Morgunblaðið - 30.10.1980, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 30.10.1980, Qupperneq 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980 Jónas Haraldsson skrifstofustjóri L.I.U.: Um Hellnamálið Laugardaginn 18. október sl. birtist í Morgunblaðinu grein eftir framkvæmdastjóra Náttúru- verndarráðs undir fyrirsögninni Hellnamálið. Grein þessari er ætlað að vera svar framkvæmda- Stjórans við þeim hluta greinar minnar, er birtist í Morgunblað- inu þann 16. október sl. um deilurnar um byggingu sumarbú- staða LÍÚ að Hellnum, er fjallar um afskipti Náttúruverndarráðs og hans, sem framkvæmdastjóra þess, af þessu deilumáli. Þótt grein framkvæmdastjórans sé ekki mikil að vöxtum, þá gefur hún mér tilefni tii ýmissa athuga- semda vegna nokkurra ummæla hans í greininni, sérstaklega síð- ari hluta hennar þar sem fram- kvæmdastjórinn virðist missa stjórn á skapi sínu og verður efnismeðferðin eftir því. Aður en ég sný mér að því að svara sumum ásökunum hans og aðfinnslum er hann beinir til mín, eins og um ónákvæmni, ókunnug- legar útgáfur af orðum hans, hártoganir, dæmalausa smekk- leysu að misnota persónulegar upplýsingar hans, vanþekkingu á einfaldri stjórnsýslureglu, að lít- illækka Náttúruverndarráð, klunnalega framkomu o.s.frv., þá tel ég rétt að rekja í stuttu máli öll samskipti mín sem starfsmanns LIÚ, við Náttúruverndarráð og hann sem framkvæmdastjóra ráðsins og talsmann þess vegna sumarbústaðamálsins. Upphaf þessa máls má rekja til ársins 1977, er LÍÚ ætlaði að byggja þrjá sumarbústaði að Arn- arstapa í hraunbrekku, sem þar er. Var m.a. leitað til Náttúru- verndarráðs um samþykki á þess- ari staðsetningu bústaðanna. Þessari beiðni LIÚ hafnaði fram- kvæmdastjórinn með þeim kjarn- yrtu og skemmtilegu orðum að sumarbústaðir í hraunbrekkunni skyggðu á fjallasýnina til jökuls- ins frá Arnarstapabryggju. Við þessi orð sín vill fram- kvæmdastjórinn ekki kannast, tel- ur mig hafa búið þau til, eða man kannski ekki eftir þeim lengur. Ástæðan fyrir því að ég man þau enn, þrem árum síðar, en fram- kvæmdastjórinn ekki, er einfald- lega sú, að ég er enn að hlæja að þessu kjarnyrta svari en fram- kvæmdastjórinn ekki. í sjálfu sér skiptir ekki nokkru máli, hvernig menn koma orðum að því, sem þeir eru að meina. Þetta svar táknaði einfaldlega það, að sumarbústaðabyggingar í hraunbrekkunni spilltu landslag- inu og væru til lýta að mati framkvæmdastjórans. Eg er hon- um alveg sammála um þetta atriði og tel að sumarbústaðabyggingar eigi ekki að leyfa í hraunbrekk- unni, þótt eftirsóknarvert sé, enda nóg annað landsvæði, hentugt undir sumarbústaði, fyrir hendi á Arnarstapa. Vil ég reyndar ganga enn lengra í þessu efni, og láta rífa steypta húsið sem stendur innar í hraun- brekkunni og byggt var á fölskum forsendum fyrir nokkrum árum og Náttúruverndarráð vafalaust reynt að koma í veg fyrir að yrði byggt vegna þeirra lýta, sem húsið veldur á umhverfinu. Árið eftir, þ.e. 1978, er LÍÚ ætlaði að kaupa jörðina Skjald- artröð að Hellnum, lét Náttúru- verndarráð þinglýsa yfirlýsingu um forkaupsrétt sinn á jörðinni, þar sem til stóð að friðlýsa ströndina og Bárðarlaug. Þessari kvöð aflýsti ráðið síðar, þegar LÍÚ hafði undirritað yfirlýsingu þess efnis, að samtökin samþykktu friðlýsinguna. Þar sem Náttúruverndarráð á að gefa umsögn sína um fyrirhug- aðar sumarbústaðabyggingar, var enn á ný leitað til ráðsins til að fá samþykki þess vegna fyrirhugaðra framkvæmda. Það kom strax fram hjá framkvæmdastjóranum, að hann taldi það ekki snerta mikil- væga náttúruverndarhagsmuni á hvaða svæði jarðarinnar utan hins friðlýsta svæðis sumarbústaðirn- ar yrðu reistir. Voru menn nú farnir að vona að málið væri nú komið í höfn hvað Náttúruvernd- arráð snerti, enda vandséð hvaða athugasemdir það gæti haft fram að færa, þar sem um var að ræða fimm fjöldaframleidda og staðl- aða sumarbústaði og ekkert óvenjulegt á döfinni varðandi staðsetningu eða annað. Þetta reyndist þó öðru nær. Eftir vettvangskönnun hafði framkvæmdastjórinn tvær athugasemdir fram að færa. í fyrsta lagi féllst hann ekki á það, að einn sumarbústaðurinn yrði staðsettur í litlum hvammi um 20 metrum fyrir neðan hið svonefnda neðra svæði. Hafði hreppsnefnd Breiðavíkurhrepps gert sömu athugasemd. Með tilliti til þessar- ar athugasemdar var staðsetningu þessa bústaðar breytt og hann staðsettur með hinum bústöðun- um fjórum á neðra svæðinu. Varð þá að stytta bilið á milli húsanna til þess að koma þeim öllum þar fyrir. í öðru lagi gerði framkvæmda- stjórinn þá athugasemd, eins og áður hefur verið sagt frá, að hornið á efsta húsinu væri of nálægt fjártóft, sem þar er og gaf þá ástæðu fyrir þessari skoðun sinni, að hann teldi, að óbreyttu yrði of þröngt fyrir ferðamenn að komast milli hússins og fjártóft- arinnar og þar af leiðandi þyrfti að færa húsið fjær tóftinni. Vegna þessara ummmæla framkvæmda- stjórans var strax haft samband við byggingarmeistarann og hann beðinn að staðsetja efsta húsið 1—2 metrum fjær tóftinni en fyrirhugað var og búið var að merkja fyrir af verkfræðingum, er höfðu mælt út fyrir staðsetningu bústaðanna. Eftir að hafa gert það, sem framkvæmdastjórinn fór fram á, var nú enn reynt að fá Náttúru- verndarráð til að samþykkja fyrir sitt leyti, að LIÚ fengi nú að byggja sumarbústaðina, enda höfðu samtökin í einu og öllu farið eftir óskum og fyrirmælum Nátt- úruverndarráðs og framkvæmda- stjóra þess. Taldi LÍÚ að nú hlyti það að fá samþykki Náttúruvernd- arráðs, enda afskipti ráðsins orðin nóg að mati samtakanna. Eins og framkvæmdastjórinn réttilega rekur í grein sinni, var því lýst yfir af hálfu fram- kvæmdastjórans að Náttúru- verndarráð gæti ekki gefið um- sögrv sína fyrr en aðrir tilteknir umsagnaraðilar hefðu gefið um- sagnir sínar. Yrði að afgreiða hlutina í réttri röð. Það væri ekki hægt að afgreiða B fyrr en búið væri að afgreiða A, svo vitnað sé í líkingamál framkvæmdastjórans í „persónulegu viðtali". Þannig standa málin varðandi Náttúru- verndarráð í dag. Eg hef nú talið upp öll þau samskipti, sem áttu sér stað milli mín og hans sem starfsmanna þessara aðila og hafði reyndar rakið áður. Það er hinn mesti misskilningur hjá framkvæmdastjóranum, að ég hafi í grein minni gert lítið úr Náttúruverndarráði sem stofnun, þótt ég hafi fundið að því í grein minni, að Náttúruverndarráð vildi ekki gefa umsögn sína um það, hvort fyrirhuguð bygging 5 sumarbústaða á hinu svonefnda neðra svæði brjóti í bága við náttúruverndarsjónarmið eða ekki. Verður ómögulega séð, að náttúruverndarsjónarmið breytist nokkuð, allt eftir því hvernig aðrir umsagnaraðilar afgreiða umsagn- ir sínar um óskyld atriði. Þótt Náttúruverndarráð gefi umsögn sína þarf LÍÚ eftir sem áður að leita til annarra umsagnaraðila á viðkomandi sviðum, sem væntan- lega gefa eða hafa gefið umsagnir sínar óháð því, hver umsögn Náttúruverndarráðs verður um náttúruverndarsjónarmið. Þótt ráðið gefi jákvæða umsögn er ráðið ekki að gefa LÍÚ grænt ljós varðandi sjálfar byggingar- framkvæmdirnar eða taka beina afstöðu með LIÚ, sem er senni- legasta skýringin á tregðu Nátt- úruverndarráðs að gefa umsögn sína. í grein sinni telur fram- kvæmdastjórinn það ótímabært fyrir Náttúruverndarráð að leggja vinnu í umsögn um fyrirkomulag mannvirkja í smáatriðum, svo sem útlit húsa og legu í landi. Hvað útlit bústaðanna snertir, hefur enginn haft neitt út á útlit þeirra að setja, þvert á móti. Hvað Myndin er tekin í hraunbrekku þeirri að Arnar- stapa. cr LÍÚ vildi fá að byggja þrjá sumarhústaði. en fékk ekki. f suður á miðri myndinni sést höfnin að Arnarstapa. f norður og ofar er þjóðvegurinn og Snæfellsjökuil. Vofur á vetrarkvöldi nútímans íslenzki veturinn er að byrja einu sinni enn. í margar aldir vakti hver vetrarbyrjum mörgum þungar áhyggjur, leyndan ótta. Nú er þetta breytt til hins betra. Sumir taka varla eftir fyrsta vetrardegi. Hann er þó sannarlega sér- stæður dagur í þjóðlífi okkar íslendinga. Mætti gjarnan minn- ast þess, að þrátt fyrir öll myrkur og storma íslenzkra skammdegisnátta, væru vetrar- kvöldin, kvöldvökúrnar sá tími, sem bar jafnvel hið bjartasta Ijós menningar við brautir kyn- slóðanna. Þarna sést glöggt sönnun þess, að allt getur orðið til blessunar, ef rétt er á haldið. En vetrarmyrkrið hefur samt villt um fyrir mörgum, valdið voða og slysum, vandræðum og bana. Þar veldur mestu til varnar sólskin í eigin sál. Það eru virkustu varnir gegn ógæfu. Margir tala nú um bílbelti, sem ætti að leiða í lög til verndar í umferðinni. Og vís- indalegar athuganir sanna gildi þeirra. Og er það því vel, að þau verði lögleidd. En einhver sagði svo sem i léttum tón: „Eg held það væri heppilegast að kenna þeim að biðja fyrir sér við stýrið." í þessu felst alvara og speki, þótt fjarlæg þyki. Bæn, það er að segja óskin um blessun öllum til handa, þótt aðeins sé í hljóðum huga, er nefnilega sama og vakandi hugur, sem biður engla ástúðar og tillitssemi að vaka yfir vegum sínum. Sá, sem vakir í kærleika Krists, lætur jafnan aðra ganga fyrir, víkur á vegi sínum í krafti hinnar æðstu speki, Ijóss, sem bægir vetrarmyrkvum brott. „Allt, sem þér viljið, að aðrir menn gjöri yður, skuluð þér og þeim gjöra." Sá eða sú, sem þetta kann í verki, varast slysin eins og ósjálfrátt og á það Ijós, sem lýsir á lífsins hættubrautum. Það var þessi vaka, þetta ljós, sem blessaði bænir Guðmundar biskups góða, er hann vígði brunna og björg og bægði þannig brott vofum og draugum í vetr- armyrkvum sinnar samtíðar. Þá var því trúað, að slíkar verur villtu um fyrir vegfarend- um, sem gætu svo farið sér að voða á sléttum vegi og björtum degi. En eru ekki vofur og draugar, sem fáir trúa nú að séu til, ekki aðeins okkar eigin andlegu skuggar eigingirni og frekju, sem gera allar brautir hættu- legar og sólskinsdag á sumarvegi öllum vetrarmyrkvum dimmari til að valda tjónum, slysum, örkumlun og dauða? En svo eru líka aðrir vegir til en hraðbrautir, breiðgötur eða aurtroðningar íslenzkra bifreiða. Einnig verða önnur slys og ekki síður ömurleg og átakaþrungin, ef vakandi hugsun vantar í umferð á ævileið. Þar er æskan og raunar við öll á ferð, en auðvitað mest hætta þeim ungu og óreyndu. Ég veit um móður, já, víst fleiri en eina, sem ráðið hafa sér bana í örvæntingaræði yfir slysabrautum barna sinna. Son- urinn, indæll efnisdrengur var áður en varði orðinn eiturlyfja- neytandi. Þar urðu slysin tvö á bjartri æskubraut um hásumar ævidags á beinum og breiðum vegi. Þar voru verri öfl en vofur og draugar í hjátrú liðinna alda að verki og villtu um fyrir þessum ógæfusömu mægðinum. Vofurnar heita tízka ög heimska, og draugarnir hroki og sj álf birgi ngskapur. Allt þetta skapaði gjörninga- nætur og villumyrkur, sem orsakaði ógæfu og fjörtjón. Þetta hófzt með hassreyking- um að húsabaki á föstudags- kvöldum. Hvers vegna ætti hann að vera eftirbátur annarra drengja, ágætra félaga? Og hassið heimtaði meira og fleira, sterkari fínilyf. Og útveg- un þeirrar eyðslu, sem leiddi til innbrota, glæpa, ávísanafölsun- ar og allskonar blekkinga og lyga. Vetrarmyrkrið algjört um miðjan sumardag. Foreldrarnir börðust fyrst bjartsýn í góðri von þess að „góði og gáfaði drengurinn þeirra gæti aldrei orðið eins og hinir ræfl- arnir". En allt kom fyrir ekki. Slíkir atburðir í baráttu við vofur á vetrarkvöldum í heimskuhríð eru algengari og ægilegri slys en nokkurn fær grunað og kannski í næsta húsi. „Marga hefur vetrarmyrkrið villt á sína slóð.“ Draugar og vofur á vegum genginna kynslóða voru oft erfið viðureignar. En ægilegustu djöflar á vegi nútímaæskunnar eru: Upplausn, glaumur, græðgi, og ábyrgðar- leysi, sem sleppt er lausum á alfaraleið með alls konar grímur og gervi. Sumt af þessu illþýði er vissulega í ljósengilslíki, jafnvel eins og skrípamynd af sjálfum Kristi. Og þess má einnig geta, að þarna eru ekki einungis áfengi og eiturlyf á leiðinni til að trylla og æra. Þarna eru meira að segja ávonefndir vinir og félagar, jafn- vel stjórnmálaforingjar og gervileiðtogar, stundum myndir og málefni, til að skapa blekk- ingarmyrkrið og gjörningaþok- una.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.