Morgunblaðið - 18.03.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 18. MARZ 1982
45
„Heimsku ljós-
inu í Garðabæ
GaberdínmenninKÍn
í blóma
GABERDÍNMENNING Ís-
lendinga stendur nú með
miklum blóma. Gaberdín-káp-
ur, kjólar og pils, hattar, frakk-
ar og alfatnaður. Allt úr gab-
erdíni.
Það er öllum runnið í merg og
bein að vilja ganga vel til fara
enda er sannarlega að því mikill
menningarauki. Það er líka
margt gott um tízkuna að segja,
hún er þó að minnasta kosti
skemmtiíeg tilbreyting. Og það
er ekki sök tízkukónganna, þó
að innhverfa manna hafi al-
mennt glatað fleiri séreinkenn-
um jafnframt því sem þeir hafa
sýnt meiri hugkvæmni í sniðum
og litavali og sundurgerð út-
hverfunnar þannig aukizt.
Allt úr gaberdíni
EN þetta með gaberdínið er
nokkuð öfgakennt. Á
skömmtunartímunum var hér
ægilegt gaberdínhungur, svo að
allar flíkur voru keyptar við
feiknarverði, aðeins ef efnið hét
gaberdín. Frá upphafi var
þannig ekki gerður á því megin-
greinarmunur, hvert hráefnið
var. Vígindin skiptu öllu máli.
Og svo þegar viðskiptin voru
gefin frjáls, var eins og opnað
væri fyrir ferlegar flóðgáttir.
Og árangurinn sézt á klæða-
burði fólksins. Þunnar gaberd-
ínflíkur í vetrarnæðingunum og
rigningunum, krypplaðri og
ótrúlegri en við eigum að venj-
ast um föt, því að það hefir ef
til vill lent baðmull í þá flík,
sem venjulega er úr ull eða ein-
hverju haldgóðu efni. Allt úr
gaberdíni.
Minni bilar og ódýrari
ELVAKANDI sæll. Ég
hefi oft verið að velta
því fyrir mér, hvers vegna ekki
gæti meiri hagsýni hjá atvinnu-
bílstjórum en raun ber vitni. Á
ég þar við, hvers vegna skipta-
vinum sé ekki gefinn kostur á
nema stórum bílum, þó að einn
maður þurfi að skreppa eitt-
hvað innanbæjar.
Ég hef heyrt marga hafa orð
á þessu, og hafa orðræður
manna alltaf verið á eina lund,
að sjálfsagt væri að gefa
mönnum völ á minni og ódýrari
leigubílum en nú er.
Það liggur líka í augum uppi,
hve mikil sóun það er á verð-
mætum, að ekki skuli reknir
aðrir stöðvarbílar en af þyngstu
og dýrustu gerð.
Egill“
Til Velvakanda.
Það er auðséð að Garðbæingar
hafa verið að koma sér upp ljósum
á Hafnarfjarðarveginum „stóra".
Alla vega kemur það aldrei fyrir
þegar ekið er um Hafnarfjarðar-
veg, að ekki þurfi að stanza við
þessi ljós. Já, það er skrítið að
rauða ljósið logi jafn lengi og það
græna, ef rauða ljósið logar þá
ekki bara lengur. Þau eru ekki fá
skiptin sem öll „bílastrollan" á
Hafnarfjarðarveginum er stopp á
meðan ekki sést bíll á Vífilsstaða-
veginum.
Skýringin á þessari vitleysu er
Þessir hringdu . . .
Þakkir til eigenda
og starfsfólks
verslunarinnar
Hólagarðs
6678-1836 hringdi og bað fyrir
eftirfarandi: „Mig langar til að
þakka eigendum og starfsfólki
verzlunarinnar Hólagarðs í
Breiðholti fyrir sérlega lipra og
góða þjónustu. Veikindi voru á
heimili mínu fyrir nokkru svo
óhægt var um aðdrætti. Ég
hringdi þá í verzlunina og þeir
buðust þegar til að senda mér
heim og var sendingin alltaf kom-
in í síðasta lagi um hádegið. Þótti
mér líka vænt um að sjá að fremur
var valin ódýrari tegund vöru,
vöru sem er ódýrari en ekki lakari
að gæðum, en oft vill það vera svo
að dýrari vara er valin þegar um
símapantanir er að ræða.“
Morgunvaka góö-
ur þáttur sem
ber alls ekki
að leggja niöur
Breiðholtsbúi hringdi og hafði
eftirfarandi að segja: „Ég er alveg
kannski sú, að verið sé að launa
Garðbæingum fyrir það að Hafn-
arfjarðarvegurinn var einmitt
breikkaður á þessum stað. Margir
muna það ef til vill ennþá hversu
reiðir sumir Garðbæingar voru er
þessi breikkun vegarins var
ákveðin.
Svona vitleysa á ekki að þekkj-
ast heldur skulu raunhæf sjón-
armið ráða tímalengd græna
ljóssins. Garðbæingar ættu að
taka sér til fyrirmyndar Ijósin í
Hafnarfirði sem eru mjög skyn-
samlega stillt.
Grétar Franksson
á öndverðum meiði við Laugar-
nesbúa sem leggur til að Morgun-
vaka verði lögð niður í Velvakanda
sl. þriðjudag því mér finnst þetta
ákaflega skemmtilegur þáttur.
Hann talar um að fá létta músík í
staðinn en mér finnst alveg nóg af
slíku í útvarpinu. Þá finnst mér
stjórnendur Morgunvöku vera
ákaflega gott útvarpsfólk og
standa vel fyrir sínu.“
því að hún fór að íslenskum lög-
um í talningu sinni við biskups-
kjör. Kjörnefnd leit svo á, að
flónska nokkurra háskólaborg-
ara, sem gert hafa sig að athlægi
frammi fyrir alþjóð, yrði ekki
notuð til að ákvarða túlkun ís-
lenskra laga.
Eðli heimsku;
handleiðsla Guðs
Heimska er ekki dyggð, jafnvel
þó þú teljir að svo sé. Þetta verð-
ur öllum ljóst, sem nenna að lesa
rógburð þinn. Þar tengir þú sam-
an forheimskun nokkurra há-
skólaborgara við biskupskjör og
veitingu Heimis fyrir Þingvöll-
um. Af þessu má ráða, að per-
sónuleiki þinn virðist klofinn.
Mér dettur ekki í hug, að kasta
rýrð á þá mætu og góðu menn,
sem sóttu um Þingvelli. Þeir eru
allir hæfir. Þegar þannig stendur
á, er val manna erfitt og þá leit-
um við handleiðslu Guðs.
Heimir var valinn. í því eigum
við að geta séð handleiðslu Guðs,
því það eru ófullkomnir menn
sem vinna verk hans á þessari
jörð. Þetta er öllum ljóst, sem
nenna að gá í kringum sig. Skipt-
ir þar engu, hvort starfsmaður-
inn er prestur, læknir, kennari
eða hann vinni í heilbrigðisstétt,
við götusópun eða sjómennsku.
Raunverulega er öll vinna sem
stuðlar að því að skapa fegurra
og betra mannlíf hér á jörðu,
þjónusta við Guð — guðsþjón-
usta.
Út frá þessari skoðun minni er
ekki óeðlilegt að álíta, að hand-
leiðslá Guðs hafí ráðið fyrir
okkur óvitrum mönnum og hann
hafi valið þann, sem hann vildi,
þegar hann forheimskaði svo
nokkra háskólaborgara, að þeir
voru ófærir um að kjósa utan-
kjörstaðaatkvæðagreiðslu í bisk-
upskjöri.
Þess vegna skora ég á þig að
láta af öllum rógburði, en treysta
handleiðslu Guðs og biðja hann
að taka þessar ranghugmyndir
burt úr huga þínum. Eg bið fyrir
þér og vona, að þú leitir til hans,
sem öllu ræður. Hann mun vissu-
lega vel fyrir sjá.
Virðingarfyllst,
Sigurður Arngrímsson
frá ísafirði.
Aths.
Það er ekkert sjálfsagðara en
birta þetta tilskrif, þótt orðljótt
sé. Munu vafalaust margir telja
að tungutakið sé ekki beinlínis í
kristilegum anda. En menn verða
að fá að koma til dyranna eins og
þeir eru klæddir. Mbl. sýndi sr.
Heimi fyrrnefnda grein, en það er
undantekning og sr. Heimir svar-
aði henni hógværlega og af fullri
kurteisi, enda hefur sr. Heimir
verið fær um það hingað til að
svara fyrir sig og þarf enga að-
stoðarmenn til þess. Látum við
svo útrætt um þetta og minnum
á, að sælir eru hógværir, og
ennfremur að sitt getur sýnst
hverjum án þess um „rógburð" sé
að ræða, hvað þá aðför að prent-
frelsi!
Til útianda
í sumar?
Feröakynning og kvikmyndasýn-
ing frá Lignano og litskyggnur frá
Sikiley og öörum sumarleyfisstöö-
um Útsýnar í ráðstefnusal Loft-
leiöahótelsins, fimmtudag 18.
marz kl. 20.30 og kl. 21.30.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill. Eftir
sýningarnar mun starfsfólk Útsýnar veita
upplýsingar um sumarleyfisferðir fyrir hópa
og einstaklinga.
Feróaskrifstofan
ÚTSÝN
Austurstræti 17,
símar 20100 og 26611.
EF ÞAÐER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU