Morgunblaðið - 21.02.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.02.1982, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982 Á MORGUN fæðingardegi Baden-Powells, 22. febrú- ar, fagna íslenzkir skátar fjórum stórafmælum: 75 ára skátastarfi í heiminum, 70 ára skátastarfi á Islandi, 60 ára kvenskátastarfi á ís- landi og 50 ára hjálpar sveitastarfi skáta á íslandi. Á landinu eru í dag starf- andi 38 skátafélög víðs veg- ar um land, auk þess sem 12 hjálparsveitir og 5 St. Georgs-gildi starfa í tengsl- um við hreyfinguna. Alls eru því undir skáta- merkjum um 5.500 íslend- ingar í dag. Sir Baden-Powell, fullu nafni Robert Stephenson Smith Baden- Powell, stofnandi skátahreyf- ingarinnar, fæddist í London 22. febrúar 1857. Hann útskrifaðist úr herforingjaskóla, Charterhouse- skólanum, 19 ára að aldri og hafði þá varið miklum tíma til útivistar í skógum, við siglingar á ám, dýra- og fuglaveiðar. Að loknu námi var hann sendur til Indlands og Afr- íku, og kynntist þar frumstæðu fólki og lifnaðarháttum þess. I Búastríðinu var honum falin vörn járnbrautarþorpsins Mafeking, og er sú vörn — við hina mestu erfið- leika — víðfræg. I sjö mánuði fylgdust Bretar kvíðafullir með fréttum af umsátrinu, sem lauk í maímánuði árið 1900. Var Baden- Powell talinn þjóðhetja upp frá því. Arið 1910 gekk Baden-Powell úr hernum og gaf sig upp frá því óskiptur að skátahreyfingunni. Dvöl hans á Indlandi og í Afríku hefur áreiðanlega haft mjög mót- andi áhrif á hugmyndir hans um hreyfinguna, en hann vann að uppbyggingu hennar af óþreyt- andi áhuga. Eftir að skátahreyf- ingunni óx fiskur um hrygg fór Baden-Powell víða um lönd og var hvarvetna aufúsugestur. Hann lézt árið 1941, á áttugasta og fjórða aldursári. Skátalögin Skáti segir évalit satt og gengur aldrel é bak orSa sinna. Skáti er tryggur. Skéti er hæverskur I hugsunum, orSum og verkum. Skéti er hlýBinn. Skéti er glaðvaer. Skéti er þartur öllum og hjélpsamur. Skáti er drengilegur i allri hátteemi. Skáti er sparaamur. Skátl er dýrévinur. Allir skátar eru gódlr tagsmenn. Skátaheitið lagði Baden-Powell mikið upp úr því að allt starf færi fram í flokk- um. Kjörorðið var „Vertu viðbú- inn“ og var fengið frá suður- afrísku riddaralögreglunni, en hana hafði Baden-Powell stofnað og stjórnað. Skátahreyfingin hóf starfsemi sína formlega árið 1908 og ári síð- ar var Baden-Powell hylltur á móti í Crystal Palace í London, þar sem saman voru komnir um 11.000 skátar. Frá þeirri stundu breiddist skátahreyfingin út um allan heim eins og eldur í sinu. Fyrst voru eingöngu drengir í skátahreyfingunni, en fljótlega hófst einnig sérstakt stúlknastarf og fékk Baden-Powell systur sína, Agnesi, til liðs við sig og skipu- lögðu þau kvenskátahreyfingu. Ekki verður skilið við stutta upprifjun á sögu frumherjans án þess að eiginkonu hans sé minnzt. Lady Baden-Powell stóð þétt við hlið manns síns í skátastarfinu og eftir andlát hans hélt hún uppi merki hans, sem leiðtogi skáta- starfs í heiminum. Ásgeir Ásgeirsson, fyrrverandi forseti ís- lands, minnist heimsóknar hennar til Bessastaða í hópi íslenzkra Ég lofa «8 gera paS, »m i mínu valdi etendur, til þeas: að gera ékyldu mfna vl8 guð og œttjðrðlna, að hjálpa öðrum, að halda ékátalðgin. Kjörorð skáta Vertu vWbátnnt Skátalögin, skátaheitið og kjörorð skáta, sem hljómað hafa í heiminum í 75 ár. Kynni íslendinga af skátastarfi hefjast sumarið 1911 er hingað til lands kom maður að nafni Ingvar Ólafsson, sem hafði dvalizt í Danmörku um hríð og kynnzt þar starfsemi skáta. Skátafélag Reykjavíkur var þó ekki formlega stofnað fyrr en ári síðar, eða 1912, og var þá aðeins ein sveit stofnuð, sem var undir stjórn Sigurjóns Péturssonar. Skömmu síðar urðu sveitirnar þrjár og sveitarforingj- ar þeir Benedikt G. Waage og Helgi Jónsson. Næst á eftir Skátafélagi Reykjavíkur komu Væringjar í Reykjavík. Stofnandi þeirra var hinn kunni æskulýðsleiðtogi, síra Friðrik Friðriksson. Það félag hafði að ýmsu leyti sérstöðu innan hreyfingarinnar, bæði það að í fyrstu var það ekki stofnað sem skátafélag, þó starfsemin sveigð- ist fljótt í það horf, og svo hitt, að það var stofnað innan vébanda KFUM í Reykjavík. Gripið er hér á ný niður í skrif Ásgeirs Ásgeirssonar, fyrrverandi forseta Islands, um skátahreyf- inguna í skátabókinni. Þar segir hann um fyrstu kynni sín af skátastarfi: „Þó ég hafi ekki verið skáti, þá á ég margar ljúfar endurminningar um þann góða fé- lagsskap. Ein sú fyrsta er nokkuð eldri en Skátabandalagið sjálft. Ég mætti Matthíasi Éinarssyni lækni, sem var ágætur íþrótta- maður, á Laufásveginum. Hann mælti: „Komdu með mér frændi, og ég skal sýna þér merkilegan hlut.“ Við gengum saman niður í Barnaskólaport, þar var saman kominn stór hópur ungra pilta og á skólatröppunum stóð Áxel V. Skátastúlkur taka lagið. Myndin er tekin árið 1948, en því miður fylgdu myndinni ekki nöfn stúlknanna. Lord Baden-Powell, stofnandi skáta- hreyfingarinnar. Baden-Powell leggur grunn að skátahreyfingunni í bók sinni „Skátahreyfingin". Undirstaðan var skátaheitið og lögin og einnig skáta með svofelldum orðum í Skátabókinni, útgefinni af BSÍ 1974: „Frá Bessastöðum minnist ég þess, þegar Lady Baden-Powell kom í heimsókn í fylgd með skáta- stúlkum og piltum. Hún var þá skátahöfðingi að manni sínum látnum og það var eins og hann stæði sjálfur ósýnilegur við hlið þessarar glæsilegu konu.“ Skátar fagna merkum tímamótum ertu iöbmnn! I.jósm. Mhl. Fríð» l'roppó. Varðeldur og varðeldasöngvar eru ómissandi þáttur í hverri skátaútilegu. Frá Landsmóti skáta í Kjarnaskógi sl. sumar. Á landsmótum taka þátt í leik og starfi skátar á öllum aldri. Hér má sjá nokkra þeirra sem mættu á varðeld í Kjarnaskógi í sumar. Fremst á myndinni til vinstri eru tveir elztu starfandi skátar á íslandi í dag. Sá með hattinn er Óskar Pétursson, sem á lengst skátastarf að baki, en til vinstri er Eiríkur Jóhannesson sem er elztur núlifandi íslenzkra skáta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.