Morgunblaðið - 05.07.1981, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981
13
Garðhúsgögn
Ný sending komin
Einnig blómastatíf og blómahengi
Úr álblöndu sem ryðgar ekki.
Ath.: Mjög hagstætt verö.
Sendum um allt land.
Húsgagnaverslun, Reykjavíkurvegi 68,
Hafnarfiröi, sími 54343.
EF ÞAÐ ER FRÉTT- 9) NÆMTÞÁERÞAÐÍ ' MORGUNBLAÐINU
NY NILFISK
Nýr súper-mótor:
áður óþekktur
sogkraftur.
Ný sogstilling:
auðvelt að
tempra kraftinn
Nýr ennþá stærri
pappírspoki með
hraðfestingu.
Ný kraftaukandi
keiluslanga með
nýrri festingu.
Nýr vagn sameinar
kosti hjóla
og sleða.
Auðlosaður í stigum
SOGGETA I SÉRFLOKKI
Kinstakur mótor. cfnisgtvAi. mark-
visst byggingarlag. afbragós sog-
slykki — já. hvert smáatriói sluólar
ao soggctu i scrflokki. fullkominni
orkunýtingu. fyllsta
notagildi og
dæmalausri endingu.
GERIÐ SAMANBURÐ:
Sjáið t.d. hvernig stærð. lögun og
staðsetning nvja
Nilfisk-risapokans
tryggir óskerl sogafl ,
fiótt í hann safnist.
GÆÐI BORGA SIG:
Nilfisk er vönduð og tæknilega
ósvikin. gerð til að vinna sitt verk
fljótt og vel. ár eftir ár. með lág-
marks truflunum og tilkostnaði.
Varanleg: til lengdar ódvrust.
Afborgunarskilmálar.
Traust þjónusta.
11 EJ>I Mét heimsins besta ryksuga
Stór orð, sem reynslan réttlætir. MJfWKMu
FYRSTA FLOKKS FRA FÖNIX HÁTÚNI — SIMI 24420
Ég leitaði blárra blóma
'omasguðmundsson ry,r . _
K >MAS GlJÐMt 'NDSSON (,| T T-iT ’ '*.GlSLASON Bi\ GYI F1
ÉG LEI1 LEíTAÐI InAÐI
BLÁRRA B ÚLARRA BLÓMA f BLÓMA
I
*
Tíu sönglög eftir Gylfa Þ. Gíslason við ljóð Tómasar
Guðmundssonar á nýrri hljómplötu.
Flytjendur laganna eru söngvararnir Anna Júlíana
Sveinsdóttir, Elísabet Erlingsdóttir, Erlingur Vigfússon,
Garðar Cortes, Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson,
Magnús Jónsson, Ólöf K. Harðardóttir og Sigurður
Björnsson.
Undirleikari er Ólafur Vignir Albertsson.
Útsetningar eru eftir Jón Þórarinsson,
Ólaf Vigni Albertsson og Skúla Halldórsson.
Hljómplatan er nú fáanleg í hljómplötuverslunum
um land allt.
FALKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670
Tómas Guðmundsson er ástsælt skáld.
Ljóðrænir töfrar kvæða hans bjóða heim
hlýjustu lofsyrðum málsins. En ljóðagerð hans
er sjaldan einföld. Ásamt birtu málfarsins og
óviðjafnanlegri mýkt Ijóðlínunnar búa þau yfir
skuggum og andstæðum. Þessi tvíræðni gerir
þau alltaf auðkennileg og á sinn hátt einstök í
íslenzkum skáldskap. Fyndin mótsögn setur
ekki einungis svip sinn á orðalag kvæðanna,
heldur er hún einatt hugmynd þeirra og uppi-
staða. Þessi skáldskapur gerir þá menning-
arlegu kröfu til lesandans, að hann sé undir það
búinn að skynja ólíkar hugsanir sem eina og
taka þátt í þeim djarfa leik að andstæðum til-
finningum, sem skáldið leikur.
Það var gæfa reykvfskri og þar með ís-
lenzkri menningu að skáld með siðmenntandi
Ijóðstíl Tómasar varð fýrstur til að gefa höfuð-
staðnum ákveðinn svip í bókmenntum. Borgin
hefir viðurkennt þetta með þvi að láta reisa
honum styttu í Austurstræti. Og Tómas Guð-
mundsson er í dag þjóðskáld lslendinga. Hann
er líka ef til vill skemmtilegasta skáld, sem
þjóðin hefir átt. Hin sérkennilega gamansemi
hans, málfarið í senn viðhafnarlegt og alveg
óhátíðlegt, samleikur gleði og trega í Ijóðunum
bera vitni þess konar virðingu fyrir lífinu. sem
er endanlega hafin yfir mótsagnir.
Krislján Karlsson
. .'. Gylfi byrjaði ungur að semja lög. Fyrst
mun sú iðja hans hafa vakið athvgli veturinn
1935-36, en þá gerði hann sönglög við leikrit-
ið „Rakarann í Sevilla", sem nemendur
menntaskólans í Reykjavík settu á svið . . .
. . . Alltaf síðan hefur það verið eftirlætis-
iðja Gylfa í naumum tómstundum frá anna-
sömum og ábyrgðarmiklum störfum að sveigja
lagtínur að fögrum Ijóðum, sjálfum sér og
vinum sínum til yndis og ánægju. en án þess að
gera kröfu til að vera tekinn í tónskálda
tölu . . .
. . . Flest eða öll lög hans hafa kviknað af
ljóðum, orðið til við kvæði, sem honum hafa
verið hugleikin, og þau bera það með sér. Hann
er næmur á hugblæ og blæbrigði í skáldskap, og
einatt speglast andi Ijóðanna í lögum hans með
eftirminnilegum hætti. Einfaldleikinn og ein-
lægnin er styrkur þeirra .. .
. . . Gylfi Þ. Gíslason hefur gert lög við
ljóð margra skálda.En tíðast hefurhann leitað
til Tómasar Guðmundssonar. öll lögin á þess-
ari plötu eru við kvæði eftir hann, sum samin
fyrir meira en fjórum áratugum, önnur næstum
ný, nokkur kunn næstum hverjum sönglelskum
fslendingi. önnur lítt kunn . .
Margir vinir Ijóða og laga munu fagna
þessari plötu.
Jón Pórarinsson