Morgunblaðið - 21.02.1982, Side 27
27
ekkert er til sparað í tilkostnaði.
Stúlkurnar búa á dýrustu hótelum
sem völ er á og verður boðið á fína
veitingastaði og þess háttar."
Reynsla í sýningar
störfum ekki skilyrði
„Það er annað sem ég vil einnig
leggja áherslu á, en það er að
stúlkurnar þurfa ekki að hafa
stundað sýningarstörf áður til að
vera gjaldgengar í þessa keppni.
Sú sem sigraði í samkeppninni
fyrir tveimur árum var norsk
sveitastelpa, Annette Stai, sem
aldrei hafði komið nálægt sýn-
ingarstörfum áður. Nú er hún í
hópi hæst launuðu fyrirsæta í
heimi og myndir af henni eru birt-
ar á forsíðum þekktustu tísku-
blaða í veröldinni.
Eins og ég sagði áðan, munum
við fylgja þeim reglum sem gilda
annars staðar í þessari keppni.
Þar er að vísu sagt, að mesta
möguleika eigi stúlkur sem eru á
milli 1,73 og 1,78 á hæð, á aldrin-
um frá 18 til 21 árs og ógiftar, en
auðvitað eru alltaf til undantekn-
ingar frá þessu og þótt einhverju
muni í þessu tilliti ætti það ekki
að fæla stúlkur, sem hafa áhuga,
frá þátttöku.
Ein helsta ástæðan fyrir því að
við tökum að okkur framkvæmd
þessarar forkeppni er að við vitum
að hér er ekki um neina vitleysu
að ræða eins og oft vill verða. Við
erum ekki að senda stúlku í hend-
urnar á einhverjum ævintýra-
mönnum heldur til mjög traustra
aðila. Eileen Ford er þekkt fyrir
hversu vel hún hugsar um stelp-
urnar sínar og ef þær stunda ekki
starf sitt eða fara að fara of mikið
út á lífið að hennar dómi, eru þær
sendar heim. Þess eru jafnvel
dæmi, að ef henni hefur fundist
þær eyða of miklu af kaupinu sínu
sendir hún launin heim til foreldr-
anna.
Þetta er því einstakt tækifæri
fyrir stúlkur sem hafa áhuga á
sýningarstörfum og það sem ef til
vill skiptir mestu máli er, að hér
gefst þeim tækifæri til að komast
milliliðalaust í samband við
þekktustu umboðsskrifstofu
heims á þessu sviði, án þess að
þurfa fyrst að striplast um á
sundbol í fegurðarsamkeppni út
um allar trissur." Sv.G.
hernum fór hann að hjálpa henni
við bókanir og áður en varði var
starfsemin orðin svo umfangsmik-
il og þau ákváðu að stofna um-
boðsskrifstofu, sem nú er sú
þekktasta sinnar tegundar í heim-
inum.
Miklar breytingar hafa orðið á
störfum fyrirsæta frá því að þau
hjón hófu starfsemi sína. Fyrstu
árin var starfið illa launað enda
litu flestar stúlkurnar á það sem
skemmtilegan leik og oft á tíðum
voru einu launin þeirra ánægjan
yfir að sjá sig á mynd í einhverju
blaði. Þetta hefur tekið miklum
breytingum, einkum hin síðari ár,
og eftirsótt fyrirsæta getur haft
yfir tvö þúsund dali í laun fyrir
eins dags vinnu.
„Kisavaxin hæfíleikaleit“
í umræddri grein í „Cosmopolit-
an“ er fjallað í löngu máli um
samkeppnina „Face of the 80’s“,
sem þau hjón hleyptu af stokkun-
um fyrir tveimur árum. Þar segir
að keppnin sé annað og meira en
venjuleg fegurðarsamkeppni. Hér
sé um að ræða „risavaxna hæfi-
leikaleit", sem nái til allra heims-
horna.
í greininni er fyrstu keppninni
lýst í smáatriðr n og má af þeirri
lýsingu ráða, að keppnin sé ein-
hver merkasti viðburður í hinum
alþjóðlega tískuheimi. Þar er
einnig sagt, að fyrsta sætið skipti
ekki öllu máli, því að svo vel sé
fylgst með keppninni að eingöngu
með þátttöku sinni eigi stúlkurnar
mikla möguleika á að komast
áfram í tískuheiminum. Það verð-
ur því að taka undir staðhæfingar
um, að hér sé á ferðinni einstakt
tækifæri fyrir íslenskar stúlkur,
sem hafa hug á sýningarstörfum.
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982
Bridge
Arnór Ragnarssón
Bridgefélag
Kópavogs
Haukur Hannesson og Valdi-
mar Þórðarson sigruðu í 5
kvölda barometerkeppni sem
nýlega er lokið. Hlutu þeir félag-
ar 280 stig yfir meðalskor. AUs
tóku 30 pör þátt í keppninni.
Röð næstu para:
Dröfn Guðmundsdóttir
— Einar Jónsson 254
Grímur Thorarensen
— Guðmundur Pálsson 194
Erla Sigurjónsdóttir
— Ester Jakobsdóttir 187
Ármann J. Lárusson
— Ragnar Björnsson 180
Aðalsveitakeppni félagsins
hefst fimmtudaginn 25. febrúar.
Keppnin hefst kl. 20. Spilað er í
Þinghól og eru allir velkomnir
meðan húsrúm leyfir.
Tafl- og bridge-
klúbburinn
Sl. fimmtudag voru spilaðar
tvær umferðir í sveitakeppninni.
og er nú aðeins einni umferð
ólokið. Sveit Bernharðs Guð-
mundssonar hefir örugga for-
ystu með 162 stig en sveit Gests
Jónssonar er eina sveitin sem
getur náð þeim að stigum, er
með 148 stig.
Sveit Sigurðar Steingrímsson-
ar er með 124 stig og sveit Þór-
halls Þorsteinssonar hefir 122
stig.
Ellefta og síðasta umferðin
verður spiluð á fimmtudag í
Domus Medica og hefst kl. 19.30
stundvíslega.
Nokkrar upplýsingar um mögulega óvöxtun
á verötryggðum sparnaöi
Leiöum til þess að verðtryggja fé hefur fjölgað og hægt er að velja mismunandi ávöxtun.
Fólk þarf því að mörgu að hyggja, þegar það festir fé sitt. Sumum hentar best binding i
skamman tíma, aðrir eru reiðubúnir til þess að binda fé lengur og fá í staðinn betri ávöxtun,
og svo er þriðji hópurinn, sem vill verðtryggja fé sitt um óákveðinn tíma, en getur þurft á
því að halda að losa það með stuttum fyrirvara.
Allir þessir aðilar geta fundið leið til fjárfestingar við hæfi.
Við höfum víðtæka reynslu í verðbréfaviðskiptum og fjármálalegri ráðgjöf og miðlum þeirri
þekkingu án endurgjalds.
Hringir þú eða heimsækir þú okkur, færðu alla nauðsynlega ráðgjöf um hagkvæmustu
ráðstöfun sparifjár þins.
Leiðin sem hentar þér best, ræðst af þörfum þínum - en hún getur m.a. verið:
Verðtryggður sparisjóðsreikningur, verðtryggð spariskírteini ríkissjóðs eða verðtryggð
veðskuldabréf.
VERÐTRYGGÐUR SPARNAÐUR - SAMANBURÐUR A AVÖXTUN
Verðtrygging m v lánskjaravísitölu Nafn- vextir Raun- ávöxtun Fjöldi ára til að tvöf. raungildi höfuðstóls Raunaukning höfuðst.eftir9ár
VEÐSKULDABRÉF 2,5% 8% 9ár 100%
SPARISK. RlKISSJ. 3.2% 3.2% 22 ár 33.4%
SPARISJÓÐSREIKN 1% 1% 70 ár 9.4%
100%
Verðtryggð
veöskuldabréf
Dæmi um
raunaukningu
höfuöstólseftir9ár.
Verðtryggð
spariskirteini ríkissjóðs
33,4%
Verðtryggður
sparisjóösreikningur
9,4%
Veröbréíániarkaður
Fjárféstingarfclagsins
LækjargötuÍ2 ÍOÍ Reykjavik
Iðnaóarbankahúsinu Sfmi 28566
W
Hj '
■
:
Bridgedeild Breið-
firðingafélagsins
Þrjátíu lotum af 47 er lokið í
barometerkeppninni og gerðist
það markverðast sl. fimmtudag
að Steinunn Snorradóttir og
Vigdís Guðjónsdóttir tóku hæstu
skor til þessa í keppninni, fengu
90 af 115 stigum mögulegum í
síðustu setunni.
Köð efstu para:
Bergsveinn Breiðfjörð
— Tómas Sigurðsson 470
Jón G. Jónsson
— Magnús Oddsson 470
Kristófer Magnússon
— Ólafur Gíslason 459
Guðjón Kristjánsson
— Þorvaldur Matthíasson 451
Jóhann Jóhannson
— Kristján Sigurgeirsson 434
Halldór Helgason
— Sveinn Helgason 397
Ólafur Valgeirsson
— Ragna Olafsdóttir 340
Yngvi Guðjónsson
— Halldór Jóhannesson 269
Ása Jóhannsdóttir
— Sigríður Pálsdóttir 256
Guðrún Bergsdóttir
— Inga Bernburg 254
Næstu lotur verða spilaðar á
fimmtudaginn í Hreyfilshúsinu
og hefjast stundvíslega kl. 19.30.
Bæjarleiðir — BSR
— HreyfiII
Tuttugu og sex pör taka þátt í
barometerkeppni bílstjóranna
og er 10 lotum af 25 lokið.
Staða efstu para:
Ellert Ólafsson
— Kristján Jóhannesson 141
Guðmundur Magnússon
— Kári Sigurjónsson 89
Jón Magnússon
— Skjöldur Eyfjörð 86
Guðlaugur Nielsen
— Sveinn Kristjánsson 85
Flosi Ólafsson
— Sveinbjörn Kristinsson 72
Birgir Sigurðsson
— Sigurður Ólafsson 54
Ásgrímur Aðalsteinsson
— Kristinn Sölvason 53
Jón Sigtryggsson
— Skafti Björnsson 53
Næstu lotur verða spilaðar á
mánudag í Hreyfilshúsinu og
hefjast stundvíslega kl. 20.
Bridgefélag
Siglufjarðar
Mánudaginn 15. feb. var spiluð
síðasta umferð aðalsveitakeppni
félagsins. Leikar fóru þannig að
sveit Boga Sigurbjörnssonar
sigraði nokkuð örugglega. Aðrir
í sveit Boga voru Anton Sigur-
björnsson, Guðjón Pálsson og
Viðar Jónsson. Röð efstu sveita
varð sem hér segir:
Sveit stig
Boga Sigurbjörnssonar 94
Ara Más Þorkelssonar 76
Níelsar Friðbjörnssonar 75
Georgs Ragnarssonar 57
Valtýs Jónassonar 48
Næst á dagskrá félagsins er
fyrirtækjakeppni, sem verður
tveggja kvölda hraðsveita-
keppni. Síðan tekur við firma-
keppni félagsins, sem verður
þriggja kvölda einmennings-
keppni. Spilað er á mánudögum í
Sjálfstæðishúsinu. Áhugafólk
um bridge er hvatt til að vera
með.
Bridgefélag Rvíkur
Að loknum 23 umferðum í að-
altvímenningskeppni félagsins
hafa Jón og Símon ennþá örugga
forustu, en Ásmundur og Karl
tóku sprett upp í annað sæti.
Röð efstu para er annars þessi:
Jón Ásbjörnsson
— Símon Símonarson 323
Ásmundur Pálsson
— Karl Sigurhjartarson 266
Karl Logason
— Vigfús Pálsson 247
Guðlaugur Jóhannsson
— Örn Arnþórsson 237
Friðrik Guðmundsson
— Hreinn Hreinsson 224
Óli M. Guðmundsson
— Runólfur Pálsson 209
Hermann Lárusson
— Ólafur Lárusson 202
Næstu átta umferðir verða
spilaðar næstkomandi miðviku-
dag í Domus Medica kl. 19.30
stundvíslega.