Morgunblaðið - 21.02.1982, Síða 28

Morgunblaðið - 21.02.1982, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. FEBRÚAR 1982 Vorum aó taka upp fyrstu sendingar af vorvörum frá Cacharel og Vanli Önnumst kaup og sölu allra almennra veöskulda- bréfa og ennfremur vöruvíxla. Getum ávallt bætt viö kaúpendum á viðskiptaskrá okkar. Góö þjónusta. — Reyniö viöskiptin. Venlliréfa- AlaiiuMliiriim Lrltjntiirtji 12122 TIME MANAGER r TIMASKIPULAGNING Stjórnunarfélagið efnir til námskeiðs um Tímaskipulagningu og verður það haldið í Kristalsal Hótels Loftleiða dagana 1. og 2. mars kl. 08.30—18.00. Markmið námskeiðsins er að kenna þátttak- endum að: — nýta tíma sinn betur með tímaskipulagningu — spara 500 klst. árlega með betri timaskipulagn- ingu — ná betri árangri í starfi og einkalífi — skipuleggja eigin verkefni og annarra — að nota dagbókakerfi á árangursrikan hátt LMMMinandi: Ann* Bögalund-Jensan Námskeiðið er ætlað öllum sem hafa með höndum sjálfstætt starf hjá fyrirtækjum, stofnunum, bönkum eða félagasamtök- um. Allir þátttakendur fá á námskeiðinu vandaða dagbók, bók með leiðbeiningum um notkun hennar og bókina Me, my life, my time. Leiðbeinandi verður Anne Bögelund-Jensen aðalleiðbeinandi á námskeiðum Time Manager International í Danmörku og einn af stofnendum fyrirtækisins sem heldur þessi námskeið. Námskeiðið fer fram á ensku. NÝTTU HUGANN BETUR Nýttu hugann betur Stjórnunarfélagið heldur námskeið sem nefnist Nýttu hugann betur og verður það haldið að Hótel Esju dagana 3. og 4. marz kl. 08.30— 18.00 hvorn dag. Á námskeiðinu læra þátttakendur að: — þekkja eiginleika mannsheilans og mátt hans — að margfalda lestrarhraða sinn og öðlast meiri skilning á því sem lesið er og muna það — að vinna betur undir álagi — að temja sér skapandi hugsun og setja hug- myndir sínar fram á skipulegan hátt — að skrá minnispunkta á fundum og námskeið- um — að leysa verkefni skjótar og betur Námskeiðið er ætlað öllum sem þurfa að lesa mikið, skrifa skýrsl- ur og greinar, sitja oft fundi og þróa nýjar hugmyndir eða leysa ný verkeíni. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Anne Bögelund-Jensen, aðalleiðbeinandi á námskeiðum Time Manager International í Danmörku og einn af stofnendum fyrirtækisins sem heldur þessi námskeið. Námskeiðið fer fram á ensku. Þátttaka tilkynninst til Stjórnunarfélags íslands í síma 82930. ASUÓRNUNARFÉ1A6 ÍSLANDS SÍDUMÚLA 23 105 REYKJAVÍK SÍMI 82930 „Gamla IjóniniT ýtt til hliðar Með brottrekstri Nkomos er gatan greið fyrir eins flokks kerfi í Zimbabwe Joshua Nkomo, annar helsti leiðtogi svartra manna í hinu nýfrjálsa Zimbabwe, sem áður var Ródesía, virðist nú hafa beðið endanlegan ósigur fyrir keppinaut sínum, Robert Mugabe forsætis- ráðherra, í valdabaráttunni í land- inu. Nú fyrir nokkrum dögum vék Mugabe honum og þremur öðrum ráðherrum Zapu-flokksins, flokks Nkomos, úr samsteypustjórninni og gaf þeim að sök að þeir hefðu verið með byltingu í undirbúningi. Nkomo, sem jafnt fjandmenn hans og fylgismenn líta á sem upphafsmann að sjálfstæðisbar- áttu svartra manna í Zimbabwe, er af ættflokki Kalanga-manna og var nautahirðir í æsku. Hann hóf snemma afskipti af stjórn- málum og verkalýðsmálum og varð forystumaður Afríska þjóðarráðsins á sjötta áratugn- um, en það var fyrirrennari Zapu-flokks Nkomos og Zanu- flokksins, flokks Mugabes, sem sækir styrk sinn til Shona- fólksins, fjölmennasta aett- flokksins í Zimbabwe. Þegar Nkomo var í forsvari fyrir Afríska þjóðarráðinu, var Mugabe, sem er átta árum yngri, hans helsti samstarfs- maður. Saman börðust þeir gegn yfirráðum hvítra manna í land- inu, saman fóru þeir um sveit- irnar til að hvetja fólk til bar- áttu og saman sátu þeir í fang- elsum stjórnarinnar. Þrátt fyrir þetta greindi þá á um margt. Mugabe var maður miklu rótt- ækari í skoðunum en Nkomo og þar kom, árið 1963, að hann ásamt séra Ndabaningi Sithole klauf sig út úr Afríska þjóðar- ráðinu og stofnaði Zanu-f|okk- inn, sem átti strax miklu fylgi að fagna meðal róttækra æsku- manna. Það hefur „Gamla ljón- ið“, eins og Nkomo er oft kallað- ur, aldrei getað fyrirgefið Mug- abe. Nkomo var ekki aðeins hóf- samur í skoðunum heldur raun- sær líka og 1960 féllst hann á áætlun Breta um valdatöku svartra manna í áföngum með því að þiggja eitt af 15 fyrstu þingsætunum, sem þeim voru úthlutuð. Hann gætti sín þó á því að gerast ekki strengjabrúða hvíta minnihlutans og tvisvar sinnum var hann fangelsaður, einu sinni fyrir að slá lögreglu- foringja og í annað sinn fyrir undirróður. Hann, ásamt Mug- abe og öðrum leiðtogum svartra manna, var einnig hafður í gæsluvarðhaldi langtímum sam- an, tíu ár alls, þar til þeir voru látnir lausir 1974 til að taka þatt í stjórnarskrárviðræðunum. Þær viðræður fóru algerlega út um þúfur og það var þá sem skæruhernaðurinn í landinu hófst. Leiðtogum svertingja tókst ekki að ná samkomulagi sín á milli um forystu fyrir barátt- unni gegn stjórn Ian Smiths og háðu hana því hver í sínu lagi. E1 0 0 0 0 0 0 0 0 ECATERPILLAR SALA Sl LUÓNUSTA Caterpillar, Cat ogEeru skrásett vörumerki Nú höldum við Námskeið fyrir véla- og viögeröar- menn Caterpillar vinnu- véla. Dagana 10.—12. mars nk. Tilkynnið þátttöku. HEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími 21240 0 0 0 0 0 0 0 0 0 [hIIhIíhIIhIIhIIhIIhIIhIIhI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.