Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980
Áttræðisafmæli:
Hartwig Toft
fv. kaupmaður
Á morgun, mánudaginn 8. des-
ember, verður tengdafaðir minn
Hartwig Toft, fyrrv. kaupmaður,
ættræður. Hann fæddist alda-
mótaárið í Aabenraa á Suður-Jót-
landi, þriðji í röðinni átta bræðra,
er allir komust til manns, undan-
tekinn einn, er dó í æsku. Þrír
bræðra Hartwigs eru á lífi og búa
á Suður-Jótlandi.
Foreldrar þeirra bræðra voru
Margret Arendsen og Nis Toft,
bæði uppalin í nágrenni Aab-
enraa, en þar bjuggu þau allan
sinn búskap. Lengst af vann Nis í
tóbaksverksmiðju en síðar sem
ritstjóri hjá „Sönderjylland Sosi-
aldemokrat".
Árin eftir aldamótin voru ekki
síður erfið á Suður-Jótlandi en hér
heima og svo kom styrjöldin, árin
1914—18. Þó að Hartwig. lenti
aldrei í beinum átökum stríðsins,
var lífið strit með léttan maga.
Héruð þau, er næst lágu landa-
mærunum, voru ýmist undir
þýzkri eða danskri yfirstjórn. Hið
opinbera mál og skólamál var
þýzka, en móðurmálið danska
Landstjóri
Kanada
í heimsókn
EDWARD Richard Schreyer,
landstjóri Kanada, mun koma í
opinbera heimsókn til íslands í
boði forseta íslands, Vigdísar
Finnbogadóttur, dagana 3. til 5.
júní 1981, á leið til Kanada, að
aflokinni heimsókn til hinna
Norðurlandanna.
Stuðningur
MBL. BARST í gær til birtingar
eftirfarandi stuðningsyfirlýsing
við dómsmálaráðherra:
Við undirritáðir starfsmenn
Barkar hf. í Hafnarfirði lýsum hér
með yfir eindregnum stuðningi við
stefnu Friðjóns Þórðarsonar
dómsmálaráðherra í máli Patrick
Gervasonis.
Undir bréfið rita 26 starfsmenn.
(Suður-Jóska). Fólkið í þessum
héruðum var oft nefnt föðurleys-
ingjar.
Ungur hóf Toft störf við verzl-
un. Hann stundaði nám við „Den
jyske Handelshöjskole í Aarhus".
Árið 1923 ræður hann sig til
íslandsferðar á vegum Rich N.
Braun í Hamborg, en hann rak þá
verzlun hér í Reykjavík, að Aðal-
stræti 9 og útibú á ísafirði og
Akureyri. Fyrst starfaði Toft í
Reykjavík, en var fljótlega sendur
til ísafjarðar.
Áður en til íslandsferðarinnar
var ráðist, hafði Toft tekist það
herbragð gegn Þjóðverjum, að
ræna sér þaðan konuefni, Christ-
ine f. Harms frá Grönau við
Lubeck. í orðsins fyllstu merkingu
gerðist það þannig, vegna slæmra
samskipta og strangrar landa-
mæravörslu, sótti hann konuefnið
í nátt-myrkri á hjóli eftir skóg-
arstígum og troðningum fram hjá
landamæravörðum. Að sjálfsögðu
höfðu hjónaefnin lagt á ráðin, með
fulltingi ættingja. Christine kom
síðar til íslands í maí 1923. Þau
voru gefin saman í hjónaband á
ísafirði sama ár. Stuttu síðar
fluttu þau til Reykjavíkur, þar
sem Toft starfaði við Braunsverzl-
un til ársins 1937. Það ár urðu
eigendaskipti og við tók Ragnar H.
Blöndal, en hjá honum starfaði
Toft til ársins 1942. Á þeim árum
var Toft sendur, á vegum verzlun-
arinnar til Hamborgar, til að læra
gluggaútstillingar fyrir verzlanir.
Eftir að Toft hættir störfum hjá
Ragnari H. Blöndal, stofnsetur
hann sitt eigið fyrirtæki, Verzlun
H. Toft, þá fyrst að Skólavörðu-
stíg 8. I nokkur ár rak hann
verzlunina að Baldursgötu 39. Síð-
ustu árin var verzlunin til húsa að
Skólavörðustíg 25, en vegna
heilsubrests seldi hann verzlunina
á síðasta ári.
Þau hjónin, Christine og Hart-
wig, eignuðust fjórar dætur og eru
dætrabörnin honum mikið yndi.
Konu sína missti Hartwig árið
1958 og var það hans þyngsta
áfall, þó oft hafi aldan verið
kröpp.
Toft er mikill nátturuunnandi.
Liggja spor hans víða um ná-
grenni Reykjavíkur og víðar um
landið. Esjan heillaði hann mest
og þekkir hann hana öðrum betur.
Oft hefur honum sárnað um-
gengni fólks um landið, og þá tekið
til hendi, þar sem illa var frágeng-
ið á áningarstað.
Nú, þegar Toft hefur hætt
störfum, á hann öruggt og gott
athvarf hjá dætrum sínum. Hann
getur horft með gleði á farinn veg.
Það starf, sem hann helgaði sig,
var vel af hendi leyst. Það er stór
hópur viðskiptavina H. Toft og
þeim mun bera saman um, að
þjónusta sú, sem hann veitti í
verzlun, var innt af hendi með
hagsmuni viðskiptavinarins í
fyrirrúmi. Við óskum því Toft til
hamingju með afmælið, um leið og
við vonum að eiga eftir að spauga
við hann nokkur árin enn og njóta
hans þægilegu návistar.
Fjölskyldan sameinast öll um
hugheilar kveðjur til pabba, afa og
langafa.
M. Pálsson.
79
fornrít
PÖNTUNARSEÐILL
VERÐ MEÐ SÖLUSKATTI
Til 31.12.80 1981
kr. 15.285.- nýkr. 244,55
kr. 15.285.- nýkr. 244,55
kr. 15.284,- nýkr. 244,55
kr. 16.905,- nýkr. 270,50
kr. 15.285.- nýkr. 244,55
kr. 16.905.- nýkr. 270,50
kr. 16.905,- nýkr. 270,50
kr. 16.905.- nýkr. 270.50
kr. 15.285.- nýkr. 270,50
nýkr.
□ íslendingabók,
Landnámabók
□ Egilssaga
Skalla-Grímssonar
□ Borgfirðingasögur
□ Eyrbyggja saga
□ Laxdæla saga
□ Vestfirðingasögur
□ Grettis saga
□ Vatnsdæla saga
Til 31.12.80 1981
kr. 16.905- nýkr. 270,50
kr. 15.285.- nýkr. 244,55
kr. 15.285,- nýkr. 244,55
kr. 15.285.- nýkr. 244,55
kr. 15.285- nýkr. 244,55
kr. 15.285.- nýkr. 244,55
kr. 15.285,- nýkr. 244,55
kr. 15.285,- nýkr. 244,55
Alls g.kr._________________
□ Eyfirðinga sögur
□ Ljosvetninga saga
□ Austfirðinga sögur
□ Brennu-Njáls saga
□ Kjalnesinga saga
□ Heimskringla I
□ Heimskringla II
□ Heimskringla III
□ Orkneyinga saga
Ég undirritaður/uð óska eftir að fá eftirtalin
fornrit send í póstkröfu:
Nafn:........................................
Heimilsfang .................................
Bókaverzlun
Sigfúsar
Eymundssonar
Austurstræti 18
Reykjavík
Vegna breytts rekstrarfyrirkomulags, seljum við eftirtaldar
vörur á stórlækkuöu veröi:
Agfa Auto-Star instamatic myndavélar
Agfa Auto-Star vasamyndavélar.......
Agfamatic 100 instamatic myndavélar .
Keystone vasamyndavélar ............
Comet vasamyndavélar................
Unomat rafmagnsflösh................
Unomat rafmagnsflösh ...............
Braun kvikmyndaljós 1000 w .........
Agfa skuggam.sýningavélar f. 110 filmu
Tasco smásjár ......................
Háhnel rafmagns kvikmyndasplæsarar
Leikhússjónaukar 3x28 ..............
Canon myndaalbúm ...................
Agfa segulbandscasettur C-90 .......
Rowi kvikmyndasplæsarar ............
Rowi bendiijós .....................
Bewi Ijósmælar .....................
Susis þurrkarar.....................
LitfilmurCNS 110-20 ...............
Aöur Nú
8.120.- 6.990.-
8.120,- 6.990.-
19.700.- 13.900.-
10.100,- 7.990.-
18.900.- 11.900.-
48.600- 30.800.-
75.400,- 58.200,-
48.200,- 39.800.-
215.000,- 98.800.-
210.000.- 109.000-
23.450.- 16.900.-
13.520,- 8.900-
3.900,- 2.900-
3.490,- 2.900.-
3.800,- 2.800.-
11.120,- 6.700.-
21.200.- 15.900.-
18.220,- 11.900.-
3.150.- 2.500.-
Loftvogir 50% afsláttur
Myndaramrnar 30% afsláttur
Allt til myrkraherbergisnota 20% afslóttur (pappír, kemikalíur, smávörur)
EINSTÆTT TÆKIFÆRI — EINSTÆTT VERÐ
VERSLUNIN
Austurstræti 7, sími 10966.
TYLI,
Happdrættið
„Islenzk listaverk 1980“
Muniö gíróseölana. Greiöa má þá í peningastofnunum eöa pósthúsum, sem næst þér eru eöa koma
greiöslu til skrifstofu Sjómannadagsráös aö Hrafnistu í Reykjavík.
Sjómannadagsrád