Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 28
60 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 HÖGNI HREKKVlSI Með morgnnkaffinu SjúklinKurinn sem heldur 'ann sé mús, er frammi á biðstof- unni. COSPER Pabbi. — Ég hringdi í öll símanúmerin, sem ég fann í ;-:ibókinni þinni og bauð í kvöldkaffi! í tryllingi knýja þau þjóna sína Vigdís Jónsdóttir hringdi: „I Velvakanda 12. þ.m. er grein eftir Ragnar Þorsteinsson, sem á að vera svar eða einhvers konar kaffæring á ágætri vörn Sóleyjar Jónsdóttur frá Akureyri, sem birt- ist í Velvakanda nú fyrir stuttu. Ekki sýnist fráleitt að álykta að R. Þ. safni biblíum á ýmsum tungu- málum og er það góðra gjalda vert. Hitt er líka ljóst, að ekki þekkja allir safnarar svo gjörla innihald bóka sinna, en það er annað mál. Eins og einhver vitur lét í ljós nú ekki alls fyrir löngu, er það mikið mein, að allur almenningur hefur því miður litla þekkingu á kristinni trú, sem þeir þó opinberlega játa, a.m.k. að nafni til. Það er því ofur auðvelt að velja einhverja tvo eða fleiri ritningarstaði af handahófi í Bibl- íunni og æpa: „Hér er ósamræmi.“ Á ríki hans mun enginn endir verða Mig langar einmitt til þess að athuga tvær ritningargreinar, sem R.Þ. flaggar og segir að séu í mótsögn. Það er í I. Mósebók 9.K. 3. v. og V. Mósebók 14 K. 6—8 v. Hann gætir þess ekki og skilur sennilega ekki, að langur tími hefur liðið á milli í sögunni. Biblían er fyrst og fremst frásögn af áformum og útvalningu Guðs, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Fyrri ritningargreinin er sáttmáli Guðs við Nóa, eftir flóðið, á fyrsta stigi útvalningar. Seinni ritningargreinin eru fyrirmæli til Guðs útvöldu þjóðar, sem var ætlað sérstakt hlutverk og fékk þess vegna strangari reglur um boð og bönn, umfram aðrar þjóðir, sem þó voru frá Nóa komnar. Og Guð hélt áfram útvalningu sinni, þar til hann hafði fundið unga konu, sem var hæf til að fæða Frelsara heimsins. „Hann mun verða mikill og kallaður sonur hins hæsta; og Drottinn Guð mun gefa honum hásæti Davíðs föður hans; og hann mun ríkja yfir ætt Jakobs að eilífu og á ríki hans mun enginn endir verða." Þessi orð úr helgum texta eru oss lesin á jólum, úr 1. kafla Lúkasarguð- spjalls. Mótbárur stand- ast ekki Lesendur ættu að kynna sér 53. kafla Jesaja, það er stórkostlegur spádómur um Krist og það sem hann var og er. í upphafi 61. kafla Jesaja vitnaði Kristur sjálfur, þegar hann lýsti því yfir, hver hann væri, en var auðvitað hrak- inn burt af trylltum lýð. Áform Guðs standa óhögguð og eru mjög augljóslega að verki í dag. Það sanna hinir fornu spádómar Biblí- unnar, sem koma svo skýrt fram á vorum dögum að undrun vekur. Gegn þessu má hafa ýmsar mót- bárur, en þær standast ekki, ef málin eru rædd af sanngirni. Staðreynd er, að við lifum á geysi örlagaríkum tímum. Á þetta eru margir blindir, en það voru menn líka á dögum Nóa. Illu öflin vita, að tími þeirra er orðinn naumur. I tryllingi knýja þau því ákaft þjóna sína og nytsama sakleysingja áfram, á ótrúlega mörgum svið- um. ..svo á jörðu sem á himni“ Ég vil eindregið ráðleggja les- endum að athuga Lúkas 12. k. v. 35—40. Guð mun halda áfram verki sínu unz friður hans og kærleiki ríkja á jörð. Sjá einnig Jesaja 55. k. v. 1—13. Það er í samræmi við það sem Drottinn vor kenndi í helgri bæn: „að hans vilji verði, svo á jörðu sem á himni.“ Mín jólaósk til R.Þ. er sú, að hann lesi nú sínar innlendu og útlendu Biblíur með breyttu hug- arfari, því að Drottinn elskar oss og vill að sem flestir komist til þekkingar á hans blessaða orði. Guð gefi okkur öllum gleðileg jól.“ Snúumst gegn ranglætinu S.S. skrifar: „Kæri Velvakandi Ég leyfi mér að leita til þín með mál sem nokkuð hefur verið fjall- að um í dálkum þínum, þ.e.a.s. símamálið svokallaða eða nýju skrefatalninguna sem ætlunin er að koma á hér á höfuðborgarsvæð- inu, líklega með tilheyrandi undanþáguskrifstofubákni og öðru sem óhjákvæmilega fylgir í kjöl- farið. Ástæðurnar til að mótmæla þessari breytingu eru ótalmargar, en verða ekki tíundaðar hér. Það dugir þó skammt að hver nöldri í sínu horni, hér verða margir að sameinast um að mótmæla kröft- uglega, svo að skiljist, hvar verður að setja mörkin, þegar seilst er til fanga hjá borgurum sem eiga erfitt með að koma vörnum við. Utbúnir hafa verið undirskrifta- listar en sjálfboðaliða þarf til aðstoðar við að dreifa þeim og safna saman. Listarnir eru fáan- legir á Sólvallagötu 4 hér í borg. Er vonandi að fólk bregðist fljótt og vel við þeirri áskorun að snúast gegn ranglætinu og standa á rétti þeirra sem minnst mega sín.“ fyrir 50 árum „Ný kirkja var víjjð að Stórólfshvoli síðast- liðinn sunnudag, að viðstöddu eins mörjíu fólki og kirkjan rúm- aði, enda var ágrætt veð- ur þann dag. Biskup hafði farið austur dají- inn áður oj? með honum prestarnir, síra Skúli Skúlason, fyrrum prest- ur í Odda, en Stórólfs- hvoll er annexía þaðan ojí síra Hálfdán Ilelga- son á Mosfelli. — Vígsluathöfn fór fram eftir helgisiðabokinni, með víjjsluræðu bisk- ups, en nefndir prestar, ásamt sóknarprestin- um, síra Erlendi I»órð- arsyni í Odda oj? Björjfvin sýslumanni Vijffússyni, lásu rit- ningarkafla. Ennfrem- ur voru skírð tvö börn. Kirkjan er einstaklega lajflejft jfuðshús ojf hið vandaðasta að öllum frájfanjfi. Hefir staðið fyrir smíðinni Guð- mundur Þórðarson trjesmiður á Lambalæk í Fljótshlíð ...“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.