Morgunblaðið - 28.11.1981, Qupperneq 16
Blóðheit,
æriegllfssaga
LÍFSJÁTNING, endurminningar Guðmundu
Elíasdóttur söngkonu, skráðar af Ingólfi Mar-
geirssyni, er engin hversdagsleg æviferils-
skýrsla. Þetta er opinská, blóðheit, ærleg saga,
— ein eftirminnilegasta ævisaga sem hér hefur
komið út um langt skeið.
Ævisaga — ævintýri líkust
Guðmunda á að baki óvenjulegan feril,
saga hennar er ævintýri líkust, — og þó um-
brotasamari en nokkurt ævintýri. Hún segir
hér frá bemsku sinni og uppvexti á Vestfjörð-
um, dvöl í Reykjavík rétt fyrir seinna stríð,
starfi og námi í Kaupmannahöfn á myrkum
hemámsárum, þar sem hún hlýðir kalli söngs-
ins.
Tók þátt í 1. óperusýningu
Þjóðleikhússins
Hún greinir frá hjúskap sínum sem var
nokkuð rysjóttur á köflum, margvíslegum vina-
kynnum, listferli sínum og lífsbaráttu heima og
erlendis. Við lesum um viðburðaríka vist henn-
ar vestan hafs árum saman þar sem hún bjó
lengstum við þröng kjör, án þess að fara var-
hluta af þeim heiðri að syngja i útvarps- og
sjónvarpsstöðvum og koma fram í garði Hvíta
hússins. Á þessum árum söng hún víða við mik-
inn orðstír, hér heima tók hún meðal annars
þátt i fyrstu óperusýningu Þjóðleikhússins.
Frá vesturheimi til Danmerkur
og þaðan heim
Eftir Ameríkudvölina sest hún að í Dan-
mörku og býr þar í mörg ár, verður að hætta að
syngja og fæst við margt, gerist meira að segja
atvinnurekandi um skeið. Loks kemur að því
að hún flyst heim og tekur að stunda söng-
kennslu. Flest bendir til að líf hennar færist nú
i fastar skorður. En það er öðru nær: nú vitjar
ástin hennar á ný, hún kynnist hinum ógleym-
anlega bóhem og snillingi, Sverri Kristjánssyni
sagnfræðingi, þau giftast og eiga nokkur ár
saman. Við dauða hans lýkur frásögn Guð-
mundu i þessari bók.
Frá öllu þessu ævintýri lífs sins segir Guð-
munda af óvenjulegri hreinskilni og hispurs-
leysi, húmor og fjöri, en umfram allt mann-
eskjulegum næmleika og hlýju. Hlutur skrásetj-
arans, Ingólfs Margeirssonar, er mikill og góð-
ur. Hann er kunnur fyrir lifandi og skemmtileg
blaðaviðtöl við margs konar fólk. Hér hefur
honum tekist að skila Guðmundu Elíasdóttur
til lesandans: skaphita hennar og geðsveiflum,
lífsnautn hennar i sorg og gleði, æðaslœtti
manneskjunnar sjálfrar. Sá nákomni hugblær
sem verður til við trúnaðarsamband sögu-
manns og skrásetjara leikur um sögu Guð-
mundu frá upphafi til enda og gerir lestur
hennar að heillandi ævintýri. — í bókinni er
fjöldi mynda. LÍFSJÁTNING er ævisagan í ár.
yfir 50 myndir