Morgunblaðið - 15.05.1981, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.05.1981, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ1981 Breytingartillögur við tekjuskattsfrumvarpið: Skerðing fyminga feUd niður Ákvæði um áætlun tekna breytt, álagningaskrá strax eftir álagningu FJÁRHAGS- og viðskiptanefnd neðri deildar Alþingis hefur skilað samhljóða nefndaráliti og brcytingartillögum við stjórnarfrumvarp um tekju- og eignaskatt, þar sem m.a. er lagt til að umdeilt ákvæði um skerðingu fyrningar. þ.e. 17. grein frumvarpsins, falli niður. í nefndaráliti segir að frumvarpið hafa verið rætt af nefndum beggja deilda og hafi verið leitazt við að halda sem viðtækustu samkomulagi, en nauðsynlegt hafi verið að gera breytingar á ákvæðum gildandi laga vegna fenginnar reynslu. Hér verður leitast við að gera grein fyrir tillögunum og þeim álitum. sem nefndirnar fengu frá hagsmunaaðii- um. Rolf Samuel- son látinn ROLF Samuclson, elstur Sam- uelsonsbræðranna sænsku sem hafa sungið hér á íslandi nokkrum sinnum, lést á sjúkra- húsi í Stokkhólmi laugardag- inn 8. mai sl. Rolf var 41 árs og hafði undanfarið átt við sjúk- dóm að striða. Rolf tók próf í bókmenntum og guðfræði frá háskólanum í Upp- sölum. Bn trú hans varð til þess að hann átti frumkvæðið að því að hann og bræður hans stofnuðu gospel-hljómsveitina. Samuelsons, útgáfufyrirtækið Pilot og Löttorps sumarbúðirnar, en þar fer fram umfangsmesta tjaldtrúboð í Evr- ópu. Síðastliðin tvö ár var Rolf starfsmaður fríkirkjusafnaðar í Svíþjóð. ÞANN 18. mai rennur út frestur til að tilkynna þátttöku i spurn- ingakeppninni úr ýmsum bókum Gamla testamentisins, en eins og sagt hefur verið frá er keppnin opin öllum sem eru 18 ára og eldri. I>ann 30. mai verður for- próf svokallað og eru það krossa spurningar sem eru lagðar fyrir keppendur. Lokakeppnin fer sið- an fram nokkru siðar. Dómari i keppninni er dr. bórir Kr. l>órð- arson prófessor. Þetta er alþjóðleg keppni og sigurvegarar munu fá í verðlaun ísraelsferð, þar sem lokakeppnin fer síðan fram. Spurt er úr eftirtöldum ritum gamla testa- mentisins Mósesbókunum fimm, Jósúabók, Spámönnunum, Dóm- arabók, Fyrstu og annarri konungabók, Sálmunum og Rutar- bók. FÉLAG frjálshyggjumanna átti tveggja ára afmæli 1. maí sl„ en það var stofnað á áttræðisafmæli Friedrich A. Hayeks, eins fremsta frjálshyggjuhugsuðar tuttugustu aldar. Áf því tilefni kynnti stjórn félagsins blaða- mönnum starf félagsins þessi tvö ár og sagði einnig frá þeim verkefnum, sem framundan væru. Félagið hefur haldið þrjú mál- þing, 1979 með dr. David Fried- man um einstakling, ríki og mark- að og með Ólafi Björnssyni próf- essor um kenningar Ludwig von Misess og 1980 með Friedrich A. Hayek um „miðju-moðið". Það gaf út (í samvinnú við Almenna bóka- félagið) bókina Leiðina til ánauð- ar eftir Hayek 1980, og á síðasta ári hóf það einnig útgáfu tímarits- ins Frelsisins. Ritstjóri þess er Hannes H. Gissurarson sagnfræð- ingur, ráðgjafi eða advisory editor er Hayek, og í ritnefndinni eru þeir Gísli Jónsson norrænufræð- ingur, Jónas Haralz bankastjóri, Matthías Johannessen skáld, Olaf- ur Björnsson prófessor og dr. Þorsteinn Sæmundsson stjarn- fræðingur. Á síðasta ári komu út Opinberir aðilar eru undan- þegnir tekju- og eignaskatti og tvær hálfopinberar stofnanir, Fiskifélag íslands og Búnaðarfé- lag íslands. Rétt þykir að taka af öll tvímæli um að þessar stofnanir séu taldar með opinberum stofn- unum. í 7. grein laganna kemur fram, að vinni maður við eigin atvinnu- rekstur eða sjálfstæða starfsemi, skuli hann telja sér til tekna eigi lægra endurgjald fyrir starf sitt en hann hefði innt það af hendi fyrir óskyldan aðila eða ótengdan. Nefndinni þykir eðlilegra að nota orðið „sambærilegt" endurgjald. í fyrri lögum voru heimildir þess efnis, að hægt væri að draga frá tekjum kostnað vegna náms eftir 20 ára aldur og þyrftu námsmenn að gera grein fyrir kostnaði sem þeir hafa orðið fyrir á námstímanum. í breytingartil- lögunum er gert ráð fyrir að námsmaður geti dregið þann námsfrádrátt frá tekjum, sem í undirbúningsnefnd keppninn- ar hér sitja sr. Bernharður Guð- mundsson sem er formaður nefnd- arinnar, Gunnlaugur Jónasson, cand theol, Jóhanna Kristjóns- dóttir, blaðamaður og Jónas Jón- asson dagskrárfulltrúi. Mbl. spurði sr. Bernharð Guð- mundsson, hvort fólk virðist áhugasamt um þessa keppni, sem fer nú í fyrsta skipti fram hér á landi. Sr. Bernharður sagði að það hefði komið skemmtilega á óvart hversu margir hefðu skráð sig, fólk á öllum aldri og hvaðanæva að og væri áhugi á keppninni augljóslega mun meiri en hann hefði þorað að vona. Það skal tekið fram að væntan- legir keppendur skulu tilkynna þátttöku til sr. Bernharðar Guð- mundssonar á Biskupsstofu. þrjú hefti af tímaritinu, enda er það ársþriðjungsrit, og á þessu ári hefur komið eitt hefti út, sem sent verður til áskrifenda í þessari viku. Tilgangur Félags frjálshyggju- manna er að safna og miðla upplýsingum um frjálshyggju og sósíalisma. í stjórn þess eru Frið- rik Friðriksson viðskiptanemi, formaður, Skafti Harðarson verzl- unarmaður, Hannes H. Gissurar- son sagnfræðingur, Hreinn Loftsson rithöfundur, Árni Sig- fússon blaðamaður, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, laganemi og fyrrverandi formaður Vöku, og Auðunn Svavar Sigurðsson lækna- nemi. Á næsta starfsári sínu hyggst félagið halda áfram útgáfu tíma- ritsins Frelsisins, sem hefur geng- ið mjög vel að sögn stjórnar- manna. Einnig mun það gefa út þrjár bækur eða fleiri. Ein kemur út mjög bráðlega, Velferðarríki á villigötum eftir Jónas H. Haralz bankastjóra. Önnur er hið sígilda stjórnmálarit Frelsi og framtak (Capitalism and Freedom) eftir bandaríska hagfræðinginn og nób- elsverðlaunahafann Milton Fried- nýttust honum ekki til lækkunar á tekjuskatti eftir 20 ára aldur, i 5 ár eftir að námi er lokið og dreifa frádrættinum jafnt á tímabilið. í 14. grein frumvarpsins er lagt til að kveðið sé á um heimild til viðbótarfyrningar, þegar sérstak- lega stendur á eða þegar mikill munur er á verðbreytingafærslu til tekna og gjaldfærðum fjár- magnskostnaði ársins. Sem dæmi er nefndur aðili, sem keypt hefur fyrnanlega eign að hluta eða öllu með skuldaviðurkenningu, sem ber vexti, sem eru langt undir verðbólguhlutfallinu. Ætla má að kaupverð hafi í slíku tilfelli verið ákveðið hærra en ella vegna greiðsluskilmálanna. Því þótti eðlilegra að heimila hraðari fyrn- ingu af þessum sökum. Nefndin er sammála um að auka fyrningar- heimild úr 4% í 6%. í 17. grein frumvarpsins er lagt til að fyrningar verði skertar hjá þeim aðilum, þar sem hreinar tekjur eru undir 5% af heildar- tekjum. Andmæli hafa komið frá nær öllum umsagnaraðilum varð- andi þessa breytingu og hefur nefndin orðið sammála um að leggja til að þessi grein frum- varpsins falli niður, en Guðmund- ur J. Guðmundsson hefur fyrir- vara um þetta atriði á þessu stigi málsins. Að því er einstaklinga varðar eru mismunandi reglur viðhafðar um fjármagnskostnað og verð- breytingafærslu eftir því hvort um er að ræða eignir eða skuldir, sem tengjast atvinnurekstri eða ekki. Af þessum sökum er nauð- synlegt að skilja á milli þess hluta eigna og skulda einstaklinga, sem tilheyrir atvinnurekstrinum, og hins vegar þeirra eigna og skulda, sem ekki eru honum viðkomandi. Slíkt er vissulega erfiðleikum háð, en í 19. grein frumvarpsins er kveðið skýrar á um þessi atriði. Nefndin er sammála um að reglur er varða takmarkaðar tekjufærsl- ur hjá ógjaldfærum aðilum, skuli ná til allra eigna og skulda man, en sjónvarpið hóf einmitt sýningu sjónvarpsþátta hans, „Frelsið til að velja", á afmælis- degi félagsins sl. föstudag. Geir H. Haarde hagfræðingur vinnur nú að íslenzkun bókarinnar. Þriðja bók er Greinar bandalagsmanna (The Federalist Papers) eftir bandarísku byltingarmennina á átjándu öld, Alexander Hamilton, James Madison og John Jay. Dr. Halldór Guðjónsson, kennslustjóri Háskóla íslands, íslenzkaði hana, og er ætlunin, að hún komi út 4. júlí. Félag frjálshyggjumanna hyggst einnig efna til að minnsta kosti fjögurra málþinga á kom- andi starfsári. Eitt verður um efnið: „Á peningamagnskenning Friedmans við á íslandi?" — og viðkomandi skattaðila. Er talið eðlilegt við beitingu þessarar reglu að undanþegin séu verðmæti einkaeigna til persónulegra nota og skulda tengdra þeim, allt að tiltekinni fjárhæð. Gert er ráð fyrir í 22. grein frumvarpsins, að 59. grein lag- anna um ákvörðun launa við eigin atvinnurekstur falli niður. í grein- inni eru hins vegar ákvæði um að hjá mönnum, sem vinna við eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, skuli áður en ákvæðum um persónuafslátt sé beitt, hækka tekjuskattstofn þeirra um þá fjár- hæð, sem tekjur af þessum störf- um eru lægri en ætla má að endurgjald þessara manna miðað við vinnuframlag hefði orðið ef þeir hefðu innt starf af hendi fyrir óskyldan eða ótengdan aðila. Nefndin vill ekki gera þessar breytingar á lögunum og tiltekur sérstaklega 3 atriði: að með slíkri ákvörðun myndu aðilar, sem reka eigin starfsemi missa rétt til 10% frádráttar og yrðu því verr settir en launþegar, sem vinna hjá óskyldum eða ótengdum aðila; að lágtekjumenn, sem vinna við eigin atvinnurekstur misstu þau rétt- indi, sem felast í að persónuaf- sláttur gengi upp í greiðslu út- svars og vegna þess að mjög mikii gagnrýni hafi komið á fram- kvæmd greinarinnar og þyrfti allt það er að henni liti að vera mun skýrara og ótvíræðara. Varðandi bændur er það ákvæði sett að viðmiðunarreglurnar skuli miðast við vinnuþátt í verðlags- grundvelli landbúnaðarafurða að frádregnum Vi. Nefndin telur verðlagsgrundyöllinn ekki algild- an mælikvarða á það, hversu mikil laun bóndinn hefur af búi sínu og telur að draga þurfi 'h frá vinnu- þættinum við ákvörðun viðmiðun- artekna. Það, sem hér hefur verið rakið eru sameiginlegar breytingartil- lögur nefndarmanna, en að auki hafa þeir Sighvatur Björgvinsson, Albert Guðmundsson, Matthías Bjarnason og Guðmundur J. Guð- mundsson lagt fram breytingar- tillögur. Tillögur þessar eru marg- breytilegar, en þær helztar eru, að flutningsmenn gera ráð fyrir því að nýtist námsmanni 20 ára eða eldri eða maka hans ekki náms- frádráttur meðan á námi stendur eftir 20 ára aldur, sé honum heimilt að draga frá fjárhæð sem verður dr. Þráinn Eggertsson prófessor málshefjandi. Annað verður um kenningar John Kenn- eth Galbraiths og verða Pétur J. Eiríksson og Geir H. Haarde, sem báðir eru hagfræðingar, málshefj- endur þar. Þriðja málþingið verð- ur um frjálshyggjuna og lýðræðis- flokkana, en þar flytja inngangs- erindi alþingismennirnir Friðrik Sophusson, Guðmundur G. Þórar- insson og Vilmundur Gylfason. Að lokum verður málþing um síðustu bók Hayeks, Law, Legislation and Liberty, þar sem Hayek ræðir um vanda þingræðisins og leggur til ýmsar breytingar stjórnskipunar (en Hayek lauk doktorsprófi í lögfræði eins og hagfræði), og málshefjendur þar verða þeir Jón- atan Þórmundsson prófessor og Sigurður Líndal prófessor. svarar heildarupphæð hins ónýtta námsfrádráttar frá tekjum á næstu 5 árum eftir að námi lýkur og skal taka tillit til þeirrar hækkunar á tekjuskattsstofni, er foreldri námsmanna kynni að hafa notið. Skal fjárhæðinni skipt jafnt á hvert ár. Þá leggja þeir til að 13. grein, 16., 17. og 18. greinar frumvarpsins falli niður. Þá gera flutningsmenn tillögu um að hjá mönnum, sem stunda atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi sé með heildartekjum og heildarskuldum átt við allar framtalsskyldar eignir þeirra og skuldir án tillits til þess, hvort þær eru tengdar rekstrinum eða ekki. Til eigna í þessu sambandi teljist því ekki verðmæti íbúðar- húsnæðis til eigin nota og einka- bifreiðar allt að 500.000 krónum og til skulda teljast ekki skuldir sem sannanlega hafa verið notað- ar til öflunar þessara eigna. Þá gera flutningsmenn einnig tillögu um að ef maður, sem stundar eigin atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi eða hjá aðila honum tengdum, telur sér til tekna lægri fjárhæð en ætla má að launatekj- ur hans hefðu orðið, ef hann hefði starfað sem launþegi hjá óskyld- um aðila án þess að skýringar fylgi, skuli skattstjóri skriflega skora á framteljanda að láta í té skriflegar skýringar á framtöldu endurgjaldi, studdar nauðsyn- legum gögnum. Berist ekki full- nægjandi skýringar eða gögn inn- an tilskilins tíma, skal skattstjóri ákvarða honum endurgjald fyrir starfið. Skal skattstjóri þar leggja til grundvallar kjarasamninga eða ef um bónda er að ræða vinnuþátt í verðlagsgrundvelli búvara að frádregnum einum þriðja. Þá gera flutningsmenn tillögu um að aldrei skuli launagreiðandi þó halda meira eftir en nemur 75% af heildarlaunagreiðslu hverju sinni til greiðslu á gjöldum samkvæmt lögunum. Loks flytja þeir Sighvatur Björgvinsson, Albert Guðmunds- son, Matthías Bjarnason og Guð- mundur J. Guðmundsson tillögu um að eigi síðar en 30. júní ár hvert skulu skattstjórar hafa lok- ið álagningu á skattaðila og skulu þeir þá semja og leggja fram til sýnis eigi síðar en 15 dögum fyrir lok kærufrests álagningarskrá fyrir hvert sveitarfélag i umdæm- inu, en í henni skal tilgreina þá skatta, sem á hvern gjaldanda hafa verið lagðir. Þetta ákvæði skal ekki öðlast gildi fyrr en við álagningu 1982. Að öðru leyti er gert ráð fyrir að tillögur þeirra félaga öðlist þegar gildi. B.A. Robertson áritar plötur fyr- ir íslenzka aðdá- endur í dag BRESKI poppsöngvar- inn B.A. Robertson var væntanlegur til landsins seint í gærkvöldi, en hér á landi nýtur hann fcikna vinsælda. Eins og fram hefur komið í Mbl. kemur söngvarinn hingað í tilefni af 15 ára afmæli Karnabæjar. Áform- að er að skreppa með Rob- ertson til Vestmannaeyja fyrir hádegi í dag og mun hann árita plötu sína „Bully for you“ í Eyjabæ. Klukkan 15 áritar hann plötuna í Karnabæ, Austurstræti. í kvöld klukkan 21.30 heim- sækir Robertson Þróttheima, en þar er lagið hans Flight 19 i efsta sæti um þessar mund- ir. Eftir klukkan 22 kynnir hann svo nýju plötuna í Hollywood. Robertson heldur af landi brott í fyrramálið. ísraelskeppnin: Frestur rennur út 18. maí Félag fr jálshyggju- manna tveggja ára Ilarðarson, IJannes H. Gissurarson og Auðunn Svavar Sigurðsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.