Morgunblaðið - 30.10.1980, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
41
Jólin! Jólin!
+ Jólin — jólin — jólin koma brátt! Eigi skal sagt um jólaskapið en í henni London
virðast menn óðum að komast í jólaham, eins og marka má af myndinni sem var
tekin í hinu fræga Oxfordstræti. Persónurnar þekkja allir, gamlir vinir úr
teiknimyndasögu Walt Disneys, jú, rétt, Öskubuska, dvergarnir sjö og
jólasveinninn Gluggagægir trúlega.
félk í
fréttum
Elísabet úr skónum!
+ Elízabet Bretadrottning var á dögunum á Ítalíu. Þá átti
hún meðal annars samtal við páfa. Frá Ítalíu hélt hún síðan
til Norður-Afríku. Þessari mynd var smellt af henni þá hún
sté inn í mosku í hinni heilögu borg Kairouan. Sem sjá má,
vottar hún múslimum virðingu sína fyrir trú þeirra og fer
úr skónum áður en hún fer inn í moskuna.
Miðill
aðstoðar
lögregluna
+ Þessi kona heitir Doroth.v
Allison OR er miðill. Hún
aðstoðar nú lögreKluna við að
finna morðingja sem myrti 10
svört börn í Atlanta í
Georgíufylki. Hún er sögð
hafa hjálpað lögreglunni við
að leysa að minnsta kosti 13
morðgátur. Frú Allison, sem
er 55 ára gömul húsmóðir,
hefur fundið um 50 týnd börn
á síðustu 12 árum. Sjálf segist
hún ekki geta útskýrt mátt
sinn og leggur sig ekki eftir
því að verja hann fyrir efa-
semdamönnum. Þegar hún
var 14 ára er hún sögð hafa
séð fyrir dauða föður síns, en
reyndi að leiða það hjá sér.
Hún segist þá hafa hatað
mátt sinn. Sem unglingur var
hún oft kölluð norn af ná-
grönnum sínum en hún gat
ekki varist þeim sýnum sem
hún sá. „Ég vinn aðeins fyrir
foreldra og lögregluna, ég er
engin spákona," segir frú Alli-
son. Hún hefur aldrei tekið
við neinum greiðslum fyrir
þjónustu sína.
Lokað
frá hádegi 31.10 n.k. vegna jarðarfarar.
Smurstöðin Klöpp, Skúlagötu.
og ekki skemma gæðin eöa verðið. Frá
Víkurvögnum Hf., 5 tonna, 7,5 tonna og 10
tonna sturtuvagnar.
Þessir vagnar eru nú framleiddir á íslandi með
þeim árangri að erlendir eru ekki lengur fluttir
inn, líklega vegna verðs og gæða íslenzku
framleiðslunnar.
Já, það væri kannski rétt að hafa samband við
þá í Vélaborg, síminn er: 86655.
Vélaborg hf.
Sundaborg 10.
útlitiö
bara
Já
gott
er