Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 48
Síminná QQflQQ
afgretóslunni er OOUOO
Jtlorjjtmblfi&ifc
vy Símiáritstjórn ifliflfl
ogsKrifstofu: IU IUU
2$lor0iml)I(t£ní>
I’RIÐJUDAGUR 2. FEBRUAR 1982
Reykjavíkurborg:
Hjúkrunar-
fræðingar
ákveða verk-
fallsboðun
Á fundi som hjúkrunarfræðingar á
sjúkraslofnunum Koykjavíkurborg-
ar héldu á Borgarspítalanum í gær
var samþykkt að hnða til verkfalls
hjúkrunarfræðinga á þessum stofn-
Að sögn Svanlaugar Árnadóttur
mun Hjúkrunarfélagið senda
borgaryfirvöldum tilkynningu
þessa efnis, en samkvæmt lögum
ber þeim að hafa 15 daga fyrir-
vara frá tilkynningu verkfalls og
þar til það tekur gildi. Hún sagði
ekki ákveðið hvenær tilkynningin
yrði send. Fundur hjúkrunarfræð-
inganna í gær var fjölmennur.
Lesendaþjónusta
Morgunblaðsins:
Spurt og svarað
um skattamál
MOROUNBLAOH) veitir um
þessar mundir lesendum sínum
þá þjónustu að afla svara við
spurningum þeirra um skatta-
mál. Geta lesendur hringt í síma
10100 kl. 13 til 15 á mánudögum
til fostudaga og borið upp spurn-
ingar sínar viðvíkjandi skatta-
málum, útfyllingu framtalseyðu-
blaðs, frádráttarreglur o.fl.
atriði.
Morgunblaðið leitar svara
hjá Skattstofunni í Reykjavík
og hirtast þau síðan í blaðinu
ásamt spurningum. Nauðsyn-
legt er að spyrjendur láti uppi
nafn sitt og heimilisfang.
Þessi lesendaþjónusta verður
veitt þar til skilafrestur
skattframtals einstaklinga er
úti, þ.e. miðvikudaginn 10.
febrúar. Síminn er 10100 kl. 13
til 15 virka daga.
Sjá spurningar og svör
á miðopnu í dag.
Ingólfsfjall:
Tvennt ferst
í snjóflóði
TVÖ ungmenni fórust á sviplegan hátt á Ingólfsfjalli síðdegis síðastliðinn
laugardag er þau lentu í snjóflóði í gili í miðjum hlíðum fjallsins skammt
frá gömlu vegamótunum beint ofan við Kelfoss. Talið er að þau hafi látizt
samstundis. Að sögn björgunarsveitarmanna eru snjóflóð í Ingólfsfjalli
mjög fátíð og mundu þeir ekki eftir flóðum í fjallinu á þessari öld.
í þessu gili féll snjóflóðið. )>að hófst þar sem efri örin bendir og féll niður eftir
gilinu og neðri orin bendir á staðinn þar sem þau Sigrún og Bogi I’étur
fundust. l.jósm. Mhl. Kax.
Ungmennin, sem fórust, voru
Sigrún Ágústsdóttir frá Birtinga-
holti 4 í Hrunamannahreppi,
fædd 29. desember 1958, og Bogi
Pétur Thorarensen, Túngötu 48,
Eyrarbakka, fæddur 24. marz
1956. Þau höfðu búið saman í tvö
ár og stunduðu nám í Reykjavík.
Tildrög slyssins voru þau að
ungmennin höfðu farið um klukk-
an 14. á bíl frá Selfossi að fjallinu
og hugðust þau ganga um það.
Þeirra var síðan saknað er fór að
líða á daginn og var þá farið að
svipast um eftir bílnum. Fannst
hann um 6 klukkustundum síðar
og kallaði lögreglan þá út björg-
unarsveitina Tryggva á Selfossi
og var leit hafin um klukkan
21.00. Fljótlega fundust spor í
snjónum og voru þau auðrakin að
skriðunni og fundust ungmennin
fljótlega í miðri skriðunni þar
sem þau voru að hálfu leyti upp úr
snjónum. Voru þau þá látin og
talið var að þau hefðu látizt sam-
stundis en talsvert var af stór-
grýti í skriðunni.
Að sögn Sigurðar Óla Guð-
björnssonar, björgunarsveitar-
manns, sem þátt tók í leitinni,
virtust ungmennin ekki hafa bor-
izt langt með skriðunni. Sigurður
Óli sagði skriðuna hafa verið 100
til 150 metra langa, 6 til 8 metra
breiða og fremur grunna, hefði
hún byrjað ofanvert við mitt fjall-
ið. Þetta hefði verið í gili austan
til í fjallinu og snjór lítill í því,
aðallega í giljum eins og þessu.
Talsverður klaki hefði verið í
fjallinu og nýlegur snjór ofan á
því og hefði það líklega valdið
snjóskriðunni. Hann sagði leitina
hafa verið auðvelda, enda hefði
verið vel ratljóst meðan á henni
stóð, en skömmu síðar hefði verið
farið að skafa. Taldi hann líklegt
að skriðan hefði fallið snemma
um daginn.
Svar Alusuisse:
Leysum deilumálin fyrst
— að því loknu viðræður
„ALUSUISSE telur sig ekki reiðubúið
til raunhæfra viðræðna um breytingar
á samningi, fyrr en deilumál aðila
vegna viðskipta Alusuisse við ÍSAL á
undanfórnum árum hafa verið leyst,“
scgir m.a. í fréttatilkynningu frá iðn-
aðarráðuneytinu, sem barst Mbl. síð-
degis í gær. Dr. Miiller og Weibel,
forsvarsmenn Alusuisse, komu til
landsins á sunnudag og sat dr. Miiller
fund með forsætisráðherra á hádegi í
gær þar sem hann afhenti honum
skriflegt svar Alusuis.xe við tilmælum
íslenzku ríkisstjórnarinnar um endur
skoðun á aðalsamningi og fylgisamn-
ingum um álverið í Straumsvík.
Öðrum ráðherrum í ríkisstjórn-
inni var sent afrit af svarbréfinu,
sem dr. Múller afhenti forsætis-
ráðherra, en hann tilkynnti dr.
Lenti undir 10 hjóla vörubfl, en slapp ómeidd að mestu:
„Ég held að Guð
hafí passað mig“
„ÉG VAKD ofsalega hissa; — allt í
einu var ég undir vörubílnum og há-
vaðinn var ærandi og dekkin voru
rétt hjá mér. Ég rak mig upp undir
bílinn og hnipraði mig þá saman svo
ég ra'kist ekki aftur í hann og hélt
fast í fiðluna mína. Ilún rakst í
dekk hílsins, en það eina sem brotn-
aði var stóllinn á henni,“ sagði
Kristrún Inga llannesdóttir 10 ára
gömul stúlka á Akureyri í samtali
við Mhl. í gærkvöldi en í gær lenti
hún undir stórum 10 hjóla vörubíl,
sem með malarhlassi vó 18 tonn. Á
hreint undravcrðan hátt lenti hún
milli framhjóla bifreiðarinnar og
afturhjólanna einnig og s!app án
teljandi meiðsla.
Atvikið átti sér stað á gatna-
mótum Kaupvangsstrætis og
Hafnarstrætis, fyrir framan Hót-
el KEA á Akureyri klukkan 13.15
í gær. Sendibifreið hafði stað-
næmst á Kaupvangsstræti til að
hleypa gangandi fólki yfir götuna,
þegar stór vörubifreið kom ofan
götuna og lenti aftan á sendibif-
reiðinni. Höggið var svo mikið, að
sendibifreiðin kastaðist til hliðar,
en vörubifreiðin rann áfram yfir
gangbrautina, enda hálka mikil.
„Ég var á leiðinni í Tónlistar-
skólann og ætlaði yfir götuna með
mömmu þegar sendibíllinn kast-
aðist skyndilega til hliðar. Ég
hljóp af stað en datt í hálkunni og
skyndilega var ég undir bílnum og
ég hnipraði mig saman þegar ég
rakst upp undir hann. Ég meiddi
mig í höfðinu og öxlinni og svim-
aði þegar ég stóð upp og hljóp til
mömmu, sem hafði lent utan í
vörubílnum og kastast í götuna.
Ég var ákaflega feginn þegar bíll-
inn var runninn framhjá; ég held
að Guð hafi passað mig,“ sagði
Kristrún Inga.
Þær mæðgur voru fluttar í
sjúkrahúsið, en ekkert kom fram
sem benti til verulegra meiðsla og
báðar fengu þær að fara heim að
lokinni rannsókn.
MUller að hann myndi fjalla um
svarbréfið á ríkisstjórnarfundi sem
boðaður er árdegis í dag. Stjórnar-
fundur í ÍSAL var haldinn kl. 15 í
gærdag og þar fjallað um stöðu
fyrirtækisins og gerðu Weibel og dr.
Muller þar grein fyrir svari Alusu-
isse. Samkvæmt heimildum Mbl.
munu fulltrúar Alusuisse sitja fund
með formönnum stjórnarandstöðu-
flokkanna í dag, en þeir halda síðan
utan á morgun, miðvikudag.
Þegar Mbl. hafði samband við for-
stjóra ISAL, Ragnar Halldórsson,
Weibel og dr. MUller skömmu fyrir
stjórnarfund ÍSAL í gær vildu þeir
ekki tjá sig um málið, né innihald
svarbréfs þeirra til íslenzku ríkis-
stjórnarinnar, og sögðu ástæðuna
þá, að forsætisráðherra hefði æskt
þess, að ríkisstjórnin fengi tækifæri
til að kynna sér svar þeirra, áður en
um málið væri fjallað í fjölmiðlum.
Fréttatilkynningin frá iðnaðar-
ráðuneytinu fer hér á eftir í heild
sinni, en í lok hennar segir, að iðn-
aðarráðherra ætli að taka málið upp
í ríkisstjórn í dag:
„Um hádegi í dag barst iðnaðar-
ráðuneytinu svar Alusuisse við
ítrekuðum tilmælum íslensku ríkis-
stjórnarinnar um endurskoðun á
aðalsamningi og fylgisamningum
um álverið í Straumsvík, en ríkis-
stjórnin gerði samþykkt þar að lút-
andi 9. desember 1980 og ítrekaði
hana 16. júll 1981.
Á fundi viðræðunefnda íslands og
Alusuisse 3. og 4. desember sl. urðu
aðilar ásáttir um að leggja skoðana-
ágreining varðandi túlkun á ákvæð-
um samninganna í sambandi við
verðlagningu á hráefnum til hliðar í
bili og kanna leiðir til áframhald-
andi samstarfs. Hét Alusuisse svari
við tilmælum ríkisstjórnarinnar
fyrir 15. janúar en fékk síðan frest
til 1. febrúar samkvæmt sérstökum
tilmælum.
I svari Alusuisse kemur nú hins
vegar fram, að fyrirtækið telur sig
ekki reiðubúið til raunhæfra við-
ræðna um breytingar á samningi,
fyrr en deilumál aðila vegna við-
skipta Alusuisse við ísal á undan-
förnum árum hafa verið leyst.
Svar Alusuisse verður til umræðu
í Álviðræðunefnd í dag og iðnaðar-
ráðherra mun taka máíið upp í rík-
isstjórn á morgun."
Stjórn ÍSAL, framkvæmdastjóri og fulltrúar Alusuis.se, Weibel og dr. Miiller á
stjórnarfundi í gær. l.jósm Mbl. Kmilfa.