Morgunblaðið - 23.04.1981, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
31
Hrafn Sæmundsson:
Að útrýma neyðar-
ástandi í heilbrigðis-
málum aldraðra
Það er óþægileg tilfinning aö
koma út að morgni dags og sjá
bílinn sinn á hvolfi á bílastæðinu
með hjólin uppí loft og allan
beyglaðan og brotinn. Ennþá
óþægilegra er að vakna og sjá
stjörnur himinsins í gegnum þakið
á íbúðinni sinni. Verst er auðvitað
að fá eldgos upp við bæjarvegginn.
Slíkir atburðir gerast engu að
síður hér á landi. Og hvað gerum
við þegar slíkt hendir? Auðvitað
reynum við að bjarga okkur sjálf-
um og síðan eignum okkar. Ekki
hrekkur þetta alltaf til. Við stönd-
um uppi með gífurlegt tjón.
Á seinni árum höfum við ekki
reynt að greiða þetta tjón að öllu
leyti sjálfir. Við höfum skriðið
Hrafn Sæmundsson
undir pilsfaldinn á frú samneyslu.
Ef ekki eru til peningar í viðkom-
andi sjóðum, byrjar mikill söngur
um að nú verði að útvega bjarg-
ráðasjóðum meiri peninga.
Þetta allt gerum við til að firra
okkur óþægindum. Þó höfum við
flest byrjað á núlli í upphafi og þá
unnið okkur í gegnum erfiðleikana
af eigin rammleik. Nú viljum við
að aðrir taki við.
Ekki er ég að tíunda þetta hér
vegna þess að ég sé á móti því að
tekið sé sameiginlega á skakka-
föllum sem fólk verður fyrir. Ég
drep hinsvegar á þetta hér vegna
þess að það er ekki sama hver í
hlut á. Það er verið að greiða úr
sameiginlegum sjóðum fyrir eign-
ir, sem að stærstum hluta eru á
Sókn:
Miklar verðhækk-
anir þrátt fyrir
verðstöðvun
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Starfsmannafé-
laginu Sókn i Reykjavik:
„Aðalfundur Starfsmannafé-
lagsins Sóknar, haldinn að Hótel
Esju 09-04-81, vekur athygli á, að
þrátt fyrir yfirlýstar ákvarðanir
ríkisstjórnarinnar um verðstöðv-
un, hafa orðið mjög miklar verð-
hækkanir, s.s. á matvörum og
einnig í ýmsum þjónustugreinum.
Þá er það mál manna, að í skjóli
myntbreytingarinnar hafi orðið
margvíslegar hækkanir, ekki sízt
á opinberum vettvangi.
Fundurinn skorar á verðlagsráð
að vera vel á verði gagnvart öllum
hækkunum, hvaðan sem þær
korna."
vegum yngri kynslóða. Og það er
vissulega oft um neyðarástand að
ræða.
En það getur skapast neyðar-
ástand á fleiri sviðum en í sam-
bandi við venjulegar náttúruham-
farir. Þannig ríkir nú neyðar-
ástand í málefnum aldraðra. Þetta
er auðvitað ekkert nýtt. Málefni
aldraðra hafa verið látin sitja á
hakanum um margra áratuga
skeið. Það er fyrst nú á allra
síðustu árum að veruleg umræða
er um þessi málefni. Og stundum
gýs hún upp þegar sérstaklega
stendur á eins og núna þegar
algert neyðarástand ríkir í sam-
bandi við öldrunarhjúkrun og að-
búnað sjúkra gamalmenna.
Það neyðarástand sem nú ríkir í
sambandi við öldrunarhjúkrun er
aðeins einn þáttur í málefnum
aldraðra sem er í ólestri. Einn
lítill kafli í stórri vanrækslusynd
okkar.
En það vill þannig til að við
getum leyst þennan afmarkaða
hnút ef við viljum. Við þurfum
ekki annað en að líta þetta mál
sömu augum og að um svolítinn
fellibyl væri að ræða eins og í
vetur. Við þurfum ekki annað en
krefjast þess að útvegaðir verði
peningar í sjóðina og B-álma
Borgarsjúkrahússins byggð upp í
lotunni.
Við skulum ekki láta nafn Borg-
arspítalans villa okkur sýn. Það
hefur ekkert að segja í þessu máli.
Málefni aldraðra eru málefni allr-
ar þjóðarinnar.
Einstök sveitarfélög gera auð-
vitað það sem þau geta, en þetta er
tiað risavaxið verkefni að allir
slendingar verða að ganga að því
sameiginlega. Þessi staöreynd
byggist bæði á siðferðislegum rök-
um og svo hinu að vegna byggða-
röskunar og í gegnum fjölskyldu-
tengsl er allt landið einn vettvang-
ur og verður ekki sundurskilið
hvað þetta varðar. Það er ekki
einkamál neinna sveitarfélaga þó
að fjöldi gamalmenna sé meiri
hlutfallslega á þessum þéttbýl-
iskjarnanum heldur en hinum. Ég
bið þá sem búa úti á landinu til að
mynda að leita í huga sér og vita
hvort þeir finni þar ekki einn eða
fleiri aldraðan ættingja sem býr
hér í Reykjavík.
Það er ljóst að nú þarf að koma
til almenn þjóðarvakning um
þessi málefni. Eg legg til að hafist
verði handa og skipulega unnið að
því afmarkaða sviði sem nú er
brýnast, byggingu B-álmunnar í
einni lotu á sem stystum tíma.
Ég legg til að heilbrigðisstétt-
irnar og verkalýðshreyfingin taki
forustuna fyrir þessari þjóðar-
vakningu. Þessi mál standa þess-
um aðilum næst af ýmsum orsök-
um. Síðan getur þrengri hópur úr
þessum einingum kallað til liðs við
sig alla þá sem venjulega leggja
slíkum málum lið.
Þetta verkefni er tvíþætt: Ann-
ars vegar að knýja á að útvegaðir
verði nægir peningar með lántök-
um eða á annan hátt til viðbótar
því sem fyrir er svo að snurðu-
laust sé hægt að halda byggingar-
framkvæmdum áfram. Hins vegar
að láta reyna á það hvað almenn-
ingur vill raunverulega á sig
leggja til að gfipa þarna í árina. A
það hefur aldrei reynt.
Að lokum vil ég skora á alla
heiðarlega menn að standa nú
saman og gera fallegu orðin að
veruleika. Eg er viss um að það
myndi létta á samvisku okkar þó
að það afmarkaða verkefni sem
hér um ræðir sé aðeins lítið brot
af þeirri skuld sem við eigum
ógoldna til þeirrar kynslóðar sem
nú lifir elliár sín.
Hjúkrunarfræðingar brautskráðir frá HSÍ 10. janúar 1981.
Fyreta röð frá vinstri: Klara
Gunnarsdóttir, Soffía Guðjóns-
dóttir, Hendrikka Alfreðsdóttir,
Ásdís Emilsdóttir, Sigrún Sig-
marsdóttir, Jón Karlsson, Þor-
björg Jónsdóttir, skólastjóri,
Katrín Pálsdóttir, hjúkrunar-
kennari, Lúðvík Halldórsson
Gröndal, Jóhanna Pálsdóttir, Sig-
ríður Hrönn Sigurðardóttir, Sonja
Guðjónsdóttir, Vilborg Hafsteins-
dóttir.
önnur röð frá vinstri: Bryndís
Guðjónsdóttir, Guðrún Jónatans-
dóttir, Margrét Sigurðardóttir,
Hjúkrunarskóli íslands:
Guðrún Friðjónsdóttir, Anna G.
Árnadóttir, Sigrún Þóroddsdóttir,
Jónína I. Melsteð, Ingibjörg
Hauksdóttir, Lilja Arnardóttir,
María Sveinsdóttir, Elín Ebba
Gunnarsdóttir, Soffía Guðmunds-
dóttir, Lilja Kristín Einarsdóttir.
Þriðja röð frá vinstri: Svava
Birgisdóttir, Björg Jónsdóttir,
Bryndís Gestsdóttir, Bryndís
Reynisdóttir, Sigríður Kristín
Tryggvadóttir, Sólveig Jónsdóttir,
Sigurbjörg Þórmundsdóttir, Halla
Eiríksdóttir, Ólöf Þ. Sveinbjörns-
dóttir, Kristín E. Björnsdóttir,
ólafía Sigurjónsdóttir, Hrund
Helgadóttir, Fanney Sigurðar-
dóttir.
Fjórða röð frá vinstri: Helga
Stefánsdóttir, Margrét Einars-
dóttir, Erla Björk Ólafsdóttir,
Hanna K. Kristjánsdóttir, Aðal-
heiður Kjartansdóttir, Helga Þor-
bergsdóttir, Rut Sigurðardóttir,
Karólína Vilhjálmsdóttir, Val-
gerður Hermannsdóttir, Halldóra
Kristjánsdóttir, Svanlaug Finn-
bogadóttir, Snjólaug Sigurbjörns-
dóttir, Kristín S. Baldursdóttir.
83 nemendur útskrif aðir
á yfirstandandi skólaári
Iljúkrunarskóli íslands
brautskráði 32 hjúkrunarfræð-
inga í september 1980 og 51
hjúkrunarfræðing i janúar sl.
eða samtals 83 á yfirstandandi
skólaári. í þessum hópi eru að-
eins 3 karlmenn, en áður hafði
skólinn brautskráð 10 karlmenn,
þá tvo fyrstu 1959. Á meðfylgj-
andi myndum sjást allir þeir
nemendur sem útskrifast hafa á
þessu skólaári ásamt Þorbjörgu
Jónsdóttur. skólastjóra Hjúkrun-
arskólans. og Katrínu Pálsdótt-
ur. hjúkrunarkennara.
Hjúkrunarfræðingar brautskráðir frá HSÍ i september 1980.
Fyrsta röð frá vinstri. Brynhildur
Ingimundardóttir, Steinunn Fjóla
Ólafsdóttir, Björg R. Ingimundar-
dóttir, Ingibjörg Rut Þorsteins-
dóttir, Ragnheiður Ríkharðsdótt-
ir, Óskar A. Ingvarsson, Guðný S.
Guðlaugsdóttir, Rósa Guðrún Jó-
hannsdóttir, Guðrún Vignisdóttir,
Erna Matthíasdóttir.
önnur röð frá vinstri. Guðrún
Auður Harðardóttir, Kristlaug S.
Sveinsdóttir, Ólöf Leifsdóttir, Sol-
veig Jóhannsdóttir, Ragnheiður
Ólafsdóttir, Þorbjörg Jónsdóttir,
skólastj., Katrín Pálsdóttir, kenn-
ari, Helga Einarsdóttir, Helga
Bjarnadóttir, Hanna Ingibjörg
Birgisdóttir, Ann C. Nilsson, Lise
Bratlie Snorrason.
Þriðja röð frá vinstri. Erla Dann-
fríður Kristjánsdóttir, Helga R.
Ottósdóttir, Edda Sigrún Gunn-
arsdóttir, Guðrún Jóhannsdóttir,
Kristín Högnadóttir, Bergljót
Þorsteinsdóttir, Anna Guðrún
Valdimarsdóttir, Sigþrúður Ólafs-
dóttir, Rannveig Johansen, Krist-
ín H. Óskarsdóttir, Kristín Þórar-
insdóttir.
Góður afli hjá Þorlákshafnarbátum
Þorlákshöfn. 21. april.
MJOG góður afli var hér
hjá Þorlákshafnarbátum
fyrir páskana og mikið
unnið í öllum fiskverkun-
arstöðvum, en réðist þó vel
við verkun aflans. Heildar-
bátaafli á land kominn
miðað við páska eru 17.700
tonn.
Þrír aflahæstu bátarnir
eru Friðrik Sigurðsson með
1.132 tonn, Jón á Hofi með
996 tonn og Höfrungur III
með 988. Friðrik Sigurðs-
son mun vera aflahæstur
yfir landið allt eins og er,
en ýmislegt getur að sjálf-
sögðu breyst þann stutta
tíma sem eftir er af þessari
vetrarvertíð. Togarinn
Þorlákur landaði 125 tonn-
um fyrir páska. Uppistaða
aflans var þorskur og tog-
arinn Jón Vídalín kom inn í
morgun með 180 tonn og
var uppistaða afla hans
karfi. Annars hefur verið
heldur tregur afli hjá tog-
urunum í vetur.
Ragnhoiður