Morgunblaðið - 15.05.1981, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 1981
19
Svavar Gestsson félagsmálaráðherra:
Sjómannalögunum verði
breytt til jafnréttis
„ÉG HEF sent beiðni Jafn-
réttisráðs áfram til sam-
gönguráðuneytisins, sem
hefur með málið að gera,
og ég tek þar undir kröfu
ráðsins um að sjómanna-
lögunum verði breytt til
jafnréttis, þannig að ekki
verði um mismunun kynj-
anna að ræða,“ sagði Svav-
ar Gestsson félagsmála-
ráðherra, er Mbl. spurði
hann í gær, hverja af-
greiðslu krafa Jafnréttis-
ráðs til hans sem félags-
málaráðherra hefði feng-
ið. Krafa ráðsins var, að
hann beitti sér fyrir að
mismunun lágmarksald-
urs kynjanna til að stunda
störf á sjó, sem er að finna
í lögunum, verði afnumin.
Krafa þessi er tilkomin vegna
kæru tveggja 16 ára stúlkna, sem
reyndu að sækja um störf sem
messar á varðskipunum, en fengu
synjun á þeirri forsendu að þær
hefðu ekki náð 18 ára aldri, eins og
kom fram í frétt og viðtali við
stúlkurnar í Mbl. í síðustu viku. I
sjómannalögunum segir, að piltar
þurfi að vera minnst 16 ára en
stúlkur 18 ára.
Svavar sagðist ekki hafa kynnt
sér málið til hlítar, en það yrði
væntanlega gert í samgönguráðu-
neytinu. Aðspurður sagðist hann
ekki hafa hugleitt, hvort hann
mundi beita sér fyrir að gerðar
yrðu undantekningar frá lögum í
tilfellum eins og ungu stúlkurnar
urðu fyrir.
Mbl. sneri sér til samgöngu-
ráðuneytisins og spurðist fyrir um
ástæðu þess að þessa mismunun á
aldri eftir kynferði sé að finna í
lögunum. Oddrún Kristjánsdóttir
fulltrúi í ráðuneytinu sagði að í
lögum frá 1930 hefði verið bannað
að hafa yngri börn en 14 ára í
vinnu um borð i skipum. Með
barnaverndarlögunum frá 1947
hefði aldursmarkið verið hækkað í
15 ár fyrir bæði kynin, en með
lögum nr. 67 frá 1963 hefði
núverandi löggjöf verið tekin upp,
þ.e. 15 ára piltar og 18 ára stúlkur.
Oddrún sagði að í greinargerð með
því frumvarpi væri eftirfarandi
skýringu á þessari breytingu að
finna: „Er það látið haldast hér að
því er tekur til karlmanna en
hækkað í 18 ár að því er konur
snertir. Er það sama aldursmark
og í 10. grein dönsku og sænsku
sjómannalaganna, en í 10. gr.
norsku laganna er bannað að hafa
yngri kvenmenn en 20 ára í vinnu
á skipi."
I sendiráðum ofangreindra
landa fengust eftirfarandi upplýs-
ingar: Svíar eru búnir að breyta
þessu. Þeir breyttu því árið 1973
þannig að lágmarkið er 18 ár fyrir
bæði kynin. Danir breyttu sínum
lögum einnig 1973 í. 16 ár fyrir
bæði kynin, en þarliafði það verið
16 ára piltar en 18 ára stúlkur.
Norðmenn eru nú með aldurs-
mörkin í 16 árum fyrir pilta og 18
árum fyrir stúlkur, en breyttu
lögunum 1973 úr 15 árum fyrir
pilta í 16 ár.
„Þegar þú þarft að kippa í gang hjá vini þínum“
SHELL SUPER PLUS
Olían ,sem er eins og sniðin fyrir
íslenskar aðstædur!
\ Nýja fjölþykktarolían frá Shell tekur langt
fram þeim kröfum, sem bifreiöaframleið-
endur hafa sett um gæði og endingu olíu
fyrir nýjustu gerðir bílvéla.
Shell Super Plus myndar níðsterka húð,
sem verndar slitfleti vélarinnar allan eðli-
legan notkunartíma olíunnar. Vél varin
með Super Plus endist lengur og þarfn-
ast síður viðhalds.
Eiginleikar Shell Super Plus hæfa tíðum
hitasveiflum íslenskrar veðráttu. Fjöl-
þykktareiginleikar Super Plus gera
gangsetningu auðvelda í kulda, og veita
hámarksvernd við mesta álag, t.d. þegar
kippa þarf í gang hjá kunningja.
Sérstök bætiefni Shell Super Plus gefa
olíunni styrk og þol til þess að standast
mikinn þrýsting og hita, sem myndast í
nýjustu bílvélum. Super Plus vinnur verk
sitt betur og lengur en nokkur önnur
Shell olía hefur áður gert.
Olíufélagið Skeljungur h.f.
Einkaumboð fyrir „SHELL" vörur