Morgunblaðið - 23.04.1981, Qupperneq 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
25
Plorjjui niribiMfe
Otgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson.
Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson.
Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 70 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö.
Sumardagurinn
fyrsti
Enfíinn einn dagur á jafn sterkan hijómgrunn í hjörtum
íslendinga og sumardagurinn fyrsti. í hugum okkar tengist hann
heiðum himni, sól í hádegisstað, angan gróðurs og ávöxtum jarðar.
íslenzki bóndinn, sem erjað hefur gróðurmoldina, hið innra lífbelti
þjóðarinnar, kynslóð eftir kynslóð, er í nánustum tengslum við samspil
sólar, regns og moldar. Það að sjá eitthvað verða til svo að segja í
höndum sér, hvort heldur er jarðargróður eða handverk, er hluti
lífsfyllingar. Þessvegna er grunnt á sveitamanninum í mörgum
borgarbúanum. Hestamennska, náttúruskoðun, sumarbústaðir, kart-
öflurækt og margt áþekkt, sem borgarbúinn tekur sér fyrir hendur, er
heilbrigð viðleitni til að viðhalda tengslunum við landið og náttúruna.
Okkur ber að lifa í sátt við landið okkar. Við eigum að hamla gegn
landeyðingu, græða sárin foldar. Þessvegna ber að fagna frumvarpi
sjálfstæðismanna um umhverfismál, sem Salome Þorkelsdóttir mælti
fyrir á dögunum. Samhliða því að nýta þær náttúruauðlindir, sem
forsjónin hefur lagt okkur upp í hendur til lífsframfæris, þar á meðal
orkuauðlindir okkar, af framsýni og fyrirhyggju, þurfum við að vernda
og fegra umhverfi okkar. Við þurfum í senn að lifa í sátt við landið —
og á nytjum þess.
Vorhugurinn, sem fyllir hugi okkar þessa dagana, þarf að ná til
þeirra þátta í samfélagi okkar, er mestu skipta framtíð þjóðarinnar.
Vorhugurinn, sem kallar menn til gróðurstarfa, þarf að ná til fleiri
þátta þjóðarbúskaparins en landbúnaðar. Það þarf að sá til góðrar
uppskeru víðar en í frjóan jarðveg landsins. Vorhugurinn þarf að ráða
ferð í öllum atvinnugreinum okkar. Kns og aðstæður eru í dag þarf
ekki sízt að leggja áherzlu á stórvirkjanir, a.m.k. þrjár nýjar
stórvirkjanir á þessum áratug, og þá nýtingu orkunnar að auki
verulega á verðmætasköpun og þjóðartekjur. En það þarf jafnframt að
leggja rækt við menntun þjóðarinnar og menningu. Þannig verður bezt
búið í haginn fyrir íslenzka þjóð í næstu framtíð, safnað í hlöður
hennar efnislegum og andlegum verðmætum.
í þeirri trú að vorhugurinn ráði ferð í framtíð þjóðarinnar óskar
Morgunblaðið landsmönnum gleðilegs og góðs sumars.
„Annað hvort aftur á
bak ellegar nokkuð á leið“
Arni Grétar Finnsson, hæstaréttarlögmaður og stjórnarmeðlimur
í Landsvirkjun, ritar mjög eftirtektarverða grein um Búrfells-
virkjun og íslenzka álfélagið í Mbl. 11. apríl sl. Þar kemur m.a. fram:
1) Þegar Búrfellsvirkjun var risin framleiddi hún ein sér tvöfalt
meira rafmagn en allar aðrar virkjanir landsins á þeim tíma
samanlagt.
2) Sala á rafmagni til nýs orkufreks iðnaðar var á þeim tíma algjör
forsenda þess að hægt var að ráðast í stórvirkjun af þessu tagi.
3) Búrfellsvirkjun var að langmestu leyti byggð fyrir erlent lánsfé.
Til þess að afla fjár til að standa undir vöxtum og afborgunum var
brotið blað í atvinnusögu þjóðarinnar með álsamningnum, sem nú er
rúmlega 10 ára reynsla af.
4) Stofnkostnaður Búrfellsvirkjunar, ásamt vatnsmiðlun í Þóris-
vatni, tveimur háspennulínum frá Búrfelli til Reykjavíkur, spennistöð
við Geitháls og gasaflstöð í Straumsvík, var á sínum tíma 70 milljónir
bandaríkjadala. Samkvæmt áætlun verkfræðideildar Landsvirkjunar
myndi Búrfellsvirkjun í dag kosta 270 milljónir bandaríkjadala. Miðað
við verðbólgu mældri í visitölu byggingarkostnaðar í Bandaríkjunum
samsvara 70 milljónir dala, er virkjunin var byggð, 180 milljónum í
dag. Hreinn hagnaður íslenzku þjóðarinnar af því einu að hafa byggt
Búrfellsvirkjun á sinni tíð er því 90 milljónir bandaríkjadala.
5) Greiðslum af erlendum lánum vegna Búrfellsvirkjunar á að ljúka
1991. Heildargreiðslur vegna afborgana og vaxta frá upphafi til loka
þessa tíma verða 127 milljónir bandaríkjadala. Tekjur Landsvirkjunar
af orkusölu til álversins verða frá upphafi til 1994, þegar núverandi
raforkusamningur við ísal rennur út, samkvæmt áætlun Landsvirkj-
unar, 285 milljónir dala, eða tvöfalt hærri en lánabyrðin.
6) Miðað við þær aðstæður, sem vóru fyrir hendi er orkusamningur-
inn var gerður á 7. áratugnum, sem og stofnkostnað Búrfellsvirkjunar,
er ekkert vafamál, að kostir hans vóru yfirgnæfandi. Síðar kom
orkukreppan með tilheyrandi margföldun á olíuverði, en það er út í
hött hjá úrtölumönnum um stórvirkjanir og stóriðju að rýra gildi
álsamningsins með samanburði við það sem enganveginn varð fyrir
séð.
Mönnunum munar annaðhvort aftur á bak ellegar nokkuð á leið,
sagði eitt ástsælasta ljóðskáld þjóðarinnar. Búrfellsvirkjun skilaði
okkur drjúgum áleiðis. Þeir sem hugsa ekki stærra í orkuvæðingu
þjóðarinnar en að loka fyrir orkusölu til stóriðjufyrirtækja eru
hinsvegar afturábakmenn. Slíkir menn eru ekki líklegir til áræðis um
„Búrfellsvirkjanir" batnandi lífskjara á íslandi næstu framtíðar.
Korchnoi i heimsókn hjá forseta tslands, Vigdísi Finnbogadóttur ásamt Högna Torfasyni.
Ljósm. ÓI.K.M.
Korchnoi heimsótti einnig i gær Ólaf Jóhannesson, utanrikisráðherra, og
er með þeim á myndinni Halldór Blöndal, formaður íslandsdeildar
stuðningsnefndar fjölskyldu Korchnois. Ljósm. Emiiia.
Sovéska sendiráðið neitaði að taka við
stuðningsávarpi við fjölskyldu Korchnois
EITT hundrað íslendingar, skák-
menn, stjórnmálamenn. skóla-
menn, skáld, ritstjórar og prest-
vígðir menn, hafa ritað undir
ávarp íslandsdeildar stuðnings-
nefndar fjölskyldu Viktors Korch-
nois. en þar er skákhreyfingin og
allur almenningur i landinu hvatt-
ur til að styðja viðleitni Alþjóða-
skáksambandsins og rikisstjórnar
íslands til að tryggja fjölskyldu
Korchnois ferðafrelsi. Fulltrúar
stuðningsnefndar hugðust koma
ávarpi þessu á framfæri við sendi-
herra Sovétrikjanna á íslandi. en
þeirri málaleitan var hafnað og
svör sendiráðsins voru þau, að það
myndi ekki hafa afskipti af máli
þessu.
I stuðningsnefndinni eiga sæti
Halldór Blöndal, formaður, Páll
Heiðar Jónsson og Margeir Péturs-
son. A fundi með fréttamönnum í
gær greindu þeir frá starfi nefndar-
innar, en hún var stofnuð 4. apríl og
var henni falið að koma á framfæri
ávarpi til stuðnings fjölskyldu
Korchnois og rita undir það 100
kunnir íslendingar. Nefndarmenn
gengu á fund Ólafs Jóhannessonar,
utanríkisráðherra, ásamt Viktor
Korchnoi og fóru þess á leit við
hann að ráðuneyti hans kæmi
ávarpinu á framfæri við sovésk
stjórnvöld og sögðu þeir svör ráð-
herra hafa verið þau, að hann
myndi beita sér fyrir því að málið
yrði tekið upp eftir diplómatískum
leiðum.
— Þetta voru mjög vinsamlegar
viðræður við utanríkisráðherra og
hann sýndi fullan skilning á mál-
efnum mínum og kvaðst mundu
vinna að því að afla málstað mínum
stuðnings, sagði Korchnoi í samtali
við Mbl. í gær.
Páll Heiðar Jónsson sagðist hafa
haft samband við sovéska sendiráð-
ið si. þriðjudag og óskað viðtals við
sendiherrann með það erindi í huga,
að hann tæki við ávarpinu og kæmi
því í hendur þess manns, sem einn
réði úrslitum um málefni fjölskyldu
Korchnois, Bresnefs. Var Páll Heið-
ar beðinn um að hafa samband við
sendiráðið síðar um daginn og þegar
hann gerði svo fékk hann þau svör,
að sendiráðið myndi ekki vilja hafa
nein afskipti af stuðningsnefnd við
Korchnoi og myndi ekki taka við
ávarpinu. Sögðu þeir nefndarmenn
að þessi svör sendiráðsstarfsmanna
væru hrein móðgun við þá sem
ávarpið undirrituðu, sem væru
margir þjóðkunnir menn og fyrir-
menn þjóðarinnar og töldu með-
höndlun sendiráðsins á beiðni þess-
ari hina furðulegustu. Hér væri
aðeins verið að fara fram á mjög
almenna fyrirgreiðslu, að koma til
skila bréfi til æðsta yfirmanns
Sovétríkjanna og því eðlilegt að
velja sendiráðið hér sem milli-
gönguaðila.
Sem fyrr segir eru það 100
íslendingar, sem rita undir ávarpið
og var ákveðið að leita ekki til
stærri hóps, þar sem almenn undir-
skriftasöfnun tæki of langan tíma.
Lögðu nefndarmenn áherslu á að
ávarp þetta kæmist sem fyrst til
yfirvalda Sovétríkjanna en nú eru
um 4 mánuðir fram að einvíginu.
Var m.a. leitað til skákmanna,
listamanna, ritstjóra, formanna
stjórnmálaflokkanna og borgar-
fulltrúa. Formenn allra flokkanna
skrifuðu undir og þeir borgar-
fulltrúar sem leitað var til nema
Sigurjón Pétursson. Sögðu nefnd-
armenn að hann hefði ekki fellt sig
við eina setningu í ávarpinu og
hann því ekki talið sig geta skrifað
undir af þeim sökum, en hann væri
hins vegar reiðubúinn að skrifa
undir almennt orðaða stuðningsyf-
irlýsingu við fjölskyldu Korchnois.
Umrædd setning er: „Öllum má
vera ljóst, að ekkert jafnræði er
með keppendum þegar ríkisstjórn
annars heldur fjölskyldu hins nán-
ast í gíslingu."
Viktor Korchnoi heimsótti einnig
forseta íslands í dag, Vigdísi Finn-
bogadóttur, ásamt Högna Torfasyni
og sagði forseti í samtali við Mbl. að
heimsókn Korchnois hefði verið
ánægjuleg, hann hefði fært sér
bókina um Karpov og Korchnoi og
greint sér frá hvaða verkefni væru á
döfinni hjá honum. Síðar þá Korch-
noi boð borgarstjórnar Reykjavíkur
að Höfða og tók þar á móti honum
forseti borgarstjórnar, Sigurjón
Pétursson.
Stuðningsnefnd Korchnois gekk
einnig á fund Gunnars Thoroddsens
forsætisráðherra í gær og sagði
Halldór Blöndal eftir þann fund, að
ráðherra hefði tekið mjög vel mála-
leitan þeirra um stuðning við
Korchnoi og sagt að málið yrði tekið
fyrir á næsta fundi ríkisstjórnar-
innar.
Dr. Ingimar Jónsson, forseti
Skáksambands íslands, var í gær
inntur álits á þeim ummælum
Korchnois, sem birtust í Mbl. í gær,
að hann væri undrandi á að full-
trúar Skáksambandsins hefðu ekki
haft samband við sig við komuna
hingað. — Ég vil gjarnan fá að taka
fram, að Korchnoi er hér í boði
Taflfélags Reykjavíkur og hefur
Skáksambandinu ekki verið boðið
að eiga viðræður við hann. Við
höfum hins vegar fullan hug á því
og munum leita eftir því við hann
að hann hitti alla stjórnarmenn
sambandsins á fundi, sagði Ingimar.
Hann ritar undir ávarpið og sagði
að allir stjórnarmenn Skáksam-
bandsins styddu skákmeistarann í
baráttu hans við að fá til sín
fjölskyldu sína, en á aðalfundi
Skáksambands íslands í maílok,
yrði hins vegar væntanlega tekin
afstaða sambandsins til málsins.
Þess má geta að í fyrrakvöld barst
Korchnoi bréf, undirritað af Þor-
steini Þorsteinssyni, varaforseta
Skáksambandsins þar sem óskað er
viðræðna við hann og munu þær
fara fram kl. 10 f.h. í dag.
Forseti Skáksambands íslands, dr. Ingimar Jónsson, og Korchnoi
ræðast við í Höfða i gærdag. Ljó»m. Ól.K.M.
Stuðningsnefndin á fundi með forsætisráðherra, frá vinstri: Margeir Pétursson, Ilalldór Blöndal, Gunnar
Thoroddsen og Páll Heiðar Jónsson. Ljósm. Krístján.
Dr. Jón óttar Ragnarsson, formaður Lífs og lands:
Hvers vegna
Líf og land?
Margir hafa spurt um ástæð-
urnar fyrir stofnun Lífs og
lands. Hefur svarið jafnan verið
eftirfarandi: Líf og land eru
heildarsamtök um umhverfismál
og að því leyti frábrugðin öðrum
íslenskum samtökum sem starfa
á afmörkuðum sviðum umhverf-
ismála.
En þar með er ekki öll sagan
sögð. Við sem stóðum að stofnun
þessara samtaka þóttumst finna
á okkur andblæ nýrra strauma
sem við túlkuðum á þennan hátt
án þess þó að geta að fullu skýrt
hvaðan þessir straumar voru eða
í hverju þeir voru fólgnir.
Það var ekki fyrr en á nýaf-
stöðnu borgaraþingi samtak-
anna um Mann og trú að ofan-
ritaður fór að velta þessari
spurningu fyrir sér á nýjan leik.
Attu ýmis framúrskarandi er-
indi m.a. eftir Gunnar Krist-
jánsson, Þóri Kr. Þórðarson,
Heimi Steinsson, Sigurð A.
Magnússon o.fl. sinn þátt í því.
Það sem rann upp fyrir mér er
hve margþætt þau tímamót eru
sem við nú lifum. Það er sama
hvert litið er: Alls staðar birtist
okkur róttæk endurskoðun á
fyrri lífsviðhorfum, endurmat á
fyrri iífsstíl, hugsjónum og bar-
áttuaðferðum.
Lítum fyrst til austurs. I
Austur-Evrópu blasir nú við
augum skipbrot þúsundáraríkis
sósíalismans þar sem hugsjóna-
hreyfing hefur orðið þess vald-
andi að nokkur hundruð milljón-
ir manna eru lokaðar bak við lás
og slá í fjöimennustu fangabúð-
um sögunnar.
A Vesturlöndum hefur skefja-
laus efnishyggja leitt til þess að
allt mannlegt vald er véfengt.
Þrýstihópar notfæra sér til hins
ýtrasta sérhvern veikleika í
stjórnkerfinu. Um leið er spurt
hvort velferðin hafi aukið ham-
ingju mannsins.
Auðvitað erum við að mörgu
leyti vel settir, Vesturlandabúar.
Þrátt fyrir margvíslega ókosti
hefur markaðskerfið stuðlað að
myndun margþætts þjóðfélags
sem öfgahópar geta ekki auð-
veldlega stýrt inn á blindgötur
kreddukenninga og ofbeldis-
hyggju.
Sú spurning vaknar þá hvort
vandamálið sé ef til vill fyrst og
fremst að trúin og kirkjan hafi
verið vanrækt. í stað trúar á
Guð hefur komið trúin á mann-
inn og verk hans. Kannske er
þetta grundvallarspurning nú-
tímans.
Hver sem svörin verða er hitt
víst að trúin og kirkjan verða
athvarf æ fleiri á komandi árum.
Ef kirkjan nær að endurnýja sig
á hún leikinn. Ef vel er á haldið
getur hún endurnýjað ekki að-
eins sjálfa sig heldur þjóðfélagið
allt.
A meðan þurfum við að halda
áfram að bæta heiminn. Við
þurfum að afhjúpa og lagfæra
veilurnar í stjórnkerfinu, af-
vopna þrýstihópana og hryðju-
verkamennina. Síðast en ekki
síst þurfum við að virkja á nýjan
leik fegurðina í þágu mannsins
og umhverfis hans.
Ávarp íslandsdeildar
Stuðningsnefndar
f jölskyldu Korchnois
SOVÉZKI stórmeistarinn Viktor
Kortsnoj flúði land fyrir nokkr-
um árum og leitaði hælis á
Vesturlöndum. Æ siðan hefur
hann barist fyrir því, að fjöl-
skyldu hans, frú Isabellu Korts-
noj og Igor, syni þeirra, verði
leyft að fara úr landi. Sú barátta
hefur engan árangur borið
annan en þann. að fjölskyldan
hefur verið svipt frelsi og borg-
aralegum réttindum og sonurinn
dæmdur i þrælkunarvinnu.
Ýmsir aðilar á Vesturlöndum
hafa lagt Kortsnoj lið í þessari
mannréttindabaráttu. íslenska
ríkisstjórnin tók svari hans og
beindi tilmælum til Sovétstjórn-
arinnar, en þeim var vísað á bug.
Islenska ríkisstjórnin lýsti því
yfir, að hún teldi þetta ekki
lokasvar.
Forseti FIDE, Friðrik Ólafsson
stórmeistari, hefur gert ítrekaðar
tilraunir til að fá fjölskyldu
Kortsnojs leysta úr haldi.
A síðasta ári var stofnuð stuðn-
ingsnefnd fjölskyldu Kortsnojs í
Vestur-Evrópu og eru ýmsir kunn-
ir skákmeistarar aðilar að henni,
svo sem dr. Max Euwe, fyrrver-
andi forseti FIDE og heimsmeist-
ari í skák.
Islandsdeiid Stuðningsnefndar
fjölskyldu Kortsnojs er nú stofnuð
til þess að herða baráttuna fyrir
því, að mál þetta verði leyst á
farsællegan hátt. Viktor Kortsnoj
á fyrir höndum að tefla erfitt
einvígi um heimsmeistaratitilinn í
skák næsta haust. Öllum má vera
ljóst, að ekkert jafnræði er með
keppendum, þegar ríkisstjórn
annars heldur fjölskyldu hins
nánast í gíslingu.
Nefndin hvetur skákhreyfing-
una og allan almenning í landinu
til að styðja viðleitni Alþjóða-
skáksambandsins og ríkisstjórnar
íslands, til að tryggja fjölskyldu
Kortsnojs ferðafrelsi.
Reykjavík, 22. apríl 1981.
Halldór Blöndal
formaður.
Albert (lUAmundsson alþiriKÍsmaður, Alírcd
Jónsson oddviti í Grímsey, Atll lleimir
Sveinsson tónskáld, Auóur Auóuns fyrrv.
ráðherra, Baldur Hermannsson dajfskrárfull-
trúi, Birna Nordahl skákmeistari íslands,
kvennaflokki. Björn Kirhallsson varaforseti
Alþýðusamhands íslands, Braiei Sijfurðss4»n
hlaðamaður, Daði (>uðmundsson skákmeist-
ari, Bolunnarvík, Davíð Oddsson horjtarfull-
trúi, Davið Schevinjf Thorsteinsson formaður
Félajfs íslenskra iðnrekenda, E»fill Skúli
InxiherKsson hor»íarstjóri, Einar S. Einars-
son forseti Skáksambands Norðurlanda, Eln-
ar Laxness formaður menntamálaráðs, Eirik-
ur Tómasson lö»ímadur, Ellert B. Schram
ritstjóri, Emil Björnsson fréttastjóri, Eyjólf-
ur SÍKurðsson prentsmiðjustjóri, Finnhjorn
Iljartarson prentari, Garðar Guðmundsson
formaður Taflfélajjs Seltjarnarness, Geir
llallgriinsson alþinKÍsmaður, form. Sjálf-
stæðisflokksins, Gisll llalldórsson form.
Ólympíunefndar íslands. Gisli Jónsson
menntaskólakennari, Akureyri, Guðfinnur
Kjartansson formaður TaflfélaKs Reykjavík-
ur, Guðjón Tcitsson fyrrv. forstjóri. GuðlauK
borstcinsdóttir skákmeistari Norðurlanda,
kvennaflokki, (iuðmundur ÁKÚst.sson skák-
meistari, heiðursfélaKÍ TaflfélaKS Reykjavík-
ur ok Skáksambands íslands, Guðmundur
Arason fvrrv. forseti Skáksambands íslands,
(■uðmundur J. Guðmundsson alþinKÍsmaður,
formaður Verkamannasambands íslands,
(•uðmundur llallvarðsson formaður Sjó-
mannafélaKs Reykjavíkur. (luðmundur
MaKnússon rektor Háskóla íslands, Guð-
mundur Pálmason skákmeistari, (luðmund-
ur SÍKurjónsson alþjóðleKur stórmeistari,
síra Guðmundur Sveinsson skólameistari,
Guðmundur G. Dtirarinsson alþinKÍsmaður.
fyrrv. forseti Skáksambands Íslands, Guðni
Guðmundsson rektor Menntaskólans í
Reykjavík. Guðrún Jónsdóttir arkitekt.
(iunnar Gunnarsson alþjóðleKur skákdómari,
(íunnar Snorrason formaður Kaupmanna-
samtaka Islands, Gylfi horhallsson skák-
meistari. Akureyri, Ilalldór Blondal alþinKÍs-
maður, llalldór Laxness rithöfundur, Ilalldór
E. SiKurðsson fyrrv. ráðherra, Ilaraldur
Blondal loKmaður. IIcIkí ólafsson alþjóðleK*
ur meistari, llermann Guðmundsson formað-
ur Fulltrúaráðs verkalýðsfélaKanna í Hafnar-
firði, llermann Gunnarsson iþróttafréttarit-
ari, Ilrafn BraKHson borKardómari, IIöKni
Torfason skrifstofustjóri, Indriði G. I>or-
steinsson rithöfundur, dr. InKÍmar Jónsson
forseti Skáksambands íslands, InKÍ R. J*'»-
hannsson alþjóðleKur skákmeistari, In^var
Ásmundsson skákmeistari, skólastjóri Iön-
skólans í Rvík, Jóhann Einvarðsson alþinKÍs-
maður, Jóhann Iljartarson skákmeistari ís-
lands, Jóhanna SÍKurðardóttir alþinKÍsmað-
ur, Jón L. Arnason alþjóðleKur skákmeistari,
Jón ÁsKeirsson tónskáld, Jón Steinar Gunn-
lauKsson loKmaður. Jón B. Ilannihalsson
ritstjóri, Jón Ármann lléðinsson fyrrv.
alþinKÍsmaður, Jón SÍKurðsson ritstjóri, Jón
ÞorsteinsNon skákmeistari. löKmaður. Jónas
Guðmundsson rithöfundur ok listmálari. Jón-
as kristjánsson ritstjóri, Kári Jónasson
formaður BlaðaniannafélaKS íslands, Kjartan
Jóhannsson alþinKÍsmaður, formaður Al-
þýðuflokksins, kjartan ólafsson ritstjóri,
Kristján Benediktsson borKarfulltrúi. Krist-
ján Eldjárn dr. phil., Kristján Karlsson
skáld, MaKnús SÍKurjónsson forstöðumaður.
MarKeir Pétursson alþjóðleKur skákmeistari,
Matthias Johannessen ritstjóri, Ottó A.
Michaelsen forstjóri. formaður sóknarnefnd-
ar Bústaðakirkju, Olöf Dráinsdóttir skák-
meistari, Páll Gíslason borKarfuIltrúi. Páll
lleiðar Jonsson daKskrárfulltrúi. Pálmi
Gislasttn formaður UnKmennafélaK* íslands.
Pálmi Jónsson ráðherra. síra Pétur Síkut
Keirsson vÍKslubiskup. Ra«nar Jónsson í
Smára bókaútKefandi. Ravrnhildur IlelKa-
dóttir fyrrv. alþinKÍsmaður. RannveÍK
TrvKK'adóttir þýðandi. Salóme Dorkelsdott
ir alþinKÍsmaður. herra SÍKurbjorn Einars-
son biskup íslands. sira SÍKurður Pálsson
vÍKslubiskup. Sjofn SÍKurhjornsdóttir borK-
arfulltrúi. SteinKrímur Hermannsson ráð-
herra. formaður Framsóknarflokksins, Svav-
ar Gestsson ráðherra. formaður Alþýðu-
bandalaKsins. Svavar (itiðnason listmálari,
Sveinn Bjornsson forseti Iþróttasambands
Islands. Sveinn Einarsson þjóðleikhússtjóri, '
Thtir \ ilhjálmsson rithöfundur, forseti
BandalaKs islenskra listamanna. Tómas (iuð-
mundsson skáld. Vilmundur (iylfason alþinK-
ismaöur. þorKOÍr Eyjólfsson forseti BridKe-
sambands Islands, Ihtrsteinn horstcinsson
varaforseti Skaksambands íslands, Þráinn
Guðmundsson skólastjóri. (Wnólfur \rnason
rithöfundur, formaður Sambands norrænna
leikritahofunda.