Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 18
50 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 Minning: Björgvin Torfason frá Vestmannaeyjum Fæddur, 7. ágúst 1925. Dáinn 11. desember 1980. Fyrir um fimmtán árum hélt ég fyrsta erindi mitt hjá Sálarrann- sóknarfélagi íslands, og efnið var „Endurholdgunarkenningin“. Setti ég þar fram niðurstöður Bandaríkjakonunnar Dr. Gina Cerminara um endurholdgun, eft- ir miklar rannsóknir á starfi Edgar Casey i Virginia Beach. I lok fundarins kom til mín meðal annarra maður sem ég þekkti ekki, en honum var mikið niðri fyrir um að fá að lesa þessa bók. Þessi maður var Björgvin Torfason. Ég heyrði það á spurn- ingum hans, að hér var leitandi maður, sem ekki var að hefja leit sína, en eygði nýjar upplýsingar, nýtt sjónarsvið og víkkaðan skiln- ing, í leitinni að þekkja sjálfan sig og lögmál tilverunnar. Þetta upphaf varð að kunn; ingsskap og vináttu sem varir. I hvert skifti sem við hittumst var tækifærið notað til að skiftast á skoðunum, upplýsingum og reynsluatriðum. Björgvin var virkur félagi í Sálarrannsóknarfélagi íslands og var í stjórn í mörg ár, og nú síðast í varastjórn. Hann var ávallt áhugasamur um þróun félagsins og að félags- mönnum væru gefin tækifæri til að kynnast fólki með sérstæða hæfileika, og þannig öðlast beina reynslu eins og hann hafði gert. Ég þakka Björgvin fyrir hans góðu störf í þágu félagsins og einnig sendi ég Dagbjörtu mínar beztu þakkir fyrir hennar góða framlag, því að málefnið var sameiginlegt áhugamál þeirra hjóna. Ég vona að hluti af uppskeru margra ára leitar að þekkingu og reynslu hafi skilað sér í að gera lokaskrefin léttbærari,- Ég veit að Björgvin hafði gott og nothæft vegarnesti sem hann þurfti fyrr, en aðstandendur og vinir ætluðu, en ferill hverrar sálar er einstaklingsbundinn. Dagbjörtu, dætrunum og öðrum aðstandendum votta ég samúð mína. Ég óska Björgvin fararheillar og gæfu á nýjum sviðum og veit að þar verður hann einnig góður liðsmaður, og kveð góðan sam- starfsmann og vin. Guðmundur Einarsson forseti Sálarrannsóknar- félags íslands. Andlátsfregn vinar míns og skólabróður Björgvins Torfasonar kom sem reiðarslag yfir okkur samstarfsmenn hans. Hann hafði staðið af sér erfiða skurðaðgerð í haust og við vorum að gera okkur vonir um að sjá hann aftur hressan í hópi okkar, þegar vorið færi að nálgast. Því er þó ekki að neita að annað veifið gætti nokk- urs uggs meðal okkar þar sem við erfiðan sjúkdóm var að stríða. Kynni okkar Björgvins hófust, er við þreyttum inntökupróf í 3. bekk Verzlunarskóla íslands árið 1944. Sú vinátta, sem þá var stofnað til rofnaði aldrei. Björgvin Torfason var fæddur í Vestmannaeyjum 7. ágúst 1925. Foreldrar hans voru Torfi Ein- arsson formaður þar og kona hans Katrín Ólafsdóttir. Að loknu barna- og gagnfræða- skólanámi í heimabyggð sinni innritaðist Björgvin, eins ojg áður er sagt, í Verzlunarskóla Islands 1944 og lauk þaðan stúdentsprófi 1948. Þaðan lá leiðin til Kanada þar sem hann stundaði háskóla- nám í eitt ár. Árið 1949 réðst Björgvin til starfa hjá Olíufélaginu Skeljungi. Gegndi hann þar ábyrgðarstörf- um. Hugur hans stóð þó jafnan til starfa í þágu sjávarútvegsins og árið 1968 réðst hann til starfa sem fulltrúi á skrifstofu Síldarútvegs- nefndar í Reykjavík. Tók hann að sér eitt vandasamasta verk skrif- stofunnar, en það var að skipu- leggja og hafa yfirumsjón með síldarsöltuninni go útflutningi síldarinnar til hinna ýmsu mark- aðslanda. Jafnframt stjórnaði hann innflutningi og dreifingu rekstrarvara vegna síldarsöltun- arinnar. í öllum þessum störfum ávann Björgvin sér óskorað traust allra samstarfsmanna og viðskiptavina nefndarinnar, enda má með sanni segja að hann hafi lagt sig allan fram til þess að leysa þessi ábyrgðarstörf sem bezt af hendi. Björgvin kynnti sér vel sölu- og markaðsmál síldarinnar og tók þátt í fjölda samningaviðræðna við erlenda síldarkaupendur. Eitt síðasta verk hans á því sviði var þátttaka í viðræðunefnd við Pól- verja í Varsjá í byrjun september varðandi viðskiptasamning land- anna. Það var skömmu eftir þá ferð, sem hinn alvarlegi sjúkdóm- ur kom í ljós. í einkalífi var Björgvin mikill gæfumaður. Hann kvæntist árið 1950 skólasystur okkar Dagbjörtu Guðbrandsdóttur, mikilhæfri mannkostakonu. Þau eignuðust tvær dætur, Kristínu, bókavörð í Kópavogi, sem gift er Kára Kaab- er, og Katríhu, sem stundar nám við Háskóla Islands. Nú þegar leiðir skiljast er margs að minnast. Björgvin Torfason var greindur maður og stjórnsamur. Hann var kröfuharð- ur við sjálfan sig og vann öll sín störf af einstakri vandvirkni. Hann hafði mikla ábyrgðartilfinn- ingu og sterka réttlætiskennd. Og hjartað hafði hann svo sannarlega á réttum stað. I vinahópi var hann jafnan hrókur alls fagnaðar. Hans er sárt saknað af okkur öllum, sem áttum því láni að fagna að starfa með honum. Við hjónin þökkum órjúfanlega og trygga vináttu hans og flytjum öllum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Gunnar Flóvenz. „Ég átti virtkvæmar vonir. sem vermdust i hjartans glóð. Til himins stigu i hljóðri bæn min helgu draumaljóð. Þannig kvað Helgi Sæmundsson skáld og rithöfundur í einu af æskukvæðum sínum, er hann var nemandi í gagnfræðaskólanum í Vestmannaeyjum og valdi því heitið: Kveðja. Sá, sem hér skal minnst átti sínar viðkvæmu vonir og hjartans glóð. Ég kynntist honum fyrst er hann settist 1939 í fyrsta bekk gagnfræðaskólans í Eyjum og kenndi honum í tvo vetur. Leiðir okkar lágu saman í skóla- starfi og við íþróttaiðkanir. Kreppan sagði til sín engu síður í Eyjum en annars staðar með þjóðinni. Skólinn starfrækti les- stofu. Þangað Ieituðu nemendur síðdegis, því að þeir bjuggu við skort á orðabókum, kortabókum og öðrum hjálpargögnum. Skóla- stjórinn og ég önnuðumst vörslu og aðstoð. Til íþrótta og skáta- starfs sóttu ungmennin, því að slíkur félagsskapur stóð opinn án greiðslu. Kynni við æsku Éyjanna urðu því náin í skóla og utan. Björgvin Torfason var eitt þessara ungmenna, sem notfærðu sér það sem skóli og æskulýðsfélagsskap- ur gat veitt. Það var fjölmargt sem lífið í Eyjum bauð ungmennum sínum til viðfangs. Náttúra Eyjanna, hafið, fjaran, klettarnir og úteyjar með fuglamor; sjósóknin, bátaflot- inn og vélakostur hans; fiskvinnsl- an, sem tækni var að þokast inn í; höfnin með sitt oftsinnis marg- brotna athafnalíf; íbúarnir hertir af útsjónarsemi að sjá sér og sínum farborða með öflun fiskjar og vinna hann til afurða, að sækja björg til eggja- og fuglatekju, rækta Heimaey til nytja búsmala og kartöfluræktar. í slíku umhverfi ólst Björgvin upp. Hugurinn næmur á marg- breytileikann og tápið tilbúið til athafnasemi. En vonir unglinga þessa tímabils voru viðkvæmar hvað varðaði menntun og frama, því að fjár var vant. Björgvin leitaði sér ungur vinnu og jafnvel á skólatímanum. Að sumrinu var farið á snurvoð eða jafnvel á síld. Þessi vinnuhugur og þörf á peningum varð þess vald- andi að hann lauk ekki gagn- fræðaprófi. Námsgáfur hömluðu ekki, því á skýrslu skólans sést að hann er í fyrsta og öðrum bekk með þeim einkunnahæstu. Meðal skólafélaga sinna var hann vel látinn og sama var í félögum þeim sem hann starfaði. Þar sem hann var viðgekkst engin lognmolla. Hann var lokaður og íbygginn meðan hann hugsaði málið sem úr þurfti að leysa en er ákvörðunin var fengin, var ekki legið á skoðuninni. Þá gat hann jafnvel verið hávær. Siður var það löngum í skólanum og hjá skátum að fara i fjallaferðir. I slíkum ferðum varð að beita varúð og stjórnsemi. Þegar komið var í hættustaði urðu allir að styðjast við vað. Þeir sem voru á endum vaðsins urðu að vera traustir og varkárir. Björgvin var oft endamaður. í slíkum ferðum er mikilvægt að þeir gefi sig fram sem eru lofthræddir. Kom það fyrir í slíkum ferðum að áður en lagt var á svimháar tæpar slóðir, þá voru þeir beðnir að gefa sig fram sem lofthræddir væru. Björgvin var hreinskilinn og kvað uppúr með það að lengra þyrði hann eigi og þorðu þá aðrir að viðurkenna vanmátt sinn. Voru þeir þá sendir til baka undir forystu hans. Þessa varfærni Björgvins mátti ef til vill rekja til slyss sem varð 1936, er einn leikfélagi hans hrap- aði til bana en félagar hans sluppu naumlega. Þessir eiginleikar Björgvins, sem voru áberandi í fari hans sem drengs fylgdu honum á mann- dómsárunum og vöktu á honum athygli í drengjahópnum við nám, leik og störf. Árið 1944 sest Björgvin í Versl- unarskóla íslands og lýkur þaðan stúdentsprófi 1949. Á þeim námsárum hafði hann herbergi í húsi Þorbjörns Jóhann- essonar kaupmanns í Borg og varð þar fjölskylduvinur. Að loknu stúdentsprófi heldur hann til Kanada í fiskiiðnfræði- nám við MacGill-háskólann í Montreal. Því miður varð hann að hætta námi eftir eitt ár sökum erfiðs fjárhags. Um skeið var hann háseti á togaranum Neptúnusi þar sem Einar bróðir hans var þá stýri- maður. Úr 1950 gerðist Björgvin starfs- maður hjá olíufélaginu Skeljungi. Annast hann þar birgðabókhald og dreifingu olíu. Starfsmaður Skeljungs er hann í rúm 18 ár en frá miðju ári 1968 ræðst hann til síldarútvegsnefndar og er loðnu- nefnd er stofnuð 1973 gerist hann starfsmaður hennar og síðustu árin var hann einn þriggja nefnd- armanna. Á öllum þessum starfssviðum naut Björgvin trausts og trúnaðar yfirboðara sinna og voru falin ýmis vandasöm störf og naut hann þar varúðar sinnar, festu og hreinskilni. Þann 22. apríl 1950 kvongaðist Björgvin Dagbjörtu Guðbrands- dóttur, sem fædd er í Vestmanna- eyjum og var skólasystir hans í Verslunarskóla íslands. Dætur hafa þau eignast tvær: Kristínu f. 5. okt. 1950, gifta Kára Kaaber, eiga þau 2 syni, og Katrínu, f. 26. febr. 1959 við nám í bókmenntum við Háskóla íslands. Foreldrar Björgvins voru Katr- ín Ólafsdóttir og Torfi Einarsson. Ólafur faðir Katrínar var frá Lækjarbakka í Mýrdal en ættir hans úr Vestur-Skaftafellssýslu og Rangárvallasýslu. Ingibjörg Jónsdóttir móðir hennar var úr Mýrdal af Ásgarðis, Skipagerðis- og Presta-Högnaættum. Torfi faðir Björgvins fæddist í Varmahlíð undir Eyjafjöllum. Einar faðir hans var kominn af séra Jóni Steingrímssyni, svo og af Skógaætt. Einn forveri þeirra var Jón lögréttumaður ísleifsson í Selkoti undir Eyjafjöllum. Hann var af ætt Höfðabrekkumanna en Vigdís kona Jóns var afkomandi Hannes- ar Crumbeck hins fjölfróða kunn- áttumanns sem bjó að Lambafelli undir Eyjafjöllum fyrir nær 300 árum. Þóra móðir Torfa, var dóttir Torfa prentara í Reykjavík, Þorgrímssonar, af hinni svo- nefndu Efferseyjarætt en sú ætt var blönduð borgfirskum ættum. Fyrir aldur fram er Björgvin horfinn úr tölu lifenda. Okkur sem Olafur Markússon Hellu - Minning Þeir sem lifa það að komast yfir miðjan aldur verða þeirri reynslu ríkari að margir samferðamann- anna kveðja og hverfa yfir landa- mærin miklu, sem skilja að líf og dauða. Ólafur Markússon á Hellu and- aðist á Borgarspítalanum í Reykjavík 13. des. sl. og verður jarðsettur frá Árbæjarkirkju í dag. Ölafur var fæddur 29. jan. 1905 í Hákoti í Þykkvabæ. Foreldrar hans voru hjónin Katrín Guð- mundsdóttir og Markús Sveinsson, sem þar bjuggu, en fluttu að Dísukoti í Þykkvabæ árið 1923 og bjuggu þar í 20 ár, er tveir yngstu synir þeirra tóku við búinu. Markús og Katrín eignuðust 15 börn og komust 13 þeirra til fullorðinsára. Var Ólafur næst elstur systkina sinna. Þykkvibær- inn hefur mjög breytt um svip frá því að Ólafur var að alast þar upp, en hann var þá nánast eins og hólmi, því stór vötn runnu um- hverfis byggðarlagið. Lífsbáráttan var hörð í Þykkvabænum á þeim árum ekki síður en annars staðar. Eins og aðrir sveitadrengir hjálpaði Ólafur til við búskapinn eftir því sem getan leyfði og fór snemma að vinna fyrir sér. Á unglingsárum hans var róið á áraskipum frá Þykkvabæjarsandi. Um fermingaraldur byrjaði ólaf- ur sjóróðra frá sandinum og var hálfdrættingur í skiprúmi hjá Jóni í Unhól. Þegar hann var 17 ára fór hann á vetrarvertíð til Vestmannaeyja og var þar sjó- maður í sjö vertíðir, en vann annars að búi foreldra sinna. Ólafur kvæntist árið 1928 Hrefnu Jónsdóttur, Jónssonar, bónda á Árbæ í Holtum og Guðlaugar Ólafsdóttur, konu hans. Hófu þau búskap í Dísukoti, á móti föður Ólafs, árið 1929 og bjuggu þar í eitt ár en fluttu þá að Arbæjarhjáleigu í Holtum og bjuggu þar í átta ár og síðan í Bjóluhjáleigu í Djúpárhreppi i 27 ár, en hættu þá búskap og fluttu að Hellu árið 1965. Fyrstu búskaparár Ólafs og Hrefnu reyndust mörgum frum- býlingnum erfiður tími, fjárhags- lega, og var svo næsta áratuginn. Ólafur hafði því sama hátt á og margir rangæskir bændur á þess- um árum, að fara til sjós. Hann fór á togara árið 1928 og var á togurum, á vetrarvertíð, næstu 12 árin, eða til ársins 1939. Hann var háseti á togaranum Skúla fógeta, þegar hann strandaði við Grindar- vík árið 1933 og 13 af 37 manna áhöfn skipsins fórust. Hefur þetta verið mikil reynsla í lífi Ólafs. Meðan Ólafur stundaði sjóinn varð kona hans að annast um bústörfin heima. ólafi líkaði sjó- mennskan vel og hafði hann orð á að ef hann hefði ekki verið bóndi, myndi sjómennska hafa orðið ævir starf hans. En hugurinn stefndi ailtaf til búskapar í sveit. Hann var mikill dýravinur og umgekkst búsmala sinn eins og þar væru vinir hans. Hann hafði líka mik- inn og góðan arð af gripum sínum og verður talinn framarlega í hópi rangæskra góðbænda. Um árabil var hann forðagæslu- maður í sveit sinni. Þótt slík störf séu misvinsæl mun Ólafur hafa haft af því ánægju. Kom þar til hver dýravinur hann var og var honum áhugamál að aðrir færu vel með gripi sína. Hann var einnig deildarstjóri hjá Sláturfé- lagi Suðurlands í mörg ár. Þá var hann kjötmatsmaður í sláturhús- inu á Hellu um þrjátíu ára skeið. Eins og flest matsstörf, er mat á kjöti ekki vandalaust, enda oft vanþakklátt. Þessi störf eins og önnur leysti Ólafur af hendi með þeirri samviskusemi, sem honum var í blóð borin og lagði sig fram um að á hvorugan væri haliað. Eftir að Ólafur og Hrefna fluttu að Hellu var þar mikiil gesíagang- ur lengra og skemmra að komn- um. Kom þar til gestrisni hús- bændanna og áhugi þeirra og ánægja, að blanda geði við annað fólk. Um þetta voru þau hjón mjög samhent, enda leið öllum vel í návist þeirra. Ólafur og Hrefna eignuðust fjögur börn. Þau eru: Alda, hús- móðir á Hellu, gift Sigurði Karls- syni, umboðsmanni Olis, Baldur, bóndi á Fit undir Eyjafjöllum, kvæntur Sigríði Pálsdóttur, Bragi, verkamaður á Hellu, hefur búið hjá foreldrum sínum og Jón, rafvirki, búsettur í Garðabæ, kona hans er Lind Ebbadóttir. Barna- börn þeirra eru 17 og barnabarna- börn 10. Ólafur Markússon var mikill mannkostamaður, eins og hann átti kyn til. Stærstu eðliskostir í fari hans voru hvað hann var hlýr og hýr í viðmóti og var eðlislægt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.