Morgunblaðið - 30.10.1980, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. OKTÓBER 1980
47
Skúli reynir
við heimsmet
Norðurlandamót unglinKa í
lyftiniíum verður haldið í fyrsta
skipti hér á landi um næstu hel>ji.
Nánar verður frá því greint í
Lyftinga-
menn i
lyfjapróf
LYFJAPRÓF verða haldin í
fyrsta skiptið hérlendis um
næstu heifji. er Norðurlandamót
unKlinxa fer fram í Lauuardals-
höllinni. Slikt hefur aldrei farið
fram á iþróttamótum hérlendis
áður, en er viðtekin venja á meiri
háttar mótum erlendis.
Fimm keppendur frá hverri
þjóð munu spræna í krukkur, sem
verða síðan innsiglaðar og sendar
til Svíþjóðar til úrvinnslu. Alls
verða því tekin 25 þvagsýni. Þetta
mun þó vera mjög kostnaðarsamt
fyrir ISÍ og mál manna að um dýrt
þvag sé að ræða.
• íþróttamaður Reykjavikur Steinunn Sæmundsdóttir með hinn
veglega bikar sem Austurbakki gaf.
Steinunn Sæmundsdóttir
margfaldur íslandsmeistari
STEINUNN Sa'mundsdóttir var í fyrrakvöld valinn íþróttamaður
Reykjavíkur. Það er stjórn íþróttabandalags Reykjavíkur sem
stendur fyrir kjöri þessu. Þetta er i annað sinn sem kosinn er
iþróttamaður Reykjavíkur 1 fyrra var Guðmundur Sigurðsson
lyftingamaður í Ármanni fyrir valinu. Verðlaunaafhendingin fór
fram í Höfða. En þar fór fram boð á vegum borgarstjórnar
Reykjavíkur fyrir tvö Reykjavíkurfélög í knattspyrnu. Lið Vals er
varð Islandsmeistari í knattspyrnu og lið Fram er sigraði í
hikarkeppni KSÍ. Sigurjón Pétursson forseti borgarstjórnar bauð
gesti velkomna með stuttu ávarpi og lýsti ánægju sinni og
borgarstjórnar með þann góða árangur sem Fram og Vaíur hefðu náð
i knattspyrnumótum sumarsins. Því næst tók til máls Úlíar Þórðarson
formaður ÍBR og lýsti hann kjöri iþróttamanns Reykjavíkur. Er mjög
vel til fundið að heiðra þau íþróttafélög í horginni sem skara framúr
hverju sinni það virkar sem hvatning á það mikla og óeigingjarna
starf sem unnið er af hinum fjölmörgu sjálfboðaliðum i frjálsu
iþróttastarfi.
Steinunn Sæmundsdóttir hlaut
veglegan bikar sem Austurbakki
færði íþróttabandalaginu í þessu
skyni á 35 ára afmæli þess.
Var þá ákveðið að taka upp
þennan sið og áskilið, að uppfylla
yrði þau skilyrði við val á íþrótta-
manni Reykjavíkur, að hann hefði
keppt fyrir félag í Reykjavík sl. 5
ár og einnig, að hann hefði verið
búsettur í Reykjavík sl. 5 ár.
Jafnframt hét Austurbakki hf.
því, að með veitingu bikarsins
fylgdi nokkur peningagjöf til þess
sérráðs, sem íþróttamaðurinn
heyrði undir. Þá var einnig gert
ráð fyrir því, að afhending bikars-
ins færi fram ár hvert á afmælis-
degi bandalagsins, sem er 31.
ágúst.
Steinunn Sæmundsdóttir er vel
að nafngiftinni íþróttamaður
Reykjavíkur komin. Hún hefur um
langt árabil lagt mikinn dugnað í
iðkun íþrótta sinna. Hér er rakinn
í stórum dráttum íþróttaferill
hennar.
Steinunn hóf skíðaferil sinn
fyrir 11 árum þá 9 ára gömul. Hún
tók þátt í fyrstu skíðakeppni sinni
tveimur árum síðar og varð í
fyrsta sæti. Síðan hefur hún unnið
til 154. verðlauna í skíðakeppnum,
þaraf 138 1. verðlauna.
íslandsmeistari í stórsvigi
kvenna varð Steinunn fyrst fyrir 5
árum, þá 15 ára gömul og hefur
haldið þeim titli óslitið síðan.
Islandsmeistari kvenna í svigi
hefur hún verið sl. 3 ár og
íslandsmeistari í alpatvíkeppni
kvenna hefur hún orðið 4 sinnum.
íslandsmeistaratitilinn í flokka-
svigi kvenna hefur hún unnið
tvisvar sinnum, ásamt stöllum
sínum frá Reykjavík. Bikarmeist-
ari kvenna á skíðum hefur hún
orðið 3 sinnum.
í ár varð Steinunn Reykjavík-
urmeistari kvenna í svigi, stór-
svigi og alpatvíkeppni.
Steinunn hefur tekið þátt í
fjölmörgum alþjóðlegum skíða-
mótum og oft komist í fremstu
röð. I fyrra vann hún mót í Les
Arks í Frakklandi og lék sama
leikinn aftur í ár á sama stað. SI.
vetur varð hún einnig 4. í svigi í
St. Gree í Italíu og 4. í svigi í
Innanstadt í Þýskalandi.
Steinunn var valin í lið Islands,
sem tók þátt í Vetrarólympíuleik-
unum í Innsbruck í Austurríki
1976, þá 15 ára gömul og yngst
keppenda. Hún náði þá þeim
frábæra árangri að verða 16. í
svigi. Hún var enn í liði Islands á
Vetrarólympíuleikunum í Lake
Placid í Bandaríkjunum sl. vetur
og náði þar 29. sæti í stórsvigi,
sem einnig var mjög góður árang-
ur.
Síðastliðin tvö sumur hefur
Steinunn einnig gefið sig nokkuð
Morgunblaðinu á næstu dögum.
En þegar hlé verður gert fyrri
dag keppninnar mun fara fram
merkilegt atriði. Skúli óskarsson
kraftlyftingamaður mun þá
reyna að setja heimsmet í rétt-
stöðulyftu. Rikjandi heimsmet í
greininni er 315 kíló og hefur
Skúli verið að rifa upp 310 kiló á
æfingum að undanförnu. Er það
mál þeirra sem til þekkja. að
Skúli geti hæglega sett heimsmet,
ef einhver stemmning næst meðal
áhorfenda ...
n t
nan
•jf'
i
l
Lyfllngar
Skúli Óskarsson
að golfíþróttinni og náð þar at-
hyglisverðum árangri. í sumar
vann hún til 9 verðlauna í golfi,
þaraf 7 1. verðlauna.
Á Golfmóti íslands í fyrra varð
hún stúlknameistari og vann þann
titil aftur í ár. Hún varð einnig
Reykjavíkurmeistari kvenna í
golfi 1980.
Á þessari stundu er Steinunn
því handhafi 4. íslandsmeistara-
titla kvenna á skíðum, eins ís-
landsmeistaratitils stúlkna í golfi,
3. Reykjavíkurmeistaratitla
kvenna á skíðum og Reykjavík-
urmeistaratitils kvenna í golfi,
auk þess að vera Bikarmeistari
kvenna á skíðum.
íþróttablaðið veitti Steinunni
sæmdarheitið Skíðamaður ársins
tvö ár í röð 1978 og 1979, og í ár
valdi Morgunblaðið hana skíða-
mann ársins.
Er Steinunn hafði veitt verð-
launum sínum viðtöku var hrópað
ferfalt húrra fyrir henni. Því næst
afhenti Árni Þór Árnason sölu-
stjóri Austurbakka Einari Þor-
geirssyni krónur eitt hundrað þús-
und til eflingar skíðaíþróttinni. —
ÞR.
Tekst IS aö
sigra ÍR?
EINN leikur fer fram í úrvals-
deildinni i körfubolta i kvöld. ÍS
mætir ÍR i iþróttahúsi kennara-
skólans og hefst leikur liðanna
kl. 20.00. Má búast við spennandi
leik á milli liðanna þar sem hvert
stig er mjög dýrmætt. ÍR-ingar
verða án efa erfiðir viðfangs þar
sem þeir urðu að sjá á eftir
báðum stigunum i síðasta leik
sinum gegn KR.
herraföt
eru framleidd úr
hinum heimsþekktu efnum frá
DORMEUJL
Hönnun Colin Porter.
KörluKnaltlelkur
Simi fra skiptiborði 85055.
Austurstræti 22