Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 19.12.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 61 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu Allt heldur en láta börnin til annarra Anna skrifar: „Ég sendi þér þessar línur, Velvakandi minn, vegna fyrir- spurnar Ó.B.Ó. í dálkum þínum 11. þ.m., þar sem kvartað er yfir því að í skoðanakönnun hafi ekki verið spurt, hvort útivinnandi konur kysu fremur að vinna heima, ef þeim byðist það. Mig langar að segja frá minni reynslu í þessu sambandi. Timdi ekki að fara út að vinna frá börnunum Ég gekk í hjónaband árið 1929, þegar kreppan var í algleymingi. Við eignuðumst okkar fyrsta barn 1930. Komandi tímar þá gáfu ekki miklar vonir um góða afkomu fyrir verkafólk, sem ekki var sérhæft á neinu sviði. Ég sá fram á að ég yrði að afla tekna með bónda mínum. En ég tímdi ekki að fara út að vinna frá börnunum og láta þau í annarra umsjá. Ég tók því það ráð að skapa mér heima- vinnu, sem gaf mér oft notalegar tekjur. Tapa dásamlegum tíma sem aldrei kemur aftur Ég er oft að hugsa um, hvernig því sé háttað með konur nú til dags. Geta þær ekki skapað sér heimavinnu? Allt heldur en láta börnin sín í uppeldi til annarra. Þær hljóta að sjá, að þær tapa dásamlegum tíma frá því að vera með börnunum sínum. Sá tími kemur aldrei aftur. Með fyrirfram þökk fyrir birt- ingu.“ Talað um óvætt- inn í Njarð- víkurskriðum Steinþór Eiríksson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Fyrir nokkrum dögum skrifaði Ævar R. Kvaran umsögn í Mbl. um bók Halldórs Péturssonar. Þar seg- ist hann ekki fella sig við að orðið óvættur sé haft í karlkyni. Þar er ég ekki á sama máli og held því fram að nota megi báðar myndirn- ar jöfnum höndum. Hannes Ha- fstein talar í einu kvæða sinna um „huldar landsins verndarvættir" og notar orðið þar í kvenkyni. En hér fyrir austan var jafnan talað um óvættinn í Njarðvíkurskriðum og í fornsögum okkar er talað um landvætti sem tóku á móti sendi- manni Noregskonungs og sneru honum á braut. Þar voru meðal annars risi og griðungur sem telj- ast munu karlkyns, hvað sem segja má um fuglinn og drekann. Að öðru leyti þakka ég Ævari Kvaran hans sanngirni og smekkvísi sem ég og fleiri kunnum vel að meta. Krækja í áhang- endur eins og Moon-istar Fyrrverandi námsmaður í Nor- egi hringdi og sagði: Hann er víst af norskum ættum þessi Fredrik- sen, franski nasistinn, sem gerði íslenska sendiráðinu í París heim- sókn til að kanna möguleika á að fá landvist hér. Ég var í Noregi i sumar og þá sagði kunningi minn mér að nasistar væru með ólíkind- um öflugir í því landi og iðnir við að pota sínum mönnum í áhrifa- stöður. Og hann var ekki hrifinn af aðferðum þeirra til að krækja í nýja félaga, sagði þær einna helst minna á aðferðir Moon-safnaðar- ins. Ég ætla bara að vona að við verðum sem lengst laus við að fá fólk af þessu sauðarhúsi til íslands. Sjónvarpið: Auglýsing of an á auglýsingar S.Á. skrifar: „Afskaplega er ég orðinn leiður á auglýsingafarganinu í sjónvarpinu. Látum vera að sjónvarpið þurfi að taka mikið magn af auglýsingum í jólavertíðinni — fyrirtækið verður þó að lifa. Og þá gerir maður sér vonir um að fyrir auglýsingaféð verði hægt að bæta annað efni. En það sem gengur fram af mér, er þegar sjónvarpið fer sjálft að leggja undir sig besta útsendingartíma fyrir eigin auglýsingar — sem væntanlega kemur ekki greiðsla fyrir, heldur hlýtur frekar að taka í pyngjuna — og auglýsa þar sínar bíómyndir og efni. Þetta kemur meira að segja nú í kjölfarið á löngum almennum auglýsingatima. Auglýsingaþættirnir fara að ná saman Margt fólk hefur helst tækifæri til að horfa á sjónvarp á sunnudög- um og eftir fréttir þau kvöld væntir maður þess af eðlilegum ástæðum að fá sæmilegt efni. En auglýsing ofan á auglýsingar, finnst mér nokkuð langt gengið. Dagskrá sjón- varpsins með sérstökum kynn- ingarþáttum er daglega í hverju einasta dagblaði, svo og viku- dagskráin í heilu lagi. Og marg- tuggin í sjónvarpinu. Því getur það ekki farið fram hjá neinum manni hvað er á dagskránni hjá þeim. Annar auglýsingaþáttur er líka í sjónvarpinu, þar sem taldar eru upp bækur, sem eru til sölu og sýningar, í borginni — aðeins Reykjavík. Auglýsingaþættirnir þeirra fara að ná saman. Þegar svo er komið verður ódýrara að bregða sér bara stöku sinnum í bíó heldur en borga afnotagjald fyrir þessar fáu kvikmyndir og þetta litla efni, sem maður nýtur. Alltaf falla úr einhver kvöld í vikunni hjá mér og fleirum — en sunnudagskvöldin á ég yfirleitt laus frá vinnu. Góði Velvakandi komdu því á framfæri við þá þarna í sjónvarpinu, að þeir takmarki auglýsingaþættina við það sem þeir eru neyddir til að selja." SIGGA V/öGA fi ‘ÍILVEftAU Dem an tshringar Draumaskart Kjartan Ásmundsson, gullsmíða v. Aðalstræti 8. NYARSKYOLD * Súlnasalur hótelsins verður op- inn á nýársdagskvöld. Kvöldveröur framreiddur frá kl. 19.00. Dansað fram eftir nóttu. Samkvæmisklæðnaður Þeir gestir er voru á síðasta Nýársfagnaði og óska eftir forgangsrétti sínum nú, eru beðnir að hringja í síma 20221 eða 25017 milli kl. 16.00—19.00 í dag, föstudag Eftir það veröur borðum ráöstafaö til annarra gesta. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐI MORGUNBLAÐINU c<r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.