Morgunblaðið - 29.03.1981, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
49
Texti: Hildur Einarsdóttir
Myndir: Emilía Bjömsdóttir
varnarefnið natríumflúoríð eyði-
leggi próteinerfðamörk í blóðinu
þannig að ekki sé hægt að ákvarða
blóðflokk viðkomandi ef efninu er
blandað saman við blóðið, hvaða
áhrif getur þetta haft?
„Endingin á sýnunum er keypt
því verði að prótein, sem eru
ákvarðandi í blóðflokkagreiningu
þau skemmast.
Við höfum lagt það til marg-
sinnis, að það væri æskilegt að
taka tvö sýni úr hverjum ökú-
manni og sé annað sýnið geymt
hjá viðkomandi lögregluembætti,
til þess að hægt sé að endurtaka
mælingu á alkóhóli í blóði, ef
bornar eru brigður á rannsókn þá
sem þegar hefur farið fram á
blóðinu eða ef annað tilefni gefst
til endurtekningar.
Við höfum einnig lagt til að
tekin verði þvagsýni, því það gefur
ýmsar veigamiklar upplýsingar
um alkóhólmagn í blóði manna og
er til fyllingar þeim upplýsingum,
sem fást úr blóðsýninu. Tökum
dæmi: Maður er alveg við 0,5%o
mörkin, þvagsýni getur sýnt að í
því eru 0,8%o eða 0,9%o eða l,0%o.
Þetta þýðir einfaldlega að þvagið
endurspeglar það magn sem var í
blóðinu til dæmis einni eða tveim-
ur klukkustundum áður. Þvagsýni
tekur líka af allan vafa um mistök
sem gætu hugsanlega átt sér stað
hvað blóðsýni varðar."
Matur getur dreg-
ið úr áfengismagni
í likamanum
Þegar metið er hvort neysla
tiltekins áfengismagns leiðir til
ákveðins alkóhólmagns í blóði þá
eru ýmsir þættir sem skipta þar
máli. Þættir eins og hvort viðkom-
andi hafi nærst áður eða á meðan
á áfengisdrykkjunni stóð. Einnig
hefur líkamsþyngd nokkuð að
segja svo og brennsluhraði líkam-
ans. Hvað er að segja um þetta?
„Það er gamalþekkt að matur í
maga getur dregið úr magni
áfengis, sem kemur inn í líkam-
ann. Segjum sem svo að tveir
menn drekki sama áfengismagnið
og eru jafn þungir. Annar neytir
matar með áfenginu, má vera víst
að það finnst minna áfengismagn í
blóði þess, sem mataðist.
Hér skal getið rannsóknar sem
gerð var á vegum rannsóknarstof-
unnar, til að sýna fram á að í blóði
tveggja manna, sem drukku jafn
mikið alkóhól á sama tíma mæld-
ist misjafnlega mikið alkóhól, því
annar hafði borðað en hinn drukk-
ið án þess að neyta matar. Mæl-
ingin fór fram eftir 15 mínútur og
síðan með jöfnu millibili upp í 150
mínútur. Eftir klukkutíma mæld-
ist til dæmis 0,8%o alkóhól í blóði
þess sem borðaði en l,10%o í blóði
hins svanga. Hálftíma seinna var
sá svangi kominn upp undir
l,30%o alkóhóls í blóði en sá saddi
var kominn niður í 0,7%o en ofan
við efri mörkin samt.
Hvað líkamsþyngd varðar þá er
hægt að taka dæmi um konu sem
vegur 55 kíló hún hefur minni
líkamsmassa en maður sem vegur
80 kíló, þarna er munurinn 25 kíló.
Þess vegna má búast við að
áfengismagn verði meira í kon-
unni en karlmanninum, þó þau
hafi neytt sama magns af áfengi.
Brennsluhraði er settur þannig
upp samkvæmt gamalli formúlu:
hann er 0,1 gramm etanól / per
kílógramm likamsþunga / per
klukkustund. Á þessu eru þó
miklar sveiflur eða +/- 30% eða
jafnvel meira. Okkur geðjast því
ekki að því hér á rannsóknarstof-
unni að reikna brennsluhraða hjá
tilteknum einstaklingi og nota
þær tölur, því við teljum þær allt
of óvissar."
Breytingar
á döfinni?
Eru einhverjar breytingar á
döfinni hjá yfirvöldum hvað varð-
ar ofangreind mál? Við spurðum
Hjalta Zóphóniasson deildarstjóra
í Dómsmálaráðuneytinu þeirrar
spurningar?
„Verið er að athuga ýmsa hluti
hvað varðar ölvunarakstursmál,
en á þessu stigi er aðeins um
frumathugun að ræða. Það kemur
þó sterklega til greina að komið
verði á reglum um að taka skuli
tvö blóðsýni í stað eins sýnis og að
einnig verði tekið þvagsýni, þar
sem hægt er að koma því við. Það
er líka í gangi athugun á því
hvernig hægt er að tryggja á
óyggjandi hátt að þau sýni, sem
lögreglan fær í hendurnar hjá
lækni á slysadeild séu rækilega
innsigluð, þannig að ekki sé hægt
að skipta um sýni eða rugla þeim
saman. Tekið skal fram að endur-
skoðun á þessum málum er ekki
framkvæmd vegna þess að sann-
ast hafi misbrestur hvað þetta
varðar heldur til að tryggja á
óvéfengjanlegan hátt að ökumað-
ur grunaður um ölvun við akstur
fái rétta lausn mála sinna. Þetta
er einnig til þess að ekki sé hægt
að bera brigður á störf þeirra
manna, sem fást við sýnin, þar á
ég einkum við lækna og löggæslu-
menn.
Það hefur líka komið til tals að
taka upp læknisfræðilegt mat á
ölvunarástandi ökumanns, en ekk-
ert hefur verið ákveðið í þeim
efnum."
Drepið hefur verið á ýmsa hluti
í þeim þrem greinum, sem birst
hafa hér í blaðinu um ölvun við
akstur, ennþá er þó margt órætt,
meðal annars sú staðreynd, að
mun fleiri íslendingar virðast aka
drukknir en þekkist í nágranna-
löndum okkar og er hægt að færa
tölur þessu til sönnunar, en við
munum láta það bíða um sinn.
Háskilans t lyf
c'o uiTnyáruumBðvi* Hé»Vóhs UWvás,
Suðunjötu, RoykjevA
LÖOREGÍ.AN I KEFUAVÍK
í umslagi eins og þessu eru blóðsýnin send á milli slysadeild-
ar og rannsóknarstofunnar.
Á að taka eitt eða tvö bióðsýni?
David Pitt & Co hf
Klapparstíg 16 Pósthólf 1297 Sími 13333 121 Reykjavik
Skrifborðsstólar
margar gerðir
Skóla-
og skíða-
pokar
Lampar
hentugir
skólafólki
Myndlistarvörur
í miklu úrvali
Skjalatöskur
Töfl
og tafl-
menn
*!■»«*
M M H U
IV* vt
Bækur
Íi Skrif'
* möppur
Jarðlíkön
Gjafavöruúrval
Nú, sem endranær býður Penninn upp á mikið úrval af gjafavörum: Pennasett,
jarðlíkön, töfl og töskur — og í verslun okkar í Hallarmúla fást skrifborðsstólar,
lampar, myndlistarvörur auk úrvals íslenskra og erlendra bóka.
Gjafavöruúrvalið er í Pennanum
Hallarmúla 2 Hafnarstræti 18 Laugavegi 84