Morgunblaðið - 23.04.1981, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
Róbert Arnfinnsson
.Evar R. Kvaran
Haldvin Ilalldórsson
Leikrit vikunnar kl. 20.05:
Hcssi Hjarnason
áður en yfir lýkur að jafnvel
ræningjar geta orðið bestu
menn ef rétt er farið að þeim.
„Kardemommubærinn“
Á danskrá hljóðvarps í
kvöld, sumardaginn fyrsta,
kl. 20.05 er leikritið ..Karde-
mommubærinn“ (Folk og röv-
ere i Kardemommeby) eftir
Thorbjörn Egner. Þýðendur
eru Ilulda Valtýsdóttir og
Kristján frá Djúpaiæk. Leik-
stjórn: Klemenz Jónsson.
Hljóðfæraleikarar úr Sinfón-
íuhljómsveit fslands annast
tónlistina undir stjórn Carls
Biliich. í stærri hlutverkum
eru m.a. Róbert Arnfinnsson,
Ævar R. Kvaran, Baldvin
Halldórsson, Bessi Bjarnason
og Emilía Jónasdóttir. Leik-
ritið var áður flutt 1963 og er
röskur hálfur annar klukku-
tími á lengd.
í Kardemommubæ býr
mesta sómafólk, glaðlynt og
hefur yndi af dansi og söng. Þó
eru nokkrar undantekningar,
t.d. ræningjarnir Kasper,
Jesper og Jónatan. Þeir eru
kannski ekki neitt slæmir inni
við beinið, en fara þó út á
nóttunni og stela, og það er
ekki beinlínis til fyrirmyndar.
Eitt þykir þeim verst: að hafa
ekki kvenmann til að annast
húsverkin. Þeir finna ráð, að
því er þeir halda alveg óbrigð-
ult, en margt fer öðruvísi en
ætlað er. Og það kemur í ljós
Thorbjörn Egner er fæddur
í Ósló 1912. Hann stundaði
nám við listaskóla og hefur
sjálfur myndskreytt bækur
sínar. Auk þess semur hann
lög við eigin ljóð. Þekktustu
verk hans eru „Karíus og
Baktus“ 1946, „Dýrin í Hálsa-
skógi“ 1953 og „Kardemommu-
bærinn“ 1955. Síðastnefnda
leikritið var fyrst flutt í Þjóð-
leikhúsinu 1960, en hefur síð-
an verið endursýnt. Stytt út-
gáfa leiksins hefur verið gefin
út á plötu. Egner er einn
5
Emilía Jónasdóttir
vinsælasti barnabókahöfund-
ur á Norðurlöndum og hefur
oft hlotið verðlaun fyrir verk
sín. Einnig var hann verðlaun-
aður fyrir teikningar sínar í
bók H.G. Wells, „Tommi og
fíllinn".
Tilkynningar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar.
Á frívaktinni. Margrét Guð-
mundsdóttir kynnir óskalög
sjómanna.
SÍDDEGIÐ
15.00 Innan stokks og utan.
Sigurveig Jónsdóttir og
Kjartan Stcfánsson stjórna
þætti um fjölskylduna og
heimilið.
15.30 Tónleikar. Tilkynningar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar.
Guiomar Novaes leikur á
pianó „Papillons“ op. 2 eftir
Robert Schumann/Dietrich
Fischer-Dicskau syngur
ljóðasöngva eftir Giacomo
Meyerbeer; Karl Engel leik-
ur með á pianó/David Bar-
tov og Inger Wikström ieika
á fiðlu og píanó „Kansónu“
op. 44 nr. 3 eftir Erkki
Melartin og Sónötu nr. 2 i
d-moll op. 21 eftir Niels W.
Gade.
17.20 Lagið mitt.
Ilelga Þ. Stephensen kynnir
óskalög barna.
KVÖLDID
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tiikynningar.
19.40 Á vettvangi.
20.05 Nýtt undir nálinni.
Gunnar Salvarsson kynnir
nýjustu popplögin.
20.35 Kvöldskammtur. Endur-
tekin nokkur atriði úr morg-
unpósti vikunnar.
21.00 Frá tónlistarhátíð ungra
norrænna tónlistarmanna i
Kaupmannahöfn i janúar-
mánuði sl. Knútur R. Magn-
ússon kynnir fyrri hluta.
21.45 Ófreskir íslendingar II.
— Berdrcymi. Ævar R.
Kvaran les annað erindi sitt
af fjórum.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
22.35 Séð og lifað. Sveinn
Skorri Ilöskuldsson les
endurminningar Indriða
Einarssonar (14).
23.00 Djassþáttur i umsjá Jóns
Múla Árnasonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Guðmundur Benediktsson
hlaut styrk Minningarsjóðs
Barböru Moray Árnason
Á PÁSKADAG, var út-
hlutað úr Minninjgarsjóði
Barböru Moray Árnason,
en þann dag heíði lista-
konan orðið sjötug. Sjóðn-
um er ætlað að styrkja
myndlistamenn til kynnis-
ferða vegna listar sinnar.
Á þessu ári nemur styrk-
urinn 8.000.- krónum, og
hlaut hann að þessu sinni
Guðmundur Benediktsson
myndhöggvari.
í sjóðsstjórn eru: Vífill
Magnússon arkitekt, Sig-
rún Guðjónsdóttir mynd-
listamaður, formaður Fé-
lags íslenskra myndlista-
manna, Þóra Kristjáns-
dóttir listfræðingur, list-
rænn forstjóri Kjarvals-
staða, og Thor Vilhjálms-
son rithöfundur, forseti
Bandalags íslenskra lista-
manna.
Sjóðsstjórnin hefur
ákveðið að framvegis skuli
sjóðurinn vera kenndur við
þau merkishjón bæði og
heita Minningarsjóður
Barböru og Magnúsar Á.
Árnasonar, en Magnús lést
á síðastliðnu sumri, eins og
mönnum er kunnugt.
Ráðgerð er yfirlitssýning
á verkum Barböru og
Magnúsar og væri kærkom-
ið að fá upplýsingar um
verk þeirra í eigu manna,
segir í frétt frá sjóðsstjórn-
inni.
MYNDAMÓT HF,
PRENTMYNDACERÐ
AÐALSTRCTI • S I M A R : 17152- 17355
Ást við
fyrstu sýn
$KENWOOD KX-500 er kassettu-
tækið sem hrífur þig frá
fyrstu kynnum.
Spilar allar bandagerðir, „Metal“,
„Crom", o.fl., búið snertirofum,
” „Bias“ fínstillingu, fluorcent mælum,
„Dolby“, „long live SGH“ tónhaus,
o.m.fl.
)KENWOOD KX-500 er kassettu-
tækið seni þú getur eignast með
Kr. 1.200.- útborgun og eítir-
stöðvar á 1 mánuðum. eða gegn
staðgreiðslu fyrir kr. 3.250.-
/ © \
KENWOOD KX-500 KASSETfUTÆKI