Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 25

Morgunblaðið - 19.12.1980, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. DESEMBER 1980 57 fclk í fréttum Eiginkona morðingjans + Morðmál Johns Lennon hefur teygt anga sína alla leið til Hawai. Þessi mynd er tekin í Honolulu þar sem eiginkona hins ákærða morðingja, Gloria Champman, svarar spurningum fréttamanna á blaðamannafundi. Henni á vinstri hönd er lögfræðingur hennar, sem aðstoðaði hana á blaðamannafundinum. Luns rœðir við Maðamenn + Á fundi Atlantshafs- bandalagsins í Brussel sem haldinn var nú ný- lega vöruðu samtökin Sovétríkin enn á ný við hugsanlegri innrás inn í Pólland. Undirstrikaði fundurinn hættu þá sem Pólverjum stafar af Rússum vegna atburða þeirra sem gerst hafa í Póllandi að undanförnu. „Hvað mun veröldin vilja." Myndin er af að- alritara Atlantshafs- bandalagsins Joseph Luns á blaðamannafundi að loknum þessum fundi. John Williams heiðraður + Fyrir stuttu veitti Elísa- bet Bretadrottning, ástr- alska gítarsnillingnum John Williams „Heiðurs- orðu Breska Heimsveldis- ins.“ Afhendingin fór fram í Buckinghamhöll. Að því loknu sagði Williams: „Ég ætla að fara strax til baka og hitta strákana, besta leiðin til að halda upp á þetta er að sjálfsögðu sú að halda tónleika." Hinn 39 ára gamli Williams olli miklu fjaðrafoki í tónlistar- heiminum á sínum tíma, er hann hóf að leika nútíma popptónlist með hljóm- sveitinni „Sky.“ Fram að þeim tíma hafði hann að- eins leikið klassiska gítar- tónlist. En hljómsveitin „Sky“ nýtur nú mikillar virðingar tónlistarunnenda. Dópaðir og fullir + Flestir kannast víst við Dick Cavett en hann er geysifrægur vegna sjón- varpssamtalsþátta sinna. I blaði einu birtist nýlega viðtal við hann og kemur þar margt forvitnilegt í ljós. Hann segir þar að aðalvandamálið, sem hann þurfi að glíma við séu gestirnir sjálfir. Ekki að fá þá til að tala heldur hitt að iðulega séu gestirnir dauða- drukknir eða undir áhrifum fíkniefna, aðallega mariju- ana. Þetta ku sérstaklega gilda um breska gesti hans. Oftast séu þó gestirnir bún- ir að frysta sjálfa sig með fíkniefnaneyslu. Þetta segir Cavett að útskýri marga þá einkennilegu hluti sem oft eru sagðir í sjónvarpinu. Karl prins Karl Prins í Austurvegi + Karl Bretaprins var fyrir stuttu í Nepal. Þangað kom hann að aflokinni 12 daga heimsókn til Indlands þar sem hann hitti Móður Teresu „dýrling stræta Calcuttaborg- ar“. Eftir að Karl hafði heim- sótt heimili sem hún rekur fyrir yfirgefin og vannærð bðrn sagði hún blaðamönnum: Ég sagði honum að ég gæti ekki gert það sem hann gerir og hann gæti ekki gert það sem ég geri en saman gætum við gert eitthvað fallegt fyrir Guð.“ Prinsinn mun hafa ætl- að að heimsækja herbúðir hinna frægu Gurkha-her- manna í Nepal og fara síðan í fjögurra daga skoðunarferð um Himalayafjöllin. Móðir Teresa Sófaborð og smáboró & Góð jólagjöf §1 Húsgögn Ármúli 8 Símar: 86080 og 86244

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.