Morgunblaðið - 05.07.1981, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 05.07.1981, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ1981 HOWARD IIIII IIIII Vorum að fá sendingu af Baldwin rafmagnsorgelum. Greiðsluskilmálar. — Takmarkaðar birgðir. HáiW'!6mSi eim- W(A"'bor6'' Hljóðfæraverslun PÁlLMÞkRS /IRhÞi Rf GRENSÁSVEG112 SÍMI 32845 Sigrún Jónsdóttir Frá blaðamannafundi, sem Emile van Lennep, framkvæmdastjóri OECD, hélt hér nýlega. Með honum á fundinum voru Tómas Árnason. fjármálaráðherra, og Einar Benediktsson, sendiherra íslands í París. Til vinstri á myndinni er aðstoðarmaður van Lenneps. Emile van Lennep: sýnir í Sviþjóð Suetin EKKERT varð af komu sov- ézka skákmannsins Bronstein hingað til lands, en hann átti að koma i gær og vera hér I mánaðartíma og leiðbeina is- lenzkum skákmönnum. Bronstein forfallaðist á síð- ustu stundu af heilsufars- ástæðum og í hans stað kom skákkennari að nafni Suetin. Hann mun vera allþekktur í Sovétríkjunum en lítt þekktur utan þeirra. auk Sigrúnar taka Lennart Sandström málari og Birg- itta Tillander leirkerasmið- ur þátt í sýningunni. Sigrún sýnir batik og vefn- aðarlist, en mesta athygli virðist verk, sem hún kallar Ragnarök, hafa vakið. í því blandar Sigrún saman ýms- um efnum og formum í falleg- um litum. Kalmarbúum þykir gaman að fá smjörþefinn af íslenskri list og láta vel af henni, að því er fram kemur í blaðaumsögnum. Sýningin mun standa fram í ágúst. SIGRÚN Jónsdóttir sýnir um þessar mundir listmuni sína í Kalmar í Svíþjóð. Sagt var frá sýningunni í dag- hlöðum í Kalmar nýlega. en Sigrún Jónsdóttir við verk sitt Ragnarök Nauðsyn á samvinnu um lausn efnahagsvanda innan OECD EMILE van Lennep, fram- var hér nýlega í boði rikisstjórn- kva mdastjori Efnahags- og fram- arinnar og ræddi hann við is- farastofnunar Evrópu, OECD, lenska ráðamenn, þ.á m. forseta Baldwin Hagstæðustu kaupin. 'jd/DL LÆKKUN /\J vegna góðra innkaupa. íslands. Vigdisi Finnbogadóttur. Ilann sagði á blaðamannafundi að hann hefði rætt m.a. um efnahagsástandið á íslandi við forsætisráðherra, fjármálaráð- herra og seðlabankastjóra. og ra'ddar voru tillögur um úrbætur gegn verðbólgu. Van Lennep sagði að íslenskir ráðamenn hefðu að mestu leyti verið sam- mála tillögum OECD um hvað væri til ráða í þeim efnum. Van Lennep sagði að aðildarríki OECD ættu öll í meira eða minna mæli við samskonar vandamál að stríða í efnahagsmálum, verð- bólgu og atvinnuleysi, og benti hann á mikilvægi þess að löndin hefðu samráð sín í milli um lausn vandans. Vikið var að orkumálum og sagði van Lennep að hann teldi að íslendingum væri hagur af að gerast aðilar að Alþjóða orku- málastofnuninni, IEA. Tómas Árnason, fjármálaráðherra, sagði að hann hefði lagt til að ísland gengi í IEA til þess að minnka áhrif olíuskorts, ef framboð myndi skyndilega minnka. Sagði hann þó að ekki lægi fyrir hvaða ákvörðun íslendingar tækju í því máli. Emile van Lennep hefur verið framkvæmdastjori OECD í 12 ár. Hann er Hollendingur og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í Hollandi á sviði fjármála, og var m.a. ráðuneytisstjóri fjármála- ráðuneytis Hollands. Van Lennep kom síðast til íslands fyrir 10 árum en hann er nú á ferð um ýmis aðildarríki OECD.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.