Morgunblaðið - 02.02.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1982
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
TIL FOSTUDAGS
- iiATthg-1
Vindhraði og vedurfregnir
í Mbl. 284. tbl. 68. árg. sem út
kom hinn 29. des. 1981 stendur á
bls. 47 „Fór í 14 vindstig í Eyjum“
í sama blaði frá 15. jan. sl. segir
„Vestmannaeyjar: 15 vindstig —
ekkert tjón.“ Hér er mikið ósam-
ræmi á milli og nánast villandi. í
fyrri fréttinni sem var um veðrið
að kvöldi jóladags er talað um
vindstig eftir mesta meðalvind-
hraða í 10 mín. svo sem venja er
og var þó frekar 15 vindstig en 14
(92 hnútar) og þá notaður vind-
stigakvarði sem tíðkaðist á tíma-
bili. Hæst í kviðu þá var 114 hnút-
ar (17 vindst.) Hitt veðrið sem tal-
að er um 15. jan. var að kvöldi 13.
jan. Þá var hæsti 10 mín. meðal-
vindur aðeins 68 hnútar eða 12
vindstig. Hinsvegar skar þá ein
hviða sig úr og náði 100 hnútum og
er það hún sem átt er við í seinni
fréttinni. Eftir fréttum blaðsins
var því seinna veðrið ívið verra
sem er víðsfjarri veruleikanum.
Veðrið að kvöldi jóladags er með
þeim verstu sem hér koma. Al-
gengast er að hviður fari 2 vind-
stig fram úr meðalvindi og gjarn-
an meira í SV átt.
Að lokum, þó að veðrið 13. jan.
hefði verið í hámarki á kortatíma
sjónvarpsveðurfregna, þá hefðu
sumir sjónvarpsveðurfræðingar
varla talið það meira en 9-10
vindstig „á miðum“ eftir leiðrétt-
ingu þar á bæ. Ekki minnkar mis-
ræmið við það og getur þá sama
veðurhæð orðið frá 9-15 vindstig
eftir hver á heldur.
Yestmannaeyjum 26.1. 1982,
Oskar J. Sigurðsson.
UB 40 skrifar:
„Það er margt sem virðist
fara framhjá hr. Flink“
IIB 40 skrifar:
Hr. flinkur virðist eiga bágt
með að skilja hvernig Bubbi
rokk-kóngur kemst hjá því að
vera auðkýfingur. 17.1. sl. skrifar
hann enn eitt bréfið í Velvakanda
og stendur að vanda á haus. Hr.
flinkur, hvernig dettur þér í hug
að verkamannakaup sé aðeins
1000 kr. á viku þegar lögbundin
lágmarkslaun í landinu eru í
kringum 6000 kr. á mánuði? Og
getur þú ímyndað þér að nokkur
atvinnurekandi reyni að halda úti
fyrirtæki með því að bjóða þessa
lágmarksupphæð? Þetta er hins
vegar upphæð sem sannir lista-
menn láta sér nægja. Sumir
þeirra ná ekki einu sinni þessari
upphæð. Það ætti jafnvel hr.
flinkur að geta reiknað út ef hann
þekkir eitthvað inn á t.d. rokk-
bransann.
Aftur á móti ætlast ég ekki til
að hr. flinkur skynji nokkurn mun
á lifandi gúanó- og bárujárns-
rokki Bubba annars vegar og
væmnum skallapopps-ballöðum
Bjögga Halldórs hins vegar. Það
væri einfaldlega til of mikils
mælst af manni sem ruglar sam-
an rokki og poppi.
Hr. flinkur staðhæfir að þrjár
bestu plötur ársins ’81 séu plötur
Start, Grafík og Friðryks. Jafn-
framt lætur hann þess getið að
hann sakni plötu frá Þursum.
Já, það er margt sem virðist
fara framhjá hr. flink. Hann veit
ekki af plötu Þursaflokksins
„Grettir". Og hvernig hlustar
hann á bestu plötu ársins ’81
„Pláguna" hans Bubba. Eða
„Mjötviður Mær“? Eða ...?
Nei, sennilega er hr. flinkur
bara misheppnaður brandarakarl.
Start, Grafík og Friðryk, ... ja,
kannski ekki svo slæmur brand-
ari. Hvernig finnst hr. flink
brandarakarli þá þessir brandar-
ar:
1. Textarnir á plötum Start og
Grafík eru þeir bestu sem heyrst
hafa frá því Lilja var kveðin!
2. Ryþma-dúett Start er sá
kraftmesti og liprasti sem heyrst
hefur frá upphafi rokksins!
3. Sándið á plötum Grafík og
Friðryks er það besta sem heyrst
hefur síðan half-speed-master
„Born To Run“-plata Bruce
Springsteens var sett á markað-
inn!
4. Start eru svo andríkir í list-
sköpun sinni að mönnum getur
alls ekki dottið ’70 model Uriah
Heep í hug þegar maður heyrir
t.d. „Sekur“.
Þakkir til sr. Sigurðar Hauks:
Frábær ræða
Til Velvakanda.
Ég vil færa sr. Sigurði Hauki
Guðjónssyni þakkir fyrir frá-
bæra útvarpsræðu, sem hann
flutti sunnudaginn 31. janúar.
Um leið langar mig að bera fram
þá ósk að pistillinn í heild fáist
birtur í blaðinu.
Okkur vantar ekki presta sem
skríða fyrir lýðnum, og fullyrða
oft og tíðum í sunnudagsræðun-
um sínum, að Drottinn elski
syndarann umfram aðra menn.
Við hversdagsmanneskjuna, sem
gerir skyldu sína fyrst og
skemmtir sér á eftir, hafi hann
ekkert að tala!
Okkur vantar fleiri eldpresta,
sem segja lýðnum svo rækilega
til syndanna, að hann hendist
upp með andfælum mitt i timb-
urmönnum helgardagsins.
Með þökk fyrir birtinguna,
Guðrún Jacobsen.
Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson
SIEMENS
Uppþvottavelín
i a r-% w • Vandvirk.
Lr\U T • Sparneytin.
SMITH & •
NORLAND HF.,
Nóatúni 4, sími 28300.
105
Höfum flutt
málflutningsskrifstofu okkar aö Garöastræti 6.
Hæstaréttarlögmenn
Þorsteinn Júlíusson, sími 14045.
Brynjólfur Kjartansson, sími 17478.
tipplG
Apple-tölvu- og forritakynning
kl. 4-6
Þriðjud. 2. febrúar:
Tollvörugeymsla
Ótrúlega auðvelt í notkun. Innifalið í forritun eru sölu-
yfirlit og ýmislegt fleira sem er nauðsynlegt við pant-
anaáætlanir.
Miðvikud. 3. febrúar:
Visi Calc — Visiplot
Forrit, sem reiknar stór dæmi á sekúndum, sem tæki
þig daga eða vikur. Tilvalið fyrir áætlanagerð.
Fimmtud. 4. febrúar:
Launaforrit
Ótrúlega fullkomið.
Föstud. 5. febrúar:
Visi Calc — Visiplot
Forrit, sem reiknar stór dæmi á sekúndum, sem tæki
þig daga eða vikur. Tilvalið fyrir áætlanagerð.
Allir velkomnir meöan húsrúm leyfir.
Vinsamlega mætið tímanlega.