Morgunblaðið - 21.02.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
21
Björgvin Júníus-
son - Kveðjuorð
Á einu augnabliki, þann 8.
febrúar síðastliðinn, breytti Akur-
eyrarbær um svip. Okkur fannst,
ef t.d. gamalt, fallegt hús, sem við
höfum séð og gengið hjá svo lengi
sem við munum, hverfur allt í
einu, breytist svipur bæjarins.
En þessi svipbreyting, sem nú
varð, er annars eðlis.
Hann Björgvin Júníusson fór úr
bænum, var kallaður á brott frá
þessu lífi, frá ástvinum sínum, frá
okkur öllum. Ég veit, að það finnst
fleirum en mér, að Björgvin hafi
verið hluti af þessum bæ, sem
hann setti svo mikinn svip á.
í staðinn fyrir gömlu húsin
koma ný og hin gleymast, en í
staðinn fyrir Björgvin kemur eng-
inn. Það er ekki hægt, það var og
verður bara einn slíkur.
Ég ætla ekki með þessum línum
að rekja ættir eða starfsferil
Björgvins, ég ætla bara að þakka
fyrir mig. Ég var svo heppin, þeg-
ar ég fluttist í þennan bæ, að
þekkja frá fyrri tíð konuna hans,
hana Foldu, einhverja þá heiðar-
legustu og hjartahlýjustu mann-
veru, sem ég hefi kynnst. Það áttu
þau bæði sameiginlegt. En ég fékk
sem sagt tækifæri til að kynnast
Björgvin.
Og núna, sem ég sit hérna, finn
ég hve þau kynni voru mér mikils
virði. Ég gat alltaf treyst á hann,
hvort sem ég fór til hans með gleði
mína eða sorgir. Alltaf hafði
Björgvin tíma til handa öðrum.
Ég þakka Björgvin allt, sem
hann gerði fyrir mig og fjölskyldu
mína og fyrir að hafa fengið að
vera samferða honum í nokkur ár.
Elsku Folda og þið öll, sem átt-
uð Björgvin að. Megi góður guð
hjálpa ykkur að halda áfram.
Hrafnhildur
Sprenging í Washington
Washington, 19. febrúar. AP.
SPRENGING varð í morgun fyrir
utan skrifstofu sovézka flugfélags-
ins Aeroflot í Washington, en olli
litlu eignatjóni og engan sakaði.
Maður, sem kallaði sig fulltrúa
Varnarsambands gyðinga, hringdi
í AP til að taka á sig ábyrgðina á
sprengingunni.
Hann sagði að samtökin krefð-
ust þess, að sovézk yfirvöld
slepptu unglingsstúlku, en lagði á
áður en hann sagði hvað hún héti
fullu nafni. Fyrra nafn hennar
virðist þó vera Maria eða Marina.
„Ef henni verður ekki sleppt
innan einnar viku verður sovézku
blóði úthellt í Washington," sagði
hann.
Sprengjunni var komið fyrir í
bréfpoka í inngangi byggingarinn-
ar. Ein af glerdyrum Aeroflot
brotnaði. Nærstatt fólk kvaðst
hafa heyrt tvær sprengingar, en
lögreglan talaði um eina spreng-
ingu og verið getur að um bergmál
hafi verið að ræða í seinna skiptið.
\ tilefni konudagsins:
Nýafskorin,
falleg blóm
Eigum gott úrval af afskomum blómum.
Fersk og falleg blóm, sem eru ræktuð hér á
staðnum í gróðurhúsum okkar.
FaDeg blóm gleðja alla.
ef augun þín skipta þig einhverju máli.
pta pig einnverju n
ættir þú aogefa þei m kost á því
besta sem völ er á.
f gæölim og lit
Luxor
* gefbuþeimþá
sjónvarpstæki
Myndlampinn sem er í hverju LUXOR-tæki er sérstaklega
prófaður aftur eftir að tækiö hefur veriö sett saman, er einn
fullkomnasti myndlampi í heiminum í dag.
Fyrir utan fullkominn myndlampa, er hljómur LUXOR-tækj-
anna ekki siðri, en hann kemur úr sérsmíöuöu HIFI hátölur-
um sem eru í hverju tæki í stereo allt upp í 45000 din.
26“ verð aðeins 14.300,-
Mjög góð greiðslukjör
.|P HLJÓMTÆKJADEILD
KARNABÆR
HVERFISGÖTU 103 SIMI 25999