Morgunblaðið - 28.11.1981, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
MANASILFURIII
IÐUNN
MÁNA
QTT rr TTJ
Ferskur tónn í íslenskri Ijóðagerð
RÓBÍNSON KRÚSÓ SNÝR AFTUR eftir Einar
Má Guðmundsson. Höfundur er eitt af álit-
legustu IjóÖskáldum meðal yngri manna.
RÓBÍNSON KRÚSÓ SNÝR AFTUR er
óvenju friskleg og skemmtileg Ijóðabók, full af
óvæntum uppákomum. Einkenni Ijóðstílsins er
fjör og hraði. Hann er hispurslaus og snarpur,
yrkisefnin öll kunnugleg og viðhorfin fersk. All-
ir sem vilja fylgjast með ungu Ijóöskáldunum
munu lesa þessa bók sér til ánægju.
Skondin lítil bók sem gleður augað
BLÁTT ÁFRAM, RAUTT, klippibók eftir Ás-
geir Lárusson myndlistarmann. Sérkennilegar
tilraunir með uppsetningu texta og mynda.
Skondin lítil bók sem gleður augað. Nýmæli í
bókagerð að nota texta þannig i myndrænum
tilgangi.
Skuggsjá íslensks mannlífs fyrri tíðar
MÁNASILFUR III, sýnishom úr íslenskum
sjálfsævisögum og minningarþáttum, tekið
saman af Gils Guðmundssyni.
MÁNASILFUR er orðið eitt vinsælasta rit-
safn sem út kemur hér um þessar mundir. í það
velur Gils Guðmundsson sýnishom úr íslensk-
um sjálfsævisögum og minningaþáttum. Hann
er jafnan fundvís á skemmtilegt efni og hefur
dregið fram margt hugtækt sem grafið er í
gömlum ritum og fáir þekkja. MÁNASILFUR
geymir ýmsar perlur islenskrar frásagnarlistar
að fornu og nýju.
Af rithöfundum, menntamönnum,
embættismönnum og alþýðufólki
sem samdi fyrstu íslensku sjálfsævisöguna.
Yngsti höfundurinn í bókinni er fæddur árið
1933.
í MÁNASILFRI stígafram karlar og kon-
ur úr ýmsum stéttum, reyndir rithöfundar,
menntamenn, embættismenn og forkólfar, en
einnig alþýðufólk sem engu síður kann að segja
frá. Og frásagnarefnin eru margs konar.
Hér segir frá bemskudögum i sveit á öld-
inni sem leið — og listsigrum á erlendu leik-
sviði; frá örlagastundum í þjóðarsögu, fundi í
stjómarráðinu á alvarlegum tímamótum, — og
hér er líka sagt frá samvistum við eftirlætis-
reiðhestinn. Hér getum við lesið um námsdvöl í
belgísku klaustri fyrir meira en hundrað árum,
— og svo um það hvemig lítill drengur á
Homströndum loerði að lesa i byrjun þessarar
aldar.
Efni þriðja bindis er ekki síður fjölbreyti-
legt en hinna tveggja sem áður eru komin. Höf-
undar eru 31. Hinir elstu fæddir á seinni hluta
sextándu aldar, annar Jón Ólafsson Indíafari
MÁNASILFUR er skuggsjá íslensks
mannlífs fyrri tíðar, lifandi myndasýning sem
verða mun ungum sem öldnum til fróðleiks og
skemmtunar og vex að gildi er stundir líða.