Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 1

Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 1
96 SÍÐUR 39. tbl. 69. árg. SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. The Times of London: Verður útgáfunni hætt á mánudag? I>ondon, 20. ffbrúar. AP. RIJPERT Murdoch, útgefandi The Times of London, þess heimskunna dagblaðs, sem aðeins vantar þrjú ár í 200 ára afmælið, og systurblaðs þess, The Sunday Times, sagðist í gær mundu hætta útgáfu blaðanna nk. mánudag ef ekki hefði þá náðst samkomulag um að fækka í starfsliði þeirra um 600 manns. Næturlöng átök í Trípólíborg Koirut, 20. fchrúar. AP. SÝRLENSKIR hermenn í Líbanon börðust í alla nótt við liðsmenn úr tveimur vinstrisinnuðum samtökum í hafnarborginni Trípólí og er talið, að allnokkurt mannfall hafi orðið í liði beggja. Líbanska sjónvarpið og dagblöð þar í landi greina frá þessum átök- um í dag en ekki kom þar fram hver undirrótin að þeim var. Einna helst voru þau þó sett í samband við mikla sprengingu, sem í borginni varð sl. föstudag. Samtök, sem kenna sig við 24. október, og Andspyrnuhreyfing alþýðunnar eru sögð hafa gert at- lögu að herbúðum Sýrlendinga í borginni með sprengjuvörpum, handsprengjuregni og vélbyssuskot- hríð og hafi bardagar staðið alla að- faranótt laugardagsins. „Ég hef gert meira en að axla minn hluta byrðanna, nokkrar milljónir punda raunar," sagði Murdoch við fréttamenn á Heath- row-flugvelli þegar hann kom þangað í gær frá New York. „Það er ekki um neitt að semja lengur. Tölurnar tala sínu máli og dagur dómsins verður nú eftir helgina, á mánudaginn." Murdoch vill fækka starfs- mönnum blaðanna í 2000, úr 2600, til að rétta hallann, sem nemur 15 milljónum sterlingspunda árlega. Hann hafði lagt til, að starfsfólkið hefði sjálft frumkvæði að upp- sögnunum, en sl. föstudag höfðu aðeins 100 sagt starfi sínu lausu. Murdoch keypti blöðin fyrir réttu ári af Thomson-blaðasamsteyp- unni, en þá höfðu þau ekki komið út í tæp tvö misseri vegna deilna starfsfólks og eigenda þeirra. Reykingar valda c-vítamínskorti 20. fcbrúar. AP. Getnaðarvamarpillur, reykingar og ýmis algeng lyf eyða C-vítamín- inu úr líkamanum áður en hann fær að hafa af þeim full not. Svo segir í niðurstöðum nokkurra heimskunnra vísindamanna, sem þeir lögðu fram á ráðstefnu í há- skólanum í Warwick í Englandi nú nýlega. Líkaminn þarf mjög á C-víta- míni að halda og veldur skortur á því blæðingum úr tannholdi, kvefi og bláum blettum, sem líkjast marblettum og þegar verst gegnir skyrbjúg. Við rann- sóknirnar kom í ljós, að C-víta- mín í blóði kvenna, sem nota getnaðarvarnarpillur, er miklu minna en í blóði kynsystra þeirra, sem aðra getnaðarvörn nota. Astæðan er sú, að hvatarn- ir eða hormónarnir í getnaðar- varnarpillunum stuðla að auknu eggjahvítuinnihaldi í blóðinu, en eitt þeirra brýtur niður C-víta- mínið.sem kemur þá að litlu gagni í líkamanum. Verkjalyfið aspirín hindrar einnig blóðið í að taka upp C-vítamín og flytja það um lík- amann og bitnar það t.d. mjög á gigtarsjúklingum, sem nota mik- ið þetta lyf. Það kom enda í ljós, að í blóði gigtarsjúklinga er minna C-vítamín en alla jafna hjá öðru fólki. Reykingamenn mega vara sig á C-vítamínskorti. Dr. Kallner, frá Karólínska-sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, ræður t.d. reykinga- mönnum að taka daglega 140 milligrömm af C-vítamíni, sem er þrefalt það, sem annars er tal- ið nauðsynlegt. Samdráttur í olíu- framleiðslu London, 20.febrúar. AP. Samkvæmt áreiðanlegum heimild- um hafa Saudi-Arabar dregið úr olíuframleiðslu sinni, vegna þess mikla framboðs sem er á olíu, en sérfræðingar segja framleiðslutak- mörkunina of litla til þess að koma á jafnvægi milli framboðs og eftir spurnar. Saudi-Arabar hafa ákveðið að minnka framleiðsluna um eina milljón olíufata á dag, úr 8,5 millj- ónum fata í 7,5 milljónir. Er þá olíuframleiðsla ríkja annarra en kommúnistaríkja um 20 milljónir fata á dag, en var um 30 milljónir olíufata fyrir tveimur árum. Oliuráðherra íraks hvatti til þess í dag, að haldin yrði neyðar- fundur OPEC-ríkja vegna stöð- ugrar verðlækkunar á oliu á heimsmarkaði og mikillar birgð- asöfnunar vegna offramleiðslu. Forseti OPEC hefur nýverið hvatt til fundar af þessu tagi, þar sem næsti reglulegi fundur samtak- anna verður ekki haldinn fyrr en 20.maí. Vestrænir sérfræðingar álíta að olíuverð eigi eftir að lækka enn um sinn, en það hefur fallið jafnt og sígandi undanfarna mánuði vegna orkusparnaðar og almennr- ar kreppu í atvinnulífi á Vestur- löndum er dregið hefur úr eftir- spurn. Óháðir þingmenn í oddastöðu á írlandi Dyflinni, 20. Tebrúar. AP. Úrslit írsku þingkosninganna voru óljós þegar Morgunbladið fór í prentun í gær, en þó Ijóst að óháðir þingmenn kæmust í oddastöðu á þingi. Þegar Ijós voru úrslit í kosningum um 156 þingsæti af 166, hafði flokkur Charles Haugheys fyrrum forsætisráðherra, Fianna Fail, hlotið 77 þingsæti, flokkur Garrett Fitzgeralds forsætisráðherra, Fine Gael, 60 og Verkamannaflokkurinn 13. Stjórnarflokkarnir höfðu því fengið 73 þingmenn. Smáflokkar og óháðir, sem spáð hafði verið lakri útkomu, höfðu hlotið sex þingsæti. Þótt endanleg úrslit yrðu ekki kunn fyrr en seint í dag, gerðu kosningaspár ráð fyrir því í morgun, að flokkur Haugheys bætti við sig þremur mönnum og hlyti 81 þingsæti, og stjórn- arflokkarnir fengju 79 þingsæti, sem er einu sæti færra en í júníkosningunum í fyrra. Ur- slitin yrðu því nánast þau sömu og í fyrra, og munu allar til- raunir til stjórnarmyndunar ráðast af afstöðu sex óháðra þingmanna. Fitzgerald forsætisráðherra neitaði að játa ósigur í nótt, en Haughey lýsti því yfir að hann mundi mynda næstu ríkisstjórn írlands. Talið er að Haughey muni eiga erfitt uppdráttar þar sem óánægðir þingmenn í hans flokki hyggist láta sverfa til stáls og reyna að knésetja hann. írska þingið kemur saman 8. marz nk. og kemur þá væntanl- ega í ljós hvaða flokkar verða við völd, en hverjar sem niður- stöðurnar verða, er því spáð að næsta stjórn írlands verði veik. Stjórn Fitzgeralds var veik í sessi og kom engu meiriháttar máli í gegnum þingið nema með talsverðum breytingum. Eitt helzta viðfangsefni næstu stjórnar verður að ráða bót á gífurlegu atvinnuleysi og verð- bólgu. Um 13 af hundraði vinnu- færra Ira eru atvinnulausir og verðbólgan er hin mesta í Efna- hagsbandalagsríki, eða 23%.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.