Morgunblaðið - 21.02.1982, Qupperneq 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
Sjónvarp ki. 21.05:
Líkamlegt samband í Norðurbænum
Sjónvarpsleikrit eftir Steinunni Sigurðardóttir
Móðirin «g ðéttirin (IrikritÍMi „Liluunlegt samband f Norðurb»nuin“
„Líkamlegt samband í Norður
bænum“, leikrit fyrir sjónvarp eftir
Steinunni Sigurðardóttur, er á
dagskrá sjónvarps kl. 21.05 í kvöld.
Leikstjóri er Sigurður Pálsson en
stjórn upptöku annaðist Viðar Vík-
ingsson. I fréttatilkynningu frá sjón-
varpinu segir um efni leikritsins:
Hjón í Norðurbænum eiga sér
stúlku sem er ennþá haldin ungl-
ingslegum mótþróa. Maðurinn er
eldri en konan. Sæll með hvers-
daginn og dundið. Hefur einna
helst áhyggjur af afkomunni; yfir-
vinnan bregst, naumara má ekki
standa. Konan sættir sig ekki við
hversdaginn og leiðann. Hún reyn-
ir örvæntingarfull að finna sér
lífsfyllingu í heimilistækjum.
Þetta er orðin ástríða, sem öllu er
fórnað þegar við kynnumst henni.
Tækjakaupmaðurinn mokar inn
tækjum. Tengslin við veruleikann
eru einna helst gegnum tækin og
stigmögnun þessa tæknidraums.
Bíll! Bifreið skal það vera! Hreyf-
ing og tæknimýkt og spenna! Hún
kann ekki að keyra, en setur það
ekki fyrir sig. Þar kemur að bönd-
in bresta og hún festir kaup á
f KAUPMENN- VERSLUNARSTJÓRAR
AVEXTIR
IKUNNAR
Bartanar — Epli rauö USA — Epli graan frönsk
— Appelsínur Jaffa — Appelsínur blóö, ítalsk-
ar — Greipaldin Jaffa — Greipaldin Kýpur —
Sítrónur Jaffa Vi kassar — Vínber grœn Cape
— Vínber blá Cape — Plómur rauöar Cape —
Ferskjur Cape — Perur ítalskar — Avocado —
Melónur Brazilía.
EGGERT KRISTJAIMSSON HF
Sundagörðum 4, sími 85300
E4
brýtur verðbólgumúrinn -besta kjarabótin!
Verð
kr.Q4.500,-
Góðir greiðsluskilmálar.
draumnum með afborgunum. Eig-
inmaðurinn kemur henni á
sjúkrahús eftir áfallið, þegar hún
brotlenti eftir háfleygan draum-
inn, sem var á skjön við allan
veruleika og skynsemi. Þá hrakar
henni meir og meir. Tækjakaup-
maðurinn heimsækir hana. Dóttir
hennar nær loksins einhvers kon-
ar sambandi við hana og fjarlæg-
ist að sama skapi vinkonu foreldr-
anna, sem komin er til bæjarins
utan af landi til þess að leita sér
lækninga. Vinkonan valsar um
tæknina í eldhúsinu og hefur ekk-
ert tilfinningaþrungið líkamlegt
samband við tækin ...
Leikendur eru Margrét Guð-
mundsdóttir, Baldvin Halldórs-
son, Edda Björgvinsdóttir, Mar-
grét Helga Jóhannsdóttir, Pétur
Einarsson, Guðbjörg Þorbjarn-
ardóttir, Þorsteinn Gunnarsson,
Gísli Rúnar Jónsson, Anna Ein-
Steinunn
Sigurðar
dóttir
Sigurður
Pálsson
arsdóttir, Guðlaug María Bjarna-
dóttir, Elísabet Bjarklind Þóris-
dóttir, Hallmar Sigurðsson, Þóra
Friðriksdóttir, Guðný Helgadótt-
ir, Jóhanna Norðfjörð, Guðlaug
Hermannsdóttir, Helga Jónsdótt-
ir, Björn Karlsson, Guðjón Ein-
arsson, Örn Þorláksson og Einar
Már Jónsson.
Myndatöku annaðist Vilmar
Petersen og hljóð Vilmundur Þór
Gíslason, en leikmynd er eftir
Baldvin Björnsson.
Sjónvarp kl. 21.10
á mánudaj'skvöld:
LADA SAFÍR kr. 79.100.-
LADA CANADA kr. 87.400.-
LADA SPORT kr. 129.800.-
Munið að varahlutaþjónusta okkar er i sérflokki.
iii Bifreiðar og Landbúnaðarvélar h Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600 if 3
LliV?
Svarthöfði
„Svarthöfði", sænskt sjónvarps-
leikrit eftir Barbro Karabuda, er á
dagskrá sjónvarps kl. 21.10. Leikrit-
ið segir frá tyrknoskri bóndafjöl-
skyldu, sem kemur til Svíþjóðar, og
kynnum þeirra af velferðarþjóðfé-
laginu þar. Aðalpersónan er Vasar,
ellefu ára gamall piltur, og sjáum við
hann á myndinni hér að neðan.