Morgunblaðið - 30.10.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
29
Ýmisleift jferist 1 þættinum „Andvoku" sem Fóstbræðrakonur sjá um.
Karlakórinn Fóstbræður:
Fjölbreytt
skemmtiatriði á
skemmtikvöldum
KARLAKÓRINN Fóstbræður hef-
ur að undanförnu gengist fyrir
skemmtikvöldum fyrir styrktarfé-
laga sína í félagsheimili kórsins að
Langholtsvegi 109—111. Skemmt-
anir þessar eru á föstudags- og
laugardagskvöldum kl. 20.30 og
verða þær haldnar fram eftir
næsta mánuði.
Á skemmtununum syngur kór-
inn nokkur létt lög undir stjórn
Ragnars Björnssonar en einnig er
einsöngur og kvartettsöngur. Sitt-
hvað fleira er til skemmtunar, t.d.
eru ýmsir skemmtiþættir fastur
liður á dagskránni og hafa Fóst-
bræðrakonur veg og vanda af
þeim. Að lokum leikur hljómsveit-
in Alfabeta fyrir dansi til kl. 3.00.
Stjórnandi skemmtananna er einn
af félögum kórsins, Þorgeir Ást-
valdsson.
Miðar á skemmtikvöldin verða
afhent og tekið á móti pöntunum
daginn fyrir hverja skemmtun og
samdægurs milli kl. 17 og 19 í
Fóstbræðraheimilinu, sími 85206.
Húsið er opnað kl. 21.00.
Fyrsti Barbershop-kvartettlnn á tslandi kemur fram og syngur
bandariska rakarasöngva.
Frú Gunnhildur Kram stjórnar
„Andvöku'*, sem er fastur liður á
skemmtikvöldum Fóstbræðra, af
mikilli röggsemi. Á myndinni sést
hún ræða við einn gest þáttarins.
Stundardansinn — þaulæft
ballettatriði með tilheyrandi
hljóðum og músík — hefur gert
mikla lukku á skemmtikvöldum
Fóstbræðra.
Vídd á
NÝLEGA var opnað nýtt hús-
næði fyrir almenning, þar sem
Nýlistasafninu mun vera ætlað-
ur samastaður. Fyrsta sýning á
þessum stað hefur þegar verið
opnuð, er hollensk að uppruna og
ber nafnið „Vídd á pappír". Það
er á Vatnsstíg 3 B, sem þetta
Myndllst
éftir VALTÝ
PÉTURSSON
sýningarpláss er, og er það á
jarðhæð, þar sem Gallerí SÚM
var á lofti. Þarna mun áður hafa
verið kaffibrennsla og hefur
hópur ungra listunnenda gert
þetta að mjög ágætum sýningar-
stað. Allt mun þarna hafa verið
unnið í sjálfboðavinnu, og er það
sannarlega virðingar- og þakk-
arvert starf, sem þessir ungu
menn hafa leyst af hendi. Hús-
næðið er sérlega vel fallið til
sýninga, og nú kemur upp sá
vandi, að verk þau er valin verða
til að gera staðinn fýsilegan til
fróðleiks og ánægju, séu rétt
valin og sæmi staðnum.
Þessi fyrsta sýning í Nýlista-
safninu er um margt forvitnileg
og einkum og sér í lagi fyrir þá
tilraun, er þarna kemur fram.
Það er að segja, gerð er tilraun
til að senda á milli landa upp-
köst og hugmyndir að Skúlptúr í
stað hinna fyrirferðarmiklu
skúlptúra sjálfra. Það á að vera
hægt að fá hugmynd um sjálf
verkin af þessum frummyndum,
pappír
sem eru afar þægilegar í flutn-
ingi og geta þvi komið að
verulegum notum. Það er opin-
ber stofnun, sem sér um kynn-
ingu á sjónlistum frá Hollandi
erlendis, sem stendur fyrir nú-
verandi sýningu. 12 listamenn
eiga þarna verk, og eru þau
nokkuð mismunandi að gerð og
eðli. Einn af þessum lista-
mönnum, Douwe Jan Bakker,
hélt hér sýningu á árunum og er-
því okkur kunnur. David van de
Kop vakti athygli mína með
sterkum teikningum. Johan
Claassen á þarna einnig eftir-
tektarverða hluti. Sama er að
segja um Carel Visser og einnig
nefni ég Jan van Munster' Ég er
ekki sannfærður um, að ég hafi
meðtekið þessi verk eins og
ætlast er til, en í því sambandi
visa ég til rits þess, er þessari
sýningu fylgir, og þar gera
listamennirnir grein fyrir verk-
um sínum á aðgengilegan hátt.
Sýningin fer vel í þessu hús-
næði, og ég hafði ánægju af að
skoða hana. Byrjunin hjá hinu
nýja fyrirtæki er með ágætum
og vonandi verður áframhaldið
þeim, er að þessu standa, til
sóma. Það er mikill vandi að
varðveita og umgangast list, í
hvaða formi sem er. Því er það
ekki út í hött að vona hið besta,
þegar nýtt safn fer á stað. Sum
söfn verða nefnilega fyrr en
varir að reglulegum ruslakomp-
um, en önnur vaxa ár frá ári og
gegna hlutverki sínu ágætlega.
Ég veit ekki, hvort aðstandendur
þessa nýja safns gera sér grein
fyrir, hverja ábyrgð þeir takast
á hendur með því að stofna safn
sem þetta. Ef þeir eru þess
meðvitandi, þarf vart að óttast
um framhaldið. Vonandi eru
þessar vangaveltur mínar óþarf-
ar og allt gengur að óskum.
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Skrifstofustarf óskast
Óska eftir hálfsdagsstarfi Vön
alhliöa skrifsfofstörfum, þ. á m.
merkingu bókhalds, launaútr.,
vélrltun o.fl. Uppl. í síma 74520.
~Wn'
tilkynningar
Húshjálp óskast
6—8 tíma á viku.
Ágústa P. Snæland, Túngötu 38,
s. 13733.
Húseigendur
Smíöum laus fög, fræsum út
glugga fyrir tvöfalt gler, útvegum
allt efni. Verötilboö eöa tíma-
vinna. Tökum einnig alla nýsmíöi
og breytingar, skrifum upp á
teikningar.
Húsasmíöameistari, síma 40924
og 52865.
Arinhleósla
Magnús Aöalsteinn, sími 84736.
Ljótritun meöan þér bíöiö. Lauf-
ásvegi 58. — Sími 23520.
---v—w»' y»» WIA*—
i bílar
Jeppabílar til sölu
Rússajeppi, árg. '77 í sérflokki
meö sætum fyrir 12 farþega.
Landrover diesel, árg. '75, í
góöu lagi.
Uppl. í síma 95-5134 eftir kl. 8 á
kvöldin.
Til sölu
Benz árg. 61, 34 farþegar Ný
upptekin vél. Góö dekk, ný
sprautaöur. Uppl. í síma 97-
4217.
Gull — Silfur
Kaupum brotagull og silfur,
einnig mynt og minnispeninga úr
gulli og silfri. Staögreiösla. Opiö
11 —12 f.h. og 5—6 e.h.
íslenskur útflulningur, Ármúla 1,
síml 82420.
Keflavík
Til sölu 2ja herb. íbúö í ágætu
ástandi. Verö kr. 12 millj. Mögu-
leiki á aö taka bíl upp I sem útb.
Einstök kjör.
Eignamiölun Suöurnesja, Hafn-
argötu 57, sími 3868.
IOOF 11 = 16210308’A = Fl.
IOOF 5 = 16210308 Vt = SK
UTIVISTARFEFTÐIR
Föstud. 31.10 kl. 20
Snæfellsnet, góö gisting á
Lýsuhóli, sundlaug, ökuferöir,
gönguferöir, kvöldvaka meö
kjötsúpu á laugardagskvöld
(glaöst meö Gísla Albertssyni
áttræöum.) Upplýsingar og far-
seölar á skrifst. Lækjarg. 6A.
Útlvist
Hjálpræðisherinn
Fimmtudaginn kl. 20.30: Kvöld-
vaka. Major Edward Hannevik
talar. Kvikmyndin .Transformed
lives" veröur sýnd. Unglinga-
sönghópur syngur. Veitingar
Föstudag kl. 20.30: Einkasam-
sæti fyrir hermenn og heimil-
isambandssystur. Veriö velkom-
in.
Stykkishólmskonur
Fundur veröur í dag, fimmtudag-
inn 30. okt. kl. 8.30 í Domus
Medica.
Nefndin
AD KFUM
Kvöldvaka í kvöld kl. 20.30 aö
Amtmannsstíg 2B. Svipast um á
Hornströndum. Birgir Alberts-
son kennari sér um efniö. Hug-
leiöing. Ólafur Jóhannsson stud.
theol. Veitlngar. Allir karlmenn
velkomnir.
Samhjálp
Samkoma veröur í Hlaögeröar-
koti í kvöld kl. 20.30. Bílferö frá
Hverfisgötu 44 kl. 20. Allir vel-
komnir.
Samhjálp
Fíladelfía
Almenn samkoma kl. 20.30.
Ungt fólk talar og syngur.
Heimatrúboöið
Óðinsgötu 6A
Vakningarsamkoma í kvöld kl.
20.30. Allir velkomnir.
Bazar
Kvenfélags Háteigssóknar verö-
ur aö Hallveigarstööum, laugar-
daginn 1. nóv. kl. 2. Vandaöar
handunnar gjafavörur, kökur og
alls konar varningur. Skemmti-
fundur í Sjómannaskólanum 4.
nóv. Bingó o.fl.
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur í safn-
aöarheimilinu ( kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Séra Halldór S. Gröndal.
Freeportklúbburinn
Fundur í Bústaðakirkju í kvöld
kl. 20.30.
Stjórnin
Frá GuAspeki-
félaginu
Aatotftarsfmi
Ganglera «f
39573.
í kvöld kl. 21.00 veröur Sigvaldi
Hjálmarsson með erindi: »Söng-
ur ( hjartanu". (Septíma). Hug-
ieiöingartími kl. 18.10. Öllum
opiö.
Fyrirlestur um biblíurannsóknir
og bibliuspádóma haldinn í
Fáksheimilinu í kvöld kl. 20.30.
Hvert stefnir þú?
Unglingavaka veröur ( húsi
KFUM og K aö Lyngheiöi 21,
Kópavogi í kvöld kl, 20.30.
Dagskrá í umsjá ungs fólks.
„Hvað er Biblían?" Stína Gísla-
dóttir æskulýöstulltrúi talar.
Fjörmikill söngur og hljóöfæra-
leikur. Frásögur í myndrænum
búningum. Allir eru velkomnir.
M ta.YKIMiAKIMINN KR:
2248D
JHargunblfltiib