Morgunblaðið - 23.04.1981, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1981
37
Anna var fríð kona sýnum og
bar af sér góðan þokka. Reisn
hvíldi yfir öllu viðmóti hennar og
fasi. Hún var þægileg í viðmóti við
alla og átti gott með að umgangast
aðra. Hún flíkaði ekki tilfinning-
um sínum, var trúrækin og leitaði
stvrks í trúnni.
í veikindum sínum síðustu fjög-
ur árin þurfti hún mikið á aðstoð
annarra að halda. Dvaldi hún
tíðum á sjúkrahúsum á því tíma-
bili. Er læknum og hjúkrunarliði á
Landspítalanum sérstaklega
þakkað fyrir góða umönnun og
ekki sizt Lilju, hjálparhellunni á
heimilinu og fórnfýsi hennar er
ógleymanleg.
Við sem eftir erum biðjum
henni blessunar Guðs við endur-
fundi horfinna ástvina og varð-
veitum minningu um góða konu.
.Eilitt lif!
Vor oss huKKun. vorn <>K hlíí.
lif í oss. svo ávallt oyKjum
a*Ara lífiA. þo aA doyjum.
llvaA or allt. þa ondar lif?
Eilíft llí!
(Matth. Jocumsson)
Gunnar Magnússon
Já. þótt ók þrautir liAi.
ri þaA mÍK buKa má.
i litsins stranKa stríAi
ók styrk fa' Drottni hjá.
Ék hýst viA hoAskap þoim.
aA harns sins brátt hann vitji
ok harn sitt Orma'tt flytji
til himnarikis hoim.
Vald. Briom.
I veikindum sínum sl. 4 ár lét
hún aldrei bugast og kvartaði
aldrei. Það var eins og hún hefði
óbilandi andlegt þrek. Styrkur
hennar var trú á Guð.
Sama hlýja brosið og viðmótið á
hverju sem gekk. Viljastyrkur,
æðruleysi og trú á Guð og leiðsögn
hans var henni líkn í þrautum.
Hugurinn reikar aftur. Við sjá-
um hana fyrir okkur á heimili
hennar Lönguhlíð 25. í hvert
skipti sem við fjölsk.vldan komum
í heimsókn var andlitið uppljóm-
að, faðmurinn útbreiddur og það
geislaði af henni hlýjunni. Þannig
var hún ávallt, þannig mun fjöl-
skyldan minnast hennar.
Hennar mestu gleðistundir og
sameiginlegar gleðistundir hennar
stóru fjölskyldu var þegar fjöl-
skyldan var öll samankomin á
heimili hennar á jóladag svo og á
páskadagsmorgna. Ekki sízt áttu
barnabarnabörnin þá hug hennar
allan.
Hún sómdi sér vel sem hús-
freyja á sínu heimili, enda bar
heimilið ríkuleg merki um natni
og umhyggju hennar. Gestrisni og
hlýtt viðmót var hennar aðals-
merki. Hennar líf og yndi var að
gefa og miðla af því sem hún átti.
Hún var líka iðin við að miðla
okkur sem yngri vorum af sínum
mannkærleik og reynslu af lífs-
baráttunni, sem oft var erfið
þegar börn hennar voru að vaxa úr
grasi. Hún var ávallt þakklát
skapara sínum fyrir að geta yfir-
stigið alla erfiðleika og að koma
börnum sínum til manns og ára,
enda leiddi hún þau með styrkri
móðurhendi út í þeirra lífsbar-
áttu.
Eftir að heilsan fór að gefa sig
fyrir allmörgum árum uppskar
hún líka umhyggju og ástúð barna
sinna, sem ávallt voru tilbúin að
rétta henni hjálparhönd í hennar
veikindum.
Ur minni gleymist engum sem
til þekktu einstök umhyggja Lilju
fyrir Önnu Mariu. Lilja bjó lengst-
um á heimili Önnu Maríu og
manns hennar Guðmundar sem
látinn er fyrir allmörgum árum.
Umhyggja og fórnfýsi Lilju í
veikindum Önnu Maríu verður
seint fullþökkuð.
Okkur er hugstætt hvað Anna
María harkaði veikindi sín af sér.
Vildi aldrei að á þau væri minnst.
Aldrei mátti hún þó heyra minnst
á smávandamál eða veikindi ann-
arsstaðar án þess að hún væri ekki
sjálf með áhyggjur og væri hvar-
vetna í fjölskyldunni fyrst á vett-
vang til að liðsinna og miðla af
sinni umhvggju.
Hannyrðir og ættfræði voru
hennar tómstundagleði.
Og mörg eru þau heimili barna
og barnabarna hennar sem hann-
yrðir Önnu Maríu prýða. Þar
skilur hún eftir sig fagra hluti,
sem ávallt munu vekja upp minn-
ingar um stórbrotna hlýju og
fórnfúsa konu.
Þegar hún gengur nú á fund
skapara síns og horfinna ástvina
er það huggun harmi gegn að hún
hefur fengið hvíld frá sínum
veikindum, og að ekkert nema
birta og ylur hvílir yfir minningu
hennar.
Ék hcyrAi Jesú himneskt orA:
■Knm. hvild ók veiti þór.
I'itt hjarta er ma'tt ok hiifuA þreytt.
þvi halla aA hrjósti mór".
(Stefán Thorarensen)
Amma í Lönguhlíð eins og hún
var ávallt kölluð hefur nú fengið
hvíldina. Við fjölskyldan þökkum
samfylgdina nú þegar leiðir skilja
að sinni og þær hlýju minningar
sem hún skilur eftir.
Eftir lifir minningin um góða og
göfuga konu.
Jóhanna Sigurðardóttir
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Kennarinn minn i sálfræðibekknum segir. að maðurinn sé
ekkert annað en likami. hann sé vél. og að trúarleiðtogar
hafi fundið upp sálina til þess að geta hrætt fólk til betri
hegðunar. Hvernig er hægt að hnekkja slikum rökum?
Allir geta sett spurningarmerki við hvað sem er.
Sumt fólk, sem hefur hæfileika til að hugsa að hætti
vísindamanna, virðist hafa gaman af því að setja
spurningarmerki við það, hvort Guð sé persóna, og að
hrella og hræða fólk, sem trúir af öllu hjarta á Guð.
Við erum öll þannig gerð, að við getum efazt og við
getum trúað, og það er vilji okkar sem ræður hvort
má sín meira. Ef menn leita að rökum fyrir því að
efast, finna þeir aragrúa slíkra raka. Biþlían ræðir
um þetta þegar hún segir: „Gætið þess, að enginn
verði til þess að hertaka yður með heimspeki og
hégómavillu, sem byggist á mannasetningum, er
runnið frá heimsvættunum, en ekki frá Kristi."
Við sjáum þessa getu til efasemda eða trúar til
dæmis hjá þjálfuðum vísindamönnum. Hvers vegna
trúir einn vísindamaður á Jesúm Krist, en annar
hafnar Kristi, og þó búa þeir yfir þekkingu á sömu
staðreyndunum? Ur því að báðir eru vísindamenn,
getur ekki verið, að það séu vísindastaðreyndir, sem
koma í veg fyrir trúna. Nei, ástæðan er einfaldlega sú,
að annar lætur viljann lúta efasemdunum, hinn
trúnni. Viljinn ákvarðar efa eða trú, ekki sannanir og
staðreyndir.
Sá sem trúir á Krist, hefur allt að vinna og engu að
tapa.
LADA KOO CANADA
v-C'ÍV:.
Meö sérstöku
hefur tekist a
staklega hafa
Canada er a
sparar bensí
ingum viö Lada-verksmiöjurnar
ireidda til íslands Lada 1600 sem
mleiddir fyrir Canada markaö.
úin nýja „ÓZON* blöndungnum sem
n um 15%
orkutaps
t
Verö fyrir öryrkja
ca. kr. 43.700-
Munið að varahlutaþjónusta okkar er í sérflokki. Þaö var
staöfest í könnun Verðlagsstofnunar.
Verö ca. kr.
67.890.-
Biíreidar & Landbúnadarvélar hí.
Sudurlandsbraul 14 - lt«>kja\ik - Simi
Auglýsing um
lögtök vegna fasteigna
og brunabótagjalda
í Reykjavík
Að kröfu gjaldheimtustjórans f.h. Gjaldheimtunnar í
Reykjavík og samkvæmt fógetaúrskurði, uppkveön-
um 21. þ.m., verða lögtök látin fram fara til
tryggingar ógreiddum fasteignasköttum og bruna-
bótaiðgjöldum 1981.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum ásamt drátt-
arvöxtum og kostnaði, hefjast aö 8 dögum liðnum frá
birtingu þessarar auglýsingar, veröi þau eigi aö fullu
greidd innan þess tíma.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík,
21. apríl 1981.
MORGUNBLAOIÐMORG
MORGUNBLADIÐMOR
MORGUhRLAÐIÐMQ!?-
MORGU
MORGI
MORG/
MOR
MOJ
MOB
NÍ
M0
MO
MOP'
MOR
MORG>
MORG
M»;
M('
M0
MO
MOl'
MOR'
MORO
MO,
MC/ h
//"
Blað-
burðar-
fólk
óskast
Austurbær
Freyjugata frá 28—49
ÐIÐMORGUNBLAÐil)
^QMORGUNBLAÐIO
8GUNBLAÐIÐ
^NBLAÐIÐ
BLAÐIO
Hringið í síma
35408
M'trmi^;
MORGUSÍ^
MORGUNBLV^._____-tn
MORGUNBLAOÍb^////^Z%fAÐÍl
)IÐ
*
MORGUNBLAÐIÐMOó
ÍNBLAÐIÐMt
olmOIÐ
iBLAÐIÐ
^LAOIÐ
fdBLAÐIÐ
/0NBLAÐIO
/iUNBLADIÐ
r»GUNBLAÐIÐ
rflGUNBLAÐIÐ