Morgunblaðið - 07.12.1980, Side 28

Morgunblaðið - 07.12.1980, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. DESEMBER 1980 92 HÖGNI HREKKVÍSI /»-/* © 1900 McNaught Sjnd., Inc- n AHA /.. TACöT-bP/LW LJ&A ALOPEl r ást er... ... að eiga ekkert nema hvort annað TM Reg U.S Pat. Off—all rights reserved •1977 Los Angeles Times t>að cr allt í skralli á heimilinu, raftannhurstinn bilaái ok ck varO að nota handaflið til þcss aA bursta á mér kjaftinn! Með morgimkaffinu Þið Kætuð lofað honum að ljúka við uppþvottinn! COSPER Éjí skal taka eitt lag fyrir þig, pabbi, fyrir 500 kall, en sJeppa því fyrir þúsund kall! X. ími WflBBst ■4 T/iH ^ líll / L ~ Mæður viskunnar Eðvarð T. Jónsson, ísafirði, skrifar 29. nóv.: „Heiðraði Velvakandi. Upp á síðkastið hefur mikið verið ritað um þróunarkenninK- una í dálka þína og af því tilefni hafa tveir ungir og vaskir piltar notað taekifærið og hnjóðað dálitið í trúarbrögðin. Þeir taka m.a. undir þá lífseigu kenningu, að trúarbrögðin seú „dætur fáfræð- innar". Hér er á ferðinni mikill misskilningur. Hann stafar senni- lega fyrst og fremst af fáfræði kristinna manna almennt um sín eigin trúarbrögð og skeytingar- leysi þeirra um önnur opinberuð trúarbrögð mannkynsins. Alltof margir virðast ekki átta sig á þeim mun, sem er á trúarbrögðun- um eins og þau birtast í orðum trúarhöfundanna sjálfra, og trú- arbrögðunum á hnignunarskeiði þeirra, þegar mannasetningar hafa kæft ljósið, sem þau báru heiminum. Þess vegna eru kveðnir upp sleggjudómar, eins og sá sem vitnað er til hér að ofan, yfir trúarbrögðum í hnignun. Þetta er ámóta sanngjarnt og við færum að hnýta í níræðan öldung fyrir að hann er farinn að missa minnið og orðinn sjóndapur. Þessi andlegu lögmál jaínvirk og þynjídaraílið Þess eru engin dæmi í trúar- bragðasögunni, að trúarhöfund- arnir sjálfir hafi verið á móti skynsamlegri hugsun (en vísindi eru ekki annað en ákveðið skipu- lag mannlegrar reynslu, sem skynsemin kemur sér upp). í boðskap trúarhöfundanna, t.d. Saraþústra, Móse og Krists, er ekkert sem brýtur í bága við heilbrigða skynsemi. Sannleikur- inn er sá, að frá þeim er runnin öll okkar þekking á mikilvægustu sannindum lífsins. Nútíma löggjöf byggir t.a.m. á opinberuðum sannleika trúarbragðanna: þú skalt ekki stela, þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn náunga þínum o.s.frv. Siðalögmálin eru ekki eitt- hvað sem maðurinn uppgötvaði af tilviljun eða eigin rammleik. Trú- arhöfundarnir bentu á og út- skýrðu þessi andlegu lögmál, sem eru jafn virk í sálum mannanna og Hvar voru miskunnsemin og hinn f agri boðskapur? Guðmundur Auðunsson skrifar 30. nóv.: „Ágæti Velvakandi. I dag (30. nóv.) las ég tvær greinar í dálkum þínum, sem mig langar að fjalla dálítið um. Önnur var eftir Einar Sigurbjörnsson en hin eftir Sóleyju Jónsdóttur. Ilræsni krist- inna manna Einar reynir að gera það sem margir kristnir menn hafa reynt að gera í gegn um aldirnar: að hefja kristna trú upp til skýjanna en reyna að gera önnur trúarbrögð hlægileg. Þau séu bara hjátrú eða heiðni. Þessi hræsni kristinna manna kom t.d. vel fram í kvik- mynd sem sýnd var í sjónvarpinu fyrir nokkru. Fellibylur geisaði á Jamaika og kristin fjölskylda, ásamt nokkrum „heiðnum" inn- fæddum mönnum, leitaði skjóls í kjallara húss síns. Þá fóru þeir innfæddu að ákalla guði sína en það ofbauð kristnu konunni og bað hún mann sinn um að stoppa þessa „hjátrú", en fór svo að ákalla guð sinn. E.S. reynir að gera trúarbrögð margra þjóð- flokka, sem ákalla sólguð, hlægi- leg vegna þess að þeir trúðu því að sólin væri sá guð sem öllu lífi réði. En E.S. hlýtur að vita það að ef engin sól væri, væri ekkert líf. Þannig hlýtur sólin að ráða öllu lífi. Guðmundur Auðunsson Var auðsöfnun kirkj- unnar vilji Guðs? Jesú Jósefsson kenndi mönnum að elska kærleikann og dæma ekki aðra svo að maður sjálfur yrði ekki dæmdur. Þetta er fagur boðskapur, en ekki liðu margar aldir þangað til kirkjan sem kenndi sig við kenningar hans var orðin gróðastofnun. Kristinni trú var þröngvað upp á fólk. Páfar lifðu í svalli, kirkjan og klaustrin söfnuðu auði á kostnað alþýð- unnar. Byggðar voru stórar og glæsilegar kirkjur meðan fólk dó unnvörpum úr hungri. Hvar voru hugsjónin og hinn fagri boðskapur þá? Var þetta vilji Guðs? Mikil er „miskunnsemin“! Sóley Jónsdóttir á Akureyri virðist trúa öllu því sem stendur í biblíunni sem „Orði Guðs“. Guð á að vera mjög miskunnsamur. Ég ætla að biðja Sóleyju og aðra lesendur að íhuga eftirfarandi tilvitnun sem ég tek úr 31. kafla IV Mósebókar. Þegar tilvitnaður kafli hefst hefur Drottinn sent Israelsmenn í stríð gegn Midíanít- um og Israelsmenn hafa sigrað, drepið alla karlmenn, en tekið konur, börn og húsdýr herfangi og fært það til Móse og Eleasars prests: „Reiddist Móse þá hersveitar- foringjum, bæði þeim er settir voru yfir þúsundir og þeim sem settir voru fyrir hundruð og komu úr leiðangrinum, og sagði við þá: Gáfuð þér öllum konum líf? Sjá, það voru einmitt þær, sem urðu tilefni til þess, að Israelsmenn að ráði Bíleams sýndu Drottni ótrú- mennsku vegna Peórs, svo að plágan kom yfir söfnuð Drottins. Drepið því öll piltbörn; drepið og allar þær konur, er samræði hafa átt við karlmann; en látið öll stúlkubörn er eigi hafa átt sam- ræði við karlmann lifa handa yður.“ Mikil er miskunnsemin! Með þökk fyrir birtinguna." Vísa vikunnar Fátt er verra en valdatafl í vindum sperrist höllin þegar Sverris ómar afl eins og hnerri tröllin. Hákur Hermannssyni "wWJötaKH v/i KÍÍa ! L **r lánað. 1 'zjSSzB* mmm mWoKlai bUA b í’ð samhand >'ið áK h^fli siÍaðamaður “PP Það, ,wm mcfl fariö sS raynd,st Það rétt »ötninni,^aðVí8’ir LSál'ð væri úr ar Hreuf femSSOn '°faði hin” ;•*-»« IZtrUí/'T" Það eftir ððru. ' Það loforð 0g Þurfa að á einum Z tltéuin^ ^ ^rður ÞetU hr^'.’Í Oft osannindav ‘ i póliti' * ^

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.