Morgunblaðið - 15.05.1981, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ1981
+ Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÚN ÁSMUNDSDÓTTIR, er andaðist á Landspítalanum 11. maí veröur jarösett frá í Fossvogskirkju miövikudaginn 20. maí kl. 10.30. María Elísabet Helgadóttir, Jón Gylfi Helgason, Sigrún Guðmundsdóttir, Haraldur A. Einarsson og barnabörn
+ Maöurinn minn og faöir okkar, GUÐLEIFUR GUOMUNDSSON, trésmiöur, Miklubraut 86, < andaöist í Borgarspítalanum miövikudaginn 13. maí. Ingíbjörg Hallgrímsdóttir og börn hins látna.
+ : Eiginmaöur minn, faöir og afi, MAGNÚSJÓNSSON, Skúlagötu 56, andaöist í Landakotsspítala 13. maí. Sigursteina Jörgensdóttir, dætur, tengdasynir og barnabörn.
+ Konan mín, GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR, fyrrum húsfreyja að Galtastööum, sem lést þann 6. maí sl. veröur jarösungin frá Selfosskirkju laugardaginn 16. maí kl. 14.00. • Erlingur Guömundsson.
+ Útför eiginkonu minnar og móöur okkar, SIGRIÐAR JÓNSDÓTTUR, Hvammi, Eyjafjöllum, fer fram frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 16. maí kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hinnar látnu er bent á Krabbameinsfélagiö. Magnús Sigurjónsson og börn.
+ Útför SIGRÍÐAR TÓMASDOTTUR, húsfreyju Þóroddsstöðum, Ölfusi, fer fram frá Hjallakirkju laugardaginn 16. maí kl. 14.00. Margrét Jónsdóttir, Þorsteinn Jónsson, Þorsteinn Jónsson, Tómas Jónsson, Guðrún Daníelsdóttir, Arnheiöur Jónsdóttir, Anton Guömundsson, Guörún Jónsdóttir, Birgir Oddssteinsson, Guðmundur Antonsson, Erna Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
" + Systir okkar, ÞÓRDÍS GESTSDÓTTIR frá Hjaröarholti í Kjós, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni laugardaginn 16. máí kl. 10.30 f.h. Jarðsett veröur að Reynivöllum Kjós sama dag. Stefanía Gestsdóttir, Grímur Gestsson, Bjarni Gestsson, Gísli Gestsson, Guömundur Gestsson.
+ Jaröarför SIGURVINS EYJOLFSSONAR, fyrrum vegaverkstjóra, Meóalholti 12, Reykjavík, verður gerö frá Fossvogskirkju í dag kl. 16.30. Fyrir hönd ættingja og vina. Lilja Sigurvinsdóttir, Magnús Sveinsson og barnabörn.
+ Minningarathöfn um bræöurna, JOEL OG BJARNA GUOMUNDSSYNI, Eyjaholti, Garöi. sem fórust meö m.b. Báru VE 141 4. marz sl., fer frain frá Útskálakirkju laugardaginn 16. maí kl. 15. Þeim, sem vildu minnast hinna látnu, er bent á Slysavarnarfélag Islands. Guórún Pétursdóttir, Laufey Siguróardóttir.
Minning:
Unnur Kristín Björg
Brynjólfsdóttir
Fædd 15. maí 1937.
Dáin 8. marz 1981.
Aí eilífAarljósi bjarma ber.
sem hrautina þungu Kreióir.
Vort líf. sem svo stutt o* stopult er.
þart stefnir á æóri leirtir.
Einar Ben.
í dag, 15. maí, hefði, Unnur
systir mín orðið 44 ára, ef dauðinn
hefði ekki brugðið sinum brandi
hvössum. Mig setti hljóða, er
móðir mín hringdi í mig þann 8.
marz sl. og tjáði mér að Unnur
hefði orðið bráðkvödd. Já, við
lifum, sem blaktandi, blaktandi
strá, spurningar vakna, við sum-
um fást svör, aðrar verða að bíða
síns tíma. Ófáar eru þær sem
aldrei verður svarað. Þrátt fyrir
vissuna um að eitt sinn skal hver
deyja, sem við mannanna börn
vitum fyrir víst um lífsgöngu
okkar allra, kemur andlátsfregn
ævinlega á óvart, ekki síst þegar
um er að ræða fólk á besta aldri.
Nú, þegar jarðnesku lífi Unnar er
lokið, leitar hugurinn til baka. Of
mörg gleymd atvik rifjast upp. Er
mér nú ljúft að minnast ungu
glaðværu telpunnar, sem ólst upp
hjá foreldrum sínum, þeim Mar-
gréti Þórarinsdóttur og Brynjólfi
Brynjólfssyni, en hann lést í okt.
1979. Við systkinin vorum sjö,
Unnur næstyngst, og kveður fyrst
af systkinahópnum.
Unnur fæddist að Hellum á
Vatnsleysuströnd 15. maí 1937,
fluttist að Minna-Knarranesi 3ja
ára gömul. Unnur ólst svo upp við
bernskuleiki. Fljótt fór að bera á
því, hvað í Unni bjó, hún var ekki
gömul þegar hún fór að taka til
hendinni hjálpleg og rösk, var
lánuð í vist til að passa börn og
inna það af hendi, sem þurfti að
gera, eða svo ég hafi hennar orð:
„pússa og laga til“. Elstu systkina-
börn hennar nutu þess að eiga
Unni að. Sól skein í heiði, og hún
naut lífsir.s og þess að vera til. Kát
og fjörug, alltaf hressileg með
græskulaust glens á vörum, gat þó
verið fljót að skipta skapi en fljót
til sátta. En ekki fer allt eins og
best verður kosið, 18 ára veiktist
Unnur af berklum. Það var henni
þung raun að yfirgefa heimili sitt,
foreldra og systkini og dvelja um
langan tíma á Vífilsstöðum til
lækninga. Þá kom fram hin mikla
trú á æðri mátt og það skeði
raunverulegt kraftaverk. Unnur
komst heim. En náði þó ekki fullri
heilsu og gekk því aldrei heil til
skógar. Öft minntist hún á dvölina
á Vífilsstöðum og einangrunina
þar.
Eftir heimkomuna fór hún eins
fljótt að vinna og kraftar leyfðu
og hugurinn stefndi til Keflavíkur.
Þar kynnist hún Þórhalli Helga-
syni og stofnuðu þau heimili sitt í
Njarðvík. Þau slitu samvistum
eftir nokkurra ára búskap. Ekki
auðnaðist Unni að ala börn og olli
það henni oft hugarangri. Unnur
flutti svo til Reykjavíkur og vann
hér margvísleg þjónustustörf. Ár-
ið 1964 kynntist hún Leifi Jóns-
syni þjóni og stofnuðu þau heimili
sitt hér í borg. En stormar og
stillur leika mismunandi hið
mannlega líf. Fyrir rúmum tveim-
ur árum urðu þau fyrir þeirri
þungu raun að Leifur lamaðist, og
dvaldi hann á ýmsum sjúkrastofn-
unum þar til sl. haust að hann
útskrifaðist. Þá vantaði þau hent-
ugt húsnæði fyrir hjólastól. Unn-
ur vildi umfram allt reynast sterk,
þó heilsa hennar leyfði engin
líkamleg átök. Og vissulega fylgir
mikil ábyrgð hjúkrun sjúkra, bæði
líkamlegri og ekki síst andlegri.
Oft hljóp venslafólk þeirra undir
bagga. Síðasta samtal okkar
systranna var um hvað hún væri
búin að biðja oft um þjálfun fyrir
Leif og hann yrði að komast í
æfingu, annars færi ver fyrir
honum. Ekki auðnaðist henni að
geta fylgt því eftir. Slíkur er
fallvaltleiki lífsins.
Nú hefur þessi unga kona geng-
ið götuna á enda. Vinir hannar og
vandamenn fylgdu henni síðasta
spölinn 19. mars sl. með þökk í
huga.
Eg vil svo að lokum þakka Unni
fyrir mig og mína og veri hún
Guði falin. Hugheilar samúðar-
kveðjur sendi ég þeim Leifi,
mömmu og Maddý litlu, sem
reyndist þeim svo vel og öllum
þeim, sem þótti vænt um hana, bið
ég Guðs blessunar.
Nú stígur hún á ströndu, þar
sem ekki þarf að berjast fyrir rétti
litilmagnans, þar eru allir jafnir:
ok því er ons erfitt aö du ma þann dóm
að dauðinn er hryKKðar efni
þó Ijóttin slokkni ok blikni blóm.
Er ei bjartara land fyrir .stefni?
Einar Ben.
Elísabet Brynjólfsdóttir
Kveöja:
Vigdís Sigurðardóttir
Frænka okkar, Vigdís Sigurðar-
dóttir, er nú látin eftir langvar-
andi veikindi og langar okkur til
að kveðja hana með fáeinum
orðum.
Dísa ólst upp á Litlu-Giljá í
Austur-Húnavatnssýslu. Hún
giftist Steinari Björnssyni apótek-
ara, sem lést fyrir 14 árum, og
hefur hún staðið ein síðan með
stóran barnahóp, en þau hafa
t
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir, afi og stjúpfaöir,
JAKOB EINARSSON,
Norður-Reykjum,
Mosfellssveit,
veröur jarösunginn frá Mosfellskirkju laugardaginn 16. maí kl. 14.
Guöjóna Benediktsdóttir,
Einar Jakobsson,
Rúnar Jakobsson, Helga R. Ragnarsdóttir,
Ragna R. Rúnarsdóttir, Jakob M. Rúnarsson,
stjúpbörn.
t
Alúöarþakkir og vinarkveöjur til allra, sem vottuöu samúö og
vinarhug viö fráfall og útför fööur míns og afa okkar,
GUÐBRANDS GUÐBRANDSSONAR
Irá Prestsbakka, Síóu,
og heiöruöu minningu hanc.
Ingólfur Guðbrandsson,
Þorgerður Ingólfsdóttir, Rut Ingólfsdóttir,
Vilborg Ingólfsdóttir, María Ingólfsdóttir,
Inga Rós Ingólfsdóttir, Eva Mjöll Ingólfadóttir,
Andri Már Ingólfsson.
staðið saman með henni og verið
móður sinni niikil stoð.
Dísa hafði lengi verið veik, og
háði erfiða baráttu við veikindi
sín en kjarkur hennar hefur vakið
aðdáun. Hún hafði sterka trú sem
auðveldaði henni erfiðustu stund-
irnar.
Dísa hafði ríka kímnigáfu til að
bera og var sérlega gott að
umgangast hana. Við kveðjum
hana með söknuði og vottum
börnum hennar, barnabörnum og
tengdafólki okkar dýpstu samúð.
Systkinabörn
+ Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og útför bróöur
okkar og mágs
EIÐS AGUSTSSONAR,
Bólataóahlíö 10.
Helga Ágústsdóttir, Jón Húnfjörö Jónasson,
Unnur Ágústsdóttir, Þorvaldur Björnsson,
Valgeir Ágústsson, Náttfríóur Jósafatsdóttir,
Ásta Ágústsson, Eggert Þórhallsson,
Héöinn Ágústsson, Ingibjörg Gísladóttír,
Heimir Agústsson, Þóra Þormóðsdóttir,
Marsibil Agústsdóttir, Björn Pétursson,
Bjarni Ágústsson.
ATIIYGLI skal vakin á því, að
afmæiis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig
verður grein, sem birtast á i
miðvikudagsblaði, að berast i
siðasta lagi fyrir hádegi á
mánudag og hliðstætt með
greinar aðra daga. Greinar
mega ekki vera i sendibréís-
formi. Þess skal einnig getið,
af marggefnu tilefni, að frum-
ort Ijóð um hinn látna eru
ekki birt á minningarorðasið-
um Morgunhlaðsins. Handrit
þurfa að vera vélrituð og með
góðu línubili.