Morgunblaðið - 28.11.1981, Qupperneq 8
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 28. NÓVEMBER 1981
EINKASTRÍÐ TRAPPS eftir Brian Callison, í
þýbinyu Andrésar Kristjánssonar.
„Besti spennuhöfundurinn í dag,“
sagði Alistair MacLean
Brian Callison hefur skrifað margar sjó-
orustusögur úr heimsstyrjöldinni síðari. Og nú
er komin ný, hrikalegri en nokkur hinna,
EINKASTRÍÐ TRAPPS.
Hverjar voru hinar ógeðfelldu
endurminningar Trapps?
Þetta er á Miðjarðarhafi árið 191+2. Hafn-
bann Þjóðverja þrengir hægt og hægt að Möltu-
búum og brátt eru öll sund lokuð. Engin fleyta
getur siglt áfallalaust um þessar háskaslóðir
nema Karon, gamall, ryðgaður og hæggengur
kolabrennsludallur. Breski flotinn ákveður því
að grípa til hans. — Þessu skipi stjórnar
Edward Trapp, maður sem hefur marga hildi
háð og áhöfn hans er til alls búin. En Trapp býr
yfir ógeðfelldum minningum frá þeim tíma er
hann var ungur flotaforingi í heimsstyrjöldinni
fyrri. Hvers vegna skyldi hann nú kæra sig um
að ganga í strxð fyrir hinn konunglega flota?
Eina stríðið sem Trapp ætlar sér að heyja er
hans eigið einkastríð. Og í því skyldi öllu kostað
til, enda til mikils að vinna ...
„Snilldarvel rituð, æsileg
saga,“ Daily Telegraph
Ef menn vilja lesa æsispennandi og hroll-
vekjandi stríðssögur, þá verða þeir ekki sviknir
a/EINKASTRÍÐI TRAPPS. En það er rétt að
vera við öllu búinn. Það er nefnilega ekki fyrir
hvem sem er að lesa Brian Callison, — en
örðugra er þó að leggja bækur hans frá sér
hálflesnar. EINKASTRÍÐ TRAPPS er ósvikin
Callison-bók. Lesandinn mun sannreyna það
sem stóð í stórblaðinu Daily Mirror um þessa
bók:
„Á hverri síðu í þessari bók titra taugar
lesandans þegar eldurinn nálgast tundrið ...“
í DULARGERVI eftir Hammond Innes í þýð-
ingu Álfheiðar Kjartansdóttur.
Hammond Innes kann betur að segja
spennandi sögu enflestir aðrir. Hann sviðsetur
sögur stnar víða um heim og kynnir sér um-
hverfið jafnan mjög rækilega.
Hver var skipbrotsmaðurinn?
í DULARGERVI gerist í suðurhluta Mar-
okkó, þeim landshluta sem Frakkar kölluðu
„viðsjárvert svæði“. Sögumaður er staddur í
hafnarborginni Tangier. Hann er fyrrverandi
smyglari en hyggst nú snúa við blaðinu og ger-
ast trúboði. Áður en að því kemur verður hann
vitni að því er ókunnum skipbrotsmanni skolar
upp á ströndina. Það kemur í Ijós að maðurinn
er í fleiri en einum skilningi sloppinn úr mikl-
um háska. Hér telur hann sig geta fundið grið-
land og myndi sjálfsagt hafa gert það ef ekki
hefðufleiri orðið vitni að björgun hans. En þar
á meðal eru menn sem eiga ýmislegt vantalað
við þennan skipbrotsmann — eða þann sem
hann segist vera...
„Ef þig langar til að lesa ævintýralega
skáldsögu — og hver vill það ekki — þá geturðu
hrósað happi að fá þessa í hendur. Nafn
Hammond Innes er tryggingin fyrir því.
Enginn er honum fremri í að semja slíkar sög-
ur.“ (Star.)
í DULARGERVI — enn ein hörkuspenn-
andi saga frá Hammond Innes ferfram 'ifram-
andlegu umhverfi sem verður Ijóslifandi i með-
förum höfundar: hér getur allt gerst. Óðar er
lesandinn hrifinn inn i dularfulla atburðafléttu
og úr henni greiðist ekki fyrr en á síðustu blað-
síðu.
í DULARGERVI er bók þeirra sem vilja
ævintýralegar spennusögur.
SENDIBOÐI CHURCHILLS er rituð af Brian
Garfield og þýdd af Álfheiði Kjartansdóttur.
Söguhetja þessarar bókar er raunverulegur
maður og hann er nefndur Kristófer Creighton
í sögunni. Sagan byggir á hinni sérstæðu
reynslu hans í heimsstyrjöldinni síðari þegar
hann ungur piltur gerðist sendiboði Churchills,
vann þau verk fyrir leiðtogann sem mest var
undir komið og leynt áttu að fara. SENDIBOÐI
CHURCHILLS er ógleymanleg saga, — og sönn.
„Ein æsilegasta bók ársins, “ sagði stórblaðið
Daily Express, „eða hvaða árs sem er...“ Þetta
er sagan um það hvað Kristófer Creighton gerði
í stríðinu ...
Hann byrjaði sem
vikapiltur Churchills ...
Það byrjaði eins og hvert annað ævintýri.
Kristófer var þá aðeins fimmtán ára og komst í
kynni við Winston Churchill, roskinn þing-
mann sem ýmsir héldu að væri úr leik í stjóm-
málum. En það reyndist eitthvað annað !
Kristófer gengur i þjónustu Bangsimons, ugl-
unnar og Grislingsins (Churchills), en þannig
nefndu þeir sig á dulmáli barnasögunnar
frægu. Sjálfur var hann Jakob.
... og endaði sem „kappi“ hans
Kristófer hlýtur sérstaka þjálfun til verka
sem einungis voru ætluð hinum traustustu og
harðfengustu mönnum. Fyrst er hann sendur
til Belgíu í njósnaför, örskömmu fyrir innrás
Þjóðverja í Niðurlönd, síðan til írlands að
fylgjast með kafbátaviðbúnaði Þjóðverja. Þegar
hér er komið er hann orðinn „kappi“ Churchills
eins og leiðtoginn nefnir hann með tilvísun til
Karlamagnúsar.
En stríðið heldur áfram og viðfangsefni
Kristófers verða æ hrikalegri. Það virðast eng-
in takmörk fyrir því hvað lagt er á þennan
unga mann...
SENDIBOÐI CHURCHILLS er mögnuð
stríössaga, æsispennandi og samin af leikni
þjálfaðs höfundar. Hún heldur lesandanum
föngnum frá fyrstu til síðustu blaðsíðu. Það
styður mjög sannleiksgildi frásagnarinnar, að
hollenska flotamálaráðuneytið hefur staðfest að
hollenskur kafbátur hafi farist á þeim stað og
tíma sem sagan segir, en þar kom Kristófer
Creighton mjöy við sögu. Jafnframt bregður
hún upp afar lifandi og skemmtilegri mynd af
Winston Churchill sem á örlagastund axlaði
hinar þungu byrðar forystunnar í viðnámi
gegn ógnum nasismans og blés bresku þjóðinni
baráttukjarki í brjóst þegar verst horfði. Lýs-
ingin á honum gefur bókinni sérstakt gildi og
ekki síst hennar vegna mun þessi saga lengi lifa
í minni lesandans.