Morgunblaðið - 05.07.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.07.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981 Rúm öld liðin írá því að skólaskylda heymleysingja var leidd í lög í Heyrnleysingjaskóla íslands eru nú áttatíu nemendur í fjórum deildum „Þróun í málum heyrnarlausra í 114 ár“ er yfirskrift allsérstæðrar sýningar, er nú stendur yfir að SkólavorðustÍK 21, en þar er til húsa félagsheimili heyrnarlausra. Þesar 31. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna lýsti því yfir að árið 1981 skyidi vera alþjóðlegt ár fatlaðra var leitað til allra öryrkjafélaga landsins og þau hvött til þess að kynna málefni sín sem best, þar sem slík kynning skyldi vera eitt meginmarkmið alþjóðlegs árs fatlaðra. í því tilefni ákvað Félag heyrnarlausra að efna til þessarar sýningar, en þar er leitast við að rekja þróunina í málefnum heyrnarlausra frá upphafi fram til dagsins i dag og spannar hún 114 ár. Veg og vanda að öflun efnis og heimilda fyrir sýninguna átti Guðmundur Egilsson, cn ásamt honum voru i sýningar- nefnd þeir Vigfús Hallgrímsson og Vilhjálmur G. Vilhjálms- son. Er blaðamaður og ljósmyndari Mbl. hittu Guðmund að máli í síðustu viku sagði hann að efnið væri fengið víða að, en málefni heyrnarlausra hefðu lítið verið í fjölmiðlum og ekki mikið skrifað um þeirra mál og því ekki af mörgu að taka. Hann kvaðst alveg undrandi yfir því hve tekist hefði að ná saman miklu efni, en myndir væru flestar fengnar að láni hjá eldra fólki. Skólahúsið að Spítalastíg 9. en þar var skólinn til húsa árin 1914 til 1916. í forgrunni má sjá gaslukt. en baerinn var á þessum árum lýstur upp með gasi. Sýningarnefnd skipuðu þeir Guðmundur Egilsson. sem hér er á myndinni ásamt konu sinni. Hervöru Guðjónsdóttur, formanni Félags heyrnarlausra. Vilhjálmur G. Vilhjálmsson en Vigfús Hallgrimsson vantar á myndina. I 4<Vtin. Mbl. Kristján. Séra Páll Pálsson, sem fyrstur manna hóf að kenna mál- og heyrnarlausum hörnum á ís- landi. „Uppsetning sýningarinnar var einkum fólgin í því að láta stækka myndir og annað og líma upp á spjöld. Til þess fengum við lánað- an bílskúr uppi á Freyjugötu, þar sem vinnan fór að mestu leyti fram, en þess á milli var ég á hlaupum upp á Landsbókasafn og Borgarskjaiasafn til þess að viða að mér heimildum, auk þess sem ég átti mörg viðtöl við fólk, sem einhverjar upplýsingar gat gefið um málefni heyrnarlausra undan- farin ár og áratugi. Margt af þessu efni er ákaflega fróðlegt og sam- antekt þess hefur mikið heimilda- legt gildi fyrir sögu heyrnleys- ingjafræðslunnar á íslandi. Sam- starf okkar í sýningarnefndinni var sérlega gott enda áhugi manna mikill fyrir þessum mál- um,“ sagði Guðmundur. Heyrnleysingjar skólaskyidir á undan heilbrigðum Eins og áður segir nær sýningin yfir 114 ára tímabil en fyrsti skólinn í heiminum fyrir heyrnar- og mállausa var stofnaður i París árið 1770. Séra Páll Pálsson, prestur að Þingmúla í Skriðdal, var upphafsmaður að kennslu heyrnaríausra hér á landi, en hann var fæddur í Hörgsdal á Síðu í október árið 1836. ólst hann upp í Hörgsdal, en hélt síðan til Reykjavíkur til náms. Um vetur- inn 1852 lagðist hann veikur og var sagður úr skóla. Vegna veik- inda sinna mistti hann málið, en um miðjan vetur árið 1853 hélt hann til Kaupmannahafnar og gekk þar í daufdumbraskóla og lærði þar meðal annars fingramál. Þá gerðist það, að hann fékk málið aftur og fór þá heim til íslands og hélt áfram námi. Lauk hann guðfræðiprófi árið 1861 og hélt þá austur á æskuslóðir sínar. Hóf hann þar preststarf og fór jafn- framt að kenna mállausum börn- um. Hneigðist hugur hans mjög að þessari kennslu, en kennslubækur vantaði alveg. Árið 1867 var Páll skipaður mál- og heyrnleysingjakennari, og var hann jafnframt fyrsti maður- inn, sem gegndi því starfi hér á landi. Hann hélt uppi skóla fyrir mállaust fólk á heimili sínu til æviloka, eða í 23 ár. Til þess að bæta úr kennslu- bókaskorti þeim, sem helst stóð kennslu séra Páls fyrir þrifum, ritaði hann þrjár kennslubækur handa mállausum börnum og voru þær allar prentaðar í Kaup- mannahöfn árið 1867 undir hans umsjá. Bækurnar hétu „Bibliusög- ur handa mál- og heyrnarlausum unglingum á íslandi", „Kristin- fræði Lúthers" og „Orðasafn til undirbúnings kennslu handa mál- og heyrnleysingjum", en útgáfa þeirra lýsir mjög framsýni séra Páls í þessum málum. Séra Páll drukknaði í Grímsá á Völlum á afmælisdaginn sinn árið 1890, aðeins 54 ára að aldri. Eftir lát séra Páls tók séra Ólafur Helgason prestur í Gaul- verjabæ við heyrnar- og málleys- ingjakennslunni, en hann hafði áður kynnt sér daufdumbra- kennslu í Danmörku. Skólinn var staðsettur í Gaulverjabæ fyrstu tvö árin sem séra Olafur hafði þessa kennslu með höndum en fluttist síðan með honum að stóra Hrauni í Árnessýslu. Húsakynni á Stóra Hrauni voru rnjög þröng og fékk séra ólafur því þá framgengt að flytja inn tilhoggið hús frá Noregi, en það mun hafa verið nýiunda í þá daga. Fyrir tilstilli séra Ólafs var komið á 8kólaskyldu heyrnar- og mál- lausra barna frá 10 til 14 ára aldurs, en það var árið 1872. Börnin áttu þá að koma inn í skólann er skólaskyldualdrinum var náð, nema sérstakar kringum- stæður mæltu með því að gerðar væru undantekningar frá þeirri reglu. Námstími var 7 til 8 ár og vom .nemendur því oft fulltíða fólk, þegar þeir yfirgáfu skólann. Til samanburðar má geta þess að fræðsluskylda heilbrigðra barna var fyrst lögleidd árið 1908. Séra ólafur var vinsæll meðal heyrnleysingja og í sóknum sin- um. Hann lést fyrir aldur fram, aðeins tuttugu og níu ára gamall, en við skólanum að Stóra Hrauni tók þá Gísli Skúlason prófastur. Stjórnaði hann skólanum á árun- um 1906 til 1908 eða þar til skólinn flutti til Reykjavfkur árið 1909. Þröngur húsakostur íyrstu árin í Reykjavík Frú Margrét Theódóra Bjarna- dóttir Rasmus hafði þá lengst allra fengist við kennslu heyrnar- lausra hér á landi og lá það því beint við að hún tæki við stjórn skólans af Gísla Skúlasyni. Frú Margrét lærði kennsluað- ferðir fingramáls í málleysingja- skólanum í Kaupmannahöfn, en stundaði síðan nám í talskóla í Fredericia í Danmörku og lauk þaðan prófi. Er skólinn flutti til Reykjavíkur og hún tók við stjórn hans var hann í fyrstu til húsa við Laugaveg 17, en þar var þröngur húsakostur, því honum fylgdi heimavist. Nokkrum árum síðar flutti skólinn í stórt timburhús að Spítalastíg 9 en þar var hann fremur stutt, því árið 1920 var ráðist í að kaupa handa skólanum Skólamynd af nemendum og kennurum Málleysingjaskólans frá árunum 1909 til 1910. Skól- inn var þá til húsa að Laugavegi 17, en það sem vekur athýgli á mvndinni er klaónaður nemenda t»g höfuðföt piltanna. sem líkist mjög húfum ungs skólafólks er- lendis á þeim tima. Tveir fast- ráðnir kennarar voru við skól- ann á þessum árum. forstöðukon- an Margrét Th. Bjarnason Rasm- us og Ragnheiður Guðjónsdóttir kennari.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.