Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.12.1980, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980 85 Þorgeir Eyjólfsson forseti BSI Þann 29. nóvember síðastlið- inn var þing BSÍ haldið í Gafl- inn í Hafnarfirði. Á þinginu var kosin stjórn BSÍ fyrir næsta starfsár og skipa hana eftirtalin: Þorgeir Eyjólfsson, forseti, Rík- harður Steinbergsson, Guð- mundur Sv. Hermannsson, Jak- ob R. Möller, Sigrún Pétursdótt- ir, Sævar Þorbjörnsson, Björn Eysteinsson. Á þinginu voru m.a. sam- þykktar breytingar á keppnis- reglum fyrir íslandsmót í bridge. Aðalefni þeirra er að fyrir undankeppni íslandsmóts- ins í sveitakeppni verður sveit- unum raðað í þrjá flokka samkv. styrkleika fjögurra stigahæstu manna hverrar sveitar miðað við síðustu skrá meistarastiga- nefndar BSI. Ur hverjum flokki verða síðan dregnar tvær sveitir í fjóra riðla. I undankeppni íslandsmótsins í tvímenningi verða 64 pör dregin í fjóra riðla í fyrstu umferð og síðan verður slönguraðað fyrir tvær seinni umferðir. 24 stigahæstu pör spila síðan í úrslitum. Keppnis- reglurnar í heild verða sendar til félaganna á næstunni. Vegna þessa nýja fyrirkomu- lags verður spilurum gefinn kostur á að skila meistarastigum inn til BSÍ fyrir 1. mars 1981. Úr fréttatilkynninKU. Bridgedeild Breiðfirðinga Butler-tvímenningnum er lok- ið með sigri Kristjáns Ólafsson- ar og Runólfs Sigurðssonar sem hlutu 532 stig. Magnús Oddsson og Þorsteinn Laufdal fylgdu þeim eins og skuggi í síðari hluta keppninnar en urðu að láta sér nægja annað sætið með 518 stig. Röð næstu para: stig Albert Þorsteinsson — Sigurður Emilsson 507 Ingibjörg Halldórsdóttir — Sigvaldi Þorsteinsson 480 Jón Stefánsson — Ólafur Ingimundarson 466 Steingrímur Steingrímsson — Örn Scheving 465 Erla Sigurjónsdóttir — Ester Jakobsdóttir 464 Guðjón Kristjánsson — Þorvaldur Matthíasson 460 Bridge Umsjóni ARNÓR RAGNARSSON Böðvar Guðmundsson — Ólafur Gíslason 459 Næsta keppni félagsins verður aðalsveitakeppnin sem verður væntanlega spiluð í 16 spila leikjum. Hefst keppnin nk. fimmtudag og er skráning hafin hjá Óskari Þ. Þráinssyni, síma 71208 eða Guðlaugi Karlssyni, síma 73919 eða Ingibjörgu Hall- dórsdóttur, síma 32562. BSR — Bæjar- leiðir — Hreyfill Ein umferð var spiluð í aðal- sveitakeppni bílstjóranna sl. mánudag og er staða efstu sveita nú þessi: Daníel Halldórsson 75 Guðlaugur Nielsen 70 Þórður Elíasson 60 Rósant Hjörleifsson 48 Birgir Sigurðsson 45 Kári Sigurjónsson 42 Næsta umferð verður á mánu- dag í Hreyfilshúsinu og hefst keppnin kl. 20. Um síðustu helgi spiluðu Hreyfilsmenn við Hvolsvellinga og var spilað á 6 borðum. Bílstjórarnir unnu með 67 stig- um gegn 53. Bridgedeild Skagfirðinga Fimm kvölda tvímenningnum lauk sl. þriðjudag með sigri Bjarna Péturssonar og Ragnars Björnssonar sem hlutu 630 stig. Tuttugu pör tóku þátt í keppn- inni og varð röð efstu para annars þessi: Jón Stefánsson — Þorsteinn Laufdal 606 Andrés Þórarinsson — Hjálmar Pálsson 591 Guðrún Hinriksdóttir — Haukur Hannesson 590 Björn Eggertsson — Karl Adolphsson 571 Sigmar Jónsson — Sigrún Pétursdóttir 570 Hjalti Kristjánsson — Ragnar Hjálmarsson 554 Erlendur Björgvinsson — Sveinn Sveinsson 554 Meðalskor 540 Á þriðjudaginn kemur verður spilaður jóla-tvímenningur í Drangey í Síðumúlanum og hefst keppnin kl. 19.30. Bridgedeild Víkings Önnur umferðin í hraðsveita- keppni deildarinnar var spiiuð sl. mánudag og er staða efstu sveita þessi: Guðmundur Sigurðsson 1232 Ingibjörg Björnsdóttir 1206 Ólafur Friðriksson 1186 Ingibjörg Bragadóttir 1167 Magnús Theodórsson 1166 Þetta gerðist 8. desember 1660 — Fyrsta leikkonan (ónefnd) birtist á ensku leiksviði. 1907 — Gústaf V verður konungur Svía við lát Óskars II. 1914 — Bretar sigra Þjóðverja í sjóorrustunni við Falklandseyjar. 1918 — Rússneskir bolsévíkar taka völdin í Eistlandi. 1923 — Bandaríkin og Bretland segja Japan stríð á hendur. 1925 — „Mein Kampf" eftir Adolf Hitler kemur út. 1941 — Bandaríkin og Bretland segja Japan stríð á hendur. 1949 — Allsherjarþingið biður stórveldin að viðurkenna pólitískt sjálfstæði Kína og stjórn þjóðern- issinna hörfar til Taiwan. 1953 — Tillaga Bandaríkjanna á Allsherjarþinginu um alþjóðlegt eftirlit með kjarnorku. 1956 — Allsherjarverkfall í Ung- verjalandi hefur í för með sér herlög og fjöldahandtökur. 1%1 — Kongóstjórn hótar að leita eftir hjálp annars staðar ef SÞ bindur ekki endi á aðskilnað Katanga. 1962 — Uppreisn í Brunei bæld niður með hjálp Breta. 1967 — 234 farast með grískri ferju nálægt eynni Melos. 1970 — Öryggisráðið fordæmir Portúgala fyrir hernaðaraðgerðir í Guineu. 1971 — Indverjar gersigra Pakist- an í sókninni til Dacca. 1972 — írskir kjósendur sam- þykkja afnám „sérstöðu" kaþólsku kirkjunnar í stjórnarskránni. 1974 — Grískir kjósendur greiða atkvæði með stofnun lýðveldis og afnámi konungdæmis. Aímæli. Hóratíus, rómverskt skáld (65—8 f.Kr.) — Kristín Svíadrottning (1626—1689) — Eli Whitney, fann upp spunavélina (1765—1825 ) — Björnstjerne Björnson, norskur rithöfundur (1832—1910) — Jean Sibelius, finnskt tónskáld (1865—1957) — James Thurber, bandarískur rit- höfundur (1904—1965). Andlát. 1903 Herbert Spencer, heimspekingur — 1978 Golda Meir, stjórnmálaleiðtogi. Innlent. 1364 Getnaðardagur Matíu lögtekinn — 1520 d. Gott- skálk bp Nikulásson — 1848 Islenzka stjórnardeildin verður sérstök deild í innanríkisráðu- neytinu — 1856 d. Daði fróði Níelsson — 1971 Stjórnmálasam- band við Kína — 1974 Heimsókn Sisco aðstoðarráðherra — 1979 Bryggjuslys í Þorlákshöfn — 1906 f. Pétur Benediktsson. Orð dagsins. Minnið er einka- bókasafn hvers manns — Aldous Huxley, brezkur rithöfundur (1894-1963). Samúðar- kveðja til Portúgal GUNNAR Thoroddsen forsætis- ráðherra hefur sent varafor- sætisráðherra Portúgal, dr. Diogo Freitas Do Amaral, samúðar- skeyti vegna flugslyssins við Lissabon, þar sem fórust dr. Fransisco Sa Carneiro forsætis- ráðherra og varnarmálaráðherr- ann, Adelino Amaro da Costa. VERO STAOGR. 20” 799.500 759.500 22” 869.000 825.000 26” 999.000 949.000 Finlux REYKJAVlK SKM 27099 SJÓNVARPSBÚMN Hjartans þakkir til allra þeirra er glöddu mig á sjötugsafmæli mínu 23.11. sl. Guð blessi ykkur öll. Geir Magnússon, Kárastíg 6. Viltu byggjo einbýfishús? Húseiningaverksmiðjan SAMTAK HF. á Selfossi framleiðir margar gerðir einbýl- ishúsa úr völdum viðartegundum. Húsin eru 80—160 fm, auðflytjanleg hvert á land sem er. Enginn ætti að útiloka timbur þegar reisa á einbýlishús. Hringið í dag og fáiö sent í pósti, teikningar, byggingarlvs- ingu og verð húsanna. nSAMTAK ■Jhuseiningaf fH I SÍMI: 99-2333 AUSTURVEGI 38 IHUSEININGARI soo selfossi Prinsessan sem hljóp aö heiman Marijke Reesink Francoise Trésy gerði myndirnar Þessi tallega og skemmtilega myndabók er eins konar ævintýri um prinsessuna sem ekki gat fellt sig við hefðbundinn klæðnaö, viðhorf og störf prinsessu og ekki heldur við skipanir síns stranga föður, konungs- ins. Þess vegna hljóp hún að heiman. V. Helgi fer í göngur Svend Otto S. Svend Otto S. er víðkunnur danskur teiknari og barnabókahöfundur. Barnabækur hans fara víösvegar um heiminn. Árið 1979 g'í AB út eftir hann barn^'K|na Mads Qg Milalik ^Sýu frá Grænlandi, og hlaut hún miklar vinsældir hinna ungu lesenda hér sem annars staðar. Síðastliðið sumar dvald- ist Svend Otto S. um tíma á íslandi og birtist nú sú barnabók sem til varö í þeirri ferö. Svend Otto S. er mikill náttúru- og dýraunnandi eirrs og vel kemur fram í bókinni um Helga, skagfirska strákinn sem lendir í ævintýrum í göngunum við að bjarga kindinni. Aldrei hefði honum tekist það ef hundurinn Lappi heföi ekki hjálpað honum. íSBvrf f * Almenna bókafélagid Austurstræti 18. — Simi 25511. Skommuvcgi 36. Kop. Simi 7305

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.