir að ríða Freyfaxa." (Letur- breyting mín). Þessi tilvitnun nægir til að sýna að gagnrýni Hermanns á sagnfestunni er nokkrum áratugum á eftir tíman- um. Það er öngvu líkara en hann hafi gert ráð fyrir að þeir Andreas Heusler, Knut Liestol og Finnur Jónsson yrðu meðal viðstaddra. Sagnfestukenningin hefur nefni- lega ekki staðið í stað fremuren bókfestan. Á 7. áratugi þessarar aldar tóku að myndast ný viðhorf um tilurð Islendingasagna byggð á vísindalegum rannsóknum á munnlegum skáldskap, fyrst og fremst ævintýrum og þjóðkvæðum og má rekja upphaf þeirra lengra aftur í tímann. Hafa þessar rann- sóknir m.a. leitt í ljós að munn- legar menntir geymast yfirleitt ekki óbreyttar að efni, síst í smærri atriðum, fylgja á hinn bóginn vissum lögmálum forms sem sagna- og kvæðamenn hafa í heiðri, enda þótt þeir endurskapi verkið að meira eða minna leyti í hvert sinn sem þeir flytja það. Þegar atburðir verða söguefni eru þeir að jafnaði þessum örlögum háðir en kjarni þeirra getur eigi að síður varðveist furðulega lengi. Þessar niðurstöður hafa leitt til endurmats á eðli íslendingasagna og hafa vísindamenn við banda- ríska háskóla haft þar forgöngu öðrum fremur; þó er þarna mikið verk óunnið. Á íslensku hefur Vésteinn Ólason lýst hinni nýju sagnfestukenningu í Skírni 1978: Frásagnarlist í fornum sögum og hennar gætir einnig í ritgerð minni, Uppruni og þema Hrafn- kelssögu. Rvík. 1976. Síðast víkur Kristján Eldjárn að henni í Morg- unblaðinu 25. okt. sl.: Minning um Prófessor Delargy. Nýja sagnfestan á sammerkt hinni gömlu í því að báðar gera ráð fyrr atburðum sem undirstöðu sagna frá þjóðveldisöld. Sú nýja hlýtur hins vegar að viðurkenna að munnmælin hafi verið að smábreytast í skáldskap og sú þróun náð hámarki þegar úr þeim voru sköpuð bókmenntaverk tveim til þrem öldum eftir atburðina. Samkvæmt henni er og ekkert því til fyrirstöðu að lærdómur og menning ritunartímans hafi haft úrslitaþýðingu fyrir listræna sam- setningu sagnanna, formgerð þeirra. Að því leyti er hún ekki ósamrýmanleg hugmyndum bók- festumanna um skerf höfunda. Fyrirlestur Hermanns Pálssonar er hins vegar glöggt dæmi um þær öfgar sem bókfestukenningin hef- ur hafnað í. Ný verslun: Bækur, hljómplötur og „hollar AÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 hefur opnað verslunin „Frækornið", rek- in af söfnuðinum „Sjöunda dags aðventistar". Þessi verslun hefur á boðstólum bækur frá Bókaforlagi Úr nýju verslun „Sjöunda dags aðvcnlista“. matvörur“ aðventista á Islandi, og rit, hljómplötur o.fl. frá útgáfufyrir- tækjum aðventista erlendis. Einn- ig eru til sölu í þessari verslun „hollar matvörur" frá matvæla- verksmiðjum aðventista víða um heim. Verslunin verður opin virka daga, nema laugardaga, á almenn- um verslunartíma, utan föstu- daga, þá aðeins til 2 e.h.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.