Morgunblaðið - 15.05.1981, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAI 1981
Tónlistarhátíð Norðurlanda:
Fimm íslensk tónverk
verða flutt á hátíðinni
íslenskt verk hlaut hæstu mögulegu einkunn
STÖRFUM í dómnefnd Tónlistarhátíðar Noróurlanda lauk í NoreKÍ í
kht og voru þar valin 5 íslensk verk til flutninKs á hátíðinni. sem
haldin verður í Osló haustið 1982. samkvæmt upplýsinxum sem
MorKunblaðið fékk hjá Guðmundi Emilssyni tónlistarmanni. en hann
á sa-ti i dómnefndinni fyrir íslands hönd.
Tónlistarverkin, sem fyrir val-
inu urðu, eru þessi: Klarinettuverk
eftir Áskel Másson, Flautukon-
sertinn Evridís eftir Þorkel Sigur-
björnsson, Adagio eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson, Andlit sólar
(In vulto soli) eftir Karólínu
Eiríksdóttur og Lagaflokkur eftir
Gunnar Reyni Sveinsson.
Guðmundur sagði í samtali við
Morgunblaðið að þetta væri mjög
góður árangur hjá íslensku tón-
skáldunum og nefndi það að eitt
íslenskt tónverk hefði hlotið
hæstu mögulegu einkunn dóm-
enda, en slíkt hefði ekki gerst
áöur. Guðmundur sagði að sam-
kvæmt starfsreglum dómnefndar-
innar væri honum óheimilt að
greina frá því hvaða verk þetta
væri.
Á Tónlistarhátíð Norðurlanda,
sem haldin verður í Osló á næsta
ári, verða frönsk tónskáld gestir
hátíðarinnar og verða þarlend
tónverk flutt á hátíðinni, af því
tilefni. Á hátíðinni verða flutt á
milli 20 og 30 verk frá Norður-
löndunum og Frakklandi.
Samningar náðust
í kjaradeilu fóstra
SAMNINGAR tókust í kjaradeilu fóstra. sem starfa hjá ríkinu og
ríkisins í fyrrinótt. eftir að dagvistunarstofnanir á vegum ríkisins
hofðu verið lokaðar síðan um mánaðarmót. Marta Sigurðardóttir.
hlaðafulltrúi Fóstrufélags íslands. sagði í samtali við Mbl.. að tekizt
hefði að fá fram sama samning og fóstrur. sem starfa hjá
Reykjavíkurborg. fengu í sinni haráttu fyrir skömmu. og varu
ríkisfóstrur mjóg ánægðar með niðurstoðuna.
Byrjunarlaun fóstra verða
reiknuð samkvæmt 1. þrepi 12.
launaflokks, en þær fara síðan
eftir eitt ár upp í 13. launaflokk.
Þá kemur inn í hinn nýja samning
sérákvæði um yfirfóstrur, sem
ekki hefur verið. Þær fá laun
samkvæmt 13. launaflokki, en fara
síðan upp í 14. launaflokk eftir
eins árs starf.
Þá fá fóstrur tveggja tíma
undirbúningstíma á viku metinn,
auk þess sem fóstrur á fyrsta ári
fá aukaundirbúningstíma metinn,
sem brúar bilið milli þeirra og
fóstra hjá Reykjavíkurborg, sem
byrja í 2. þrepi 12. launaflokks, en
ríkisfóstrurnar í 1. þrepi eins og
áður sagði.
Að síðustu kom fram hjá Mörtu,
að ríkisfóstrur væru mjög þakk-
látar fyrir þann mikla stuðning,
sem þær fengu frá foreldrum. —
„Við hefðum ekki getað sigrað í
þessari orrustu án aðstoðar þessa
fólks, „sagði Marta Sigurðardótt-
ir, blaðafulltrúi Fóstrufélags ís-
lands, að síðustu.
Dagblaðskönnun:
DAGBLAÐIÐ hirti í gær skoðana-
konnun. sem tekin var um siðustu
helgi og voru 000 manns spurðir um
alstoðu sína til ríkisstjórnarinnar.
helmingur aí hvoru kyni. Helmingur
þeirra. sem spurðir voru. voru af
Stór-Reykjavíkursva'ðinu. Niðurstoð-
ur skoðanakönnunarinnar eru. að
fylgi stjórnarinnar hefur dalað frá
því i janúar síðastliðnum. en þá
sogðust 71.1% spurðra vera fylgjandi
stjórninni. en nú voru það 08.9%.
Fylgjandi ríkisstjórninni voru
52,3% , andvígir 23,7% , óákveðnir voru
20%, en 4% vildu ekki svara. Ef
aðeins eru teknir þeir, sem afstöðu
tóku gilda áðurnefndar prósentutölur.
í febrúar 1980 voru fylgjandi ríkis-
stjórninni 89,9%, en andvígir 10,1% .
Þó er fylgi ríkisstjórnarinnar nú
meira en það var í september 1980, en
þá fylgdu stjórninni 61,4%, en 38,6%
voru á móti. Spurningin, sem Dag-
blaðið bar upp við fólk var: „Ert þú
fylgjandi eða andvígur • ríkisstjórn-
i \ V- -1 -
TVEIR VÆNIR — Sá guli og kokkurinn á Björgu VE.
trollbátarnir frá Eyjum hafa aflað vel að undanförnu
og virðist ekkert lát á hrotunni hjá þeim, afli er
svipaður og fyrir trollbannið, sem var fyrstu viku
mánaðarins. (Ljósm. sigurgcír)
Kröflugos í dag
samkvæmt „100
daga reglunni“
LANDRIS heldur enn
áfram á Kröflusvjeðinu, en
hefur hægt verulega á sér
upp á síðkastið. Landið er
fyrir nokkru komið upp
fyrir það, sem það stóð hæst
áður. Frá því að gaus á
þessum slóðum í marzmán-
uði í fyrra hafa liðið um 100
dagar á milli gosa og stund-
um hafa dagarnir verið
nákvæmlega 100 talsins frá
því að einu gosi lauk þar til
hið næsta hóíst. í dag eru
einmitt 100 dagar liðnir frá
því. að gosinu í janúar lauk
og samkvæmt því gæti gos
hafist við Kröflu í dag.
Eysteinn Trtyggvason, jarðeðl-
isfræðingur, var á vakt í Reynihlíð
er Morgunblaðið hafði tal af
honum í gær. Hann sagði að
landrisið væri nú orðið ákaflega
hægt og skjálftar væru fáir og
litlir. Hins vegar héldu sprungur
áfram að gliðna jafnt og þétt og á
því virtist ekkert lát. Hann sagði,
að menn byggjust við gosi hvenær
sem væri. Stóra spurningin væri
hvort hraunkvikan hlypi norður
eða suður, en með síðustu gos í
huga vonuðust menn til, að gosið
yrði norðan við Leirhnúk eins og í
undanfarin skipti.
Skuld við innkaupajöfnun-
arsjóð hrannast upp
- segir Önundur Ásgeirsson, forstjóri OLÍS
Fylgi ríkisstjórn-
arinnar minnkar
„SKULD olíufélaganna við inn-
kaupajöfnunarsjóð hrannast upp
meðan svona er á málum haldið.
sem auðvitað er ekki hægt til
langframa." sagði Önundur Ás-
geirsson. forstjóri Olíuverzlunar
Islands. í samtali við Mbl.. er
hann var inntur álits á synjun
ríkisstjórnarinnar um að stað-
festa 15.7% hækkun benzíns, sem
Verðlagsráð hefur samþykkt.
„Menn hljóta að fara að líta
raunhæft á þessi mál og við fá
eðlilega hækkun. Þetta er ekkert
annað en geymdur vandi, sem
verið er að velta á undan sér,“
sagði Önunclur ennfremur.
Það kom fram hjá Önundi, að
skuld olíufélaganna við innkaupa-
jöfnunarsjóð hefði verið komin vel
yfir 20 milljónir króna um síðustu
mánaðamót, og sú skuld færi
vaxandi með degi hverjum, ef
ekkert yrði að gert.
Þá kom fram í samtalinu við
Önund, að mikið fall hefur verið á
verði allra olíutegunda undan-
farnar vikur, og í því sambandi
gat Önundur þess, að OPEC-ríki
hefðu undanfarið selt framleiðslu
sína undir samþykktu verði. Menn
biðu því nokkuð spenntir eftir
ákvörðun þeirra á fundi seinni-
hluta mánaðarins í Genf.
Ennfremur sagði Önundur, að
allar olíuhreinsunarstöðvar víða
um heim hefðu verið reknar með
miklu tapi undanfarna mánuði.
Samið við Loft-
leiðaflugmenn
Svavar Gestsson félagsmálaráðherra:
Fjárhagsaðstoð til félagsmála-
þjónustu í Kaupmannahöfn
Utanríkisráðuneytið og sendiráðið telja
ekki þörf slikrar þjónustu til frambúðar
_ÉG MUN beita mér fyrir því að
félagsmálaráðuneytið veiti Fé-
lagi stúdenta og Islendingafélag-
inu í Kaupmannahófn fjárhags-
legan stuðning til að kanna
þorfina fyrir að komið verði þar
upp félagsmálaþjónustu. Það er
ekki mitt að ákveða hvort þangað
verður ráðinn sérstakur félags-
málafulltrúi. það er félaganna.
Ég mun aðeins beita mér fyrir
fjárhagslegum stuðningi til slíkr-
ar þjónustu." sagði Svavar
Gestsson félagmsálaráðherra í
viðtali við Mbl. i gær. er hann var
spurður hvort adlunin væri að
ráða sérstakan félagsmála-
fulltrúa til starfa í Kaupmanna-
höfn.
Svavar sagði aðspurður að mál
þetta hefði einnig verið rætt við
utanríkisráðuneytið og sendiráðið
í Kaupmannahöfn og niðurstaðan
af þeim umræðum verið sú, af
hendi þeirra aðila, að ekki væri
þörf á slíkri starfsemi til fram-
búðar.
Þá sagði hann: „Félag stúdenta
og Íslendingafélagið ráku á síðast
liðnu sumri slíka þjónustu í sjálf-
boðavinnu og telja þau brýna þörf
á henni og ég hef því ákveðið að
veita slíka fjárhagsaðstoð til að
láta fara fram könnun á þessari
þörf í tilraunaskyni á komandi
sumri."
— Hvernig verður fjármögnun
varið og er heimild til fyrir henni?
„Fjármögnun fer fram á venju-
legan hátt. Féð verður tekið af
rekstrarfé félagsmálaráðuneytis-
ins.“
SAMNINGAR tókust í
kjaradeilu Loftleiðaflug-
manna og Flugleiða í
fyrrinútt, en áður höfðu
flujímenn félaifsins í FÍA
samþykkt sáttatillögu
sáttasemjara. Guðlau>;ur
Þorvaldsson, ríkissátta-
semjari, sagði í samtali við
Mbl., að samningarnir
byifgðu í flestu á sömu
atriðum og það samkomu-
lag, sem gert var við FÍA-
menn.
Samkomulagið gerir ráð fyrir
10,2% launahækkun til handa
flugmönnum, sem er afturvirkt
frá 1. desember sl. Þá eru í
samningnum ýmis atriði, sem eru
sameiginleg fyrir báða flug-
mannahópana.
Guðlaugur Þorvaldsson, ríkis-
sáttasemjari, sagði að með þessu
samkomulagi væri flugmannadeil-
an í raun leyst. Aðeins væri beðið
.eftir úrskurði í starfsaldurslista-
málinu, sem verður bindandi fyrir
bæði flugmannafélögin.
Akureyri:
2 í gæzlu vegna
skírlífisbrota
Akureyrl. 11. maí.
TVEIR karlmenn sitja nú í ga-zlu-
varðhaldi á Akureyri vegna skirlíf-
isbrota gagnvart sex drengjum á
aldrinum 10—14 ára. Annar var
handtekinn 29. april. en hinn 7. maí
og voru báðir úrskurðaðir í 40 daga
gæzluvarðhald og þeim gert að sa*ta
geðrannsókn. Hinn síðarnefndi
ka-rði úrskurðinn til Hæstaréttar.
sem stytti gæzluvarðhaldsvist hans
í fjórar vikur og felldi niður
kröfuna um geðrannsókn.
Rannsókn þessa máls er að mestu
lokið og verður það sent saksókn-
ara ríkisins til ákvörðunar eftir
nokkra daga.
- Sv.P.
Áburðarverðið ekki afgreitt
IIÆKKUN á áburðarverði var til
umfjöllunar á rikisstjórnarfundi.
sem haldinn var í ga“r. Gjald-
skrárnefnd mælti með 74% hækk-
un. en Aburðarverksmiðjan hafði
farið fram á 85%. Málið var ekki
afgreitt á fundinum i gær og
bíður því afgreiðslu.
Að sögn Magnúsar Torfa
Ólafssonar, blaðafulltrúa ríkis-
stjórnarinnar, voru engin mál
tekin til endanlegrar afgreiðslu á
þessum ríkisstjórnarfundi.