Morgunblaðið - 15.05.1981, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 15.05.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ1981 13 Sverrir Hermannsson Þorvaldur GarAar Kristjánsson Farið hvergi, Þor- valdur Garðar og Sverrir, og verið menn að meiri Þau sorglegu tíðindi bárust mér með Morgunblaðinu árla þriðju- dagsmorguninn, að tveir flokks- bræður mínir, alþingismennirnir Þorvaldur Garðar Kristjánsson og Sverrir Hermannsson, hafi þekkst boð herranna í Kreml um að koma og vera gestir þeirra nokkra daga í sumar. Þetta þóttu mér ill tíðindi, og trúi ég því ekki fyrr en ég tek á, að þingmenn Sjálfstæðis- flokksins leggist svo lágt að þiggja veitingar, mjúkar hvilur og skoð- unarferðir hjá hinum illræmdu alræðisöflum er nú kúga milljónir manna um allan heim með einum eða öðrum hætti. Sovéskt herlið á nú i stríði við fátæka fjallaþjóð í Afganistan, sem meðal annars hefur leitt til þess áð milljónir manna hafa flúið heimili sín, auk þeirra sem sovéski herinn hefur ýmist tekið höndum eða komið fyrir ætternisstapa. Sovésk stjórnvöld halda hinum kunna vísindamanni Andrei Sakh- arov einangruðum í borginni Gorkí fyrir þær sakir einar að benda á mannréttindabrot þess- ara sömu sovésku yfirvalda. Herr- arnir í Kremlarkastala halda fjöl- skyldu skáksnillingsins Victor Korchnois í gíslingu, vegna þess að hinn landflótta skákmaður á möguleika á að vinna heimsmeist- aratitilinn af uppeldissyni sovéska kerfisins. Sovétmenn hafa kúgað þjóðir Austur-Evrópu allt frá stríðslokum, menn hafa ekki gleymt Berlínarmúrnum, Ung- verjalandi 1956 eða Tékkóslóvakíu 1968, þótt nú beri ástandið í Póllandi hæst. Sovésk stjórnvöld eru í því ötfiurlega hlutverki, að vera í forystu fyrir þeim öflum um allan heim er fótum troða mann- réttindi hvers konar. Stjórnarfar- ið í Sovétríkjunum er það stjórn- arfar sem sjálfstæðismenn hafa haft, og hafa enn, mesta óbeit á. Helgustu hugsjónir sjálfstæð- isstefnunnar hafa verið og eru enn, að standa vörð um frelsi og grundvallarréttindi einstaklings- ins. Lítið væri eftir af Sjálfstæðis- flokknum ef hann kastaði fyrir róða baráttu sinni fyrir frelsi einstaklingsins til orðs og æðis, hvað sem líður dægurþrasi stjórn- málanna á hverjum tíma. Sjálfstæðismenn hafa verið óþreytandi við að minna á óhæfu- verk Kremlarherranna, og sjálf- stæðismenn hafa jafnan varað við þeirri hættu sem íslendingum og öðrum frjálsum þjóðum stafi af alræðisöflunum í austri. Margt bendir til þess að slík varnaðarorð hafi aldrei verið eins tímabær og nú um þessar mundir. Andúð okkar eigum við sjálf- stæðismenn að sýna í verki. Við eigum að nota hvert tækifæri sem gefst, til að gagnrýna ógnarstjórn- ina í Moskvu, við eigum ekki að setja okkur úr færi við að sýna Brezhnev og leppum hans óbeit okkar á stjórnarháttum þeirra. Ein leið í þá átt er að sniðganga heimsóknir og boðsferðir hvers konar til Sovétríkjanna að óbreyttu ástandi. Það, að tveir þingmanna Sjálfstæðisflokksins skuli hafa þegið heimboð sovéskra stjórnvalda, eru því mistök, en sem betur fer er enn hægt að bæta þar úr. Augljóst er að þeir Sverrir Hermannsson og Þorvaldur Garð- ar gera öllum þeim, sem kúgaðir eru og undirokaðir austan járn- tjalds, mestan greiða með því, að neita að þiggja boð harðstjóranna. Ég hygg því að ég tali fyrir hönd þorra flokksbræðra okkar, er ég hvet Sverri og Þorvald til að sitja heima í sæmd sinni, en fara hvergi. Sjálfstæðismenn hneyksl- uðust sem vonlegt var á því fyrr í þessum mánuði, er Benedikt Dav- íðsson, einn forkólfa Alþýðu- bandalagsins, var fulltrúi ís- lenskrar alþýðu á Rauða torginu 1. maí. Ekki voru alþýðubanda- lagsmenn öfundsverðir af þessum flokksbróður sínum þá, og vonandi þurfa sjálfstæðismenn ekki að skammast sín fyrir tvo ágæta þingmenn sína síðar í sumar. — Farið hvergi, Sverrir og Þorvaldur Garðar, og verið menn að meiri. Anders Ilansen Tekid á móti matargestum med ókeypis lystauka, ostum og ödru gódgæti. Magnús Jóns- son óperu- söngvari syngur nokkur létt ítölsk lög meöan á boröhaldi stend- Italskur matur Arrosto di maiale alla Rimini Verö kr. Undirleikari Ólafur Vignir Al bertsson. Skemmtiþáttur, Ragnar og Bessi Bjarnason. Feröabingó, spiiað um þrjár ítalíuferðir Fararstjórar Samvinnuferða—Land- verða til vlðtals .•. og sýna nýja \ kvikmynd í |w| \ hliðarsal. M^LáB Diskótek, stjórnandi Þorgeir Ástvaldsson. HHPHH H Ijómsveit H, -ý Ragnars Hj«- * IHj \ Bjarnasonar HPlfcjv Helena leika. Dansað til \ kl. 03. Kynnir Magnús^ \ Axelsson. < ^ \ Borðapantanir eftir W \ kl. 16.00 í dag í \ síma 20221. fyrsta skipti á íslandi FIAT umboöið kynnir «(nýjan bíl í anddyri hótelsins r' FIAT 127 sport. Samvinnuferdir - Landsýn ^ Tískuverslun H. Líndal. • cv vörukynning I r t I ■ I r I ' V • ■ ss á Medisterpylsu í SS búóinni löufelli í dag kl 2-7 Komið og bragðið á c r '-v *.4 -j

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.