Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980
35
drottningakaupum. 9. De2! — e6,
10. Bg2 — h5? (Þetta peð á eftir
að verða svarti stöðugt
áhyggjuefni. Hann hefði því betur
leikið 10 ... Bd6). 11. Rh4 - Bh7,
12. 0-0 - Be7, 13. Hel - 0-0-0,
14. a4 (Hvítur undirbýr öfluga
sókn á drottningarvæng. Svartur
verður því að fara að hugsa sér til
hreyfings.
15,15. b4 - Dc7,16. Dxh5!
(Einnig kom til greina að leika 16.
Bf4 með áframhaldandi sókn, en
hví ekki að hirða peð sem svartur
fær engar bætur fyrir? Að auki er
svörtum um leið búin skemmtileg
gildra: 16... Bg6? 17. Rxg6! —
Hxh5,18. Rxe7+ - Kb8,19. Bf4 -
e5, 20. dxe5 — Ka8, 21. e6 — Db6,
22. a5 - Db5, 23. Bfl) Rf6
(Svartur verður að hafa hraðann
á, því rólegum leikjum getur
hvítur svarað með Bf4 eða b5). 17.
Dxí7 - Bg8, 18. Dg6 - Hf8, 19.
BÍ4 - Dd7, 20. b5! (Svarar
hótuninni 20... Bf7 sem nú er
unnt að mæta með 21. bxc6 —
bxc6, 22. Habl) Rh5, 21. bxc6 -
bxc6, 22. Be5 — Bf7 (Loksins
hefur svarti tekist að fanga hvítu
drottninguna, en það er um sein-
an). 23. Habl - Bd6, 24. Bxd6 -
Dxd6, 25. Rxí5 - De7
26. Re7+! Dxe7, 27. Dd3 og svartur
gafst upp. Hann á enga vörn við
hótuninni 28. Da6+ o.s.frv.
Bðkmenntlr
eftir SIGURÐ HAUK
GUÐJÓNSSON
málhögustu manna, harpa hans
hljómmikil og sterk, niður tung-
unnar leikandi léttur og tær. Það
er aðeins örsjaldan sem hann
virðist þreyttur við verkið. Eg
verð þó að segja honum, að það
særði viðkvæmt hjarta sveita-
mannsins að lesa um hala á svini
(106), og hræddur er ég um, að
Halldór Halldórsson og Magnús
Finnbogason hefðu gripið til
rauða pennans hefðu þeir séð í stíl
„sand af peningum" (128). Þegar
ég er að skrifa þetta, þá hrópar
eitthvað innra með mér: Strikaðu
þetta síðasta út, svona nánasar-
legur mátt þú ekki vera, því
Þorsteini verða ekki oft slík mis-
tök á. Kanntu fleiri? Nei, og það
sannar, hve vel er hér að verki
staðið.
Heiti bókarinnar er sótt í ljóð
eftir Rudolf Baumbach, er hlaut
þetta nafn í þýðingu Þorsteins.
Það verður gaman að rétta
barni, kæru barni, þessa gersemis
bók. Prentun mjög svo snotur,
gömlum augum hefði þó betur
hæft stærra letur.
Hafi Bjallan innilega þökk
fyrir.
Furðuf uglinn Kalli
Astrid Lindgren:
Kalli á þakinu enn á ferð og
flugi.
Teikningar: Ilon Wikland.
Sigurður Gunnarsson islenskaði.
Bókaútgáfan Fróði 1980.
Hinn þekkti barna — og ungl-
ingabókaþýðandi, Sigurður Gunn-
arsson fyrrum skólastjóri hefur
þýtt allar þrjár bækurnar um
Litla bróður og Kalla á þakinu
eftir Astrid Lindgren.
Sigurður Gunnarsson hefur þýtt
yfir fimmtíu bækur gegnum tíð-
ina. Og eru margar þeirra eftir
þekkta höfunda. Bækurnar um
furðufuglinn Kalla eru meðal
vinsælustu bóka Astrid Lindgren.
Þær hafa verið kvikmyndaðar og
leikrit gerð eftir þeim. Hvort
tveggja hefur borið hróður þeirra
víða um lönd. Meðal annars hefur
Þjóðleikhúsið flutt leikrit um
Kalla.
Furðufuglinn Kalli á heima á
þaki fjölbýlishúss í Stokkhólmi. í
einni íbúð hússins á Litli bróðir
heima hjá pabba sínum, mömmu
og systkinum sínum tveim, sem
eru miklu eldri en Litli bróðir.
Með Litla bróður og Kalla tekst
góð vinátta og þeir eiga saman
margar ánægjustundir. Kalli er
býsna fundvís á allt sem skrýtið
og skemmtilegt er og þeir bralla
margt.
I þessari þriðju bók um þá
náunga verður Kalli blaðamatur:
„Hvers konar fyrirbæri er það,
dularfullt og furðulegt, sem öðru
hverju flýgur hér um Stokk-
hólm?“, stendur einn morguninn í
Morgunblaðinu.
Og ekki nóg með það. Hverjum
þeim sem náð getur þessum dul-
arfulla hlut er heitið tíu þúsund
krónum í verðlaun. Litli bróðir og
Kalli hugsa nú sín ráð. Miklir
erfiðleikar verða samt á vegi
þeirra, þá erfiðleika skapa ungfrú
Hildur og Júlíus frændi sem eru
kominn til Stokkhólms að leita sér
Bókmenntlr
eftir JENNU
JENSDÓTTUR
lækninga og búa heima hjá Litla
bróður á meðan. Þau eru með
nefið niðri í þessu öllu saman.
En þrátt fyrir allt skemmta þeir
félagar sér einnig við þetta — og
það er Kalli sem verður tiu þúsund
krónum ríkari.
Trúlegt að ungir lesendur
skemmti sér einnig vel við lestur
Kalla-bókanna. Sniðugar teikn-
ingar og góður frágangur.
LITASJÓNVÖRP
OG HLJÓMTÆKI SKIPHOLTI 19 SlMI 29800
Lbúoin