Morgunblaðið - 21.03.1982, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.03.1982, Qupperneq 4
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1982 Ekki bara pólitík í Washington DC Það kemur ansi oft fyrir, að maður (íleymir því að Washintíton er ekki bara höfuðborK Bandaríkj- anna, full af pólitíkusum, þrýsti- hópum ok blaðamönnum, ráðu- neytum, minnismerkjum og veit- ingahúsum, heldur einnig heima- borg venjuiegs fólks sem stendur ekki á öndinni þótt Brezhnev flytji ræðu og lofi öllu fögru um SS-20. Að öilum líkindum veit það ekki hvað SS-20 er, og kemst vel af án þess. Það er helst þegar eitthvað átakanlegt hendir einhvern íbú- anna og Washington Post gerir því sæmileg skil, að maður rankar við sér og hugsar um fólkið sem einblínir ekki á Reagan daginn út og daginn inn. Réttarhöldin yfir Claus von Búl- ow í Newport, Rhode Island, vöktu athygli af því að hann er flugríkur og þau opnuðu dyrnar inn í heim „fína“ fólksins sem klæðist pelsum og étur pillur. Réttarhöldin yfir náungunum sem rændu MacDon- ald-hamborgarastað í norðaust- urhluta Washington í nótt og skutu starfsmann til bana munu ekki vekja sömu athygli. Kannski þeir náist ekki einu sinni. Furðu fáir munu velta því fyrir sér á morgun eða hinn. Fólk hefur meiri áhuga á að vita, hvaða dóm Nancy Kissinger hlýtur þegar hún kemur fyrir dómstólana í New Jersey í maí. Hún er ákærð fyrir að ráðast á konu sem var með dónaskap við Henry Kissinger, þegar hann var á leið í hjartauppskurð. Fólk vill ekki flækjast inn í mál annarra. Fyrir skömmu var nak- inni 19 ára stúlku, sem hafði verið nauðgað í Washington, í góðu hverfi skammt frá þinghúsinu, ekki einu sinni rétt hjálparhönd. Hún var á leið heim úr vinnu um miðnætti og þurfti að skipta um strætisvagn. Það var frost og snjór úti. Ungur maður kom upp að henni, ógnaði henni með hníf og skipaði henni að fylgja sér. Hann fór með hana inn í skóla- port, skipaði henni að fara úr föt- unum og nauðgaði henni. Síðan hafði hann sig á brott með föt stúlkunnar og peninga. Hún fann eitthvað til að hylja nekt sína að hluta til og leitaði hjálpar. Fyrst stöðvaði hún leigubíl. Leigubíl- stjórinn sagðist ekki geta tekið hana upp í fyrst hún hefði enga peninga. Hann glápti á hana en bauðst ekki til að hjálpa henni. Hún sá síðan ljós í glugga og bankaði upp á. Maður kom til dyra. Stúlkan sagði honum að sér hefði verið nauðgað, sér væri hræðilega kalt og bað hann um að hleypa sér inn. Hann benti henni á að hringja í lögregluna og settist aftur inn í stofu. Hún fann loksins almenningssíma og bað stúlkuna á símstöðinni að hringja í systur sína og láta hana borga símtalið. Það náðist í systurina og hún kom, en stúlkan á símstöðinni lét lög- regluna vita. Fórnardýrið ætlaði ekki að gera það. Henni fannst ekki taka því þar sem lögreglan gæti ekkert gert. Það reyndist rétt. Enginn hefur viljað veita lögregluþjóninum, sem hefur með málið að gera, neinar upplýsingar. Fólk vill ekki blanda sér í mál annarra. Sem betur fer er fólk ekki alltaf svona afskiptalaust þegar eitthvað mannlegt hendir í Washington. Fyrir skömmu var nýfætt stúlku- barn skilið eftir í ólæstum bíl í einu úthverfa borgarinnar. Hún var þegar flutt í sjúkrahús og náði sér fljótt, en líkamshitinn var orð- inn hættulega lár. Móðirin hefur ekki fundist enn. Barnið hlaut alla þá umhyggju sem nokkuð barn getur óskað sér í sjúkrahúsinu. Fólk sendi því fatnað og margir buðust til að ættleiða það og ein kona bauðst til að taka barnið og móðurina að sér. Um fjögur unga- börn finnast á ári í Montgomery County, sem er rétt norðvestan við Washington og er ein ríkasta sýsla Bandaríkjanna. Foreldranna er leitað í þrjá mánuði, en ef þeir finnast ekki, eru börnin gefin fóst- urforeldrum og þau ættleidd. Vonandi alast börnin upp við ást og umhyggju og verða góðir og gegnir borgarar. Miklar líkur eru á að þau fái snemma áhuga á því sem Bandaríkjamenn kalla fót- bolta. Það er heldur hrottalegur Washingtonbúar hafa vaxandi áhyggjur af afbrotamönnum. Hér hafa óeinkennisklæddir lögreglumenn gripið einn, sem gerði tilraun til bankaráns. « , j0Tui: Vorum aö fá sendingu af þessum vinsælu norsku arinofnum. Þeir sem eiga pantanir eru vinsamlega beönir aö staðfesta þær. GEísíPf SJÁVARRÉTTIR — SJÁVARRÉTTIR — SJÁVARRÉTTIR — SJÁVARRÉTTIR Sjávarréttakynning Gómsætir réttir Glærnýr fiskur Veitingahús Opiö til kl. 21.00 Nú er að mæta Laugavegi116, sími 10312. SJÁVARRÉTTIR — SJÁVARRÉTTIR — SJÁVARRÉTTIR — SJÁVARRÉTTIR Strásykurinn í gulu pökkunum sem pú notar ... í baksturinn, í kaffið, í teið, í matinn, á morgunmatinn, út á grautinn, út á skyrið. er fyrsta fflokks strásykur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.