Morgunblaðið - 21.03.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐID, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1982
51
STANDIÐ ÞIÐ
ÁTÍMAMÓTUM ?
BESTU ÓSKIR UM LÁNSAMA FRAMTÍÐ
Allir þeirsem standa á þeim merku tímamótum aö verda fjárráöa,
eöa gangi þeirí hjónaband
á því ári sem þeir hefja eöa Ijúka söfnun
geta fengiö alveg sérstakt plúslán: Tímamótalániö.
Mismunurinn ersá aö lánsfjárhæöin er50% hærri
en venjulegt plúslán.
Endurgreiöslutíminn lengist tilsvarandi.
Tímamótalán getur veriö verötryggt eöa ekki
skv. ákvöröun lántaka.
Er ekki Útvegsbankinn einmitt banki fyrir þig?
UTVEGSBANKANS
ÞÚ SAFNAR OG BANKINN BÆTIR VIÐ
Síðdegisblaðið
hefur göngu sína
Ólafsvík:
20 bátar lönd-
uðu 315 lestum
eftir nóttina
Ólafsvík 19. marz.
MIKIL vinna er í fiskvinnslu-
stöðvunum hér, því ágætur afli
hefur verið hjá netabtum síð-
ustu daga og í gær var mesti
afladagurinn til þessa, en þá
lönduðu 20 bátar 315 lestum eft-
ir nóttina. í dag eru allir bátar á
sjó í blíðskaparveðri og tveir
komnir að bryggju þegar þetta
er skrifað, Auðbjörg með um 24
lestir og Bervík með 16 lestir.
Helgi
Jón Óttar Kagnarsson
Erindi um
„Nítrit: bölvun
eða blessun“
I)R. JÓN Ottar Ragnarsson flytur
erindi í Manneldisfélagi íslands
þriðjudaginn 23. mars nk. er nefn-
ist: „Nítrit: bölvun eða blessun.“
Fjallar erindið m.a. um hugs-
anleg tengsl nítrits og krabba-
meins í maga. Fundurinn verður
í Lögbergi, stofu 101 kl. 8.30.
Brotist inn í
tvær verslanir
Brotist var inn í tvær verslan-
ir aðfaranótt föstudags. í öðru
tilvikinu var um að ræða Birki-
turninn við Birkimel og var stol-
ið þaðan 20 til 30 kartonum af
sígarettum. í hinu tilvikinu var
brotist inn í verslunina Músík
og sport við Reykjavíkurveg í
Hafnarfirði. Ekki var fullkann-
að í gær hversu miklu hefði ver-
ið stolið, en aðallega virtist þar
um skíðaútbúnað að ræða.
NÝTT vikublað, Síðdegisblaðið,
hefur hafið göngu sína. Eru það
Sóleyjarsamtökin sem standa að
útgáfu þess. Að sögn ritstjóra Síð-
degisblaðsins, Guttorms Sigurðs-
sonar, er ætlunin að gefa blaðið út
vikulega fyrst um sinn, en fjölga
síðan útgáfudögum eftir því sem
fjárráð leyfa. í upphafi verður upp-
lag blaðsins 700 eintök. Sökum
þess að fjármunir eru af skornum
skammti verður blaðið unnið í
sjálfboðavinnu. Og af sömu
ástæðu er búist við að það komi út
óregluleg í fyrstu.
Guttormur sagði að í blaðinu
yrði m.a. fjallað um þau málefni
sem Sóleyjarsamtökin hafa látið
til sín taka, s.s. á sviði atvinnul-
ífs og menningar.
Það kom einnig fram hjá
Guttormi að samtökin væru
engum stjórnmálaflokkum háð.
En þau berðust m.a. fyrir auk-
num áhrifum einstaklingsins á
stjórnun fyrirtækja.
Að lokum kvaðst Guttormur
vera bjartsýnn á að blaðið
mundi dafna vel þar sem þau
mál sem fjallað yrði um ættu
tvímælalaust erindi til fólks.
A myndinni eru aðstandendur Síðdegisblaðsins, til vinstri er Tryggvi Hansen
og ritstjórinn, Guttormur Sigurðsson, til hægri.
Óeining á
olíufundi
Vín, 19. marz. Al\
SAMKOMULAG náðist ekki á
fundi olíuráðherra OPEC í dag um
að minnka heildarframleiðsluna
tii að koma í veg fyrir verðhrun.
Sumir ráðherrarnir útilokuðu ekki
þann möguleika að samkomulag
næðist um helgina.
\SIMI\N KR:
22480
JMorflimblntnti
©
» * iTn •