Morgunblaðið - 29.03.1981, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. MARZ 1981
Sama árið og Böðvar fluttist til
Ólafsvíkur var hann kosinn í
byggingarnefnd, sem jafnframt
var fyrsta byggingarnefnd í þorp-
inu, ásamt þeim Jónasi Þorvalds-
syni og Stefáni Kristjánssyni. Átti
Böðvar síðan sæti í byggingar-
nefnd allt til 1974, og var bygg-
ingarfulltrúi jafnframt mestallan
tímann.
Þessi þrjátíu og fjögur ár voru
mikið breytingarskeið í Ólafsvík,
og þegar Böðvar lét af störfum
sem byggingarfulltrúi, munu að-
eins fimm íbúðarhús hafa staðið
eftir að mestu óbreytt frá því
hann byrjaði. Allan tímann starf-
aði Böðvar við húsasmíði og var
meðal annars yfirsmiður við hina
tígulegu Ólafsvíkurkirkju.
Alla tíð hefur Böðvar verið
afgerandi sjálfstæðismaður og
mjög áhugasamur um framgang
góðra mála, bæði þjóðmál og í
heimabyggð. Hann átti í fjölmörg
ár sæti í hreppsnefnd og einnig í
sýslunefnd. Hefur hann verið
þeim sem eftir komu ráðhollur og
í hvívetna góður bakhjarl.
Landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins hefur Böðvar setið margsinnis
og átt sæti í kjördæmisráði. Full-
yrða má, að allt það, sem Böðvar
hefur unnið á opinberum vett-
vangi sem öðrum, hafi verið unnið
af einstakri trúmennsku. Böðvar
hefur verið góður fulltrúi síns
flokks og sjálfstæðismenn sem og
aðrir standa í þakkarskuld og
senda bestu heilaóskir á þessum
tímamótum. Böðvar er nú formað-
ur stjórnar Sparisjóðs Ólafsvíkur
og hefur ætíð verið mikill baráttu-
maður fyrir tilvist sjóðsins og
viðgangi.
Arið 1944 kvæntist Böðvar Elín-
borgu Ágústsdóttur frá Mávahlíð.
Stóð hjúskapur þeirra til ársins
1971, að þau slitu samvistum. Er
Böðvar nú til heimilis hjá syni
sínum, Snorra, rafveitustjóra í
Ólafsvík, og konu hans, Guðlaugu
Ámundadóttur. Önnur börn Böðv-
ars og Elínborgar eru Auður,
húsmóðir og kennari í Ólafsvík, og
Sturla, sveitarstjóri í Stykkis-
hólmi.
Fyrir nokkrum árum reisti
Böðvar sumarhús í Urðarmúla á
Fróðárheiði. Er þaðan víðsýnt og
sér vel yfir Staðarsveitina og
æskuslóðir hans. Dvelur hann þar
gjarnan um helgar, á sumrin, einn
eða með sínu fólki. Aldrei læsir
Böðvar þessu húsi sínu, en tilmæli
um góða umgengni liggja þar
frammi í bundnu máli, enda er
hann vel hagmæltur. Margir hafa
leitað þarna skjóls, en aldrei verið
níðst á því trúnaðartrausti sem
húseigandinn sýnir vegfarendum.
Átök eru í heimsmálum, þjóð-
málum og í flokknum okkar,
Sjálfstæðisflokknum. 30. mars
hefur eitt sinn verið átakadagur í
íslensku þjöðlífi. 30. mars í ár
verður vonandi ekki neinn bar-
dagadagur, heldur miklu fremur
Ekki olía
til Sovét
Kuwait. 27. marz. — AP.
HÁTTSETTUR embættis-
maður í olíumálaráðuneyti
Kuwait sagði í dag, að þaðan
yrði ekki seld hráolía til
Sovétríkjanna og engar
samningaviðræður myndu
hefjast um þetta mál. Þessi
ummæli voru látin falla nú
vegna þess að Lundúnablað
hafði sagt í frétt að Sovét-
menn myndu kaupa ókjör
hráolíu af Kuwaitum og
endurselja hana síðan til
Tyrklands. Embættismaður-
inn vildi ekkert um það
segja, hvað yrði ofan á ef
formleg beiðni yrði send þar
að lútandi til Kuwaitstjórn-
ar.
Kuwait framleiðir sem
svarar 1,5 milljón olíutunna
á dag. I frétt blaðsins var
sagt að Sovétmenn myndu
kaupa rösklega helming
framleiðslunnar.
dagur manns, sem sáttur rifjar
upp liðna daga, og gerir á þann
hátt upp við sjálfan sig og sam-
ferðamenn. Bíður þess síðan með
þolinmæði, að vora taki í Urðar-
múlanum.
Helgi Kristjánsson
Ekki má minna vera en ég sendi
vini mínum, Böðvari Bjarnasyni,
húsasmíðameistara í Ólafsvík,
kveðju og þakkarávarp á merkis-
degi hans, en hann fyllir nú
sjöunda tuginn. Böðvar er úr
Staðarsveitinni, sonur merkis-
hjónanna í Böðvarsholti, Bjarn-
veigar Vigfúsdóttur og Bjarna
Nikulássonar sem ég á svo litríkar
minningar um frá fyrstu árum
mínum á Snæfellsnesi. Þaðan hef-
ir hann kraft og kjarna. Böðvar
varð snemma lagvirkur og lagtæk-
ur, og beindist áhugi hans allur í
þá áttina. í uppvexti hans var ekki
margra kosta völ en með áræði og
dugnaði lærði hann smíðar og
varð það síðar ævistarf hans. I
Ólafsvík á hann mörg spor í
iðninni og nægir það eitt að minna
á hina veglegu og sérkennilegu
Ólafsvíkurkirkju sem hann var
yfirsmiður að.
En ég minnist hans sérstaklega
fyrir störf hans að félagsmálum
þar sem hann var heill og ótrauð-
ur og taldi aldrei neitt eftir þegar
hann var sannfærður um að vinna
góðum málstað gagn. Störf hans í
þágu sjálfstæðisstefnunnar hér á
landi verða seint þökkuð, ráðlegg-
ingar hans og afstaða verður
minnisstæð þeim er við hann
skiptu.
í hreppsmálum Ólafsvíkur vann
hann um skeið, í Kaupfélagsstjórn
Kaupfélags Ólafsvíkur, stjórn
Sparisjóðsins o.fl. sem ekki verður
tíundað hér. Traust hafði hann
jafnan sveitunga sinna og sveit-
inni vann hann meðan kraftar
voru fyrir hendi, en samviskumað-
urinn hægði á um leið og honum
fannst hann ekki skila því sem
hann var ánægður með. Hann
vildi sem lengst vinna þannig.
Þessu kynntist ég gleggst í fari
hans.
Vinátta okkar hefir jafnan verið
traust og ég á honum marga góða
stund að þakka.
Kvæntur var Böðvar Elínborgu
Ágústsdóttur frá Mávahlíð og eru
59
þeirra börn þrjú, allt nýtir og
góðir stofnar á Snæfellsnesi. Um
leið og ég þakka góða og gagnlega
samfylgd óska ég Böðvari allra
heilla og áframhaldandi vel-
gengni.
Árni Helgason
SKRIFSTOFUR:
10100
AFGREIÐSLA:
83033
,,Alveg einstakt kerfi. Viö ættum etv. aö likja eftir þvi'!"
Betri ending
Reynslan hefur sýnt, að pústkerfi úr álvörðu stáli
endist 20-40% lengur en venjuleg pústkerfi, - bæði
kútar og rör.
Pústkerfi fyrir alla
Fjöðrin h/f framleiðir nú um 50 gerðir af hljóð-
kútum og mörg hundruð gerðir af púströrum - allt
úrálvörðu stáli. Fjöðrin h/f hefur rúmlega 1000
mismunandi gerðir af pústkerfum á lager og í
pöntun.
Úrvalið er gífurlega mikið, enda er vandfundinn
sú bíltegund, sem Fjöðrin getur ekki „þaggað niður
í”!
Við getum
Góð þjónusta
Fjöðrin h/f er brautryðjandi í sérþjónustu við
íslenska bifreiðaeigendur. Eigin framleiðsla og eigið
verkstæði tryggir góða vöru og gæða framleiðslu.
Hljóðkútar og púströr eru okkar sérgrein, en
vanti þig tjakk, fjaðrir, fjaðrabolta, hosuklemmur,
skíðaboga, farangursgrind, eða smáhluti í bílinn
borgar sig að ræða við okkur.
BILAVÖRUBUOIN
FJOÐRIN
Skeifan 2 sími 82944
taggað niður í þeim flestum!
«KaKan öeaynpeMHaa MOHTawHan <þopMa
BblTb MOWeT, H3M cneflOBano
6bi KonnpoBaTb ee.»