Morgunblaðið - 30.10.1980, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
37
Góð þátttaka á
haustmóti T.R.
Þátttakendur i Ilaustmóti
TaflfélaKs Reykjavíkur voru að
þessu sinni fleiri en oftast áður
auk þess sem breiddin hvað
stigin varðaði var að þessu
sinni mikil. Þannig dugðu 2150
skákstig ekki til sætis í A-riðli.
en áður hafa verið dæmi þess að
menn með allt niður i 1950 stig
hafi fengið þar inni.
Þessi mikla þátttaka leiddi
síðan til þess að B- og C-flokk-
arnir urðu miklu öflugri en
áður hefur þekkst, t.d. voru stig
þátttakenda f B-flokki á bilinu
1860 til 2095. þannig að um
öflugan meistaraflokk var að
ræða.
Auðvitað er erfitt að geta sér
til um ástæðurnar fyrir þessari
auknu þátttöku, en þó grunar
mig að helgarmótin eigi þar
mikinn þátt auk þess sem stutt
er liðið frá siðasta alþjóðaskák-
móti. Þá hefur skákstarf i
skólum aukist mikið upp á
síðkastið, sérstaklega með til-
komu skólaskákkeppninnar.
sem var stórt spor í rétta átt.
Þar sem nokkuð hefur verið
fjallað um keppnina í A-flokki á
síðum Morgunblaðsins er nú
kominn tími til þess að víkja að
hinum flokkunum, en þar var
keppnin engu að síður hörð og
skemmtileg.
Sérstaklega var lengi tvísýnt
um úrslit i B-flokknum, en þar
voru flestir þátttakendur á mjög
svipuðu stigi að stigum og
styrkleika. Fyrir síðustu umferð
voru t.d. hvorki fleiri né færri en
fjórir skákmenn þar jafnir og
efstir, með sex vinninga, þeir
Ágúst Karlsson TR, Björgvin
Jónsson S. Kefl., Guðmundur
Halldórsson T. Hreyfils og Ró-
bert Harðarson TR. Róbert fór
af stað með miklu offorsi í
mótinu, hafði um tíma hlotið sex
vinninga úr jafnmörgum skák-
um og yfirburða forystu. Þá
tapaði hann aftur á móti mikil-
vægri biðskák fyrir Björgvini og
síðan einnig næstu tveimur
skákum sínum. Samt sem áður
átti hann möguleika á sigri, en
andstæðingur hans í síðustu
umferð var einmitt Ágúst
Karlsson. Staðan virtist lengst
af í jafnvægi, en í endatafli kom
Ágúst kóngi sínum vel fyrir og
það réði úrslitum, þannig að
Róbert náði engum vinningi eftir
sprettinn í byrjun. Á meðan
þessu fór fram náði Guðmundur
sér aldrei á strik gegn Hauki
Bergmann S. Kefl., stigahæsta
þátttakandanum í flokknum, og
tapaði. Björgvin vann hins vegar
Daða Jónsson af öryggi, þannig
að hann og Ágúst, sem báðir eru
mjög ungir og efnilegir skák-
menn, urðu jafnir og efstir. Vart
Skák
eftir JÓHANNES
GÍSLA JÓNSSON
líður því á löngu að þeir fái
tækifæri á að spreyta sig í
A-flokknum. Lokastaðan í
B-flokki varð því: 1,—2. Ágúst
Karlsson (32,5 stig) og Björgvin
Jónsson (29,9), 7 v. af 10 mögu-
legum, 3.-4. Guðmundur Hall-
dórsson (27,0) og Róbert Harðar-
son (24,5) 6 v., 5.-6. Páll Þ.
Bergsson (27,5) og Árni Á. Árna-
son TR (24,5) 5% v., 7. Daði
Jónsson TR 5 v., 8.-9. Haukur
Bergmann 4 Vi v. og Ragnar
Magnússon TR 4 Vfe v., 10. Lárus
Jóhannesson TR 3 Vfe v. og lestina
rak Ágúst Ingimundarson TR
með hálfan vinning en hann
tefldi langt undir styrkleika.
Úrslit í C-fiokki urðu á þá leið
að þeir Hrafn Loftsson TR og
Eiríkur Björnsson TR, urðu
jafnir og efstir með 7'/2 vinning
hvor af 11 mögulegum, en Hrafn
var hærri á stigum. Þriðji varð
Sveinn I. Sveinsson TR með 7 v.
og fjórði Þorsteinn Þorsteinsson
(eldri) úr TR með v.
í C-flokki börðust þeir Páll
Þórhallsson TR og Stefán G.
Þórisson TR lengst af tvísýnni
baráttu um efsta sætið. Svo fór
að lokum að Páll varð hlutskarp-
ari, hlaut 8 vinninga af 10
mögulegum, þar eð Stefán tapaði
í síðustu umferð fyrir Jóni Árna
Halldórssyni TR, sem náði hon-
um þar með að vinningum og var
að auki hærri á stigum. Þeir Jón
Árni og Stefán hlutu báðir 7
vinninga. Fjórði varð Stefán
Aðalsteinsson TR með 5‘/2 v.
Úrslit í E-flokki urðu þessi: 1.
Gunnar Freyr Rúnarsson TR,
8‘/2 v. af 11 mögulegum, 2. Björn
Fr. Björnsson TR 8 v., 3.-5.
Jóhannes Ágústsson TR (34,75
stig), Rögnvaldur G. Möller TR
(32,0) og Ólafur Einarsson TR
(30,5 stig) 7 v.
í F-flokki tefldu 34 þátttak-
endur 11 umferðir eftir Mon-
rad-kerfi og urðu úrslit þessi: 1.
Ólafur G. Jónsson S'/i v., 2.-3.
Sigurður Sigurðsson S. Kefl.
(63,5) og Halldór Gíslason, (61,0)
8 v., 4.-6. Vilhjálmur Þorvalds-
son TR, Haraldpr Baldursson TR
og Thor Thoroddsen TR, 7 v.
í unglingaflokki, 14 ára og
yngri, varð Arnór Björnsson TR
enn einu sinni hlutskarpastur.
Hann hlaut 8V4 vinning af níu
mögulegum. Næstur varð Georg
Páll Skúlason TR með 7 v. og
síðan komu þeir Arnaldur
Loftsson TR (43,5 stig), Snorri
Bergsson TR (43,0) og Sveinn
Gylfason S. Kefl. (38,0), allir
með sjö vinninga.
Við skulum síðan að lokum
líta á eina bráðskemmtilega
skák sem tefld var í B-flokki:
Hvítt: Róbert Ilarðarson
Svart: Daði Jónsson
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5, 2. Rf3 - d6, 3. d4 -
cxd4, 4. Rxd4 - Rf6, 5. Rc3 -
a6, 6. Be2 - e5, 7. Rb3 - Be7,
8. 00 - Be6, 9. f4 - Dc7, 10.
Be3 - 0-0, 11. Í5 - Bc4 12. g4
(Algengasti leikurinn í stöðunni
er 12. a4!) - h6, 13. h4 - d5!,
(Árás á væng skal svara með
aðgerðum á miðborði er gömul
og góð regla sem Daði útfærir
hér.) 14. g5 — d4!. 15. Bxc4 —
Dxc4, 16. gxf6 - Bxf6, 17. Rd5
(Hvítur heldur sig nú vinna
heilan hrók, en það er ekki allt
sem sýnist) — dxe3, 18. Rb6?
(18. Dg4! var öflugur leikur.) —
de4,19. Df3 - Dxhl, 20. Rxa8
- Hc8,(Hótar b«eði 21. — Hc4,'
21. - Hxc2 og 21. - Rd7. Þótt
hvitur sé hrók yfir er hann
furðulega varnarlaus.) 21. Dxe3
- IIxc2,22. Hf2 - Bg5,23. Dí3
- e4, 24. Dg2 - Be3. 25. Hafl
og hvítur gafst upp um leið, því
enda þótt ótrúlegt megi virðast
leikur svartur 25. — Rc6, og
síðan Re5 og Rf3+ án þess að
nokkrum viðundandi vörnum
verði við komið.
Bridge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Bridgedeild
Barðstrendinga
Fimmta og síðasta umferðin i
tvímenningskcppninni lauk
mánudagskvöldið 27. pktóber
og sigruðu Þórarinn Árnason
og Ragnar Björnsson með mikl-
um yfirburðum.
En að lokinni keppni var staða
10 efstu para þessi:
Þórarinn Árnason
— Ragnar Björnsson 669
Magnús Halldórsson
— Jósef Sigurðsson 609
Gunnlaugur Þorsteinsson —
Hjörtur Eyjólfsson 600
Kristján Ingólfsson
— Jón Björnsson 578
Sigurður Kristjánsson
— Hermann Ólafsson 572
Þórir Bjarnason
— Hermann Samúelsson 558
Ágústa Jónsdóttir
— Guðrún Jónsdóttir 553
Viðar Guðmundsson
— Pétur Sigurðsson 550
Mánudaginn 3. nóvember
hefst síðan 5 kvölda hraðsveita-
keppni. Spilarar mæti stundvís-
lega kl. 7:30.
Frá keppni hjá Tafl- og bridgeklúbbnum,
Bridgedeild
Húnvetninga-
Tólf pör taka þátt í fimm
kvölda tvímenningskeppni sem
stendur yfir hjá félaginu. Þegar
tveimur umferðum var lokið var
staða efstu para þessi:
Jóhann — Jón 259
Haukur — Karl 252
Dóra — Sigríður 243
Haraldur — Kári 237
Valdimar — Sigrún 226
Meðalárangur 220
Spilað er í húsi Húnvetninga-
félagsins Laufásvegi 25. (Gengið
inn frá Þingholtsstræti) á mið-
vikudögum.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 44., 46. og 52. tölublaöi
Lögbirtingablaösins 1980, á Neðstutröö 6, þing-
lýstri eign Kristjáns Oddgeirssonar, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. nóvember 1980 kl.
16'3°'______Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 44., 46. og 52. tölublaöi
Lögbirtingablaösins 1980, á Birkigrund 34, þing-
lýstri eign Braga Kristiansen, en talinni eign
Guömundar Sveinssonar, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 6. nóvember 1980 kl. 16.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 105., og 109. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1979, og 2. tölublaði 1980, á
Löngubrekku 14 — hluta —, þinglýstri eign
Halldórs Ásgeirssonar, fer fram á eigninni sjálfri
fimmtudaginn 6. nóvember 1980 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 88., 92. og 96. tölublaöi
Lögbirtingablaösins 1979, á Þverbrekku 2 — hluta
—, þinglýstri eign Róberts Róbertssonar, fer fram
á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. nóvember 1980
kl. 13.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 84., 89. og 93. tölublaði
Lögbirtingablaösins 1979, á Skólagerði 64, þing-
lýstri eign Þórarins Jakobssonar, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. nóvember 1980 kl.
11.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 44., 46. og 52. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1980, á Ásbraut 9 — hluta —,
þinglýstri eign Ingólfs Ágústssonar, fer fram á
eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. nóvember 1980 kl.
15.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 44., 46. og 52. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1980, á Skálaheiði 1 — hluta
—, þinglýstri eign Sjafnar Sigurgeirsdóttur, fer
fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6. nóvember
1980 kl. 17.00
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 107. og 111. tölublaöi
Lögbirtingablaðsins 1979 og 5. tölublaði 1980, á
Löngubrekku 47, þinglýstri eign Hjartar Guð
mundssonar, fer fram á eigninni sjálfri fimmtudag-
inn 6. nóvember 1980 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 53., 56 og 59. tölublaöi
Lögbirtingarblaösins 1979, á Holtageröi 56 —
hluta —, þinglýstri eign Konráös Guömundssonar,
fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6.
nóvember 1980 kl. 10.00
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 88., 92. og 96. tölublaði
Lögbirtingablaösins 1979, á Hamraborg 22 —
hluti —, þinglýstri eign Guömundar Guðjónssonar,
fer fram á eigninni sjálfri fimmtudaginn 6.
nóvember 1980 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn í Kópavogi '